Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995 45 Merming Fidla og píanó Þær Margrét Kristjánsdóttir fiöluleikari og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari léku á síðustu þriðjudagstónleikum Listasafns Sigurjóns Ólafssonar nú í vikunni. Margrét nam við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og síðar við Mannes College of Music í New York þar sem hún lauk bæði bachel- or- og mastersprófi. Hún hefur leikið með Sinfóníu- hljómsveit íslands þar sem hún er fastráðin síöan 1993. Nína Margrét stundar doktorsnám í píanóleik við City University of New York en starfar auk þess við Bloomingdale tónlistarskólann þar í borg. Hún hefur undanfarið unnið að rannsóknum um þróun píanó- leiks á íslandi. Hún hefur víða komið fram, m.a. á vegum EPTA, í Purcell Room í London og Rockefeller Center í New York og starfar að staðaldri með fiðlu- leikaranum Nicholas Milton í dúóinu NOMOS, en þau fluttu m.a. allar fiðlusónötur Beethovens á síðasta starfsári í New York. Þær Margrét og Nína hafa starfað saman í nokkur ár og haldið tónleika í Reykjavík og New York. Efnisskráin hófst á Sónötu nr. 3, op. 30 í G-dúr, eftir Beethoven. Þær Nína og Margrét eru báðar hinar vönduðustu tónlistarkonur og einkenndist leikur þeirra af vönduðum vinnubrögðum. Nokkuð skorti þó á kraft og stærð í tón Margrétar, einkum í síðasta þætti verksins, en Nína lék af miklu öryggi og sterkri tilfmningu. Þijár rómönsur fyrir fiðlu og píanó op. 22 Tórúist Askell Másson eftir Clöru Schumann voru samdar u.þ.b. 50 árum eft- ir sónötu Beethovens sem á undan fór á efnisskránni. Þetta er verk einfalt að gerð, en áferðarfallegt og vand- að í mótun. Þær Margrét og Nína léku verkiö mjög fallega. Tónn Margrétar er kannski ekki mjög kraft- mikill og fylltur, en hann er bæði hreinn, tær og fall- ega myndaður. Þannig naut hún sín best í meistara- verki Janacek, Sónötunni frá árinu 1913, samdri rétt- um 60 árum eftir rómönsum Clöru. Átti þetta kannski sérstaklega við um Ballöðuna, sem Margrét lék mjög vel. Saman fóru þær Margrét og Nína á kostum í flutn- ingi þessa frábæra verks. Aðstandendum Listasafns Sigurjóns Ólafssonar er að lokum þakkað fyrir athyglisverða tónleikaröð í sumar. Djassplata ársins - Movin' Out Movin’ Out, geislaplata Jespers Thilo, var kjörin djassplata ársins 1994 í Danmörku. Tenórsaxistinn Jesper Thilo er einn af þekktustu djassleikurum Dana. Hann er fæddur 1941 og er stíll hans mótaður af Coleman Hawkins og litaður af Ben Webster, og er einstaklega lipur og léttleikandi. Á nýjustu geislaplötu Radioens Big Band er hann í lykil- hlutverki sem sólisti, en sú plata er helguð verkum Dukes Eflingtons. Jesper Thilo er einn af gestum okk- ar á RúRek ’95 og blæs við opnunina 3. september í Ráðhúsi Reykjavíkur ásamt Bent Jædig, öðrum dönsk- um tenórrisa sem við þekkjum frá fyrstu RúRek hátíð- inni. Movin’ Out er tríóplata - meðleikarar Thflos eru þeir Ben Besiakov á píanó og Jesper Lundgárd á bassa, en honum muna menn eftir frá RúRek ’93 með Svend Asmussen og einnig Freddie Hubbard. Trommaraleys- ið hijáir þá félagana ekki baun, þetta er dúndrandi swingmúsík, ágætlega afslöppuö og dönsk. Þeir leika eingöngu gamlar perlur á plötunni, On Green Dolphin Street er upphafsópusinn, vel og lipurlega keyrður, síðan There Will Never Be Another You sem er spilað mun hægar en yfirleitt tíðkast. Blue Monk er einnig í rólegri kantinum, jafnvel um of fyrir smekk rýnis, en þar beitir Lundgaard boganum á bassann í sínu sólói. Stardust er stundum sagt vinsælasta lag ailra tíma, og ekki dvína vinsældir lagsins við þessa útgáfu. Tenórinn snöktir þetta hunangsþýtt í Websterskum anda, dönsk huggulegheit eins og þau gerast best, og ásamt Thou Swell eftir Rogers og Hart kannski það Jesper Thilo er einn af þekktustu djassleikurum Dana. Djass Arsæll Másson besta á plötunni. Síðasta lagið er Till There Was You eftir Meredith Wflson sem flestir þekkja kannski best í flutningi Bítlanna, og fær það' góða meðferð hér. Movin’ Out er plata fyrir alla sveifluunnendur, hún er ekki kjörin djassplata ársins út á frumlegheit eða nýjungar í spilamennsku heldur fyrir frábæran flutn- ing og fallega spilamennsku á sígildri djasstónlist. Ég vil að lokum skora á menn að koma og hlusta á Je- sper Thilo á RúRek, því miðað við spilamennsku hans á þessari plötu verður það svo sannarlega þess virði. Andstæður og dulúð Þeir Þórhallur og Snorri Sigfús Birgissynir komu fram á tónleikum Óháðrar listahátíðar sl. miðvikudag. Á efnisskránni var eingöngu íslensk tónlist. Tónleikarnir hófust á einleiksverkinu Æfingar fyrir píanó, sem höfundurinn, Snorri Sigfús, lék sjáifur. Þetta stóra og ágæta verk samdi Snorri á árinu 1981 og frumflutti á ógleymanlegum tónleikum í Háskóla- bíói skömmu síðar. Verkið er í 21 þætti og er tónræn skoðun höfundarins á tarot-spilunum. Hér kennir margra grasa, en mikill agi og dulúð eru meðal þess sem er mest áberandi. Undirritaður hefur heyrt verkið nokkrum sinnum, bæði á tónleikum og í upptöku, og var þessi flutningur eftirminnilegur. Næst frumflutti Snorri einleiksverk eftir Finn Torfa Stefánsson, Preluda-Toccata-Fuga, samið fyrr á þessu ári. Eins og titill verksins gefur í skyn er um fremur heföbundnar vinnuaðferðir að ræða í samsetningu þess. Finni tekst þó að gera tónmáliö áhugavert og skrifa um leið athyglisverða píanótónlist. í fyrsta þætti verksins er mikið um þríundir sem mynda oft á tíöum hefðbundna dúr-hljóma. Toccatan einkennist m.a. af miklum og snöggum styrkleikabreytingum, en Fúgan er ljóöræn og falleg og einkar vel gerð af Finni. Ekki var aö merkja annað en að verkið væri mjög vel flutt. Þá kom nýtt píanóverk frá hendi Leifs Þórarinsson- ar, einnig frá þessu ári, og var það frumflutt. Preludio- Intermezzo-Finale fyrir píanó heitir það og er tileinkað Jóhönnu Sveinsdóttur sem lést sviplega fyrr á árinu. Preludían er tveggja radda hugleiðing, eins konar hæglátar harmónískar samræður sem oft eru kanón- ískar, þ.e. byggðar upp eins og keðjusöngur. Annar þátturinn, Intermessóið, ber fremur einfalt yfirbragð, en er geysifalleg músík sem eins og leitar stöðugt að einhverju æðra takmarki. Síðasti þátturinn hefst á kraftmiklum upphrópunum, sem á stundum eru brú- aðar með ljúfustu hljómum. Andstæðum er teflt sam- an, en verkið endar á kraftmikinn hátt. Þetta verk Tónlist Askell Másson Leifs er áreiðanlega meðal ágætustu píanóverka okk- ar, ásamt Æfingum Snorra. Síöasta verk tónleikanna var Novelette fyrir fiðlu og píanó frá árinu 1993 eftir Snorra. Þetta er í fyrstu draumkennd tónlist, mjúkt líðandi og oftast fremur ljúf, en þó ekki án átaka, einkum er á líður. Þetta er gott verk frá hendi Snorra og óvenju djúp tónsmíð af Novelettu að vera. Þeir bræður Þórhallur og Snorri fluttu verkið mjög vel og af innlifun. Gamla Iðnó býr greinilega yfir miklum möguleikum sem tónleikahús. Sviðsopið þyrfti að víkka og ein- angra þarf útveggi þannig að hljóð berist síður inn að utan. Hljómburðurinn er hlýr og mátulega opinn og sem slíkur kjörinn fyrir hvers kyns kammertónlistar- flutning. Vonandi rætist draumurinn. ENSKA ER OKKAR MAL Sérmenntaðir enskukennarar Samuel INNRITUN STENDUR YFIR i síma 552 5900 & 552 5330 Enskuskólinn VINSÆLUSTU ENSKUNAMSKEIÐ A LANDINU -TUNGOTU 5 I BHEiOABLIK Kópavogsbúar Mætum á völlinn í dag kl. 14. Sjóvá Almennradeildin BREIÐABUK- FH . Áfram, Breiðablik . UKAMSRÆKT JÚDÓ ..,isife TAEKWONDO ■ ÞREKTIMAR IHADEGINU • FITUBRENNSLA í HÁDEGINU • EINKAÞJÁLFUN FYRIR HÁDEGI • RÁÐGJÖF UM MATARÆÐI ..og svo á eftir - Ljós og Sauna láttu sjá þig semfyrst kmm Júdó GYM E I N H O L T I 6 S : 562 7295 Gasmiðstöðvar ^ í stærðum: 1800 - 2400 - 2800 og 4000 W, 12 og 24 volt. Fyrir: vörubíla, vinnuvélar, báta, húsbila, hjólhýsi, sumarbústaði o.fl. * Eyðslugrannar á gas og rafmagn. * Thermostat til að halda réttu hitastigi. * Mjög örugg tæki. * Mjög hreinleg og án mengunar. * Mjög hljóðlátar. * V-þýsk gæðaframleiðsla í áratugi. * Einnig tilheyrandí lagningarefni, s.s. barkar, rör, beygjur, ristaro.fi. Láttu ekki kuldann kvelja þig. BILARAF HF. Borgartúni 19, sími 552 4700 - fax 562 4090
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.