Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
39
Til er fólk sem er illa haldið af
læknafikn og leitar í sífellu til
hvers læknisins á fætur öðrum.
Þessir einstaklingar verða friðlaus-
ir af spennu heyri þeir um nýjan
lækni og linna ekki látum fyrr en
þeim hefur tekist að ná fundi hans.
Öll tæki, mælingar og blóðrann-
sóknir soga þá að sér eins og
mykjuskán feita hrossaílugu.
Sjaldnast fá þeir þó nokkra bót
meina sinna en halda ótrauðir
áfram píslargöngu sinni á gulum
síðum símaskrárinnar.
Sigursveinn og
höfuðverkurinn:
Einn frændi Nökkva læknis heit-
ir Sigursveinn K., stressaöur rið-
vaxinn ýtustjóri á miðjum aldri
sem vinnur út í eitt og drekkur
mikið brennivín um helgar. Hann
er mikill læknafikill og hefur próf-
að ótal lækna. Engin biðstofa er
nógu óvistleg, ekkert biðstofules-
efni nógu gamalt og óhrjálegt til
að fæla hann frá. Sigursveinn fær
öðru hverju mikil óljós höfuð-
verkjaköst eins og band eða þoku-
slæðing um höfuðið. Þessu fylgir
hjartsláttaróregla og fjarlæg
svimakennd. í köstunum syngur
stundum í höfði hans gamalt lag
með Alfreð Clausen. Þá leggst Sig-
ursveinn bölvandi í rúmið á skítug-
um, ljósbláum hlýrabol og alltof
litlum gulleitum nærbuxum, ét-
andi magnyl og segist vera aö
deyja. Þegar þetta gerist hefur
Nökkvi stundum litið inn en þó
yflrleitt vísað Sigursveini á aðra
lækna.
Margir læknar
Heimilislæknirinn sagði honum
að þetta væri streita og spenna og
hann yrði að hafa hægar um sig
„Þessir einstaklingar verða friðlausir af spennu heyri þeir um nýjan
lækni og linna ekki látum fyrr en þeim hefur tekist að ná fundi hans.“
Maður illa hald-
inn af læknafíkn
og lifa reglusömu lífi. Sigursveinn
hefur ekki talað við heimilislækn-
inn sinn síðan og lýsir honum sem
„helvítis mjóróma fífli og rindli".
Einhver vinnufélagi vísaði honum
þá á hámenntaðan taugasjúkdóma-
lækni. Hann skoðaði Sigursvein
gaumgæfilega með tilliti til krafta,
reflexa og snertiskyns og sendi
hann síðan í heilahnurit og sneið-
myndatæki. Sigursveinn misskildi
flest sem þessi læknir sagði og lýsti
hann honum síðar sem „stamandi
bjána“. Hann sendi Sigursvein til
sjúkraþjálfara en þeirra kynni
voru ekki langvinn. Upp úr þessu
fór Sigursveinn til lyflæknis sem
sendi hann í hjartarit og lungna-
mynd og mældi kólesteról. Sigur-
sveinn var hrifnari af þessum
lækni en hinum enda minntist
hann ekki á stress eða vinnuálag
heldur sagði Sigursveini að hann
hefði hjarta og blóðþrýsting eins
og ungbarn. „Þú verður að fara
sparlega með smjöriö," sagði hann
og kvaddi.
Beinalæknirinn
og hálsliðirnir
Næst fór Sigursveinn til beina-
læknis sem skoðaði hann gaum-
gæfilega og tók myndir af hálslið-
um og öxlum. Sigursveini fannst
beinalæknirinn hinn besti drengur
og sagði hann eins og einn af strák-
unum á ýtunum, fljótur til verka
og ekkert hangs. Svona „no-nons-
ens maður“ sagði hann. Myndatak-
an sýndi einhverjar smábreytingar
á hálsliðum sem beinalæknirinn
sagði að gætu mögulega skýrt ein-
kenni Sigursveins en kannski ekki.
Hann gaf honum vöövaslakandi lyf
og síðan kvöddust þeir með virkt-
um eftir að hafa rætt um fótbolta
drykklanga stund. Sigursveini
batnaði ekkert svo að hann hélt
áfram að leita lækna. Einn vinnufé-
laganna sagði honum að fara til
geðlæknis og gerði hann það eftir
ákveðið þóf. Hann kom af þeim
fundi hinn reiðasti og talaði hrak-
lega um þetta mannkerti sem hafði
Á læknavaktíiuú
Óttar
Guðmundsson
læknir
reynt að ræða við hann um streitu
og álag, auk drauma og tilvistar-
kreppu. Hann fór svo til hnykk-
læknis sem hnykkti honum til og
lagaðist hann eitthvað við það um
skamman tíma. Deyfingalæknir
sprautaði nokkrum sinnum í
vöðvafestur án árangurs; giktar-
læknir sprautaði í axhr, augnlækn-
ir skrifaði upp á gleraugu, háls-
nefogeyrnalæknir hreinsaði merg
úr eyrum, þekktur skurðlæknir
fjarlægði fæðingarblett af hálsi,
endurhæfingarlæknir sendi hann á
Reykjalund um tíma, kvensjúk-
dómalæknir mældi hormóna, húð-
læknir gaf honum smyrsl í gulri
túpu, meltihgarlæknirinn skoðaði
hann allan að innan gegnum rör.
i
Fermingarveisla
og höfuðverkur
En allt kom fyrir ekki, Sigur-
sveinn er enn með höfuðverk og
situr fullur bjartsýni á nýjum bið-
stofum. Hann hitti Nökkva lækni í
fermingarveislu um páskana. Sam-
an fengu þeir sér mat af fallegu
hlaðborði þar sem ægði saman ó-
teljandi réttum úr jurta-dýra-og-
steinaríki. Sigursveinn blandaði
saman á diskinn sinn graflaxi,
rækjugumsi, róstbiffi með remúl-
aði og kartöflusalati og smellti síð-
an heitum kjötrétti yfir allt saman.
Þeir sátu svo hvor með sinn disk á
litlum, óstöðugum tekkbökkum á
hnjánum og borðuöu. „Hvað held-
urðu að sé að mér, frændi?" sagði
Sigursveinn, „hann veit ekkert um
þetta, læknirinn sem ég er hjá
núna.“ „Hver er það?“ sagði
Nökkvi. „Æ, þeir eru allir eins
þessir andskotar," sagði Sigur-
sveinn, „segjandi sama hlutinn
hver á sinn hátt; að ég sé alltof
stressaður og kannski hálfmóður-
sjúkur.“ „En það er alveg rétt hjá
þeim,“ sagði Nökkvi, „þú ert alltof
stressaður. Minnkaðu við þig vinn-
una, hættu að drekka og reykja og
farðu að hlaupa nokkrum sinnum
í viku og hættu að tala við lækna.
Þegar menn eru komnir á þetta
stig í læknafikn skapar læknirinn
fleiri vandamál en hann leysir."
„Já, kannski maður geri þetta,“
sagði Sigursveinn og stakk upp í
sig vænum bita af skinku sem hann
hafði makað í graflaxsósu. „Annars
á ég tíma eftir helgina hjá nýjum
sérfræðingi sem var að koma til
landsins í fy rra og læknaði alveg
mömmu eins gaursins sem vinnur
með mér. Svo ætla ég ekki að fara
til fleiri laekna." „Fáum okkur
meira," sagði Nökkvi, „Þetta hef
ég heyrt svo oft áður; bara einn
lækni enn. Hvað segirðu um að við
fáum okkur kryddsíld út á hangi-
kjöt?“ „Er það gott við höfuð-
verk?“ sagði Sigursveinn og saman
gengu þeir að fermingarhlaðborð-
inu. „Alvegóbrigðult," dæsti
Nökkvilæknir.
Námskeið haustið ’95
Bútasaumur - föndur
1. Teppi (byrjendur) 5. Jóladúkar
2. Skurðartækni (framhald) 6. Jólasveinar
3. Veggteppi 7. Jólasokkar
4. Dúkkur 8. Jólateppi
o VIRKA Opið mánud.-föstud. kl. 10-18 og laugard. frá 1. sept.
Mörkin 3, sími 568 7477 T V (við Suðuriandsbraut) kl. 10-14
Vatnsþéttum þök
svalir, tröppur og áveðursveggi með
Aquafin-2K.
Aquafin-2K er 2ja þátta sveigjanlegt múrefni, ætlað til
vatnsþéttingar á steyptum flötum. Vatnsþétting á útitröppum
var áður vandamál, en Aquafin-2K gjörbreytti dæminu.
Við veitum 3ja ára ábyrgð á efni og vinnu.
4 ára reynsla af Aquafin-2K sannar okkur, að þar er komið efni
sem ekki flagnar af, þrátt fyrir regn, frost og umgang.
Húsahlynning hf.
Alhliða húsaviðgerðir
567 3730
894 3324
567 0 7 6 6\
INNANHÚSS-
ARKITEKTÚR
í frítíma yöar með bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnarööun, liti,
lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll,
blóm, skipulagning, nýtisku eldhús, gólflagnir,. vegg-
klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús-
gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl.
Eg óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn .........................
Heimilisfang ..........................
Akademisk Brevskole A/S
Jyllandsvej 15 • Postboks 234
2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark
TÓMSTUNDIR
fÆÆJÆÆÆÆÆÆJJÆÆÆJJJJÆÆJÆIÆlÆÆÆjri.
Aukablað
TÓMSTUNDIR
OG HEILSURÆKT
Miðvikudaginn 6. september nk. mun aukablað
um tómstundir og heilsurækt fylgja DV.
Meðal efnis veróur umfjöllun um það sem almenn-
ingi stendur til boöa í vetur til líkamlegrar heilsubótar.
í því sambandi verður athugað hvað dansskólar og
heilsuræktarstöðvar hafa upp á að bjóða.
Umsjónarmaður efnis er Svanur Valgeirsson
blaðamaður í síma 563 2814.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa
í þessu aukablaói vinsamlega hafi samband við
Björk Brynjólfsdóttur, auglýsingadeild DV, hiðfyrsta
í síma 563 2723.
Vinsamlegast athugið aó síðasti skiladagur auglýs-
inga er fimmtudagurinn 31. ágúst.
ATH.I Bréfasími auglýsingadeildar er 563 2727.