Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 50
58 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995 Afmæli Kristín Bjamadóttir Kristín Bjarnadóttir, fyrrv. verslun- arstjóri og bankastarfsmaður, nú til heimilis að Hrafnistu í Hafnarfirði, eráttræðídag. Starfsferill Kristín fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hún stundaði barnaskólanám við Mið- bæjarskólann og lauk gagnfræða- prófi í Reykjavík. Kristín varð ung ekkja og hóf þá störf utan heimilisins. Hún stundaði skrifstofu- og verslunarstörf og var þá lengst af verslunarstjóri við verslunina Vörðuna en starfaði síð- an við Landsbanka íslands um ára- bil eða þar til hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Kristín starfaði í Húsmæðrafélagi Reykjavíkur og sat í stjórn þess. Fjölskylda Kristín giftist 1936 Eyjólfi Sveins- syni, f. 6.7.1909, d. 3.1.1945, verslun- armanni í Reykjavík. Hann var son- ur Sveins Sigurðssonar, jámsmiðs og trésmiðs í Hafnarfirði, og k.h., Sigríðar Eyjólfsdóttur húsmóður. Synir Kristínar og Eyjólfs eru Ól- afur G. Eyjólfsson, f. 15.10.1936, skrifstofustjóri Frjálsrar fjölmiðl- unar, búsettur í Reykjavík, kvæntur Ingu Ernu Þórarinsdóttur húsmóð- ur og eiga þau þrjú böm, og Sveinn R. Eyjólfsson, f. 4.5.1938, stjórnar- formaður Frjálsrar fjölmiðlunar og útgáfustjóri DV, búsettur í Reykja- vík, kvæntur Auði Eydal, leiklistar- gagnrýnanda DV og forstöðumanni Kvikmyndaeftirlits ríkisins, og eiga þaufimm börn. Börn Ólafs og Ingu Ernu em Krist- ín, f. 26.11.1957, skrifstofumaður í Reykjavík, gift Ragnari Bragasyni, löggiltum rafverktaka, og eru börn þeirra Bragi, f. 17.6.1978, nemi við VÍ, og Berglind, f. 30.9.1987, nemi; Rósa, f. 19.4.1959, kennari í Kópa- vogi, gift Gunnari Hilmarssyni raf- eindavirkja og eru börn þeirra Inga Rós, f. 28.4.1985, og Ólafur Garðar, f. 1.7.1990; Ólafur Þröstur, f. 4.3. 1969, háskólanemi í Þýskalandi. Börn Sveins og Auðar em Hrafn- hildur, f. 18.10.1958, deildarstjóri nýmiðlunardeildar við Universit- etsforlaget í Ósló, en maður hennar er Espen Tömming framkvæmda- stjóri; Eyjólfur, f. 4.1.1964, rekstar- verkfræðingur og aðstoðarmaður forsætisráðherra; Hlédís, f. 2.5.1965, arkitekt sem veitír forstöðu banda- rískri teiknistofu í Moskvu; Sveinn Friðrik, f. 31.10.1974, stud.jur. við HÍ; Halldór Vésteinn, f. 28.8.1978, nemi við VÍ. Systkini Kristínar: Ólafur, dó ung- ur; Jónatan, dó ungur; Guðrún Ips- en, lengst af húsmóðir í Danmörku, nú vistmaður á Droplaugarstöðum, ekkja eftir Carl Ipsen; Ásta, hús- freyja á Dísastöðum í Sandvíkur- hreppi í Flóa, ekkja eftir Hannes Guðjónsson, b. þar. Foreldrar Kristínar voru Bjarni Bjarnason, sjómaður í Reykjavík, og k.h., Anna Guðríður Ólafsdóttir húsmóðir. Ætt Bjarni var sonur Bjarna, b. á Björgum á Skagaströnd, bróður Önnu, móður Guðmundar J. Hlíð- dals, póst- og símamálastjóra. Bjami var sonur Guðlaugs, b. á Tjörn að Nesjum, Guðlaugssonar, bróður Guðlaugs, langafa Þorsteins Gísla- sonar, prófasts í Steinnesi, fóður Guðmundar, prests í Árbæjar- prestakalli í Reykjavík. Móðir Bjarna Bjarnasonar var Guðrún Anna Eiríksdóttir, b. á Hól- um í Fljótum, Eiríkssonar, ogKrist- ínar Guðmundsdóttur, b. í Heiðar- seli, Jónssonar. Móðir Kristínar var Anna Ólafs- dóttir, sjómanns á Höskuldsstöðum á Skagaströnd, hálfbróður Tómasar, langafa Öldu, móður Vilhjálms Eg- ilssonar alþm. Ólafur var sonur Tómasar, b. á Bakka í Skagahreppi, Jónssonar. Kristín Bjarnadóttir. Móðir Önnu var Guðrún, systír Jónatans, langafa Jónasar Gíslason- ar dósents, Guðmundar Óskars Ól- afssonar prests og læknanna og systranna Margrétar og Ingibjargar Georgsdætra. Guðrún var dóttir Gísla, b. á Varmá í Mosfellssveit, Gíslasonar, b. á Norður-Reykjum í MosfeUssveit, Helgasonar. Móðir Gísla á Varmá var Arndís Jónsdótt- ir, b. á Jófríðarstöðum við Hafnar- íjörð, Ásgrímssonar og k.h., Katrín- arPétursdóttur. 85 ára 60 ára Jóhanna Runólfsdóttir, Háarima 1, Djúpárhreppi, 80ára Jóna Jóhannesdóttir, Snorrabraut 33, Reykjavík. María Sveinlaugsdóttir, Lindarsíðu 4, Akureyri. Gunnlaugur Kárason, Hjarðarslóð 2e, Dalvik. Jónína Bárðlína Sveinsdóttir, Hjaröarhlíö l, Egilsstöðum. 75 ára Samúel Guðmundsson, Bræðratungu26, Kópavogi. Hrönn Jóhannesdóttir, Digranesheiði 47, Kópavogi. Svana Sigurrós Sigurgrímsdóttir húsmóöir, Mosarima 27, Reykjavík. Eiginmaður hennar erörn Guðný Aradóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. Steinunn Guðfinna Ágústsdóttir, Sæbóli III, Ingjaldssandi. Þórður Sigurðsson, Blikahólum 12, Reykjavík. Kjartan Benjamínsson, Ásgarði 109, Reykjavík. Ingibjörg Jónasdóttir, Hverfisgötu 3, Siglufirði. ViðarEinars- son vörubif- reiðarstjóri. Þautakaámóti gestumáheim- ilisínumillikl. 16ogl9áaf- mælisdaginn. 50ára 70 ára Jóhann Örn Matthíasson, Háteigi3,Akranesi. Jóna Guðmundsdóttir, Löngubrekku 18, Kópavogi. Hólmsteinn Snædal Rósbergsson, Beykilundi 4, Akureyri. Kristbjörg Vilhjálmsdóttir, Álíheimum 33, Reykjavík. örn Árnason, Furubergi 3, Hafnarfirði. Vigdís Magnúsdóttir, Skarösbraut 15, Akranesi. Ásdís Ragna Valdimarsdóttir, Hringbraut76, Hafnarfirði. Ásdis Ragna verður með heitt á könnunni að heimili sínu milli kl. 15ogl7ídag. Guðmundur Jónsson oddviti, Emmubergi, Skógarstrandar- hreppi. Guðmundur verður ekki heima á afmælisdaginn. Anna Þorvarðardóttir, Belgsholti 1, Leirár- og Melahreppi. Anna verður að heiman á afmæhs- daginn. María Gestsdóttir, Túngötu l, Eyrarbakka. Guðrún Kristinsdóttir, Kambaseli 51, Reykjavik. Davíð Jónsson, Bakkahlíö 9, Akureyri. Ingibjörg Hjartardóttir, Dalbraut 10, Bíldudal. Elísabet Guðmundsdóttir, Vallarbarði4, Hafnarfirði. Guðrún Helgadóttir, Grundartanga 21, Mosfellsbæ. Arnlaugur Helgason, Engihjalla 9, Kópavogi. SmáriÁrnason, Hafnarstræti 25, Akureyri. Edda Ríkharðsdóttir, Setbergi9, Þorlákshöfn. Kjartan Sveinn Guðjónsson Kjartan Sveinn Guðjónsson fulltrúi, Hesthamri 13, Reykjavík, er sjötug- urídag. Starfsferill Kjartan fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Ágústarskólanum í Reykjavík. Kjartan hóf störf hjá Olíuverslun íslands 1943 og vann þar í tuttugu og eitt ár, lengst af sem verslunar- stjóri og sölumaður. Þá hóf hann störf há Skeljungi þar sem hann starfaði líka í tuttugu og eitt ár, lengst af sem fulltrúi í innflutnings- deild. Kjartan æfði knattspyrnu og handbolta með Fram og varð Is- landsmeistari í handbolta með fé- laginu í tvígang. Þá æfði hann á skíðum með ÍR um árabil. Fjölskylda Eiginkona Kjartans er Lína Guð- laugÞórðardóttir, f. 27.7.1927, kaup- maður í Reykjavík. Hún er dóttir Þórðar Guðbrandssonar, bifvéla- virkjameistara og verkstjóra, og Guörúnar Guðjónsdóttur húsmóð- ur. Börn Kjartans og Línu Guðlaugar eru Þórður Guðjón Kjartansson, f. 31.12.1944, framkvæmdastjóri í Reykjavík, kvæntur Regínu Aðal- steinsdóttur og eru börn þeirra Reg- ína Bára, f. 9.12.1964, d. 20.8.1965, Ásgeir Þór, f. 13.10.1966, og Katrín, f. 30.9.1973; Kjartan Kjartansson, f. 11.6.1947, sölumaður í Reykjavík, kvæntur Þórunni Skjaldardóttur og er dóttir þeirra Vigdís Sigurlaug, f. 7.2.1980; Guðrún Katrín Kjartans- dóttir, f. 9.2.1949, verslunarstjóri, gift Guðmundi Jóni Jónssyni og eru börn þeirra Kolbrún, f. 28.1.1970, Arnar Þór, f. 6.7.1974 og Hrafnhild- ur, f. 30.9.1979; Sveinn Kjartansson, f. 7.7.1952, verslunarstjóri, kvæntur Kolbrúnu Helgadóttur og eru börn þeirra Kristinn Helgi, f. 14.1.1978 og Kjartan Sveinn, f. 18.7.1981; Sig- rún Kjartansdóttír, f. 8.7.1958, deild- arstjóri, gift Eggert Claessen og eru börn þeirra Ásdís Claessen, f. 3.6. 1975, Anna Claessen, f. 20.12.1985 og Stefán Claessen, f. 30.7.1988. Systkini Kjartans: Lydia Guðjóns- dóttir, f. 29.5.1921, húsmóðir í Reykjavík; Bjarndís Guðjónsdóttír, f. 20.11.1926, húsmóöir í Reykjavík; Kjartan Sveinn Guöjónsson. Lilly Erla Guðjónsdóttír, f. 6.3.1930, húsmóðir í Reykjavík; Sigurður Guðjónsson, f. 8.8.1949, jarðfræðing- ur í Stokkhólmi; Hulda Kolbrún Guðjónsdóttir, f. 21.9.1952, verslun- arstjóri í Reykjavík. Foreldrar Kjartans voru Guðjón Bjarnason, f. 6.11.1898, d. 11.9.1985, múrarameistari í Reykjavík, og k.h., Guðrún Sveinsdóttir, f. 6.9.1895, d. 14.4.1942, húsmóðir. Kjartan er að heiman á afmælis- daginn. Ólafía Ingibjörg Palmer Ólafía Ingibjörg Palmer, hús- freyja að Höfn í Melasveit, verður fertugámorgun. Fjölskylda Ólafía fæddist 1 Reykjavík en ólst upp aö Höfn þar sem hún hefur átt heima að undanskildum átta árum. Maður hennar er Stormur Þór Þor- varðarson, f. 16.4.1949, smiður. Hann er sonur Þorvarðar Jónsson- ar húsgagnasmíðameistara og Þóru Láru Grímsdóttur húsmóður. Ólafía á fjögur börn frá fyrra hjónabandi. Foreldrar Ólafíu: Pétur Torfason, f. 25.12.1900, d. 12.3.1988, bóndi að Höfn í Melasveit, og k.h., Guðrún Diljá Ólafsdóttir, f. 16.11.1927, hús- freyja. Henný Ósk Gunnarsdóttir Henný Ósk Gunnarsdóttír, inn- heimtufulltrúi hjá Innheimtustofn- un sveitarfélaga, til heimilis að Suð- urhólum 16, Reykjavík, er fertugí dag. Starfsferill Henný fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Kleppsholtinu og síðan í Búðardal og á Gufuskálum. Hún v hefur nú starfað hjá Innheimtu- stofnun sveitarfélaga í sextán ár. Fjölskylda Sambýlismaður Hennýjar er Sig- urjón Rafn Gíslason, f. 17.1.1937, vatnsveitustjóri á Keflavíkurflug- velli. Hann er sonur Gísla Hildi- brandssonar og Svanhildar Sigur- jónsdóttur í Hafnarfírði. Börn Hennýjar eru Bjarni Þór Finnbjörnsson, f. 6.11.1974, nemi, og Vala Kolbrún Reynisdóttír, f. 16.7. 1975, nemi. Foreldrar Hennýjar eru Gunnar Henný Ósk Gunnarsdóttir. Óskarsson, f. 15.6.1933, rafeinda- virki í Reykjavík, og Jakobína Kristjánsdóttir, f. 31.1.1933, starfs- stúlka hjá SVR í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.