Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 !^^"V
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@ismennt.is - Áuglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.
Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftan/erð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
Kemur ykkur ekki við
Þingmaður nokkur lýsti því yfir í viðtali við DV, að
kjör þingmanna ættu ekki að vera til umræðu meðal al-
mennings. Þessi ruglaði þingmaður, sem aldrei hefur
sýnt, að hann hafi neitt til síns ágætis umfram venju-
legt fólk, virðist telja sig yfir þjóðina hafinn.
Þetta er svipuð hugsun og ríkti hjá evrópskum aðli
fyrir frönsku byltinguna. Þá taldi yfirstéttin, að ekki
ættu sömu reglur að gilda um sig og þegnana í þjóðfé-
laginu. Þar á meðal lét fína fólkið gilda allt aðrar og
mildari skattareglur um sig en aðra landsmenn.
Með stjórnarbyltingunni fyrir rúmlega tveimur öld-
um og hliðstæðu uppgjöri í öðrum löndum var þessari
skoðun hafnað á Vesturlöndum. Komið var á lýðræði,
sem fól meðal annars í sér, að allir skyldu vera jafnir
fyrir lögunum. Það hefur síðan verið homsteinn lýð-
ræðisins.
í tvær aldir hafa Vesturlandabúar ekki verið þegnar í
ríki aðalsmanna, heldur frjálsir borgarar. Þetta kerfi er
búið að vera lengi í gildi hér á landi. Því er athyglisvert,
að margir íslenzkir þingmenn líta á sig sem eins konar
aðalsmenn, sem lúti öðrum reglum en annað fólk.
Deilan um kjör þingmanna snýst ekki um, hvaða
laun þeir eigi skilið. Fæstir landsmenn telja sig hafa
þau laun, sem þeir eigi skilið. Þeir, sem gagnrýna þing-
menn núna, eru ekki að segja, að þeir hafi hæfileg laun,
heldur, að sömu reglur eigi að gilda um þá og aðra
landsmenn.
Margir þingmenn verja skattsvikin með því að segja
sig illa launaða, til dæmis í samanburði við aðra til-
greinda hópa í þjóðfélaginu. Það kann vel að vera rétt,
en kemur ekki beinlínis því máli við, sem olli spreng-
ingu í þjóðfélaginu í þessari viku. Málið er skattfrelsið.
Það er því miður eitt helzta einkenni siðspiUtrar yfir-
stéttar stjórnmálanna á íslandi, að hún fer að tala um
annað, þegar þrengt er að henni á einu sviði. Þegar hún
er ákærð fyrir að vernda skattsvik sín með lögum, tal-
ar hún um, hvað hún búi við skarðan hlut í lífinu.
Kenning hinna siðspiUtu er, að þeir hafi farið haU-
oka á einu sviði og megi því bæta sér það upp á aUt
öðru sviði. Ef þeir þurfi að kaupa dýra kjóla tU notkun-
ar í samkvæmum, réttlæti það á einhvern óskUjanleg-
an hátt, að þeir setji um sig sérstök skattsvikalög.
Með sama hætti getur hinn venjulegi þjófur úti í bæ
sagt við sig, að hann eigi fjárhagslega bágt, af því að
hann hafi tU dæmis misst vinnuna, og þess vegna sé
réttlætanlegt að hann bæti sér það upp með því að
brjótast inn í næsta fyrirtæki og stela þar peningum.
Þessi yfirfærsla röksemda miUi óskyldra hluta er því
miður lýsandi dæmi um ástandið á Alþingi. Þar fer lítið
fyrir heUbrigðri rökræðu, heldur ryðjast æ fleiri þing-
menn fastar um í skefjalausri þjónustu við sérhagsmuni
gæludýra úti um land og við sína eigin hagsmuni.
Alþingi skaffara og ríkisstjórn helmingaskipta eru
síðbúið afturhvarf tU stjórnarhátta, sem lögðust af fyrir
tveimur öldum. Mismunun fer vaxandi, annars vegar
miUi yfirstéttar og venjulegs fólks og hins vegar miUi
gæludýra og venjulegra fyrirtækja eða atvinnugreina.
Flest benti tU þess í sumar, að þjóðin mundi láta þessi
örlög yfir sig ganga, en skattfríðindi þingmanna urðu
kornið, sem fyUti skyndUega mælinn. Því miður er þetta
einstök reiðisprengja, sem veitir fólki útrás, en veldur
ekki varanlegum þrýstingi á siðbætur í stjórnmálum.
Það lagast ekki fyrr en kjósendurfara kerfisbundið að
taka pólitíska afstöðu sem neytendur og skattgreiðend-
ur, sem frjálsir borgarar í jafnréttis- og lýðræðisríki.
Jónas Kristjánsson
Tilraun til að
hafa Rússa góða
Að þrem mánuðum liðnum
verða þingkosningar í Rússlandi.
Fulltrú ar gamalla sovét-gilda,
þjóðernis sinnar, kommúnistar og
Bænda flokkur stjórnenda
samyrkjuþú anna, ætla eftir
megni að láta þær snúast um
stríðið í ríkjunum sem urðu til við
upplausn Júgóslavíu.
Þessi öfl sjá sér leik á borði eft-
ir að flugfloti NATO hóf verulegar
og samfelldar árásir á hernaðar
mannvirki Bosníu-Serba. Skír-
skot að er til að Rússland sé snið-
gengið og niðurlægt með þessum
aðförum vestræna hernaðar-
bandalagsins gegn slavneskri þjóð
á svæði í Evr ópu þar sem Rússar
hafi um langan aldur kallað til
ítaka.
Eftir að Dúman, neðri deild
Rúss landsþings, var kölluð sam-
an til fundar um þetta mál, efndi
Boris Jeltsín forseti til fundar
með frétta mönnum, þar sem
hann leitaðist við að taka vind úr
seglum and stæðinga sinna á
þingi. Tók hann aðgerðir NATO í
Bosníu til dæmis um það sem ger-
ast myndi, ef bandalagið færði út
kvíarnar í austur, allt að landa-
mærum Rúss lands. Af gæti hlot-
ist „ófriðarbál um alla Evrópu“.
Degi síðar kom Dúman saman
og samþykkti með 258 atkvæðum
gegn tveim að skora á Jeltsín að
svara loftárásum NATO á Bosníu-
Serba með þvi að stöðva fram-
kvæmd á samstarfssamningi
Rússlands við bandalagið. Þar að
auki var krafist afsagnar Andrei
Kosíréfs utanrik isráðherra, sem
Gennadi Sjúganof, leiðtogi komm-
únista, kallaði „ráð herra þjóðar-
svívirðu".
Til áfloga kom í Dúmunni.
Kommúnisti sleit kross af presti
rétttrúnaðarkirkjunnar sem situr
á þingi og þjóðernissinnaleiðtog-
inn Vladimir Zhírínovskí hár-
reytti og barði þingkonu. Nær 200
þingmenn sóttu ekki fundinn,
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
flestir vegna andstöðu við málatil-
búnað meiri hlutans.
í viðtali við fréttaritara New
York Times segir Alexander
Potsinof, þingmaður úr einum
flokki um bótasinna, að því fari
fjarri að Rússar líti á Serba sem
bræður sína, frekar illræðismenn:
„En þeg ar um virðingu voldugs
ríkis er að tefla er annað uppi á
teningnum. Enginn mun nokkru
sinni sætta sig við að það sé stað-
reynd að Banda ríkin séu orðin
eina risaveldið í heimi.“
Bandaríkjastjórn er nú að
bregð ast við þessum tíðindum frá
Rúss landi. Strobe Talbot aðstoð-
arutan ríkisráðherra með Rúss-
landsmál á sinni könnu fór til
Moskvu á fimmtudag að ræða þar
við forsæt isráðhérra og utanrík-
isráðherra. Samtímis heldur sá
aðstoðarutan ríkisráðherra
Bandaríkjanna sem stýrir friðar-
umleitunum í Bosníu, Richard
Holbrooke, á fund forseta Króatíu
og Bosníu eftir dægurlang an fund
með Slobodan Milosevic Serbíu-
forseta.
Þar segir hann hafa miðað í átt
til samkomulags um ráðstafanir
til að tryggja öryggi Sarajevo, en
það er skilyrðið fyrir að lofthern-
aði NATO á herstöðvar Bosníu-
Serba linni. Óstaðfestar fregnir
herma að Holbrooke hafi sett það
mark að samkomulag um friðar-
gerð í Bos níu verði í höfn fyrir
25. september.
Þá á að hefjast misseristímabil
brottfarar friðargæsluliðs SÞ frá
Bosníu, en við á að taka af því lið
frá NATO með það verkefni að
fylgjast með framkvæmd væntan
legs friðarsamkomulags. Við Sara-
jevo skal Serbum gert að fjar
lægja þungavopn sín, en þó ekki
öll fyrr en komið er á vettvang
rússneskt lið til að tryggja öryggi
Serba á svæðinu sem þeir hafa
ráð ið í nágrenni borgarinnar og
ein stökum úthverfum.
Með þessu er greinilega ætlun
Bandaríkjastjórnar að slá margar
flugur í einu höggi. Veita á Rúss
landi virka aðild að framkvæmd
friðarsamkomulags í Bosníu
ásamt NATO. Opna á Ratko Mlad-
ic, yfir hershöfðingja Bosníu-
Serba, leið tfl að fullnægja skil-
málum NATO án þess að um sé að
ræða algera upp gjöf af hans hálfu
við Sarajevo. Og lofthernaði gegn
Bosníu-Serbum á að hætta nógu
snemma til að sem minnstar líkur
séu. á að hann hafi áhrif á úrslit
þingkosninganna í Rússlandi.
Allt er þetta þó sýnd veiði en
ekki gefin. Bosníustjórn verður
vafa laust þvert um geð að fá í ná-
grenni höfuðborgarinnar rúss-
neskt her lið, sem hún telur lík-
legt til að draga taum Serba. Þar
að auki er her hennar nú í sókn
um miðja og vestanverða Bosníu
ásamt Króöt um, og hefur unnið
verulegt svæði og hernaðarlega
mikilvæga staði af Serbum, og
slíkar aðgerðir hafa tilhneigingu
til að vinda upp á sig.
mælt hafði gegn málflutningi þjóðernissinna á fundi Dúmunnar um stríðið í Bosníu. Símamynd Reuter
skoðanir annarra
IAf lélegri kjörsókn í Noregi
„Léleg kjörsókn í þetta skipti er áskorun til allra
órnmálaflokkanna. Það er allt að því hægt að tala
a ófremdarástand í stjórnkerfinu þegar svo marg-
kjósa að sitja heima í stað þess að nýta sér rétt
m til aö velja fulltrúa í sveitar- og fylkisstjórnir.
eitarstjórnalýðræðiö þolir einfaldlega ekki marg-
kosningar í röð með svona lélegri kjörsókn. Það
augljóst að kerfiskarlarnir verða að taka þetta al-
rlega.“
Úr forustugrein Nationen 13. september.
áöst að Colin Powell
„Þegar á heildina er litið, er Powell-æðið ekkert til
: ao hafa áhyggjur af. Það sem flest fólk virðist dá í
tfari Colins Powells hershöfðingja er aðdáunarinnar
virði: Hann var alinn upp við fábreytt kjör en komst
til æðstu metorða, hann er ímynd styrks og forustu,
| hann átti velgengni að fagna sem leiðtogi í stríði,
hann leggur áherslu á gamaldags dyggðir og hann
neitar staðfastlega að gera mikið eða lítið úr kyn-
þætti sínum.“
Úr forustugrein Washington Post
14. aeptember.
George Bush klúðrar enn
„George Bush virðist á einhvern óskiljanlegan
hátt vera skemmt yfir framkomu Kínverja við þátt-
takendur kvennaráðstefnunnar í Peking. í eigin
heimsókn til Kina í vikunni, sagði Bush: „Ég vor-
kenni Kínverjum dálítið fyrir að hafa (kvenréttinda-
konuna) Bellu Abzug á þönum um Kína.“ Þessi hugs-
unarlausa athugasemd er móðgandi í garð Abzug en
sýnir um leið skilningsleysi gagnvart ruddalegum
tilraunum Kínverja tfl að þagga niður í konunum.“
Úr forustugrein New York Times
14. september.