Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995 59 Afmæli Steinþór Einksson Steinþór Eiríksson, myndlistar- maður og vélvirki, Hjarðarhlíð 1, Egilsstöðum, er áttræður í dag. Starfsferill Steinþór fæddist á Fremraseli í Hróarstungu og ólst þar upp fyrstu fjögur árin en síðan að Þórsnesi í Hjaltastaðaþinghá við öll almenn sveitastörf þess tíma. Steinþór naut bamaskólakennslu í einungis fimm mánuði. Á ungl- ingsámnum var hann m.a. í brúar- vinnu við brúna yfir Selfljót. Hann fór síðan til Bjarna Runólfssonar, þjóðhagssmiðs í Hólmi í Landeyjum og vann hjá honum í eitt ár en starf- aði síðan á vélaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar í Reykjavík í þrjú ár. Steinþór flutti aftur austur á stríðsárunum, lauk þá sveinsprófi í vélvirkjun og hóf rekstur vélaverk- stæðis á Reyðarfirði en flutti til Eg- ilsstaðai944, byggði þar hús sem einn af frumbyggjum staðarins og hóf þar rekstur búvélaverkstæðis sem hann starfrækti um árabil. Steinþór hætti verkstæðisvinnu um 1970 vegna heilsubrests. Þá tók hann hið meira bifreiðapróf, stund- aði leigubílaakstur á Egilsstöðum og annaðist leiðsögn fyrir ferða- menn, auk þess sem hann var frétta- ritari Morgunblaðsins um árabil. Steinþór kynntist málaralistinni tíu ára er Freymóður Jóhannesson listmálari gisti í Þórsnesi hjá for- eldrum hans. Hefur Steinþór alla tíð síðan haft mikinn áhuga á málara- list. Hann málaði lengi í stopulum tómstundum en sneri sér að málara- hstinni fyrir alvöru um 1970 og hef- ur málað síðan, einkum landslags- myndir frá Austurlandi. Fyrstu einkasýningu sína hélt Steinþór í Hamragörðum í Reykja- vík 1973 og seldust þá upp allar myndirnar. Hann hefur síðan haldið á fiórða tug einkasýninga víðs vegar um land, einkum þó á Austurlandi. Auk þess hefur hann tekið þátt í samsýningum. Steinþór var einn af stofnendum slysavarnafélagsins Gróar á Egils- stöðum, gegndi trúnaðarstörfum fyrir félagið og er heiðursfélagi þess. Þá hefur hann starfað með Rotary- hreyfingunni og í Frímúrararegl- unni. Um þessar mundir er að koma út bók um líf og hst Steinþórs: Mag- isterinn, eftir Vilhjálm Einarsson, fyrrv. skólameistara. Fjölskylda Steinþór kvæntist 1.9.1946, Þór- unni Þórhahsdóttur, f. 16.2.1920, d. 6.2.1995, saumakonu oghanda- vinnukennara við Húsmæðraskól- ann á Hallormsstað. Hún var dóttir Þórhalls Bjömssonar, óðalsb. á Ljósavatni í Ljósavatnsskarði, og k.h., Jennýjar Karitasar Björnsdótt- ur húsfreyju. Börn Steinþórs og Þórunnar: Ei- ríkur, f. 12.7.1947, d. 10.11.1973, vél- smíðameistari í Reykjavík, var kvæntur Hrefnu Loftsdóttur hús- móður og era dætur þeirra Ehn Þórunn og Elfa Björk en seinni Steinþór Eiriksson. maður Hrefnu er Hjörtur Karlsson rafvirkjameistari og er dóttir þeirra Tinna; Stefanía, f. 3.4.1949, veflistar- og teiknikennari á Hallormsstað, gift Gissuri Þór Árnasyni húsa- smíðameistara og eru börn þeirra Rannveig sem á dótturina Hrefnu Rós, Steinþór Hannes og Árni Kristján; Jenný, f. 2.6.1956, húsmóð- ir á Egilsstöðum, gift Guðmundi Kristjánssyni verkamanni og eru börn þeirra Eiríkur Gauti, Kristján Friðrik og Karitas Eir; Þórhalla, f. 22.11.1961, húsmóðir í Garðabæ, gift Óskari Baldurssyni framkvæmda- stjóra og eru börn þeirra Ýmir og ErlaYlfa. Steinþór er einbirni. Foreldrar Steinþórs voru Eiríkur Þorkelsson, f. 18.8.1874, bóndi að Þórsnesi, og k.h., Stefanía Eyjólfs- dóttir, f. 8.10.1875, húsfreyja. Steinþór dvelur á afmælisdaginn hjá dóttur sinni og tengdasyni að Smáraflöt 38 í Garðabæ. Kristján Guðmundur Sigurmundsson Kristján Guðmundur Sigurmunds- son framkvæmdastjóri, Kvisthaga 27; Reykjavík, verður níræður á morgun. Starfsferill Kristján fæddist að Fossá á Baröa- ströndinni og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Verslunarskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófum. Að námi loknu var Kristján sölu- maður hjá smjörlíkisgerðinni Bláa borðanum og síðan hjá sælgætis- geröinni Víkingi. Hann stofnaði fyr- irtækiö Crystal 1939 og starfrækti þaðtilársins 1992. Fjölskylda Krisfián kvæntist23.7.1953 Guðnýju Jóhannsdóttur, f. 15.6. 1916, d. 17.3.1993, húsmóður. Hún var dóttir Jóhanns Jónsson, f. 14.7. 1877, d. 8.7.1921, skipstjóraogbónda að Auðkúlu í Arnarfirði, og k.h., Bjarneyjar Jónínu Friðriksdóttur, f. 8.6.1876, d. 16.2.1952, húsfreyju. Börn Kristjáns og Guðnýjar eru Snæbjörn Kristjánsson, f. 23.7.1939, framkvæmdastjóri, kvæntur Huldu í. Kristinsdóttur og eru börn þeirra Guðný K. Snæhjörnsdóttir og Krist- ján G. Snæbjörnsson; Smári Krist- jánsson, f. 26.5.1947, sjómaður, var kvæntur Bergljótu Davíðsdóttur en þau skhdu og eru dætur þeirra Erna Sif, Ragnheiður Sif og Silja Sif en dætur Smára fyrir hjónaband eru Hulda Kristín, f. 3.5.1968, og María Smáradóttir, f. 21.2.1971. Synir Krisfiáns frá því fyrir hjóna- band eru Kristján Steinar Kristjáns- son, f. 26.3.1937, og Grétar Svan Kristjánsson, f. 17.6.1938. Systkini Kristjáns: Haraldur S. Sigurmundsson, f. 2.8.1902, d. 15.8. 1988, bóndi að Fossá á Barðaströnd; Sigríður, f. 24.6.1904, d. 6.1.1985; Magöalena Sesselja, f. 24.6.1904, d. 26.2.1953; Ingvi Óskar, f. 15.6.1912, d. 24.6.1935; Kristinn Valberg, f. 30.1. 1920, d. 11.9.1985. Foreldrar Kristjáns voru Sigur- Kristján Guðmundur Sigurmunds- son. mundur Katrínus Guðmundsson, f. 13.10.1873, d. 7.11.1955, bóndi að Fossá á Barðaströnd, og k.h., Kristín Kristjánsdóttir, f. 20.8.1879, d. 2.9. 1963, húsfreyja. Krisfián verður að heiman á af- mæhsdaginn. Til hamingju með afmælið 3. september 90 ára 75ára Þorgerður Bjarnadóttir, Efri-Ey 3, Skaftárhreppi. 85 ára Gunnar Jónsson, Blikanesi 14, Garðabæ. Auður Gísladóttir, Eyrarbraut 16, Stokkseyri. Jóhanna Davíðsdóttir, Kópavogsbraut la, Kópavogi. Kristjana Bjarnadóttir húsmóðir, Þórsgötu 10, Reykjavík, Maöur hennar erSigurður Kristjánsson listmálari. Kristjanaverö- uraöheimaná afmaílisdagmn. 80 ára Jóhanna Eiríksdóttir, Safamýri 46, Reykjavík. Sigurbjörg Jónatansdóttir, Vallholtsvegi 17, Húsavík. 70ára Guðmundur Benediktsson, Hraunbæ 140, Reykjavík. 60ára_______________ Svandís Sigurðardóttir, Hásteinsvegi 18, Stokkseyri. Heiða Þórðardóttir, Hamragerði 21, Akureyri. Gunnar Benediktsson, Álfheimum, Dalabyggð. Klara Björnsdóttir, Grundargotu 70, Grundarfirði. Rúnar Sigurður Þórisson, Brekastíg 6, Vestmannaeyjum. Sigríður Stefánsdóttir, Álfheimum 66, Reykjavík. 40 ára Björn Þrastar Þórhallsson, Reynigrund 7, Kópavogi. Katrín Jóna Hafsteinsdóttir, Þórsgötu 7, Reykjavík. Þorbjörg Guðnadóttir, Hjahalundi 18, Akureyri. Magnús Jónasson, Hábrekku 4, Snæfellsbæ. Sigrún Jóna Eyjólfsdóttir, Fífurima2, Reykjavík. Jón Arnfinnur Helgason, Tungusíðu 12, Akureyri. Björn Benediktsson, Arnarhrauni4, Haftiarfirði. Áslaug Sólveig Guðmundsdóttir, Þverá, Eyja- og Miklaholtshreppi. Laura Ann Valentino, Vesturgötu 4, Reykjavík. á næsta sölustað I Áskriftarsími 563-2700 | INNANHÚSS- ARKITEKTÚR í frítíma yðar með bréfaskriftum Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota. Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir,,. vegg- klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús- gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl. Eg óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ Nafn ......................... Heimilisfang .......................... Akademisk Brevskole A/S Jyllandsvej 15 • Postboks 234 2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark Umsjónarmaður orðabanka íslensk málstöð óskar eftir að ráða mann í 2-3 ár til að hafa umsjón með orðabanka málstöðvarinnar. Þetta er nýtt starf sem krefst góðra skipulagshæfileika, frumkvæðis og hugkvæmni og reynir á samvinnulipurð. Umsækjendur þurfa að hafa háskólapróf og helst í íslenskri málfræði. Umsjónarmanni er m.a. ætlað að gera orðasöfn málstöðvar- innar aðgengileg á tölvuneti í samvinnu við tölvunarfræð- ing, ef svo ber undir. Hann þarf að eiga samskipti við inn- lendar orðanefndir og erlendar stofnanir sem málstöðin hefir samstarf við, skipuleggja notkunarnámskeið fyrir þýð- endur o.fl. Starfið er launað sem sérfræðingsstarf. Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um námsferil og störf, þurfa að berast íslenskri málstöð, Aragötu 9, 101 Reykja- vík, fyrir 1. október 1995. Nánari vitneskju veitir forstöðumaður íslenskrar málstöðv- ar, sími 552 8530. ÍSLENSK MÁLSTÖÐ Hússtjórnarskólinn í Reykjavík Námskeið á haustönn 1995 1. Saumanámskeið 6 vikur Fatasaumur miðvikudaga 19-22 Bútasaumur mánudaga 19-22 Útsaumur, fatas. mánudaga 14-17 2. Prjónanámskeið 5 vikur Kennt fimmtudaga 19-22 3. Vefnaðarnámskeið 7 vikur Kennt mánud., þriðjud., fimmtud. 13.30-16.30 4. Matreiðslunámskeið 6 vikur Kennt mánud. og miðvikud. 18-21 5. Stutt matreiðslunámskeið Gerbakstur 2 skipti Grænmetis- og baunaréttir 2 skipti Kennt þriðjud. og fimmtud. 18-21 6. 8. janúar 1996 hefst 5 mánaða hússtjórnar- skóli. Heimavist fyrir 15 nemendur. Upplýsingar og innritun í síma 5511578 alla virka daga kl. 10-14.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.