Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 Boltum fjölgað. Pétur Pókus bregður á leik. DV-mynd GVA Sjónhverfingamaðurinn Pátur pókus: Það leynist töframaður í okkur öllum í gegnum árin hefur Pétur þjálfað margs konar atriði og hingað til mest skemmt börnum. En að undan- förnu hefur hann einbeitt sér að því að skemmta fullorðnum. Núna eru sjónhverfingar aðalatvinna Péturs. Síðasta hálfa árið starfaði hann við Götuleikhúsið á vegum Hins húss- ins. Hann hefur haldið námskeið í grunnskólum á vegum íþrótta- og tómstundaráðs. „Þá hef ég kennt krökkum á lítil töfrasett úr búð. Það er svo fyndið að krakkarnir halda alltaf að þetta séu galdrar, að það sé hægt að kenna þeim að galdra. Þeir átta sig ekki strax á að það eru mikl- ar æfingar á bak við töfrabrögð.“ Þrátt fyrir miklar æfingar gefur Pétur sér tíma til að stunda önnur áhugamál, eins og sportköfun og listförðun. Hann hefur tvisvar hlot- ið fyrstu verðlaun og tvisvar önnur verðlaun í leikhúsförðun í keppni á vegum Hárs & fegurðar. „Ég lærði í Listförðunarskóla Línu Rutar þegar hann var opnaður. Við krakkarnir sem fórum í gegnum fyrsta niu mánaða námskeiðið fengum kennslú á heimsmælikvarða,“ segir Pétur. Hann hefur ekki starfað við leik- húsförðun. „Ég hef hreinlega ekki haft áhuga á því enn. Það eru bara konur sem starfa við þetta og sam- keppnin er ægileg.“ Þó 'svo að Pétur verði ekki var við samkeppni í sinu eigin fagi hér heima er hann að gæla við hugmyndma um að reyna fyrir sér erlendis. Hann ætlar að senda umboðsmanni allra sirkusa myndband með töfrabrögðum sín- um. En nú er samkeppnin hörð er- lendis: „Maður verður að standa upp úr og sérhæfa sig í einhverju." Fákk oiíu í lungun Sjálfan langar hann til að sérhæfa sig í atriðum með eld. Slík atriði eru ekki hættulaus og Pétur viðurkenn- ir að hafa brennt sig. „Það kviknaði einu sinni í andlitinu á mér en það var ekkert alvarlegt. Svo fékk ég einu sinni olíu í lungun og fékk lungnabólgu. Ég þurfti að liggja á spítala í tíu daga.“ Pétur er mikill aðdáandi töfra- mannsins Davids Copperfields sem hann segir einn af þeim bestu í heimi. „Það eru um 75 þúsipid manns í aðdáendaklúbbi Coppeifi- elds. Aðdáendurnir geta fylgst með brögðum hans á Internetinu. Hann er alveg stórkostlegur sjónhverf- ingamaður. Ég held að hann sé eini maðurinn í heiminum sem hefur flogið,“ segir Pétur sem er á förum til London tO að hitta sjónhverfinga- menn. „Ég Held að það leynist töframað- ur í öllum. Afar luma oft á ýmsum töfrabrögðum sem þeir sýna bama- börnunum og hafa einnig sýnt eigin bömum. En tO þess að gera þetta að atvinnu þarf ástríðan að vera mik- il,“ segir sjónhverfingamaðurinn Pétur pókus Finnbjörnsson sem í mörg ár hefur skemmt með töfra- brögðum þó hann sé ekki nema 21 árs. Á barnsaldri hafði hann á tíma- bili svo mikinn áhuga að hann var talinn skrýtinn. „Ég fékkst miklu meira við þetta en aðrir krakkar. Það komst varla annað að.“ Pétur lagði þó töfrabrögðin á hill- una um skeið á unglingsárunum. Sjónhverfingamaðurinn fékk lánað- an hring Ijósmyndarans og áður en varði var hringurinn kominn inn í iokaðan poka með tvo aðra utan um. „Ég fór að spOa í hljómsveit. En einn góðan veðurdag ákvað ég að selja hljómborðin og fleira sem tengdist hljómsveitinni og fara á fuOu út í töfrabrögðin. Ætli ég hafi ekki verið svona 14 tO 15 ára,“ segir Pétur. Bjó til mörg atriði sjálfur Hann var 16 ára þegar hann kom fyrst fram opinberlega. Það var í Stundinni okkar í Sjónvarpinu. Um svipað leyti fékk hann viðurnefnið pókus. „Ég bjó í FeUahverfi í Breið- holti þar sem allir voru með viður- neftii. Þar sem ég var aUtaf að töfra kallaði gamall vinur minn mig pók- us.“ Pétur kveðst hafa búið tU mörg atriði sjálfur en einnig lært af bók- um og blöðum. „Svo kynntist ég Baldri Brjánssyni. Ég hringdi í hann og spurði hann hvort hann vildi selja mér töfradót. Hann neit- aði því en var tO í að hjálpa mér á annan hátt. Hann kom mér í sam- bönd við töframenn erlendis. Ég er nú í þriðja stærsta töfraklúbbi í heimi sem í eru um 50 þúsund áhugamenn og atvinnumenn. Það er skipst á upplýsingum en menn halda reyndar bestu brögöunum fyr- ir sig í einhvern tíma.“ IBICI NEWCO pöntunarsími: 552 0222 HEILDVERSLUN ALBERTS GUÐMUNDSSONAR frá cd Schneider A OTRULEGU VERÐI frá 69.900 1 28" litasjónvarp með Black Matrix myndlampa, 40 W magnara og aðgerðabirtingu á skjá, textavarpi með íslenskum stöfum, fullkominni fjarstýringu, Timer, klukku á skjá, S.VHS inngangi og Scart tengi. iiIpíífi SIÐUMULA 2 • SIMI 568 9090
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.