Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995
23
Vinningshafar feta í fótspor Cadfaels
I sumar efndi útgáfa Cadfael-
bókanna og Ríkisútvarpið sjónvarp
til leiks meðal lesenda bókanna þar
sem aðalverðlaunin voru helgarferð
fyrir tvo til Shrewsbury á Englandi,
á söguslóðir bróður Cadfaels. Auk
útgáfunnar og Sjónvarpsins stóðu
Cadfaelsafnið í Shrewsbury,
Shrewsbury Quest, og Emerald Air
að leiknum.
Þátttaka í leiknum varð góð og
alls bárust um 2000 lausnir. Þegar
dregið var um Bretlandsferðina
kom upp nafn Ævars H. Kolbeins-
sonar í Kópavogi. Hann bauð síðan
móður sinni, Guðmundu Halldórs-
dóttur, með sér í ferðina.
Eftirminnileg flugferð
Svo vildi til að ferðin hófst
einmitt daginn sem Emerald Air
flaug sina síðustu ferð milli íslands
og Bretlandseyja. Raunar voru far-
þegarnir þess skilnings að þetta
væri fyrsta ferð Arctic Air Tours
sem stofnað hafði verið daginn áður
og yfirtekið skuldbindingar Emer-
ald Air, eða kannski var þetta á
þeim mörkum að áhöld voru um
hvað væri hvað. Svo mikið er víst
að samgönguráðuneytið íslenska
vissi ekki hvaðan á það stóð veðrið
og dró lappirnar lengi dags með að
veita flugvélinni tilskildar heimild-
ir til lendingar og brottfarar - svo
lengi að þegar hún loks komst í loft-
ið var orðið svo áliðið kvölds að
A söguslóðum Cadfaels í Shrewsbury á
Englandi, fornri og fallegri borg þar sem margt
er að sjá. Til hægri séð frá lesanda er vinnings-
hafinn, Ævar H. Kolbeinsson, í miðju móðir
hans, Guðmunda Halldórsdóttir, en til vinstri er
Dorothy Nicole, leiðsögumaður í Shrewsbury.
hefði vélin lent í Gatwick við
London, svo sem áætlað var, hefði
hún vegna reglna um hávaðatak-
markanir ekki fengið að fara aftur í
loftið fyrr en á nýjum degi og þá of
seint til að fara í sitt næsta verk-
efni. Því var lent í Manchester, þar
sem henni var fyrirhugað næsta
verk, en farþegunum ekið þaðan til
London, þeim sem það þáðu.
Þau Ævar og Guðmunda, ásamt
undirrituðum sem fór með þeim í
ferðina, áttu sér hins vegar ekki
annars úrkosti en að taka sér gist-
ingu í Manchester það sem eftir
lifði nætur en héldu þaðan árla
næsta morgun og náðu áætlaðri
dagskrá i Shrewsbury.
Allt með sama
götuskipulagi
Sérstakur leiðsögumaður tók þai
á móti gestunum, gekk með þá um
borgina og sýndi markverða sögu-
staði. Löng viðdvöl var í sögusafn-
inu Shrewsbury Quest og síðan
haldið áfram að skoða markverða
staði í borginni, svo sem Shrews-
bury-kastala og gömul hús sem ætla
má að höfundur Cadfael-bókanna,
Ellis Peters (Edith Pargeter), hafi
haft í huga er hún valdi hinum
ýmsu sögupersónum heimili. Gamli
hlutinn í Shrewsbury, hæðin strax
handan við Ensku brúna, er enn
með sama götuskipulagi og hann
var á 12. öld, þegar Cad-
fael-sögurnar gerast,
þannig að ef bróðir Cad-
fael hefði verið raun-
veruleg persóna og gæti
nú snúið aftur til
Shrewsbury gæti hann
enn ratað um borgina
þó að flest sé þar nú að
öðru leyti með öðrum
brag.
Óvæntur fundur
við höfundinn
Áhugaverðri dagskrá
þennan dag lauk síðan
með því að höfundur
bókanna, Edith Parget-
er, kom óvænt í síðdeg-
iste með gestunum og
átti með þeim notalega
stund.
Verið
viðbúin
vinningi!
Daginn eftir, sunnudag, höfðu
gestirnir ráðrúm til að skoða sig um
að eigin vild og notfærðu sér það til
fullnustu: voru árla á fótum og síð-
an á ferðinni fram í svartamyrkur.
Síðan nutu þeir hvíldar á því fræga
Lion-hóteli sem um aldir var um-
ferðarmiðstöðin í Shrewsbury,
enda- og afgreiðslustaður póstvagn-
anna til London.
Á mánudegi var haldið til
Gatwick við London, áfangastaðar
Arctic Air Tours, þaðan sem eru
greiðar samgöngur inn til London
eða hvert sem vill. Á þriðjudegi var
svo haldið heim með Arctic Air To-
urs í þægilegu og tíðindalausu flugi.
S.H.H.
Imagery
A4 litaskanni
Að lokinni dagskrá var haldið í síðdegiste á The Lion Hotel í Shrewsbury,
gömlu „umferðarmiðstöðinni" þar í borg. Höfundurinn, Ellis Peters (Edith
Pargeter), heiðraði gestina óvænt með nærveru sinni.
. Trust
COMPUTER PRODUCTS
Alhliða litaskanni fyrir
skrifstofuna og heimilíð
1200 dpi upplausn
PhotoShop LE fylgir
4 9.9 □ □
Opið
«öag 10-14
Sjónvarpstölva
með fullkomnum margmiðlunarbúnaði,
sjónvarpi og textavarpi
Star SJ-144
„Full color" lítaprentari
Prentar á glærur
Prentar á boli
30 blaða arkamatari
Verð kr. 34.900
Tilboðsverð m/VSK:
2 4.9 □ □
l aíHi |h'v n\iða t> rir kl. 20,-W a laugai tlagiim.
Odýrt mótald
14.400 Baud
og ókeypís lnternetáskríft
í einn mánuð!
Aðeins krónur:
S . 2 □ □
VÖRULISTINN Á INTERNETINU:
http://www.nyherji.is/vorur/
NYHERJA
SKAFTAHLIÐ 24
SÍMI 569 7800