Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Side 26
26
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
Á toppnum
Lagið Missing með bresku
hljómsveitinni Everything but
the Girl situr í toppsæti íslenska
listans þessa vikuna. Lagið, sem
er búið að vera í þrj ár vikur á list-
anum, var í 7. sæti í síðustu viku.
Everything but the Girl, sem
stofhuð var árið 1983, hefur kom-
iö með eitt og eitt lag sem hiotið
heftir vinsældir. Missing, sem er
frekar rólegt lag, kom fyrst út fyr-
ir ári en hefur nú verið endurút-
gefið.
Nýtt
Lagið Country House með
hljómsveitinni Blur kemur nýtt
inn á listann þessa vikuna og
lendir í 9. sæti. Blur, sem er bresk
hljómsveit, vakti m.a. mikla at-
hygli á Brit hljómlistarhátíðinni
þar sem hún vann til nokkurra
verðlauna. Það kæmi ekki á óvart
að lagið færi ofar á listann á næst-
unni.
Hástökk
Hástökk vikunnar er lagið
Fallin’ in Love með hljómsveit-
inni La Bouche. Lagið, sem er
búið að vera á listanum í tvær
vikur, var í 34. sæti í síðustu viku
en er nú komið í 20. sæti. La
Bouche er þýskur dúett en þetta
er annað lag hans sem kemst inn
á íslenska listann, hitt lagið var
Be My Lover.
Ekkimína
tónlist, takk!
Framleiðendur kvikmyndar-
innar I Shot Andy Warhol, þar
sem David Bowie leikur Warhol,
eru komnir í klandur með tónlist-
ina við myndina. Hugmyndin var
að nota tónlist Velvet Und-
erground í myndinni enda hafði
Warhol náin tengsl við þá hljóm-
sveit. Lou Reed, einn af liðsmönn-
um Velvet Underground og höf-
undur flestra laga sveitarinnar,
hefur hins vegar forboðið alla
notkun á þeirri tónlist í mynd-
inni. Ástæðuna segir hann vera
þá að myndinni sé ætlað að upp-
hefja Valeri Solanis, stúlkuna
sem skaut og særði Andy Warhol
illa árið 1968.
Holland
rekin?
Sögusagnir eru á kreiki um að
Annie Holland, bassaleikari
hljómsveitarinnar Elastica, hafi
fengið reisupassann úr sveitinni.
í það minnsta hefur hún ekki
leikið með hljómsveitinni á
Lollapalooza tónleikaferðinni að
undanfornu. Talsmenn sveitar-
innar neita að Holland hafi ver-
ið rekin og segja eingöngu að hún
hafi tekið sér frí að læknisráði.
& mtr ’mt f 0T- ‘W Æ ^ -mrr •«*» *r - ___ ^
i -1 Þ
LJ' - - :—& Ml J ~ ■L S 'R' © j JL nL ms>
vi || jfi chsc • J © V.-/ © '•J.Jj ð. 9.5
ÞESSI VIKA SI'ÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM 1 ’»i»! * 4 á
~ 1 VIKA NR. f~
o 7 16 3 MISSING EVERYTHING BUTTHE GIRL
2 2 2 6 '74-'75 CONNELS
G> 8 - 2 SUPERSTAR ÚR SUPERSTAR
4 1 1 5 | ENGU ER AÐ KVÍÐA ÚR SUPERSTAR
5 .4 8 3 ÁSTIN DUGIR UNUN OG PÁLL ÓSKAR
6 3 4 4 TÍÐHNIT ÚR ROCKY HORROR
G> 17 - 2 FAT BOY MAX A MILLION
8 6 6 5 VILUDÝR SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
••• NÝTTÁ LISTA ~
Cs> 1 COUNTRY HOUSE BLUR
G5> 11 36 5 SHYGUY DIANA KING
11 5 5 6 A GIRL LIKE YOU EDWYN COLLINS
12 9 7 5 WATERFALLS ItcJ
m TT 1 VÍSINDASPUNI ÚR ROCKY HORROR
G3> 19 19 4 ALRIGHT SUPERGRASS
Gs> 22 25 3 YOU ARE NOT ALONE MICHAELJACKSON
16 13 13 5 SAY IT AIN'T SO WEEZER
Gz> 21 - 2 UPP (SVEIT STJÓRNIN HANS BUBBA MÍNS |
18 16 17 4 IT'S IN HER KISS KIKITUP
19 12 9 10 HOLD ME, THRILL ME, KISS ME U2
- HÁSTÖKK VIKUNNAR ...
(20) 34 - 2 FALLIN'IN LOVE LA BOUCHE
21 15 10 9 l'LL BE THERE FOR YOU THE REMBRANTS
22 14 12 4 ALVEG ÆR SIXTIES
(23> 30 - 2 ONLY WANNA BE WITH YOU HOOTIE & THE BLOWFISH
<s> 26 - 2 RING MY BELL HUNANG
G 27 33 3 BÍ BÍ TWEETY
26 18 20 5 SEARCH FOR THE HERO M PEOPLE
(2Z> 38 - 2 COLORS OF THE WIND VANESSA WILLIAMS
28 10 3 6 BOOM BOOM BOOM OUTHERE BROTHERS
29 20 21 5 HERE FOR YOU FIREHOUSE
NÝTT 1 MIKIÐ ERTU UÚF GCD
33 - 1 SEI LA PIU'BELLA DEL MONDO RAF
32 23 26 4 EINHVERSTAÐAR EINHVERN TÍMANN AFTUR MANNAKORN
33 32 35 3 OUTOFTHE BLUE MICHAEL LEARNS TO ROCK
34 24 18 5 SOMETHING FOR THE PAIN BON JOVI
35 35 31 4 NEVER FORGET TAKETHAT
Gfi) TT 1 BABY, NOW THAT 1 FOUND ÝOU ALISON KRAUSS
(32) N Ý TT 1 3 IS FAMILY DANA DAWSON
(38> 40 | . I 2 THE FIRST CUT IS THE DEEPEST PAPA DEE
(5> 1 LET ME BE THE ONE BLESSED UNION OF SOULS
(S) NÝ TT 1 BLACK ROSES INNER CIRCLE
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn erniðurstaða skoðanakönnunarsem er framkvæmd af markaðsdeild DVi hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið af spilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski iistinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 a sunnudögum í sumar. Listinn er birtur, að hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt i vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Við semjum
ekki fyrir
England
Breska knattspymusamband-
ið hafði á dögunum samband við
piltana í Oasis og var erindið að
biðja þá imi að semja lag fyrir úr-
slitakeppni Evrópumóts lands-
liða sem fram fer á Englandi
næsta sumar. Viðbrögð drengj-
anna við beiðninni voru kannski
ekki þau sem við var búist en
Noel Galiagher sagði við fjöl-
miðla: „Fyrr dett ég dauður nið-
iu-.“ Og ástæðan fyrir því að þeir
Oasis-menn eru svo afundnir er
sú að þeir eru írskir að uppruna
og þar í landi eiga Englendingar
og allt sem þeim tiiheyrir lítt upp
á pallborðið. Skilaboð Noels til
enska knattspymusambandsins
vom þau að fá Blur til að semja
lagið.
Myndbands-
raunir
Hljómsveitin China Drum
lenti í ógnvænlegum hremming-
um við upptöku á myndbandi í
Lundúnum á dögunum. Mynda-
tökur áttu að fara fram í frægu
skuggahverfi og hljómsveitin var
rétt komin á staðinn þegar ung-
lingagengi réðst inn í húsið og
braut þar allt og bramlaði. Þegar
börnin sáu kvikmyndavélar
hljómsveitarmanna sneru þau
sér að þeim og sögðu þeim af
himskast á brott ef þeir vildu ekki
hafa verra af. Þeir töldu þetta
bara einhverja krakkabjána og
létu þessi orð sem vind um eyru
þjóta. En þar tóku þeir heldur bet-
ur skakkan pól í hæðina því einn
unglingurinn tók þá fram byssu-
hólk til að sýna þeim fram á al-
vöm málsins. Hljómsveitarmenn
ákváðu að fara en töldu sér óhætt
að ljúka nokkrum tökum utan við
húsið. Þær vora rétt haihar þeg-
ar byssuskot kváðu við og þar
með brast flótti á liðið. Upptöku-
stjóri China Drum sagðist meðal
annars hafa komið í helstu glæpa-
hverfi Rio de Janeiro en þau
væru róleg í samanburði við
þetta.
Plötufréttir
Hljómsveitin The Drum Club,
sem er okkur íslendingum að
góðu kunn, er þessa dagana að
senda frá sér tónleikaplötu sem
ætti að vekja athygli hér á landi
enda heitir platan Live in Iceland
. . . The Levellers senda frá sér
plötu nú um mánaðamótin og ber
gripurinn nafhið Zeitgeist... Og
nýja platan frá Cypress Hill, sem
beðið er eftir með óþreyju, er
væntanleg og mun bera nafn-
ið Cypress Hill III: Temples of
Boom...
-SþS-