Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
Dagur í lífí Sigurðar Sigurjónssonar leikara:
Ég vaknaöi um sexleytiö þennan
mánudagsmorgun uppi á Gemlu-
fellsheiði, í rútu á leiö til Bolungar-
víkur. Við Spaugstofumenn vorum
að koma frá Patreksfirði þar sem
hafði verið mikil skemmtun í tilefni
tíu ára afmælis okkar. Við vorum
ljómandi ánægðir með hinar frá-
bæru móttökur sem við fengum þar.
Síðan skröltum við alla nóttina yfir
fjallgarðana á leið til Bolungarvíkur.
Við vorum dauðþreyttir og fórum því
beint inn á gistiheimilið og ætluðum
að reyna að sofa til hádegis.
Sonur staðarins
meó í ferð
Það var gaman að koma til Bolung-
arvíkur erida sonur staðarins einn
af okkur, Pálmi Gestsson. Við feng-
um því fínar móttökur og Pálmi var
hrókur alls fagnaöar. Við elduðum
okkur pylsur í hádeginu áður en
haldið var í félagsheimilið þar sem
við þurftum að setja upp leikmynd-
ina og gera lýsingu klára fyrir kvöld-
ið.
Um þrjúleytið áttum við smáhlé og
notuðum tækifærið til að fara og
skoða verbúðina í Ósvör þar sem
Geir Guðmundsson útskýrði fyrir
okkur allt um sjósókn fyrri ára. Við
höfðum af því mikla skemmtun og
var unun á að hlýða. Ég vil endilega
hvetja alla sem þarna eiga leið um
að koma við hjá Geir og fá hjá honum
fróðleik. Þarna stöldruðum við í á
annan tíma en þegar því var lokið
fórum við niður á bensínstöð og
skemmtum nokkrum krökkum sem
þar voru.
Þegar fór að halla að sýningu fór
fiðringur um okkur og við veltum
fyrir okkur hvort aðsóknin yrði góð
sem við höfum verið að þróa og fengu
frábærar móttökur.
Þegar sýningunni lauk um hálftólf-
leytið fórum við úr búningunum og
í aðra búninga til að rífa niður ljós-
kastara og tína saman dótið og bera
út í rútu. Einnig þurftum við að skila
þessum stólum sem við fengum lán-
aða.
Sigurður Sigurjónsson leikari ferðast nú um landið með félögum sínum úr Spaugstofunni í tilefni tíu ára afmælis
hennar.
um kvöldiö. Við fengum okkur líka
að borða, pitsu, í gistiheimilinu. Þar
sem þetta hálfsmánaðar ferðalag
okkar er bæði erfitt og krefjandi
höfðum við ákveðið að borða bara
hollan mat en það hittist þannig á
þennan dag að við létum freistast.
Einnig reynum við að sofa eins mik-
ið og við getum til að fá hvíld og ef
sundlaug er í grenndinni leggjum við
okkur í líma að komast í hana.
Um áttaleytið var síðan stormað
upp í félagsheimili þar sem við
klæddum okkur í búninga og gerðum
allt klárt fyrir sýninguna sem stend-
ur yfir í rúma tvo tíma. Það kom í
ljós, okkur til mikillar ánægju, að
löng biðröð hafði myndast fyrir utan
félagsheimilið. Við gátum ekki byrj-
að sýningu fyrr en kortér yfir niu
þar sem finna þurfti fleiri stóla svo
að allir kæmust að.
Við fengum feikilega góðar viðtök-
ur þetta kvöld og ekki skemmdi fyrir
að Pálmi átti salinn. Við lékum hins
vegar svolítið á hann. í einu atriðinu
átti Öm að koma inn á svið til Pálma
en við sendum bílstjórann okkar,
Halldór Úlfarsson, í staöinn. Þaö var
ekki að sökum aö spyija að sá lék
hlutverkið eins og alvanur og nú bíð-
um viö eftir að sjá Örn undir stýri á
rútunni. Gamlir karakterar, eins og
Ragnar Reykás og Kristján „heiti
ég“ Ólafsson, komu að sjálfsögðu lít-
illega við sögu en einnig nýir aðilar
Einangrað líf
Við vorum ekki komnir á gisti-
heimihð fyrr en um tvöleytið um
nóttina og þá þurfti að undirbúa
næsta dag því við áttum að sýna í
Hnífsdal og á ísafirði. Þannig verður
líf okkar Spaugstofumanna næsta
hálfa mánuöinn og hvert kvöld
skipulagt. Á laugardag, þegar þetta
birtist, verðum við komnir norður
og munum þar heimsækja Siglufjörð,
Ólafsfjörð, Akureyri og svo framveg-
is hringinn í kringum landið. Þegar
komið verður til höfuðborgarinnar á
nýjan leik munum við reyna að vera
með nokkrar sýningar þar. Rútan er
því heimili okkar þessa dagana og
oft erum viö að keyra fimm til sex
tíma á dag.
Venjulega reyni ég að hringja heim
til fjölskyldunnar til að láta vita af
mér en hafði engan tíma til þess
þennan dag vegna anna. Ég lifi því
mjög einangruðum heimi þessa dag-
ana en ballið er bara rétt að byija.
Þetta er þriðja skiptið sem Spaugstof-
an, ég, Pálmi, Óm Árnason, Karl
Ágúst Úlfsson og Randver Þorláks-
son, förum um landið. Auk þess eru
með okkur í ferðinni nú sem fyrr
undirleikarar og bílstjóri. Þessi hóp-
ur er því vel hristur saman og við
höfum mjög gaman af þessu.
í afmæli hjá Ragnari
Reykás og Spaugstofunni
Finnur þú finun breytingar? 324
I síðasta sinn, ætlar þú aö segja okkur hvar þú geymir byssuna?
Nafn:
Vinningshafar fyrir þijú hundruö
tuttugustu og aðra getraun reyndust vera:
1. Ingvar Steinar Vilbergsson
Suðurgötu 115
300 Akranesi
2. Sigrún Helgadóttir
Digranesvegi 18
200 Kópavogi
Heimili:.
Myndlrnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að
verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmiðstöö-
inni, Síöumúla 2, Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækumar sem eru í verð-
laun heita Líkþrái maöurinn og Athvarf
öreigans úr bókaflokknum Bróðir Cad-
fael, að verömæti kr. 1.790. Bækumar eru
gefnar út af Ftjálsri ijölmiðlun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagiö raeð lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 324
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
\