Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Blaðsíða 8
Frönskunámskeið Alliance Franciase Haustnámskeið verða haldin 18. sept. til 15. des. Innritun fer fram alla virka daga frá kl. 15.00-19.00 að Vesturgötu 2, sími 552 3870. Alliance Francaise Hraðfrystihús til sölu Fiskveiðasjóður Islands auglýsir til sölu hraðfrystihús í Keflavík að Básvegi 5 og Framnesvegi 21. Tilboð í eignina óskast send á skrifstofu sjóðsins fyrir kl. 15.00 föstudaginn 29. september 1995. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðjónsson á skrif- stofu sjóðsins, Suðurlandsbraut 4, Reykjavík, sími 588 9100. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Fiskveiðasjóður íslands Auglýsing um niðurfellingu leyfa til reksturs ferðaskrifstofu I samræmi við lög um skipulag ferðamála nr. 117/1994 og reglugerð um ferðaskrifstofur nr. 281 /1995 hafa eftirtal- in ferðaskrifstofuleyfi fallið úr gildi: 1. Ratvís hf. ferðaskrifstofa kt. 610487-1309 Hamraborg 10 200 Kópavogur 2. Ferðabær hf. ferðaskrifstofa kt. 511186-1619 Aðalstræti 6 101 Reykjavík Samgönguráðuneytið 11. september 1995 r ^Saumaúpotiiö V spor til sparnaðar Bernina, New Home og Lew- enstein heimilis-, lok- og iðn- aðarsaumavélar. Ykk-fransk- ir rennilásar og venjulegir rennilásar í úrvali, frá 3 cm upp í 200 m. Giitermann- tvinni, saumaefniog smávör- ur til sauma. Föndurvörur. Saumavéla- og fataviðgerðir. Símar 554 5632 og 554 3525 - fax 564 1116 Varnarliðið - Laust starf Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða sálfræð- ing/félagsráðgjafa.til starfa hjá Félagsmálastofnun Flota- stöðvar Varnarliðsins. Starfið felur í sér ráðgjöf/meðferð við einstaklinga og fjöl- skyldur ásamt námskeiðahaldi. Kröfur til menntunar og starfsreynslu eru þær að umsækj- endur uppfylli réttindakröfur bandarísku félagsráðgjafa- eða sálfræðingasamtakanna. Krafist er mjög góðrar enskukunnáttu ásamt góðri fram- komu og lipurð í samskiptum. Umsóknum sé skilað á ensku. Upplýsingar um námsferil og fyrri störf þurfa að fylgja umsóknum ásamt réttindaskírteinum. Umsóknir berist til Varnarmálaskrifstofu, ráðningardeildar, Brekkustíg 39, 260 Njarðvík, sími 421 1973, eigi síðar en 26. september 1995. Starfslýsing liggur þar frammi til aflestrar fyrir umsækjend- ur og er þeim bent á að lesa hana áður en sótt er um. Umsóknareyðublöð fást á sama stað. matgæðingur • --------- LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1994 JJV Eggaldinráttur „Ég hef gaman af því að prófa eitthvað nýtt og prófa mig áfram. Þegar ég er að búa til venjuleg- an mat hérna heima veit ég ekkert hver niður- staðan verður,“ segir Jón B. Stefánsson verk- fræðingur sem býður les- endum upp á eggaldin- rétt og kræklingasúpu. Eggaldinrétturinn er fyr- ir 4 til 6 en kræklinga- súpan fyrir 6 til 8. Eggaldinréttur 1,5 kg eggaldin 4 msk. ólífuolía 4 msk. vatn 2 greinar timian (blóð berg), aöeins blöðin 1 smásaxað hvítlauksrif salt og nýmalaður pipar 5egg 75 g nýr og nýrifinn parmesanostur Eggaldinin þvegin og þerruð og skorin í teninga (5 cm). 3 msk. af olíunni hitaðar í potti. Vatni, timi- an og hvítlauk bætt út í og látið krauma í mínútu og eggaldinunum þá bætt út í. Saltað og piprað og látið malla undir lokið í um 30 mínútur eða þar til eggaldinin eru orðin meyr. Hrært í öðru hverju. Ofninn stilltur á 200 gráður. Úr eggaldinunum er gert mauk, þó fremur gróft (nota má matvinnslu- vél). Eggin hrærð með gaffli og þau síðan hrærð ásamt parmesanostin- um vel saman við eggaldinmaukið. Bökunarmót, um 18 cm í þvermál, smurt að innan með olíu, blandan sett í það og yfirborð hennar jafn- að. Bakað í um 40 mínútur eða þar til yfirborðið er orðið grdlinbrúnt. Jón B. Stefánsson, matgæðingur vikunnar. Síðan skal mótið standa við stofu- hita í um tíu mínútur áður en inni- haldinu er hvolft á fat. Borið fram heitt eða volgt með mauksoðnum, afhýddum tómötum, bragðbættum með basilikum. „Páfarnir hljóta þó að hafa notað aðra sósu eða alls enga því tómat- ar berast fyrst til Evrópu á 16. öld. Það getur því vart talist goðgá að nota einhverja af niðursoðnu sós- unum, t.d. frá Hunt,“ segir Jón. Kræklingasúpa 3 lítrar nýir kræklingur 2 skalottlaukar, smásaxaðir 1 blaðlaukur, hvíti hlutinn, skorinn í þunnar sneiðar 1 dl fisksoð (nota má tening) 4 msk. þurrt hvítvín 2 gulrætur, 2 blaðlaukar og 3 seller stilkar, allt skorið í flngeröa strimla eldspýtustærð) 150 g smjör 1,5 dl rjómi saffran, örlítið börkur af 1 appelsínu, smátt rif- ínn 2 msk. appelsínusafi salt og pipar Skeljarnar hreinsaðar og skeggið skorið burtu. Kræk- lingur, vín, fisksoð, laukur og sneiddi blaðlaukurinn er sett í stóran pott með loki yfir og soðið þar til skeljarnar hafa opnast. Skeljarnar eru þá veiddar upp úr pottinum og kræklingurinn tíndur úr þeim og lagður tO hliðar um sinn. Soðið sigtað og sett í pott og soðið niður um þriðj- ung. Rjómanum og saffraninu bætt í og nýja blandan látin sjóða niður um fjórðung. Gulróta-, blaðlauks- og seller- ístrimlarnir soðnir í léttsölt- uðu vatni í um tvær mínútur eða þar til þeir eru að verða meyr- ir. Þá eru þeir settir i sigti og und- ir kalt rennandi vatn og síðan er látið renna alveg af þeim. Appelsínubörkurinn settur í lít- inn pott og kalt vatn látið fljóta yfir. Suðan látin koma upp og soð- ið í eina mínútu. Kælt undir vatni og þurrkað á sama hátt og græn- metið. Smjörið hrært út í soðið smátt og smátt og grænmetinu, appel- sínuberkinum og appelsínusafan- um bætt út í. Kryddað með salti og pipar. Kræklingnum bætt út í og súpan hituð án þess að sjóði þar til kræklingurinn er gegnheitur. Jón skorar á Pétur Bjöm Péturs- son hagfræðing að vera næsti mat- gæðingur. „Hann hefur lag á að koma gestum þægilega á óvart.“ Mn hliðin Jagger er fallegastur - segir Hildur Björg Helgadóttir, afmælisbarn DB Y ■/.* < Hildur Björg Heigadóttir lækna- nemi er afmælisbam Dagblaðsins. Hildur á sama afmælisdag og blaö- ið og hefúr verið fylgst með henni í tuttugu ár. Hildur lauk stúdents- prófi frá MR síðastliðið vor og er því að byrja í læknisfræöi. Hildur hefur nokkuð komið við sögu í DV undanfama daga sem afmælisbarn og fékk aö skera fyrstu sneiö af risatertunni í Perlunni sl. laugar- dag. Þaö er afmælisbarniö sem sýn- ir hina hliðina aö þessu siimi: Fullt nafii: HUdur Björg Helgadótt- ir. Fæöingardagur og ár: 8. septem- ber 1975. Kærasti: Ólafur Arnar Þórðarson. Böm: engin. Bifreið: Nissan Sunny árgerö 1987. Starf: Nemi í Háskóla íslands. Laun: Engin eins og er. Áhugamál: Ég reyni að safna pen- ingum til að komast í feröalög sem er helsta áhugamái mitt. Ég bjó í Svíþjóö í sjö ár og hef gaman af að koma þangaö. Einnig finnst mér gaman að lesa og fara út aö skemmta mér. Hefur þú unnið i happdrætti eða lottói? Nei, ég er á móti öllu slíku og hef þvi aldrei spUað með. Hvaö finnst þér skemmtilegast að gera? Borða góðan mat og slappa af eftir eifiðan dag. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Allt sem viðkemur þrifnaði eins og t.d. að skúra gólf. Uppáhaldsmatur: Lambalærið hennar mömmu. Uppáhaldsdrykkur: Vatn. Hvaða iþróttamaöur stendur fremstur i dag? Þaö er pabbi, Helgi Sigurðsson, en hann er ís- landsmeistari í bridge. Uppáhaldstímarit: Sænska viku- ritið, Veckorevyn. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð fyrir utan kærasta? Ætli það sé ekki Mick Jagger í Roll- ing Stones. Ertu hlynnt eöa andvíg ríkis- stjóminni? Hlynnt. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? VUhjálm Guöjónsson, afa minn, en hann lést árið 1976. Uppáhaldsleikari: Robert De Niro. Uppáhaldsleikkona: Susan Sar andon. Uppáhaldssöngvari: Freddy Merc ury. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Engin sérstök, ég hef litinn áhuga á teiknimyndum. Uppáhaldssjónvar-psefni: Ég hef lúmskt gaman af Söngvakeppni evrópskra sjónvarps stööva. Uppá- haldsveit- ingahús: Marhaba. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Ég var byi-juð á bók- inni ViUtir svanir en varö aö leggja hana frá mér þar sem svo mikið er að læra. Ég vonast til að geta lokið við hana fijótlega. Hver út- varpsrásanna flnnst þér best? X- ið. Uppáhaldsútvarpsmaður: Pétur Rúnar. Hvort horfir þú meira á Sjón- varpið eða Stöð 2? Við erum ekki með afruglara þannig aö ég horfi meira á Sjónvarpið. Uppáhaldssj ónvarpsmaðm-: Þor- geir Ástvaldsson. Uppáhaldsskemmtistaður: 22 og Café au Lait. Uppáhaldsfélagí íþróttum: Ég hef lítinn áhuga á íþróttura og styð ekk- ert sérstakt liö. Stefliir þú aö einhverju sérstöku í framtiðinni? Ljúka námi hér og fara síöan utan og læra meira. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég var að vinna í Hard Rock Café en tók tveggja vikna frí og heim- sótti vini í Svíþjóö, auk þess sem ég eyddi nokkrum dög
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.