Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Page 12
12
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
Erlend bóksjá
Metsölukiljur
DV
Raðmorðingi
ennáný
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Tom Clancy:
Debt of Honour.
2. Anais Nin:
A Model.
3. Patricía D. Cornwell:
The Body Farm.
4. Danielle Steel:
Accídent.
5. Oscar Wilde:
The Happy Prince.
6. Maeve Binchy:
The Glass Lake.
7. Italo Calvino:
Ten Italian Folk Tales.
8. Gabriel Garcia Marquez:
Bon Voyage, Mr. President.
Q Antnn
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Patricia Cornwell:
The Body Farm.
2. Celeb Carr:
The Alienist.
3. Tom Clancy:
Debt of Honor.
4. Carol Shields:
The Stone Diaries.
6. Barbara Taylor Bradford:
Everything to Gain.
6. John Grisham:
The Chamber.
7. Nora Roberts:
Born m lce.
8. Jude Deveraux:
Remembrance.
9. Peter Benchley:
White Shark.
10. Frederick Forsyth:
The Fist of God.
11. Chatherine Coulter:
The Nightingale Legacy.
12. John Saul:
The Homing.
13. Mary Higgins Ctark:
Remember Me.
14. John T. Lescroart:
The 13th Juror.
15. Meave Binchy:
Circle of Friends.
Rít almenns eðlis:
1. Richard Preston:
The Hot Zone.
2. J. Lovell 8i J. Kluger:
Apollo 13.
2. Mary Pipher:
Reviving Ophelia.
4. Thomas Moore:
Care of the Soul.
5. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
6. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Light.
7. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird
Sings,
8. Bailey White:
Mama Makes up Her Mind.
9. Delany, Delany & Hearth:
Having Qur Say.
10. M. Knox & M. Walker:
The Private Diary of an O.J.
Juror.
11. Hope Edelman:
Motherless Daughters.
12. Nicholas Dawidoff:
The Catcher Was a Spy.
13. Thomas Moore:
Soul Mates.
14. Christopher Ogden:
Life of the Party.
15. Laurence Leamer:
The Kennedy Women.
(Byggt á New York Tímes Book Review)
Allt frá því sá ógeðslegi þrjótur
Hannibal Lecter sló í gegn, fyrst í
skáldsögunni The Silence of the
Lambs eftir Thomas Harris og svo í
samnefndri kvikmynd, hafa blóðug-
ar spennusögur um raðmorðinga
veriö eftirsóttar vestan hafs sem
austan. Það á við um sakamálasögur
Patriciu Cornwell en nýjasta papp-
írskiljan hennar - The Body Farm -
ílaug snarlega í efsta sæti metsölu-
listanna. bæði í Bandaríkjunum og
Bretlandi.
Patricia Cornwell er 38 ára að aldri,
fædd í Miami í Bandaríkjunum en
alin upp í Norður-Karólínuríki þar
sem þessi nýjasta skáldsaga hennar
gerist að verulegu ieyti. Hún gekk
menntaveginn á heimaslóðum en fór
svo út í blaðamennsku. Henni var í
upphafi falið að sinna lögreglufrétt-
um og þar með hófust þau kynni
hennar af löggæslu og afbrotum sem
brátt áttu hug hennar allan og urðu
henni tilefni til að skrifa sakamála-
sögur.
Sló ígegn árið 1990
Patricia var svo hrifm af barátt-
unni gegn alvarlegum glæpum að
hún starfaði með lögreglunni um
árabil sem sjálfboðaliöi. Svo fékk
hún vinnu hjá embætti líkskoðarans
í Richmond, höfuðborg Virginiu-
ríkis, og kynntist þá náið aðferðum
lækna við að skoða lík fórnarlamba
ofbeldisglæpa í leit að sönnunar-
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
gögnum. Sú sérfræði einkennir mjög
sögur hennar þar sem gjarnan er
lýst í smáatriðum hvernig gramsað
er í líkum manna.
Þegar Patricia fór að semja saka-
málasögur hélt hún sig fyrst við hefð-
bundnar formúlur enskra spennu-
sagna; samdi þrjár slíkar en fékk
enga þeirra útgefna.
Smám saman hallaðist hún að því
að fara inn á þá braut hörkulegs
raunsæis sem einkennir útgefnar
sögur hennar. Sú fyrsta, sem skrifuð
var í þeim stíl, heitir Post Mortem
og kom út árið 1990 og sló í gegn;
fékk m.a. fern verðlaun í Bandaríkj-
unum og Bretlandi.
Scarpetta kemur
til bjargar
Næstu sögur Patriciu juku enn vin-
sældir hennar: Body of Evidence,
All That Remains, Cruel & Unusual
og The Body Farm, enda er hún nú
orðin forrík, hefur íjölda manns í
þjónustu sinni og er jafnvel búin að
stofna sérstakt kvikmyndafyrirtæki
til að koma sögunum á hvíta tjaldið.
í þessari nýjustu bók, eins og hin-
um fyrri, er höfuðpersónan fertug
kona, dr. Kay Scarpetta, líkskoðari í
Richmond, sem tekur þátt í að leysa
óhugnanleg morð með sérfræði
sinni. Að þessu sinni hefst leitin með
iíki ellefu ára gamallar telpu sem
finnst myrt á víðavangi.
Frásögnin er óneitanlega hröð og
spennandi þótt niðurstaðan komi
reyndar ekki svo mjög á óvart. Lýs-
ingarnar eru á stundum harla nær-
göngular, eins og gjarnan í þessari
tegund spennusagna, og ekki fyrir
þá sem vilja lesa um blóðlaus mann-
dráp a la Agatha Christie.
THE BODY FARM.
Höfundur: Patrlcla Cornwell.
Berkley Books, 1995.
The Black Monk.
10. Patricia Highsmith:
Little Tales of Misogyny.
Rit almenns eðlis:
1. Elizabeth David:
l'll Be with You in the
Squeezing of a Lemon.
2. Sigmund Freud:
Five Lectures on
Psycho-Analysis.
3. Marcus Aurelius:
Meditations.
4. Albert Camus:
Summer.
5. Virginia Woolf:
Killing the Angel in the House.
6. James Herriot:
Seven Yorkshire Tales.
7. Kahlil Gibran:
Prophet, Madman, Wanderer.
8. Paui Theroux:
Ðown the Yangtze.
9. Bíll Bryson:
Made in America.
10. Spike Milligan:
Gunner Milligan 954024.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
1. Lise Norgaard:
Kun en pige.
2. Joanna Trollope:
Den spanske elsker.
3. Jostein Gaarder:
Sofies verden.
4. Bao Ninh
Krigens sorg.
5. Lone Kuhlmann:
Lev selv.
6. Jung Chang:
Vilde svaner.
7. Guneli Gún:
Pá vejen til Bagdad.
(Byggt á Politiken Sondag)
Vísindi
Mænuskaði ekki eins
endanlegur og talið var
í framtíðinni verður kannski hægt að takiparka eða laga skaða sem fólk
verður fyrir á mænu, eins og leikarinn Christopher Reeve.
Eldingar lífs-
nauðsynlegar
Efnafræðingurinn Pud Franz-
blau hefur komist að því að eld-
ingar eru bráönauðsynlegur hluti
lífs á jörðinni.
Plöntur, sem nota köfnunarefn-
isatóm til að búa tíl prótin, geta
ekki notáö köfnunarefnið eins og
það kemur fyrir í náttúrunni.
Köfnunarefnismólekúl í loftinu
fyrirfmnast tvö og tvö saman og
geta plöntur ekki rofiö tengsl
þeírra. Margar bakteríur í jarð-
veginum brjóta köfnunarefnið
hins vegar niöur í nýtanlegt form
og vitað var að eldingar gerðu
slíkt hið sama.
Franzblau hefur komist að því
að eldingar eru stórtækari en
bakteríurnar. Áður var talið að
eldingar framleiddu 10 milljón
tonn af nýtanlegu köfnunarefni
en Franzblau telur það vera millj-
arö tonna.
Risalindýr við
suðurskaut
Risalindýr fóru i fríðum flokk-
um um úthöfm í 350 milljón ár
eða þar tilþau þurrkuöust út með
risaeðlunum fyrir 65 miUjónum
ára. Nýlega fannst steingervt ein-
tak af einu slíku dýri á eyju und-
an Suðurskautslandinu, hið
stærsta sinnar tegundar. Dýrið
er hvorki meira né minna en tólf
feta langt jiegar búið er að rétta
úr því.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Nýjar rannsóknir vísindamanna
benda til þess að mænuskaði sé
kannski ekki jafn endanlegur og
hingaö til hefur verið talið. Visinda-
menn segja hugsanlegt að hægt verði
að draga úr eða jafnvef laga skaða á
mænu ef nógu snemma er gripið inn
í, sérstaklega í því augnamiöi aö tak-
marka meiðsli sem eru fylgifiskar
upphaflega skaðans.
Vísindamennirnir hafa þó þann
varann á að mörg ár geti liðið áöur
en hægt verður að beita uppgötvun-
um þeirra á manninn. En þeir telja
að rannsóknir þeirra gefl von um að
hægt verði að rjúfa keðju lömunar
og fótlunar sem svipta svo marga
einstaklinga hreyfigetu sinni á
hverju ári.
„Viö erum farnir að átta okkur
betur á mænuskaða og svo virðist
sem þessi meiðsl séu ekki jafnendan-
leg og okkur virtist fyrir bara nokkr-
um árum,“ segir Rick B. Delamarter,
skurðlæknir við læknadeild Kalifor-
níuháskóla í Los Angeles. „Sífellt
fleiri vísbendingar eru um að hugs-
anlega sé hægt að draga úr mænu-
skaðanum ef gripið er til aðgerða
íljótt og þar eru hugsanlega nokkrar
klukkustundir upp á að hlaupa."
Delamarter og félagar hans birtu
nýlega grein þar sem þeir sögðu frá
tilraunum sínum með mænuskadd-
aða hunda. Svo virðist sem umtals-
verður bati hafi náðst ef þrýstingi
var létt af mænu hundanna innan
klukkustundar eftir að þeir urðu fyr-
ir skaðanum.
Aðrir hópar vísindamanna hafa
einnig skýrt frá auknum skilningi á
þeirri lífefnafræðilegu keðjuverkun
sem veldur fylgikvillunum og haml-
ar lækningu skaða á heila og mænu.
Verið er að reyna nokkur lyf sem
eiga að vernda gegn þessUm fylgi-
kvillum.
John D. Steeves, prófessor í tauga-
líffræði við háskólann í Bresku Kól-
umbíu í Kanada, segir að hópur sinn
sé að vinna með „prótínablöndu"
sem örvar endurnýjun taugasíma í
sködduðum mænum á kjúklingum.
Prótínin koma tímabundið í veg fyrir
myndun mýelíns, verndarsliðurs ut-
an um eðlilega taugaþræði, sem virð-
ist einnig hamla nýjan vöxt tauga og
taugasíma.
Steeves segir að enn sé of snemmt
að gera svipaðar tilraunir á mönnum
en rannsóknir sínar bendi til að
þarna sé enn eitt svið þar sem lækn-
ar kunni einhvern tíma að grípa inn
í það flókna fyrirbæri sem tauga-
frumuskaði og viðgerðir eru.
Nýjarmæl-
ingar á gíg
Nýjar mælingar á gíg undan
ströndum Yucatan-skagans í
Mexíkó, sem myndaðist annað-
hvort við árekstur halasfjörnu
eða smástirnis og jarðarinnar
fyrir 65 milljónum ára, áætla að
hann sé úm 175kílómetrar í þver-
mál.
Stærö gígsins skiptir miklu
máli þegar meta á orkuna sem
leystist úr læöingi við árekstur-
inn. Lausagrjót, sem þyrlaöist
upp við áreksturinn, þakti alla
jörðina. Þykkast var það við gíg-
inn sjálfan eða um 400 metrar.
Sumir vfsindamenn telja- að
rykið í andrúmsloftinu hafi vald-
ið loftslagsbreytingum sem or-
sökuðu dauða í lífríkinu, þar á
meðal útrýmingu risaeðlanna.
Sojabaunir
á táfýluna
Táfýia getur verið ansi hvim-
leíð, bæði þeim sem gefa hana frá
sér og ekki síður hinum sem
þurfa að þöla hana. Japanskt líf-
tæknifyrirtæki hefúr nú fundið
upp ráð við bráðri táfýlu og sett
á markað. Undraefnið byggir á
illa þefjandi og gerjandi soja-
baunum, nánar tiltekið bakter-
ium sem í þeim eru. Gerjandi
sojabaunir eru vinsælar sem
morgunverður í Japan.
Bakteríunni er blandaö saman
viö sag, hrísgrjónaklíð og úr
þessu er u búnar til þunnar plötur
sem séttar eru í skó. Önnur efni
í blöndunni varðveita bakteríuna
þar til hiti og raki fótarins lífgár
hana viö og hún eyðir táfýlunni
vondu.