Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1995 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1995 37 Með heimili á tveimur stöðum: Alvaran tók við af tívolílífinu segir Anna Ólafsdóttir, eiginkona Ólafs Jóhanns Ólafssonar, en þau eru að koma sér fyrir í nýju húsnæði í Reykjavík „Það má kannski segja að við lif- um tvöföldu lífi í þeirri merkingu að við eigum nú tvö heimili. í rauninni hentar það mér ágætlega. Ég er mik- m íslendingur í mér og hér er öll fjöl- skylda mín. Einnig kann ég vel við mig í New York. Þó geri ég mér grein fyrir að eftir því sem strákarnir verða eldri og komast á skólaaldur getur þetta orðið erfiðara,“ segir Anna Ólafsdóttir, eiginkona Ólafs Jó- hanns Ólafssonar, forstjóra Sony og rithöfundar, í viðtali við DV. Þau hjónin eiga tvo syni, Ólaf Jóhann, sem er tveggja og hálfs árs, og Áma Jóhann, sjö mánaða. „Það er mikið um Ólafa og Áma í ættum okkar,“ útskýrir Anna en bróðursynir Ólafs Jóhanns, Ólafur og Ámi, voru stadd- ir hjá henni þegar viðtalið var tekið og gættu Árna Jóhanns. Eldri sonur- inn var hins vegar í leikskólanum. Miklar endurbætur Anna og Ólafur Jóhann festu kaup á eldra steinhúsi við Freyjugötu í Reykjavík um síðustu áramót. Húsiö hefur þarfnast heilmikUla endurbóta og í sumar hefur verið mikið að gera hjá þeim hjónum að koma heimilinu á íslandi í rétt horf. „Nei, við erum ekki að flytja heim,“ svarar Anna þegar hún er spurð hvort húsakaup- in þýði breytingar á högum þeirra. Hún viðurkennir þó að húsið sé þeirra framtíðarheimili. „Við flytjum vonandi einhvem tíma heim en ég á ekki von á að það verði á næstu árum. Mig langar að búa á íslandi fimm til sex mánuði á ári. Hingað til höfum við alltaf búið inni á foreldr- um mínum en það er bara ekki leng- ur hægt þegar fjölskyldan er orðin þetta stór. Við vorum búin að leita að hentugu húsi hér í meira en tvö ár. Mig langaði að flytja í Fossvoginn, þar sem ég er alin upp, en Óla í Þing- Það er gott að fá pabba heim til að leika en ritstörfin verða að bfða. holtin. Reyndar skoðuðum við hús víða áður en við fundum þetta. Ég var lengi að ákveða mig og við kom- um hingað margoft að skoða áður en við tókum endanlega ákvörðun. Nú erum við hæstánægð þótt enn sé ým- islegt ógert.“ Það vekur athygli blaöamanns að heimili þeirra Önnu og Ólafs Jó- hanns er ákaflega laust við allan íburð en ailar endurbætur gerðar á vandaðan og smekklegan hátt. Veikindi settu strik í reikninginn Anna hefur dvalið hér á landi frá því í byrjun júlí og ætlar að vera fram í október. Ólafur Jóhann hef- ur átt við veikindi að striða í sumar og var óvinnufær um þriggja vikna skeið. „Hann fékk snert af einhvers konar sí- þreytu sem lýsti sér með hita og slapp- leika í þrjár vikur. Hann er byrjaður að vinna aftur en þarf að fara varlega með sig. Þessi sjúk- dómur er afleiðing mikils álags en ég vona að hann nái sér fljótlega," segir hún. Vegna veikinda Ólafs Jóhanns í sumar kom það að mestu í hlut Önnu að flytja og stand- setja húsið. Hún segir að þetta hafi verið erfiður tími, þar sem hún haföi einnig börnin að sjá um, en Ólafur mátti ekkert reyna á sig. í raun má segja að það hafi verið tals- vert álag á þeim báðum allt þetta ár. í byrjun ársins fæddist yngri son- urinn, móðir Ólafs Jóhanns, sem var honum mjög náin, lést mánuði síðar en föður sinn missti hann fyrir sjö árum. Þá hefur ver- ið mikið að gera í sambandi við flutn- inginn í nýja húsið, endurbæturnar á því og síðan veik- indi Ólafs í sumar. Auk alls þessa hef- ur verið mikið að gera hjá Ólafi í vinnunni og endalaus ferðalög sam- fara henni. „Honum hefur ekki gefist sá tími sem hann heföi viljað til rit- starfa og þau hafa því setið á hakan- um,“ segir Anna. „Ég veit að hann hugsar mikið um efni bókar áður en hann hefst handa við hana og það er áreiöanlega eitthvað í sigtinu. Hann gantast reyndar með það núna að skrifborðið vanti hvort sem er. Ætli hann byrji ekki um leið og það er komið." Betra á íslandi Anna segir að það sé mun auðveld- ara að ala upp börn á íslandi en í New York. „Hér er hægt að fá dag- vistarpláss en úti þarf maður að ráða stúlku heim til sín. Þetta er því miklu frjálsara hér. í New York er ég úti við allan daginn með bömunum, fer á morgnana ásamt barnfóstrunni og viö erum nánast úti fram á kvöld. Hér heima er maður inni alla daga og fer á bílnum út í búð. Ég geng oft með börnin í Central Park, þar sem er róluvöllur, en það má að vísu ekki líta af þeim eitt augnablik. Mæður og bamfóstrur sitja yfir börnunum með- an þau leika sér og hafa ekki augun af þeim. Annars er ég aldrei hrædd í New York. Það er helst að maður sé hræddur um börnin. Þó ætti enginn að vera einsamall á ferli á kvöldin í Þau voru lengi búin að leita að rétta húsinu og fundu það loks á Freyju- götunni. vissum hverfum. Ég fékk reyndar áfall fyrir stuttu þegar eldri strákur- inn hvarf frá mér í um tíu mínútur í Central Park. Ég hef líklega litið augnablik undan og á meðan skaust hann burt. Allir sem þarna voru hjálpuðu mér að leita. Hann fannst stuttu síðar og hafði þá sloppið út af róluvellinum," útskýrir Anna og bætir við að þessar mínútur hafi ver- ið ólýsanlega erfiðar. Mikil ferðalög Anna og Ólafur Jó- hann höfðu verið saman í tíu ár þeg- ar eldri drengurinn fæddist. Hún segir að það hafi verið gífurleg breyting fyrir sig að eignast hann og enn meiri þegar sá yngri fæddist. „Ég ferðað- ist mikið um heim- inn og uppliföi margt. í rauninni lifði ég hálfgerðu tívolílífi. Nú er bara annað tekið við - alvara lífsins og hún er ekkert síður skemmtileg. Það breytist auðvit- að margt þegar börnin fæðast. Það er alltaf jafn mikið að gera í vinnunni hjá Óla og honum gefast færri stundir tfl ritstarfa þar sem bamastússið tekur oft við þegar heim kemur. Eldri strák- urinn okkar er óvenju fyrirferðar- og kraftmikill. Hon- um veitir því ekki af aðhaldinu.“ Þau Anna og Ólafur Jóhann hafa þurft að kaupa alla hluti í nýja húsið þar sem þau eru ekki beinlínis að flytja sig um set. „Maður uppgötvar á hverj- um degi að eitthvað vantar, t.d. bara ostaskera eða eitt- hvað þess háttar, þannig að þetta er eins og að byrja búskap upp á nýtt,“ segir hún. „En það hefur verið virki- lega þægUegt hversu sammála við höfum veriö um afla hluti.“ Áhugamálið bíður Um síðustu helgi skaust Anna tU New York og hún segir að það hafi vissulega verið skrítið að koma inn á gamla heimUið sitt eftir að hafa ver- ið að móta það nýja. „Það var reynd- ar notalegt að koma í íbúðina í New York en mér finnst betra að vera hér, þetta er miklu stærra." Þau hjónin nafa leigt húsnæði á Manhattan og hafa búið þar frá því þau fluttu tU borgarinnar fyrir fimm árum. Anna segir að það hafi aldrei komið til greina að byggja upp fram- tíðarheimili þar. „Hér eru fjölskyld- ur okkar,“ segir hún. „Við höfum aUtaf lagt áherslu á að vera hér yfir jól, áramót og á sumrin. Ég hef líka kosið að fæða börnin mín hér heima enda er það miklu persónulegra en úti.“- Áður en börnin komu tU sögunnar starfaði Anna sem líkamsræktar- kennari í New York. „Ég hef alveg þurft að leggja þetta áhugamál mitt á hiUuna sem mér finnst slæmt,- Hins vegar vonast ég til að þegar um hægist geti ég farið að hreyfa mig meira.“ Á flakki milli heimsborganna Þegar viðtalið var tekið á fimmtu- dag var Ólafur Jóhann í viðskipta- ferð í London en Anna átti von á honum um kvöldið. Á mánudag heldur hann síðan tU New York. Anna segist aldrei ræða vinn- una við hann. „Mér finnst, þegar fólk vinnur svona mik- ið, að það eigi að ræða aðra hluti þegar heim kemur. Hann reynir að hjálpa mér með börnin og heimUis- störfin þegar frí gefst. Vissulega er Óli mikið fjarver- andi en þó ekki eins og sjómenn. Maður venst ótrúlega fljótt þessum ferðalögum hans þótt ég viti aldrei hvar hann verður næsta dag; i Evrópu, Japan eða Kaliforníu. Það hefur komið fyr- ir að hann hefur gleymt að segja mér að hann væri á leiðinni úr landi, man það kannski rétt áður en hann hoppar upp í flugvélina. Oft man hann það varla sjálfur að hann sé að fara. Sem betur fer er þessum ferða- lögum heldur að fækka. Þetta var rosalegt á tímabUi. Ég held að það sé mjög óhollt að vera stöðugt í flugvél- um.“ Ekkert lúxus- eða glamúrlíf Þegar Anna er spurð hvort það sé ekki álag á hana að vera gift svo frægum manni segist hún ekki finna fyrir því í Bandaríkjunum. „Ég hef orðið vör við það hér á landi að fólk heldur að við lifum einhvers konar lúxus- eða glamúrlífi. Það er aUs ekki þannig. Ég skal viðurkenna að við höfum það ágætt en það liggur líka mikU vinna að baki. Við leiðum aUt öfundartal hjá okkur en vissulega hefur maður orðið var við slíkt,“ seg- ir hún. Anna hefur ekki orðið fyrir beinum óþægindum vegna afskipta fólks en hún segir að Ólafur fái lítinn frið þegar hann fer t.d. á .skemmti- staði hér á landi. Anna viðurkennir að það fylgi því vissar kvaðir í Bandaríkjunum að vera forstjórafrú. „Það er ætlast tU þess að maður líti vel út. Við þurfum að vera viðstödd margar frumsýn- ingar, taka þátt í kokkteUboðum og veislum. Ég hef satt að segja ekk- ert sérstaklega gaman af því. Ég er meira fyrir að vera heima með fjöiskyldunni. Mér er alveg sama um fræga fólkið og finnst það ekkert merkUegra en hver annar. Það gegn- ir bara öðruvísi störfum." Engin sniglaveisla Anna segir að hennar aðaláhuga- mál sé heUsurækt og íþróttir. „Ég er líka mikU útivistarmanneskja. Hér heima fer ég mikið í sund og hef gam- an af að ferðast en því miður hefur ekki verið tími til þess. Ég hef líka gaman af matargerð, er kannski ekki góður bakari en hef gaman af elda- mennsku. Ólafur er mUcUl matmaður og okkur finnst skemmtUegt aö bjóða fólki í mat.“ Það liggur beinast við að spyrja Önnu hvort hún eldi oft snigla en hún er fljót að neita því. „Ég borða Fjölskyldan sameinuð. Ólafur Jóhann hefur átt við veikindi að stríða en er að ná sér. Olafur Jóhann og Anna brugðu á leik með strákana sína fyrir Ijós- myndarann í nýju borðstofunni. ,Ég er mikil fjölskyldumanneskja og fræga fólkið skiptir mig engu máli,“ segir Anna Ólafsdóttir en þeim hjónum er ávallt boðið á frumsýningar í stórborginni >g kokkteilveislur. DV-myndir Gunnar V. Andrésson ekki snigla og mun ekki aðstoða við þá matargerð ef Ólafur vUl halda sniglaveislu einhvern tíma,“ segir hún og hlær. „Ég hef gaman af að elda pastarétti og kjúklingar eru mjög ódýrir úti þannig að þeir eru oft á borðum. Annars er verðlag á mat hér og í New York mjög svipað. New York er orðin dýr borg. Hins vegar var mikUl verðmunur hér og í Kali- forniu.“ Starfaði sem au-pair Þegar Anna sá Ólaf Jóhann fyrst fyrir tólf árum var einhver sem benti henni á hann og sagði; „Þessi er í eðl- isfræði". „Það kom mér mjög á óvart því ég hélt að eðlisfræðingar væru með kringlótt gleraugu á nefinu og svolítið prófessorslegir,“ segir hún. Ólafúr Jóhann fór tU Bandaríkj- anna tveimur árum á undan Önnu. Hann stundaði framhaldsnám í Boston. Árið 1986 ákvað hún að flytja út tU hans og bauðst henni þá au-pair starf á heimUi þar sem þau bjuggu. „Við ætluðum einungis að búa þar meðan við værum að leita að hús- næði en þegar mér bauðst vinnan urðum við þar áfram. Þetta var hjá Lovísu Fjeldsted og Magnúsi Böðv- arssyni sem áttu fjögur börn. Á þeim tíma datt mér ekki í hug að við ættum eftir að setjast að í Banda- ríkjunum. Það kom ekki upp fyrr en eftir að Óli útskrifaðist að hann fékk atvinnutilboð frá Sony. En það var erfitt að fá atvinnuleyfi. Við komum heim í eitt ár meðan beðið var eftir því. Það lagðist vel í mig að flytja út þá enda var maður ungur og tU í hvað sem var. Ég sá Kaliforníu í nokkrum hiUingum, strandlíf og sól, eins og í bíómyndum. Hins vegar fluttum tU norðurhluta Kaliforníu þar sem var engin strönd en vissu- lega næg sól.“ New York togar „Mig langaði aUs ekki að flytja tU New York fyrir fimm árum. Ég var hrædd við borgina og leist ekkert á hana. Ég átti líka góðan vinahóp í Kaliforníu, var ánægð þar og í góðri atvinnu. Ætli ég hafi ekki verið sex mánuði að sætta mig við New York. Núna myndi ég ekki vUja skipta. Það er helmingi lengra tU íslands frá Kali- forníu, auk þess sem New York er yndisleg borg. Það gæti hins vegar breyst þegar strák- arnir komast á skólaaldur. Ég fann það um síð- ustu helgi, þegar ég skrapp tU New York í fjóra daga, að borgin á mikið í mér, þar þekki ég orðið alla hluti.“ Anna segist búa í fimm hæða góðu húsi í New York. Hún hefur ekki mikið samband við íslendinga en ná- grannar hennar eru konur á sama aldri með lítil börn þannig að mikiU vinskapur hefur myndast milli þeirra. Öflugt öryggiskerfi Flestir vita hversu vandlega geng- ið er frá öUum öryggisþáttum í íbúð- um í New York. Það er kannski sér- kennUegt tU þess að vita að ekki þarf minni öryggiskerfi á íslandi. Nýja Nýja húsið er ekki alveg tilbúið og Anna segir að enn vanti alla hluti á veggi. Yngri sonurinn, Árni Jóhann, lætur sér fátt um finnast þó fjölskyldan búi sér til nýtt heimili frá grunni. húsið þeirra Önnu og Ólafs Jóhanns í Reykjavík er búið svo fuUkomnu ör- yggiskerfi að það fer allt í gang við minnstu snertingu. Einhvern tíma heföi fólk ekki grunað að þörf væri á slíku á íslandi sem þykir nú bráð- nauðsynlegt. Ekki í toppformi Þegar Anna er spurð hvort hún hafi ekki tekið manninn sinn í tíma í líkamsræktinni svarar hún því neit- andi. „Hann hefur aldrei tíma. Við höfum verið með þrekhjól heima og æfðum talsvert á timabUi. Það er þó ekki hægt að segja að við séum hjón í toppformi núna. Við vitum þó að það er bráðnauðsynlegt að hreyfa sig, sér- staklega fyrir fólk sem vinnur svona mikið eins og Óli. Hann verður þó að fara varlega eftir veikindin og þarf að ná sér fullkomlega áður en hann fer að huga að líkamsrækt- inni.“ Anna hugsar hlýtt tU framtíðarinnar og þégar hún er spurð hvort það sé í raun- inni ekki bara skemmtUegt að eiga heimili í tveimur löndum svarar hún: „Þetta er bara alveg ágætt. Þegar mesti hitinn er í New York er fint að vera í rigningunni hérna.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.