Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Blaðsíða 15
DV LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 15 Við lok Kínaráðstefnunnar. Gertrude Mongella, framkvæmdastjóri þessarar fjórðu kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, fagnar hér með blóm í hendi. Reuter Konur kveðja Peking Kvennaráðstefnunum í Kína er lokið. Þúsundir þingfulltrúa kveðja Peking og halda heim á leið - heim tU þeirra 189 landa sem áttu sendinefndir á ríkjaráð- stefnunni. í farteskinu er áætlun um aðgerðir tU að bæta stöðu kvenna næstu tíu árin og stutt yf- irlýsing um réttindamál kvenna - plögg sem tekist hefur verið á um á löngum og ströngum fundum daga og nætur 1 Peking. Ekki skal dregið í efa að Kína- ferðin mun reynast mörgum þátt- takandanum eftirminnileg lífs- reynsla. Það er vafalítið gaman að koma til Kína og hitta þar fólk frá fjölmörgum löndum, þótt þar hafi vart verið þverfótað fyrir öryggis- lögreglu eins og í öðrum einræðis- ríkjum. Og skriffinnarnir hjá Sameinuðu þjóðunum og stofnun- um þeirra eru vafalaust kátir. En mun þessi ráðstefna breyta einhverju fyrir konur í sínum heimabyggðum? í Súdan, íran, Kongó eða Simbabve? í Kína, Tí- bet eða Austur-Tímor? í Belfast eða Sarajevó? Á Sikiley eða Vest- fjörðum? Á því eru engar líkur. Settar út í horn Kvennaráðstefnurnar í Kína voru sem kunnugt er tvær. Annars vegar var hin formlega ríkjaráðstefna sem lauk í gær með samþykkt áðurnefndra yfirlýs- inga. Hins vegar var það almenn ráðstefna fulltrúa félagasamtaka af ýmsu tagi en henni lauk fyrir viku. Kínversk stjórnvöld óttuðust mjög fyrirfram þessa almennu ráðstefnu vegna þess hversu mik- ill fjöldi kvenna var væntanlegur þangað - og það konur með skoð- anir sem falla lítt í kram öldunga- stjómar kínverska kommúnista- ríkisins. Þess vegna var sú ráö- stef’ a flutt frá Peking og á þann kíi erska hjara veraldar sem Hu- airou nefnist en þar þurftu konur að arka gegnum „hafsjó af aur“, svo vitnað sé til ummæla í breska blaðinu The Guardian. Öllum var ljóst hvers vegna kin- versk stjómvöld vUdu setja al- mennu ráðstefnuna með þessum hætti út í horn. Samt töldu ráða- menn Sameinuðu þjóðanna sér sæmandi að fallast á þennan flutn- ing en hann hefði ekki átt sér stað ef þeir hefðu sagt nei. Það lýsir gamalkunnugri undanlátssemi embættismannaliðs Sameinuðu þjóðanna. Mikið fjölmenni sótti þessa al- mennu ráðstefnu. Erlendir fjöl- miðlar tala um 20-30 þúsund kon- ur. Aðstæður voru afar ófullnægj- andi tU að taka sómasamlega við þessum mikla fjölda. Og kínverska öryggislögreglan var með nefið ofan í hvers manns koppi. Margar konur hafa að undanfórnu lýst því í erlendum fjölmiðlum hvemife út- sendarar kínverska stjórnvalda auðmýktu þær í smáu sem stóru. Oftrú á glæsiráðstefnum Ráðamenn Sameinuðu þjóðanna hafa hin síðari ár sýnt mikinn áhuga á að halda ijölmennar og íburðarmiklar ráðstefnur. Margra ára undirbúningur fer einkum í að mæta á undirbúningsfundum til að semja yfirlýsingar sem á endanum eru svo útþynntar að aU- ir þátttakendur geta skrifað undir þær og samþykkt. Fyrir nokkram árum var for- ystumönnum þjóða heimsins þannig safnað saman í Brasilíu til að ræða umhverfismál. Þar var samin yfirlýsing um aðgerðir sem flestar hafa ekki komið til fram- kvæmda. Og auðvitað er enn stunduð kerfisbundin útrýming regnskóganna í landinu þar sem glæsiráðstefnan var haldin. Fyrir tíu árum var haldin - kvennaráðstefna á vegum Samein- uðu þjóðanna í Nairobi í Kenía. í lok þeirrar ráðstefnu vom gerðar samþykktir um margvíslegar breytingar í réttindamálum kvenna sem koma átti í fram- kvæmd á þeim tíu árum sem nú eru liðin. Flestir eru sammála um að fæstar þeirra hafi orðið að veruleika. Samþykktirnar eru enn, áratug síðar, bara orð á blaði í skrifborðsskúffum stjórnvalda hér og þar í heiminum. Þannig fer gjarnan með ráð- stefnuhald af þessu tagi að það skilar engum ábata til almenn- ings. Laugardagspistill Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri Eintómar málamiðlanir Á ríkjaráðstefnunni sem lauk í gær fór mesta vinnan í aö ná sam- komulagi um orðalag. Því starfi lauk rétt fyrir lokafund ráðstefn- unnar eftir næturlangar samn- ingaviðræður. Þegar þessi tólf daga ráðstefna hófst lá fyrir plagg með 438 svig- um. Innan þeirra sviga voru allar þær yfirlýsingar sem eftir var að ná samkomulagi um. Þegar ráð- stefnunni lauk hafði tekist að út- rýma öllum svigunum með mála- miðlunum mUli fulltrúa gjörólíkra lífsviðhorfa. Niðurstaðan var á þá leið, sam- kvæmt erlendum fréttastofum, að allir aðilar gátu lýst yflr sigri fyr- ir sín sjónarmið. Má gera sér í hugarlund hversu mikil áhrif slík- ar yfirlýsingar hafa í reynd þegar Kínafararnir eru komnir heim til sín aftur. Það er nefnilega á heimaslóðum sem framkvæmdavaldið er i rétt- indamálum kvenna. Stjórnvöldum í hverju landi fyrir sig er í sjáifs- vald sett hvað það gerir við sam- þykktir kvennaráðstefnunnar - þær eru ekki bindandi fyrir nokkra ríkisstjórn. Enda augljóst að víða munu þær rykfalla í skjalageymslum - alveg eins og tíu ára gömlu ályktanirnar frá Nairobi. Bókstafstrúarbandalag Það er ljóst af fréttum fjölmiðla að á ríkjaráðstefnunni í Peking myndaðist bandalag tveggja áhrifamikilla, afturhaldssamra trúarsamfélaga: kaþólsku kirkj- unnar og íslamskra bókstafstrúar- manna. Þar var reyndar eins kon- ar framhald samstarfs þessara að- ila á glæsiráðstefnu sem Samein- uðu þjóðirnar efndu til í fyrra í Kaíró um fólksfjölgunarvandamál- ið - en árangursríkar aðferðir til að spyrna á móti offjölgun mann- kyns em jafnt þyrnir í augun ráðamanna kaþólikka og múslíma. Á kvennaráðstefnunni í Peking virðist því mikið af orku fulltrúa lýðræðisríkja hafa farið í að hindra afturhvarf til fortíðarinnar - það er að bakkað væri frá þeim samþykktum sem gerðar voru á Kaíró-ráðstefnunni og á mann- réttindaráðstefnunni í Vín fyrir tveimur árum. Ýmsir virðast hafa sannfært sjálfa sig um að það hafi tekist og jafnvel gott betur - og þá um leið að það skipti einhverju máli. Eins og yfirlýsingar um mannréttindi kvenna sem kín- versk stjórnvöld lýsa sem „mjög góðu samkomulagi“ og jafnvel fulltrúar erkiklerkanna í íran eru vel sáttir við muni breyta miklu til eða frá um stöðu kvenna. Hörmulegt ástand Og sú staða er víða afar bágbor- in og hörmuleg. Kannski er það eini raunverulegi árangur kvennaráðstefnunnar að hún hef- ur orðið til þess, a.m.k. í þeim hluta heimsins þar sem fjölmiðlar eru frjálsir, að yekja verulega at- hygli á því alvarlega misrétti sem konur eru beittar víða um heim. Lítum á aðeins tvö dæmi. Á ráðstefnunni börðust bók- stafstrúarmenn hatrammlega gegn öllum yfirlýsingum um að konur hefðu rétt til að stýra barneignum sínum. Mjög víða er algjörlega bannað að eyða fóstri. Það hefur leitt af sér mikinn fjölda ólöglegra fóstur- eyðinga, oft við skilyrði sem eru stórhættuleg lífi og heilsu móður- innar. Fullyrt er að á hverju ári kosti slíkar aðgerðir um 100 þús- und konur lífið. Og að miklu fleiri konur sem lifa af ólöglegar fóstur- eyðingar hljóta varanlega örorku. Kynferðisleg misnotkun stúlku- barna er annað vaxandi vanda- mál. Fram kom á blaðamanna- fundi í tengslum við kvennaráð- stefnuna að um ein mifljón barna sé knúin út í vændi á hverju ári. Verst er ástandið í ýmsum Asíu- ríkjum en það er einnig slæmt miklu víðar þar sem Stúlkubörn eru meðhöndluð eins og hver ann- ar varningur og seld hæstbjóð- anda. Þetta gerist í heimi þar sem talið er að um 900 milljónir manna búi við lifskjör sem séu undir op- inberum fátæktarmörkum. Meiri- hluti þessara öreiga sem kunni yf- irleitt hvorki að lesa né skrifa eru konur. Og það er næsta víst að alþjóð- legar glæsiráðstefnur í Peking munu í engu bæta úr ömurlegum aðstæöum þessara kvenna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.