Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Side 28
44
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995
Á toppnum
Lagið Engu er að kvíða úr söng-
leiknum Superstar situr í topp-
sæti íslenska listans þessa vik-
una. Það er söngkonan Guðrún
Gunnarsdóttir sem syngur lagið
en hún fer með hluverk Maríu
Magdalenu í söngleiknum. Guð-
rún hefur hlotið mikið lof fyrir
frammistöðu sína og hefur lagið
verið mikiö spilað á útvarps-
stöðvum að undanfómu. Lagið
var í 4. sæti í síðustu viku.
Nýtt
Lagið Tíðhnit úr Rocky Horr-
or kemur nýtt inn á listann þessa
vikuna og lendir í 7. sæti. Lagið
er flutt af fjölmörgum söngvur-
um sem fram koma á sýningunni
sem frumsýnd verður í Héðins-
húsinu þann 10. ágúst. Þess má
geta að þegar er orðið uppselt á
fyrstu sýninguna. Von er á plöt-
unni í verslanir innan tíðar.
Hástökk
Hástökk vikunnar er lagið
Keep on Moving með Bob Marley.
Lagið, sem er búið að vera í tvær
vikur á listanum, var í 35. sæti í
síðustu viku en er nú komið í 25.
sæti. Hér er á ferðinni endurút-
gáfa af gömlu lagi söngvarans og
verður spennandi að sjá hvort
þaö kemst ofar á listann á næstu
vikum.
Bono
Halleluujah
Bono, söngvari U2, hefur á und-
anfömiun misserum verið iðinn
við að koma fram á plötum með
hinum og þessum aðilum.
Nýjasta framlag hans á þessu
sviði er aö finna á plötunni Tower
of Song þar sem ýmsir aðilar
flytja lög Leonards Cohens hon-
um til heiðurs. Bono glímir við
hið þekkta lag Cohens, HaUeluu-
jah, á plötunni.
Wilder
óþarfur
Hljómsveitin Depeche Mode er
orðin að tríói eftir að Alan WUd-
er yfirgaf sveitina á dögunum.
Ástæðurnar fyrir brotthvarfi
WUders kváðu vera persónuleg-
ur ágreiningur við aðra liðsmenn
sveitarinnar og þá sérstaklega
Martin Gore, aðallagasmið
Depeche Mode. Það hlýtur síðan
að koma framan í WUder eins og
blaut borðtuska að'fyrrum félag-
ar hans segja enga þörf á að ráða
neinn í hans stað. ,
Margbrotinn
Flavor Flav
Allt gengur á afturfótunum hjá
hljómsveitinni Public Enemy
þessa dagana. Nú hefur sveitin
neyðst tU að fresta kveðjutónleik-
um sínum um óráðinn tíma
vegna þess að Flavor Flav, liðs-
maður sveitarinnar, afrekaði það
að handleggsbrjóta sig á báðum
handieggjum á mótorhjóli á ítal-
íu.
í/ b. Lí f | r J 11 11 r| j '• T "^y ^ j|| | éþ a iÁi i-_ <J a ti o <J - ie 'dj o <J <2
ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM TOPP 4ffl
G) 4 2 ••• 1VIKA NR. 1- ENGU ER AÐ KVÍÐA ÚR SUPERSTAR
O 6 14 3 ‘74-’75 CONNELS
3 1 7 3 A GIRL LIKE YOU EDWYN COLLINS
C3> 5 10 3 BOOM BOOM BOOM OUTHERE BROTHERS
o 12 - 2 VILLIDÝR SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
6 2 2 7 HOLD ME, THRILL ME, KISS ME, KILL ME U2
o 1 - NÝTTÁ LISTA - TÍÐHNIT ÚR ROCKY HORROR
NÝTT
8 3 1 4 IT'S OH SO QUIET BJÖRK
o 16 - 2 WATERFALLS TLC
10 9 24 3 SCATMAN'S WORLD SCATMAN JOHN
11 10 17 6 l'LL BE THERE FOR YOU THE REMBRANTS
G2> NÝTT 1 ALVEG ÆR SIXTIES
GD 21 - 2 SAY IT AINT SO WEEZER
14 14 22 6 ALL IT TAKES HANNE BOEL
15 7 3 4 SÖNGUR HERÓDESAR ÚR SUPERSTAR
Gfi) 18 20 4 SOMEWHERE SOMEHOW WET WET WET
Gj) 1 1ALONE LIVE
Gb> 26 - 2 SOMETHING FOR THE PAIN BON JOVI
G5) 23 - 2 SEARCH FOR THE HERO M PEOPLE
(3) 1 ALRIGHT SUPERGRASS
21 8 4 6 COME OUT AND PLAY OFFSPRING
22 11 5 9 THIS AIN'T A LOVE SONG BON JOVI
(3 1 IT'S IN HER KISS KIKITUP
(3 33 36 3 HOLD MY BODY TIGHT EAST 17
25 35 2 ™ HÁSTÖKK VJKUNNAR — KEEP ON MOVING BOB MARLEY
26 13 6 6 I DON'T BELIEVE YOU CIGARETTE
(3 29 - 2 BEST OF BYLTING
28 20 21 3 IN THE SUMMERTIME SHAGGY
29 17 8 9 SÖKNUÐUR SIXTIES
30 15 12 7 THINKOFYOU WHIGFIELD
GJ> 38 - 2 HERE FOR YOU FIREHOUSE
(3 1 NEVERFORGET TAKETHAT
33 19 | 9 8 END OF THE CENTURY BLUR
m NÝTT 1 KOMDU MEÐ GCD
1 EINHVERSTAÐAR EINHVERNTÍMAN NAFTUR MANNAKORN
G5) 37 39 3 ALL I WANT EKIN
37 24 15 6 FANNFERGI HUGANS SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
38 36 - 2 SHY GUY DIANA KING
Gs) 1 FUÚGANDI SNIGLABANDIÐ
Go> 1 DON'T MAKE ME WAIT LOVELAND
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn ersamvinnuverkefniBylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunarsem er framkvæmdaf markaðsdeild DVihverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 a sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt i vali"World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn.Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
írska hljómsveitin The Cran-
berries komst í hann krappan á
dögunum vestur í Washington.
Hljómsveitin ætlaði af góð-
mennsku sinni að bjóða aðdáend-
um sínum upp á gratístónleika og
var búist við að um það bil tvö
þúsund manns kæmu. Allt fór
svo úr böndunum þegar 15 þús-
und manns stormuðu á staðinn
og leist lögregluyfirvöldum ekk-
ert á málið. Á meðan hljómsveit-
in og yfirvöld þinguðu um hvað
gera skyldi missti skríllinn þol-
inmæðina og byrjaði að grýta
öllu lauslegu upp á sviðið. Var
gripið til þess ráðs að senda Cran-
berries á svið en eftir eitt og hálft
lag varð ljóst að það dugði ekki
til að blíðka lýðinn og flúði sveit-
in af sviðinu. Óeirðalögregla sá
svo um að dreifa mannfiöldan-
um.
Courtney
Love beitt
kynjamis-
rétti?
Courtney Love er öskureið
þessa dagana og það ekki í fyrsta
sinn. Ástæðan að þessu sinni er
meint kynjamisrétti lögreglunn-
ar í Cincinatti í Bandaríkjunum.
Þar var hljómsveit Love, Hole, á
Lollapalooza tónleikaferð ásamt
fleiri sveitum; þar á meðal Jesus
Lizard. David Yow, söngvari
þeirrar ágætu sveitar, er þekkt-
ur fyrir að vera frekar lausgyrt-
ur á sviði og veifaði öllum skönk-
um, óspart að þessu sinni. Sið-
samir lögreglumenn á staðnum
handtóku kappann eftir tónleik-
ana fyrir athæfið og kærðu hann.
Love fannst þetta hið argasta
óréttlæti að menn mættu ekki
sýna það sem þeim sýndist á tón-
leikum og þegar Hole fór á svið
krafðist hún þess að Yow yrði
sleppt. Máli sínu til áréttingar og
til að sýna Yow stuðning sýndi
hún áhorfendum að hún hefði
ekkert að fela undir kjólnum sín-
um. Lögreglan lét sér hins vegar
fátt mn finnast og gerði engar til-
raunir tfl að handtaka Love fyr-
ir athæfið. Kallar hún þetta
kynjamisrétti af grófasta tagi og
fer hörðum orðum um lögregluna
í Cincinatti.
Plötufréttir
Þrátt fyrir að Public Enemy sé
að hætta tónleikahaldi og talsverð
óánægja sé grasserandi innan
sveitarinnar hefúr Def Jam útgáf-
an tflkynnt að ný plata með sveit-
inni verði gefin út á næsta ári...
Tindersticks ætlar að afreka mik-
ið á næsta ári því ekki færri en
þrjár plötur eru í bígerð hjá sveit-
inni. Tónleikaplata er í vinnslu og
kemur út i haust, svoköUuð EP
plata kemur út í lok ársins og loks
er safnplata með gömlu efni sveit-
arinnar í vinnslu ...
-SþS-
4