Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Blaðsíða 30
afmæli Dagblaðsins LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 Ómar Valdimarsson, Ásgeir Tómasson og Helgi Pétursson kynntu og stjórnuðu verðlaunaafhendingu vegna vin- sældavals Dagblaðsins og Vikunnar á Stjörnumessum. Hér sjást þeir Ásgeir og Helgi. DB-mynd Ragnar Th. Dagblaðið bryddaði upp á mörgum nýjungum: Stjörnumessur urðu stór- hátíðir poppstjarnanna Ein af þeim nýjungum sem brydd- að var upp á í Dagblaðinu var Stjörnumessa blaðsins, þar var stað- ið að vinsældavali tónlistarmanna og vali á besta sjónvarps- og út- varpsþætti ársins á undan. Fyrsta Stjörnumessan var haldin árið 1978 og var hápunktur vinsældavalsins dansleikur og borðhald þar sem úr- slitin voru gerð heyrinkunn. „Þetta byrjaði með vinsældavali Dagblaðsins og Vikunnar. Þegar við Halldór Ingi Andrésson, sem rekur Plötubúðin við Laugaveg, vorum komnir af stað með það þá fékk, að ég held, Helgi Pétursson, sem þá var blaðamaður á Dagblaðinu, þá hug- mynd að við yrðum aö halda gala- kvöld til að kynna úrslit vinsælda- valsins, líkt og grammy- og ósk- arsverðlaunahátíðirnar, og það þró- aðist í þessa Stjörnumessu," segir Ásgeir Tómasson, fréttamaður á Ríkisútvarpinu og fyrrum blaða- maður á Dagblaðinu, en Ásgeir var ásamt Helga Péturssyni, Ómari Valdimarssyni og Jóhannesi Reyk- dal umsjónarmaður Stjörnu- messnanna um skeið. Spilverkið á toppnum Hljómsveit, söngvara, söngkonu, plötu, lagi, hljóðfæraleikara, laga- smið, textasmið, sjónvarpsþætti og útvarpsþætti voru veitt verðlaun fyrstu tvö árin en tveir síðastnefndu flpkkamir voru felldir út eftir það. Aukinheldur voru veitt verðlaun fyrir bestu hljómsveitina, söngvar- ann, söngkonuna, lagasmiðinn, hljóðfæraleikarann og plötuna af er- lendum vettvangi til'að byrja með. Fyrsta árið sópaði til dæmis Spil- verk þjóðanna verðlaununum til sín. Þótti það besta hljómsveitin, var með bestu söngkonuna, bestu plötuna, Sturla, og átti besta lagið, Sirkus Geira Smart. Björgvin Hall- dórsson var kosinn besti söngvar- inn, Gunnar Þórðarson besti hljóð- færaleikarinn og lagasmiðurinn og Mégas besti textasmiðurinn. Besti sjónvarpsþátturinn var valinn Und- ir sama þaki, sem Egill Eðvarðsson, Hrafn Gunnlaugsson og Björn G. Björnsson stóðu að. Besti útvarps- þátturinn þótti hins vegar Lög unga fólksins í umsjón Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, nú alþingismanns. Árið eftir átti annar þingmaður, Guðmundur Árni Stefánsson og Ijálmar Árnason, sá þriðji, eftir að -ína til verðlauna í síðast nefnda knum. 'iun í netpoka hátíð skipaði mjög stóran num tíma og var sprottin iamkeppni Dagblaðsins og nlistarmenn höfðu til dæm- inan vettvang til að hittast rshátíðir FÍH og þeim sem yngstir, en eru nú orðnir i menn, þóttu þær hálfhall- Seinna, þegar nýbylgjan um, henti eiginlega það sama Stjörnumessuna. Þegar Utan- garðsmenn sópuðu til sín verðlaun- um árið 1981 þá neituðu þeir að mæta. Einar Öm Benediktsson, sem þá var umboðsmaður Utangarðs- manna, kom hins vegar fyrir hönd hljómsveitarinnar, sem hafði verið að spila á Hótel Borg sama kvöld á svokallaðri „Stjömuklessu" og hirti öll verðlaunin og fór með þau í eins konar netpoka á bakinu. Mér er sagt eftir á að Magnús Stefánsson, trommuleikari hljómsveitarinnar, hafi neitaði að koma, hinir hefðu allir veriö á því að mæta, en í anda stjórnleysis, sem var hátt skrifað, þá réð hann. Megas, sem hirti verðlaun fyrir bestu textana í mörg ár, kom þó alltaf og ég tek eftir því að í bók- inni Samtíðarmönnum hafa menn séð ástæðu til að láta þess getið ef þeir unnu til verðlauna á Stjömu- messunum. Þannig að menn litu á þetta sem alvöru sem það og var.“ Ásgeir segir að í sumum flokkun- um hafi verið fáir sem til greina komu. Sérstaklega hvað varðar út- varps- og sjónvarpsflokkana en einnig nefnir hann söngkonuflokk- inn: „Þetta voru einhverjir fimm þætt- ir sem voru að fá stig í kosningunni þannig að það var ekki um auðugan garð að gresja. Reyndar, ef maður Ásgeir er enn í fréttamennskunni og hamrar nú á töivur fréttastofu Útvarps en finnur sér þó tíma til að sinna tónlistargagnrýni fyrir DV. DV-mynd GVA lítur yfir flóruna nú, þá eru ekki margir útvarpsþættir i gangi. Þetta eru mest plötusnúðar að spila plötur og segja hvað klukkan er. Það vant- ar dálítið dagskrárgerðina. Ég man líka að það var oft á mörkunum að það tækist að fylla hóp söngkvenna. Þetta voru helst Diddú, Linda, Ragn- hildur Gísladóttir og Ellen var að koma inn. Síðan voru Rut Reginalds og Katla María að fá stig en þær voru enn á barnsaldri þarna." Breyttir tímar Seinasta Stjömumessan var hald- in árið 1983. Síðustu tvö árin var messan haldin í nýjum salarkynn- um veitingahússins Brodway í Mjódd. Tíðarandinn var orðinn allt annar en nokkrum árum fyrr og skyndilega var orðið óflnt að aug- lýsa sjálfan sig og taka þátt í glans- hátíðum. Nýstirni hættu aö koma á hátíðina og urðu það endalok Stjörnumessnanna. Hugarfar sömu einstaklinga er þó mikið breytt því í dag víla þeir ekki fyrir sér að taka þátt í hátíðum af sama tagi og Stjömumessumar voru. -PP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.