Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
Stuttar fréttir
Utlönd
Konur í Peking hvetja SÞ
til að verja mannréttindi
Kratarþinga
Danskir jafnaðarmenn ræða
innra skipulag og málefni ESB á
ársþingi sínu í Silkiborg um helg-
ina.
Símakiám í kirkju
Símaklámshneyksli skekur nú
sóknarskrifstofuna í Brandval í
Noregi þar sem einhver hefur
hringt í klámþjónustu í Taílandi,
Bandaríkjunum og á Filippseyj-
um.
Konungshjön í Lundí
Karl Gústaf
Svíakóngur og
Silvía drottning
voru meðal fjöl-
margra fyrir-
menna og
óbreyttra borg-
ara sem sóttu
guðsþjónustu í
dómkirkjunni í Lundi í gær í
tengslum viö 850 ára afmæli
kirkjunnar.
Mótmælendur teknír
Lögreglan í París handtók 300
andstæðinga fyrirhugaðra kjarn-
orkutilrauna sem eiga að heíjast
hvað úr hverju.
Funduoliuoggas
Boranir eftir oliu og gasi á Nu-
ussuaq-nesi í Diskoflóa á Græn-
landi í sumar báru góðan árangur
og verður haldiö áíram aö ári.
Ræðaumfrið
Utanríkisráðherrar Króatíu,
Bosníu og .Júgóslavíu hefja frið-
arviðræður í Genf í næstu viku.
Fangaráferju
Uppreisnarmenn á Sri Lanka,
sem rændu ferju með 144 um
borð, segjast ætla að halda nokkr-
um farþeganna fóngnum.
Mannæta við hlóðirnar
Logregla í Pétursborg hefur
handtekiö mann sem var að búa
sig undir að sjóða mannakjöt
heima hjá sér.
Drottningin ríkust
Elísabet Eng-
landsdrottning
er ríkasta
manneskja á
Bretlandi, sam-
kvæmt nýrri
könnun sem
birtist í dag, og
eru eignir
hennar metnar á aö minnsta
kosti 220 milljarða.
Nýnasista hafnað
Dönsk yflrvöld hafa hafnað
beíðni bandaríska nýnasistans
Garys Laucks um pólitískt hæli
og er þvi ekkert í veginum fyrir
framsali hans til Þýskalands.
Ritzau, NTB, TT, Reuter
Erlendar kauphaílir:
Hækkun í
Wall Street
Hlutabréfaverð í kauphöllinni við
Wall Street í New York steig jafnt
og þétt upp á við sl. fimmtudag vegna
mikillar eftirspurnar á hlutabréfum
hátæknifyrirtækja. Einnig hafði það
áhrif að von var á jákvæðri atvinnu-
skýrslu fyrir ágústmánuð, auk þess
sem löng fríhelgi er í Bandaríkjun-
um.
Breytingar á öörum hlutabréfavísi-
tölum helstu kauphalla heims hafa
ekki verið svo miklar. Eilítil lækkun
varð í Tokyo ekki síst eftir að tveir
stórir bankar tilkynntu gjaldþrot sitt
sl. miðvikudag.
Kafflverð virðisí vera á uppleið á
ný en verð á sykri helst svipað. Sömu
sögu er að segja um olíu- og bensín-
markaðinn. -Reuter
Konur frá Rúanda, Chile og Banda-
ríkjunum skýrðu frá voðaverkum
um heim allan við grasrótarréttar-
höld kvenna á óháöu kvennaráð-
stefnunni í Peking í gær og dómar-
amir sögðu stjórnvöldum að þau
yrðu að vera ábyrg fyrir misnotkun
af þessu tagi.
Thea Du Bow batt snöggan enda á
hjónaband sitt árið 1982 þegar hún
Norsk stjómvöld viðurkenna að
fiskveiðiflota Evrópusambandsins
beri að fá síldarkvóta í Síldarsmug-
unni umdeildu á hafsvæðinu milli
íslands, Noregs og Færeyja.
„Við höfum viðurkennt að síldin
hefur breytt um flökkumunstur og
að við getum ekki stjómað nýtingu
stofnsins einir,“ sagði Jan Henry T.
Olsen, sjávarútvegsráðherra Noregs,
í viðtali við norska blaðið Aftenpost-
en eftir fund sinn með Emmu Bon-
ino, framkvæmdastjóra fiskveiði-
mála ESB, í Brussel á miðvikudag.
Jan Henry og Emma Bonino uröu
sammála um það á fundi sinum að
skaut eiginmann sinn til þess að
hann gengi ekki framar í skrokk á
henni. Hún sagði að ef hún hefði
ekki drepið hann hefði hann drepið
hana. Thea sat inni í þrjú og hálft ár
í fangelsi í New York.
„Ég veit ekki hvort mér hefði tekist
að komast burt frá honum ef þetta
hefði ekki endað svona,“ sagði hún
um eiginmann sinn. Þau voru gift í
nauösynlegt væri að gera sem allra
fyrst samning um nýtingu síldar-
stofnsins í Síldarsmugunni. Er talað
um að honum verði að vera lokið
mars á næsta ári. Þá eru þau á einu
máli um að viðræðumar geti hafist
á ársfundi Norð-austur Atlantshafs-
fiskveiðinefndarinnar í nóvember.
Emma og Jan Henry telja að samn-
ingur um Síldarsmuguna eigi að vera
gerður á grundvelli hins nýja samn-
ings um fiskveiðar á úthafinu, sem
samþykktur var á úthafsveiöiráð-
stefnu SÞ í New York í ágústbyrjun.
Tilgangur fundarins í Brussel á
miðvikudag var fyrst og fremst sá
níu og hálft ár og hann lamdi hana
nær allan þann tíma.
Um tuttugu þúsund konur eru
staddar í Peking til að sitja óháðu
kvennaráðstefnuna en forráöamenn
hennar vonast til að geta haft áhrif
á hina opinbem kvennaráðstefnu SÞ
sem hefst á mánudag.
Konur sögðu dómstólnum frá voða-
verkum sem þær og kynsystur þeirra
að þau Emma og Jan Henry gætu
kynnst hvort öðru. Jan Henry var
ánægður með fundinn og að honum
loknum sagði hann Emmu vera
skapi fama eins og Norðmann úr
Norður-Noregi. Að sögn norsku
fréttastofunnar NTB fengu þau sér
að reykja saman.
í frétt Aftenposten segir að nú hafi
kveðið við annan tón en í júlí þegar
Emma Bonino kallaöi Norömenn
m.a. hrokafulla vegna þess að þeir
höfðu hafið viðræður við íslendinga,
Færeyinga og Rússa um síldarkvóta,
án þess aö bjóða Evrópusambandinu
aö vera meö.
hafa mátt þola í styrjaldarátökum og
inni á eigin heimilum: barsmíðum,
nauðgunum, pyntingum, brottnámi,
limlestingum, þrældómi og moröum.
Aðalhvatamaöur þess að dómstóll-
inn yrði settur upp, Charlotte Bunch
frá New Jersey, sagði að markmiðið
væri að þrýsta á SÞ að standa við
gefin loforð um að standa vörð um
mannréttindi. ** Reuter
lögregla rann-
sakarmeint
fjöldamorðí
Birmingham
Lögreglan í Birmingham á Ehg-
landi hefur handtekið 65 ára
gamlan karlmann í tengslum við
allt að sextán morð á undanföm-
urn fjórtán árum á gistiheimili
fyrir einhleypa og heimilislausa
karimenn á vegum félagsmála-
stofnunar borgarinnar.
Maðurinn sem er í haldi lög-
reglu er-sakaöur um að hafa
myrt 75 ára gamlan karlmann
árið 1988. Vitað er að þeir sem
gistu á heimili þessu máttu sæta
misþyrmingum af ýmsu tagi.
Lögreglan er fremur þögul um
máliö, aö sögn Sky sjónvarps-
stöðvarinnar, en segir þó að
rannsókninni sé langt frá því að
vera lokið.
Vitaðum kjarn-
orkuflugvélarí
Thulefrá 1983
Poul Nyrup
Rasmussen,
forsætisráð-
herra Dan-
merkur, sagði í
gær að danska
þjóðþinginu
heföí verið
skýrt frá því
þegar í apríl 1983 að bandarískar
B-52 sprengjufiugvélar hefðu oft
nauðlent á herstöðinnl í Thule
allt til ársins 1968.
Upplýsingamar koma fram í
frásögn frá fiánska varnarmála-
ráðuneytinu til ellefu manna
þingnefndar. Á bak við frásögn
ráðuneytisins stóðu Hans Engell,
þáverandi varnarmálaráðherra,
og Uffe Ellemann-Jensen, þáver-
andi utanríkisráðherra.
Danska stjómin ítrekaði í gær
boð sitt um að láta undimefnd
utanríkisnefndar í té allar upp-
lýsingar sem stjórnvöld hefðu um
Thule-máliö til skoöunar.
Dönskskóla-
börnfáfróðum
handaþvott
Dönsk skólabörn læra heldur
lítiö um gildi þess að þvo sér vel
um hendurnar og handþvottamál
eru fremur í ólestri en hitt í evr-
ópskum skólum.
Þetta kemur fram í áliti evr--
ópskrar nefndar til eflingar
handaþvotti. Þar segir einnig að
evrópsk skólabörn hafi yfirleitt
ekki nógu góðan og greiöan að-
gang að handlaugum nærri sal-
ernum til að geta stundað þá eðlu
íþrótt að þvo sér um hendur.
Finnskir skólar eru einna best
búnir, meö tíu salerni á hverja
100 nemendur og rúmlega átta
handlaugar. í Danmörku eru sjö
salerni á hveija 100 nema og ekki
nema 3,7 handlaugar. Ritzau
Mikið iíf og fjör er i Feneyjum þessa dagana þar sem kvikmyndahátíðin stendur sem hæst. Þar er samankomið
kvikmyndagerðarfólk af ýmsu tagi og þar á meðal ítalski klámstjórinn Tinto Brass sem hér sést ásamt leikkonun-
um úr nýjustu mynd hans. Símamynd Reuter
Sjávarútvegsráðherra Noregs í sáttahug um Síldarsmuguna:
ESB á rétt á síldarkvóta