Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Qupperneq 39
FÖSTUDAGUR 4. ÁGUST 1995
55
Afmæli
Birkir Angantýsson
Guömar Birkir Angantýsson,
múrarameistari og starfsmaður
Sauðárkróksbæjar, Sæmun'dargötu
15, Sauðárkróki, verður íimmtugur
á morgun.
Starfsferill
Birkir er fæddur í Kópavogi en
ólst upp á Sauðárkróki en fyrsta
heimili hans var þó í Málmey á
Skagafirði. Hann tók gagnfræðapróf
á Sauðárkróki og var í iðnskóla þar
og í Keflavík. Birkir, sem nam
múraraiðn á Suðurnesjum, fékk
meistarabréf1973 en meistari hans
var Óskar Guðjónsson.
Birkir, sem bjó í Sandgerði í 15 ár,
hefur setið nokkur þing Meistara-
sambands byggingamanna og starf-
að í 5 ár í Kiwanisklúbbnum Drang-
ey á Sauðárkróki. Hann hefur feng-
ist viö ritstörf, ljóðagerð og kveð-
skap og samið lög og texta sem flutt-
ir hafa verið á árshátíðum.
Fjölskylda
Birkir kvæntist 11.9.1966 Hafdísi
Guðnadóttur, f. 23.10.1944, húsmóð-
ur. Foreldrar hennar: Guðni Ágúst
Guðjónsson og Sesselja Júníusdótt-
ir, þau eru bæði látin, þau bjuggu í
SæbóliíSandgerði.
Börn Birkis og Hafdísar: Elínóra
Bára, f. 4.9.1965, bóndi, hún á fjögur
börn, sambýlismaður hennar er
Böðvar F. Sigurðsson bóndi, þau eru
búsett á Brunastöðum í Lýtings-
staðahreppi; Atli Heimir, f. 16.6.
1968, þungavinnuvélstjóri; Jón Hall-
ur, f. 10.8., 1970, sérhæfður fisk-
vinnslumaður; Birgitta Sóley, f. 10.6.
1972, fiskvinnslumaður, búsett á
Grundarfirði, sambýlismaður
hennar er Tryggvi Svansson, þau
eigaeittbarn.
Systkini Birkis: Lára Salome, f.
Guðmar Birkir Angantýsson.
25.1.1938; Sigurgeir, f. 12.4.1939;
Anton Jón Ingvar, f. 25.6.1940; Sig-
rún Stefanía Ingibjörg, f. 18.7.1943;
María Kristjana, f. 8.11.1948; Matt-
hias Hafþór, f. 1.6.1952; drengur
(Lilli), f. 26.10.1953, d. 5.11.1953; Sig-
urlaug Sæunn, f. 14.5.1958.
Foreldrar Birkis: Angantýr Elínór
Jónsson, f. 16.8.1910, d. 23.9.1982,
og Björg Dagmar Bára Jónsdóttir,
f. 19.11.1919, d. 16.8.1987.
____________________________Fréttir
Miðfjarðará:
140 laxar núna
46 laxar í fyrra
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið kl. 20.30.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
Fimmtud. 10/8, fáein sæti laus, föstud. 11 /8,
fáein sæti laus, laugard. 12/8, uppselt,
fimmtud. 17/8, föstud. 18/8, laud. 19/8.
Miðasalan verður lokuð um verslun-
armannahelgina, laugardag, sunnu-
dag og mánudag.
Miðasalan er opin alla daga
nema sunnudaga, frá kl. 15-20
og sýningardaga til kl. 20.30.
Tekið er á móti miðapöntunum i sima
568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Ósóttar miðapantanir seldar sýning-
ardagana.
Gjafakort - frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Safnaöarstarf
Föstudagur
Hallgrímskirkja: Orgeltónlist kl.
12-12.30 á laugardag. Douglas A. Brotchie
leikur.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta í Há-
túni lOb laugardag kl. 11.00.
Friörikskapella: Kyrrðarstund í hádegi á
mánudag. Léttur málsverður í gamla fé-
lagsheimilinu að stundinni lokinni.
Seltjarnarneskirkja: Fundur í æsku-
lýðsfélaginu á sunnudag kl. 20.30.
„Fyrsta maðkahollið eftir útlendinga
veiddi 140 laxa núna en í fyrra á þess-
um sama tíma veiddust 46 laxar í
hollinu. Samt voru alls ekki góðar
aðstæður við árnar, hrikalega hvasst
næstum allan tímann," sagði Gunnar
Gunnarsson en hann var að koma
úr Miðfjaröará í fyrradag.
„Það eru komnir 510-520 laxar á
land og besta stöngin í hollinu var
Veiðimenn sem voru að koma úr
Eyjafjarðará sögðu að bleikjan væri
að koma á staðinn en mikil sílagengd
í Eyjafirðinum tefði för hennar upp
í ána. Vænar bleikjur hafa veiðst en
þær mættu vera fleiri.
„Það er komið mikið af bleikju í
Fnjóská og hún er væn, þær stærstu
eru kringum 4 pund,“ sagði Eiríkur
Sveinsson á Ákureyri.
með 25 laxa, næsta með 24 laxa og
svo 18 laxa. Efri Vesturáin var lang-
best en neðri Vesturáin var slöpp-
ust,“ sagði Gunnar í lokin.
Hítará hefur gefið
fleiri laxa en í fyrra
„Hítará hefur gefið 230 laxa núna
en í fyrra gaf áin 225 laxa allt sumar-
ið,“ sagði Steinar Friðgeirsson er við
spurðum um Hítárá á Mýrum en
veiðin hefur verið mjög góð þar síð-
ustu daga.
„Ég held að áin fari yfir 400 laxa
enda hefur verið hörkuveiði síðustu
daga,“ sagði Steinar enn fremur.
-G.Bender
Tilkyimingar
Prestsvígsla í Dómkirkjunni
Sunnudaginn 6. ágúst kl. 10.30 verður
prestsvígsla í Dómkirkjunni. Vígð verður
til Seyðisfjarðarprestakalls Kristin Páls-
dóttir guðfræðikandídat. Vígsluvottar
veröa séra Bjarni Þór Bjarnason, Séra
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, séra Jakob Ág-
úst Hjálmarsson, sem þjónar fyrir altari
ásamt biskupi íslands, og séra Kristján
Róbertsson, fráfarandi sóknarprestur á
Seyðisfirði sem lýsir vígslu.
Ný hársnyrtistofa
Ný hársnyrtistofa, Salon Bezt, hefur tek-
ið til starfa aö Laugavegi 45a, Reykjavík,
2. hæð. Eigandi stofunnar er Ása Bald-
vinsdóttir og starfa þar Eyjólfur Magnús-
son hársnyrtimeistari, Ástrid Boysen
hársnyrtir og Guðrún Elsa Kristjánsdótt-
ir hársnyrtinemi.
Fjölskyldu- og húsdýra-
garðurinn
verður opinn um verslunarmannahelg-
ina kl. 10-18. Boðiö verður upp á bátsferð-
ir á tjörninni og Hrói hrakfallabálkur
kemur í heimsókn bæði á laugardag og
sunnudag en á mánudaginn kemur
Brúðubíllinn í heimsókn kl. 15.
í Húsdýragarðinum verður hægt að fylgj-
ast með þegar dýrum er gefið og þegar
kýrnar eru mjólkaðar í fjósinu kl. 17.30.
Þriðjudagur 8. ágúst
Dómkirkjan: Mömmumorgunn í safnað-
arheimilinu, Lækjargötu 14a, kl. 10-12.
Fella- og Hólakirkja: Mömmumorgunn
miðvikudag kl. 10.
Hallgrímskirkja: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Aftan-
söngur kl. 18.00. Vesper.
Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Tapað fundiö
Tölvuúr tapaðist í
Kringlunni
Á miðvikudaginn sl„ milli kl. 12.30 og
12.45, tapaðist Casio tölvuúr með tölvu-
reikni viö Pizza Hut, Hard Rock eða þar
á milli. Finnandi vinsamlega hringi í
síma 434 1428.
Gleraugu fundust
Gleraugu í svörtu hulstri fundust í fjör-
unni neðan við golfvöllinn í Mosfellsbæ.
Upplýsingar gefur Ólafur í s. 515 1240.
Vitni óskast
Brotist var inn í rauðan Opel Astra stati-
onbíl við Hæðargarð í Bústaðahverfi að-
faranótt fimmtudagsins sl. Úr bílnum var
tekið útvarpstæki með geislaspilara,
ferðageislaspilári, radarvari og sígarettu-
kveikjari. Enginn getur notað útvarpið
því það er tengt þjófavöm. Ef einhver
getur gefið upplýsingar um málið er sá
vinsamlega beöinn að hafa samband við
lögregluna.
Peysa fannst á
Hveravöllum
Ferskjulit, hneppt peysa á 3-4 ára fannst
á Kili, í nágrenni Hveravalla. Upplýs-
ingar í síma 8541193.
Veski tapaðist
Grábrúnt Búnaðarbankaveski með skil-
ríkjum tapaöist á miðvikudaginn sl.
Finnandi vinsamlega hringi í s. 587 4225.
Vindjakki tapaðist
Dökkblár vindjakki tapaðist í síðustu
viku í Fossvogi. Finnandi vinsamlega
hringi í s. 557 6832. Fundarlaun.
Veiðin hefur verið góð í Hítará og eru komnir 230 laxar á land en þau
Yvonne Hannan og Oddur Steinarsson leiðsögumaður eru með iax sem
veiddist á flugu við ána í fyrradag. DV-mynd Steinar Friðgeirsson
Bleikjan að koma á svæðið
Allt í veiðiferðina < Beitan í veiðiferðina: , Makríll - laxahrogn - maðkur - sandsíli 4 l /
^ Laugavegi 178, símar: 551 6770 og 581 4455
AÍllH
Kk sa: 11 Ml m
ifin~
904-1700
Verö aðeins 39,90 mín
Fótbolti
. 2 [ Handbolti
31 Körfubolti
4| Enski boltinn
5[ ítalski boltinn
61 Þýski boltinn
7 [ Önnur úrslit
8i NBA-deildin
dj Vikutilboö
stórmarkaðanna
2J Uppskriftir
' lj Læknavaktin
21 Apótek
3 [ Gengi
11 Dagskrá Sjónvarps
2) Dagskrá Stöövar 2
3J Dagskrá rásar 1
41 Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5j Myndbandagagnrýni
JSJ ísl. listinn
-topp 40
7j Tónlistargagnrýni
8j Nýjustu myndböndin
«5 ~~í f
1 j Krár
2] Dansstaðir
31Leikhús
4j Leikhúsgagnrýni
I Bíó
6j Kvikmyndagagnrýni
wmMáMMmm
1} Lottó
: 2 [ Víkingalottó
Getraunir
mmií
l#ÍÍIÍfl,
904-1700
Verö aöeins 39,90 mín.