Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Qupperneq 37
[.AUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
45
Rannsóknarleiðangur á A-Grænlandi:
Meðal ísbj arna í forn-
um byggðum eskimóa
Gert að ísbirninum sem felldur var. Menn gæddu sér
á kjötinu og slógu síðan upp dansleik.
DV-myndir Jón Benediktsson
Sýnin sem jarðfræðingarnir safna eru söguð niður og
tekin til frekari vinnslu á rannsóknarstofum f Dan-
mörku.
Eftir erfiðan dag langt frá öllu mannlífi sest starfsfólk niður, rabbar sam-
an og lætur sér líða vel.
Frá ísafirði til Södalen á Græn-
landi er um tveggja tíma flug.
Rannsóknarleiðangur jarðfræð-
inga fór fyrir stuttu til Grænlands
og dvaldi í Mikkafirði. Flogið var
inn í Mikkafjörð en þar eru fornar
byggðir eskimóa. Einar nokkur
Mikaelsen byggði sér kofa hjá eski-
móunum og varð vinskapur með
þeim. Eskimóamir gátu ekki borið
fram nafnið Mikaelsen, kölluðu
hann því Mikka og staðinn Mikka-
Qörð.
Upp af botni Mikkafjarðar liggur
Södalen og þar eru búðir jarðíræð-
inga og flugvöllur. í þoku er oft
erfitt að fljúga milli fjallshlíða um
þrönga firði og lenda á stuttri
brautinni. Þjónusta er frá búðum í
Södalen fyrir þá sem safna sýnum
úr jarðlögum. Þar eru t.d. tvær
þyrlur sem eru á ferðinni allan
daginn að ferja sýni til búða og
vistir til þeirra sem hafast við í
fjöllum í 14 búðum á rannsóknar-
svæðinu.
Sýnin eru söguð niður í þunnar
sneiðar til nánari rannsóknar þeg-
ar heim kemur. Landsvæði þetta
er illt yfirferðar, skriðjöklar og
sorfin fjöll með bröttum hlíðum.
Ógerlegt væri að kanna þetta
svæði og ná niður sýnum án þess
að nota þyrlur.
Tveir til fjórir menn hafast við í
hverri búð í allt að 10 daga en
koma þá til aðalbúða þar sem þeir
geta farið í sturtu og þvegið af sér.
Undirbúningur að þessu verkefni
hefur tekið nokkur ár og er búið
að fljúga yfir svæðið og mynda
jarðlögin til að ákveða hvar á að
safna sýnum. Töluvert er um ís-
birni á svæðinu og eru því allir
vopnaðir byssum.
ísbjörn felldur
Kent Brooks jarðfræðingur var í
tjaldi í 5460 feta hæð í fjöllum sem
heita Prins of Wales-fjöl! og eru
upp af botni Kangerdlúgssuak-firði
(Stórafirði). Hann taldi óþarfa að
hafa með sér byssu upp í þessa
hæð en gerði það samt. Sú varð
líka raunin að hann fékk ísbjörn í
heimsókn og varð að fella hann á
35 metra færi með skammbyssu.
ísbirnir eru mjög lyktnæmir og
renna á mat nokkra kílómetra þótt
matnum hafi verið pakkað í plast.
Eftir að Kent hafði skotiö björninn
kallaði hann eftir hjálp í talstöð.
Nokkuð af þeim atburðum var
fest á mynd og þegar menn eru að
búast af stað til að vinna endan-
lega á bangsa. Um fjörutíu mín-
útna flug var til búða Kents og
beið hann i tjaldi sínu á meðan.
Björninn var ungur, tveggja til
þriggja ára. Þegar gert var að birn-
inum kom í ljós að maginn var
tómur og því hefur bjöminn verið
svangur og hættulegur. Sent var
skeyti til veiðieftirlitsins um at-
burðinn og feldurinn síðan sendur
þangað ásamt hauskúpu. Um
kvöldið var smakkað á bjarn-
dýrskjöti sem hafði góð áhrif á
fólkið því dansað var fram eftir
nóttu, enda eru menn sem vinna
erfiðsvinnu glaðir og frískir og
skemmta sér af miklum krafti.
Gömul
hraunlög
Þær rannsóknir sem Danir
stunda nú á A-Grænlandi fara að-
allega fram á svæðinu frá Kanger-
dlúgssúak í suðri (68. gráðu norð-
ur) til Scoresbysunds i norðri (70.
gráðu norður) á um 600 km kafla
eftir strandlengjunni. Svæðið nær
um 200 km inn til landsins, inn að
Grænlandsjökli. Þetta svæði ein-
kennist af blágrýtishraunlögum
sem hafa verið talin um 50-60
milljón ára gömul og urðu til við
gliðnun meginlanda Evrópu og N-
Ameríku. Svæðið er að því leyti
einstakt að það varðveitir um-
merki fyrstu stiga þróunar Norð-
ur-Atlantshafsins. Sérstaða svæð-
isins felst m.a. í því að rof jökla
hefur leitt til þess að nú er hægt að
kanna jarðlög sem áður voru á
mismiklu dýpi eða niöur á allt að 5
km.
Verkefninu er stjórnað af dr.
Hans-Christian Larsen frá danskri
jarðfræðistofnun er nefnist Dansk
Lithosphere Center (DLC). DLC á
náið samstarf við aðrar danskar
jarðfræðistofnanir enda eru dansk-
ir þátttakendur alls staðar frá í
Danmörku.
Það átak sem Danir vinna nú á
A-Grænlandi er afar umfangsmik-
ið og byggist raunar á 50 ára langri
rannsóknarsögu grænlensku jarð-
fræðistofnunarinnar (Grönlands
Geologiske Undersögelse). í ár
vinna þarna um 50 vísindamenn af
ýmsu þjóðerni, auk um 10 aðstoð-
armanna. Við sögu koma nokkrir
Islendingar sem starfsmenn og
þátttakendur í rannsóknarvinnu,
auk þess sem Flugfélag Norður-
lands annast fólksflutninga frá ís-
landi til Södalen en þar eru aðal-
bækistöðvar leiðangursins.
Ferðast
með þyrlum
Rannsóknarvinnan felst einkum
í gagnasöfnun en undirbúningur
hennar hófst 1994, m.a. með ljós-
myndatöku úr lofti. Síðastliðinn
vetur var síðan unnið úr þessum
myndum og ákveðið hvar sýna-
taka og gagnasöfnun færi fram í
ár. Aðeins verðm- komist inn á
svæðið með þyrlum. Sýnataka úr
jarðlögum fór fram í fjórum heild-
arjarðlagasniðum en samanlögð
þykkt þeirra var um 20 kílómetrar,
eða sambærileg við heildarþykkt
jarðlaga á íslandi. Víöáttumikil
hraunlög og setlög á A-Grænlandi
hallast til sjávar og finnast í jarð-
skorpunni neðansjávar út af land-
inu. Þar hafa Danir einnig staðið
að könnun jarðlaga með endur-
kastsmælingum á hafi úti og ná
þær rannsóknir inn á íslandssvæð-
ið.
Nátengdar þessari rannsókn á
landi eru djúpboranir úti fyrir
ströndinni sem fara fram í haust á
vegum fjölþjóðaverkefnis er nefn-
ist Ocean Drilling Project (ODP) og
eru íslendingar reyndar aðilar að
því þótt enginn íslendingur verði
um borð að þessu sinni. Borskipið,
Jodies Resolution, er væntanlegt
til íslands í byrjun september og
mun verða við boranir í 40 daga.
Leiðangursstjórar í þeirri ferð eru
dr. Hans-Christian Larsen frá DLC
og dr. Robert A. Duncan frá Or-
egon State University en þeir eru
jafnframt báðir þátttakendur í
rannsóknarstarfinu á Grænlandi.
Jón Benediktsson,
Jóhann Helgason
*
4
háskerpufilmu
á þœr
1
Þátttökuseðlar fást á öllum útsölustöðum AGFA.
Skilafrestur á myndum og seðlum (ein mynd
með hverjum seðli) er til 31. ágúst 1995. Öllum
þátttökuseðlum skal skilað til Heimilistækja hf.
Sætúni 8, 105 Reykjavfk, merkt „Sumargleði".
AGFA
DREIFINGARAÐILAR: HEIMILISTÆKI HF. • SÆTÚNI 8 • SÍMI 569 1500
OG O. JOHNSON & KAABER • SÆTÚNI 8 • SÍMI 562 4000
AGFA
Ljósmynda-
samkeppni
sumarsins!