Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Page 16
16
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 3I>'V
Nú er varla seld sú tölva að henni fylgi
ekki geisladrif. Þeir sem áður hlóðu inn stór-
um leik eða þungu forriti á allt að 14 disk-
linga vita hversu mikO bylting geisladrifið
var fyrir tölvuna. Fyrir utan þann tíma sem
það tók að setja inn og afþjappa forritið voru
það ekki margir sem höfðu efni á því að nota
allt að 40 Mb í einn leik á litlum hörðum diski
tölvunnar. Geisladiskurinn kom því eins og
kallaður og það líktist himnasendingu að geta
keyrt upp allt að 600 Mb forrit á örskömmum
tíma. En þótt plássið og tæknin sé fyrir hendi
þá er ekki þar með sagt að allir noti diskana
skynsamlega. Fyrir marga er nóg að forrit sé
á geisladiski tU að það teljist margmiðlun.
Þetta sama gerðist þegar sjónvarpið var fund-
ið upp. Fyrsta sjónvarpsvinnan byggðist á
reynslu sem fengist hafði i útvarpi og það var
ekki fyrr en ný kynslóð sjónvarpsbarna óx úr
grasi að farið var að nýta tæknina að ein-
hverju ráði. Hingað til hefur ráðið ríkjum í
tölvuheiminum kynslóð þeirra sem kynntust
tölvunni ekki fyrr en þeir voru orðnir ung-
lingar eða jafnvel eldri og það er fyrst núna
sem eiginleg tölvukynslóð er að vaxa úr grasi.
Tölvukynslóðin þekkir ekki svokallaða
tölvuhræðslu foreldra sinna og finnst allt jafn
eðlilegt sem á annað borð rúmast á tölvuskjá.
Það er því engin tilviljun að I tölvufyrirtæk-
inu OZ, sem vinnur nú að gerð fyrsta gagn-
virka tölvuleiksins hér á landi sem kemur út
á geisladiski, finnst varla maður eldri en þrí-
tugur. Þeir eru fráleitt allir tölvuséní eða sér-
vitringar því verkefnisstjórinn við gerð tölvu-
leiksins „Forever Interactive" er tónlistar-
maðurinn góðkunni, Eyþór Arnalds, og hann
á ekki lítinn þátt í tilurð þessa leiks.
Alltaf notað tölvur
Eyþór Arnalds ætlaði að verða vísindamað-
ur þegar hann var lítill en tónlistin náði yfir-
höndinni. í æsku lærði Eyþór á fiðlu, trompet
og selió og nam síðar tónsmíðar og skrifaði
m.a. fyrir Sinfóníuna. Klassík var þó ekki að-
almálið þegar Eyþór og hin eina sanna Björk
hoppuðu saman á sviði í Tappa tíkarrassi og
sögðust aldrei hafa séð „aðra eins
frystikistu". Sú hljómsveit gekk út á það að
hafa gaman af hlutunum og mesta fjörið var
alltaf í æfmgahúsnæðinu.
Framhaldsnám í tónsmíðum varð að bíða
enn þegar Todmobile Eyþórs, Þorvaldar B.
Þorvaldssonar og Andreu Gylfadóttur fór í
gang og hélt vinsældum í fimm ár. Todmobile
hætti á toppnum og þá stofnaði Eyþór ásamt
sambýliskonu sinni, Móeiði Júníusdóttur,
hljómsveitina Bong. Það voru fyrirætlanir
þeirrar hljómsveitar sem urðu kveikjan að
tölvuleiknum „Forever Interactive“ sem OZ
hf. setur á markað á næsta ári. En þýðir þetta
aö Eyþór sé hættur að vera poppari?
„Ég hef nú aldrei litið á mig sem poppara
en ég er a.m.k. hættur að spila á sveitaböllum.
Tónlist hefur alltaf verið 95% af því sem ég
geri, fyrir kvikmyndir, leikhús og auglýsing-
ar, og það hefur ekkert breyst. Ég hef hins
vegar alltaf notað tölvur að einhverju leyti í
tónsmíðum og aldrei haft neina fordóma gagn-
vart þeim, enda lít ég á þær sem hvert annað
verkfæri. Fáir mundu til dæmis giska á að
stefið á undan áttafréttum væri algjörlega
tölvuunnið. Tölvan e’r verkfæri, einfaldlega
öflugasta skóflan á svæðinu,“ segir Eyþór.
„En málið var það að Bong var að hugsa
um að gefa út tónlistartölvudisk sem væri frá-
brugðinn þeim tilraunum sem Peter Gabriel
og fleiri hafa framkvæmt hingað til. Við vild-
um ekki gera minjasafn um okkur heldur
setja notandann i aðalhlutverkið. Við Guðjón
Guðjónsson hjá OZ hf. erum góðir vinir og ég
hef mikið unnið af tónlist hjá fyrirtækinu.
Segja má að OZ-hópurinn sé mjög tónlistar-
sinnaður og ég mjög tölvusinnaður."
Á diskinum verða þrjú lög sem hægt er að
spila á venjulegum geislaspilara en meginefni
hans verður hins vegar tölvuleikurinn „For-
ever Interactive“ sem er gagnvirkur tölvuleik-
ur. „Þegar Bitlarnir gerðu Yellow Submarine
á sínum tíma notuðu þeir alla þá tækni sem
til var á þeim tíma, kvikmyndun, teiknimynd-
ir, klippimyndir o.þ.h., og þetta er í raun í lík-
ingu við það. Ástæðan fyrir því að gerður var
tölvuleikur var sú að leikjaframleiöendur eru
eiginlega þeir einu sem hafa skilið þennan
miðil og eru að gera eitthvað nýtt. í leik er
notandinn nefnilega þátttakandi - athafnir
hans hafa áhrif og ekki síður athafnaleysi.
Áhrifin virka í báðar áttir, eru, með öðrum
orðum, gagnvirk." '
í stað þess að drepa einfaldlega aðra áður
Reynir Harðarson.
en þeir drepa þig, svipað og í Doom og þess
háttar leikjum, býður „Forever Interactive"
notandanum að bregða sér í hlutverk
Ódysseifs sem lenti í miklum hrakningum á
leið heim til sín. „Þráðurinn er fenginn að
láni hjá Homer, þ.e. ekki Simpson heldur
Homer eldri, og við færum hann í þann bún-
ing sem hæfir miðlinum og tímanum. Þú get-
ur spilað þennan leik án þess að hafa hug-
mynd um hver Ódysseifur er, og það háir þér
ekkert, en auðvitað er það aukin vídd fyrir þá
sem hafa lesið söguna. Ég vil auðvitað ekki
ljóstra upp um leikinn en ég get sagt það að
við reynum að byggja upp eins konar sýndar-
veruleika. Þannig eru þeir sem maður hittir
ekki endilega alltaf eins heldur er umhverfið
lífrænt og ekki víst að allir bregðist eins við
og síðast þegar þú hittir þá. Við ætlum t.d. að
beita nýjustu tækni i gervigreind þannig að
þú getur talað við tölvuna og hún svarar fyr-
ir sig með raddhermi,“ segir Eyþór.
íslenskt Ijóðskáld á barnum
Eftir að hugmyndin fæddist var safnað sam-
an nokkrum áhugasömum teiknurum og
tölvugúrúum og þá var drukkið heilmikið
kaffi, spáð og spekúlerað. Grunnhugmyndin
að hverju svæði var búin til í samræmi við
Ódysseif en öll útfærsla er síðan á hendi þess
sem valdi að vinna við viðkomandi svæði.
OZ-menn hafa komið sér upp lokuðu innan-
húss Interneti og þar eru skráðar allar upplýs-
ingar um hvern stað og þar skrá menn niður
vangaveltur og rökræður um leikinn. Að
verkefninu vinna um 15 manns: tölvuforritar-
ar, módelsmiðir, teiknarar, málarar og fleiri.
Myndefnið er að mestu unnið á Silicon Graph-
ics tölvum í forritunum Softlmage eða Alias
sem eru þekkt forrit í þrívíddar- og teikni-
myndagerð í kvikmyndum. Macintosh tölvur
koma við sögu í Photoshop vinnslu og PC tölv-
ur síðan í forrituninni. Hluti myndanna er þó
unninn á gamla mátann með pappír og litum
sem eru skannaðar inn. En er eitthvað ís-
lenskt við þennan leik?
„Það er þá helst þessi botnlausa bjartsýni
sem einkennir framkvæmdina og eitthvað er
líka íslenskt við það að vilja hafa svona bók-
menntalegan bakgrunn á bak við tölvuleik.
Jú, og svo er einn íslending að finna í leikn-
um. Hann er þjóðkunnt Ijóðskáld og situr að
sjálfsögðu á barnum. Erfiðleikastigið er í raun
sniðið að þörfum notandans því að með í fór
verður leiðsögumaður sem getur gefið þér
upplýsingar sem hjálpa þér. Hann er hins veg-
ar mjög fégráðugur og þú verður því að vega
það og meta í hvert skipti hvort þú tímir að
eyða einhverjum af þeim fimmtíu gullpening-
um sem þú átt í upplýsingar frá honum.“
Sköpunargleði
Leikurinn „Forever Interactive“ er ætlaður
fyrir Evrópumarkað og því á ensku en texti
leikur þó ekki stórt hlutverk í honum. Flest
atriði eru sett fram myndrænt og ætti það að
auka möguleika leiksins á alþjóðlegri hylli. Á
þennan markað stefnir íslenska fyrirtækið OZ
hf. Eins og kom fram í DV á dögunum hefur
það nýlega skrifað undir samning viö risafyr-
irtækið Microsoft um sölu á forriti sem hjálp-
ar og flýtir fyrir allri teiknivinnu á tölvur og
verður í notkun hjá stærstu fyrirtækjum sinn-
ar tegundar þar sem tölvur og kvikmyndir
mætast. En hvers konar tölvukarlar eru þetta
sem telja sig geta kennt mönnum eins og
George Lucas hvernig á að tölvuvinna kvik-
myndir? Guðjón Már Guðjónsson er yfirmað-
ur og eini eigandi OZ.
„OZ er öðruvísi fyrirtæki sem er rekið á
sjálfstæði starfsmanna. Ég hef að mestu verið )
í því að koma mönnum inn í verkið og mín
stjórnunaraðferð er sú að miðla áhuganum,
þ.e. að koma mönnum á bragðið og gera þá |
spennta. Það er líka mjög mikilvægt fyrir
hvern og einn að finna hvar hann kemur að
mestum notum, hvar sköpunargleðin fær að |
njóta sín. Þess vegna fengum við inn í þetta
aðila sem hafa ekki mikinn tölvubakgrunn en
eru mjög sterkir á listræná sviðinu. Þeir hafa
komið inn með mjög margar góðar hugmynd-
ir.“
Gott dæmi um þessi orð Guðjóns er Árni
Valur Árnason, sjálfmenntaður teiknari, sem
hannar svokallað Ambient-herbergi. „Þegar
farið er að tala um forrit og megabæti loka ég
eyrunum. Það auðveldar manni vinnuna gíf-
urlega að hafa tölvu en ég verð hræddur við
að staðna nema ég vinni líka með efnið inn á
milli.
Hvort tveggja, hratt og flott?
Allir tölvufiklar kannast við samhengið á
milli myndgæða og leikhraða í tölvuleikjum. |
Því meiri hraði sem er í leiknum því minni
myndgæði. En galdrakarlarnir í OZ telja sig
geta gert betur en hingað til. Reynir Harðar- ,
son er ábyrgur fyrir útliti leiksins. Eyþór og
Reynir eru sammála um að Doom og Myst séu
best heppnuðu leikirnir til þessa þótt ólíkir
séu. „Þeir eru ekki beinlínulegir heldur get-
urðu skoðað heiminn út og suður og þeir eru
heldur ekki endurpökkun úr öðrum miðli
heldur skapaðir frá grunni. „Forever Interact-
ive“ er ekki ósvipaður Myst nema hvað í Myst
er ekki mikið að gerast,“ segir Reynir og Ey-
þór bætir við að sá leikur sé eiginlega bara
fallegar myndir. Hluti af þeirra vinnu sé
einmitt rannsóknir og þróun á því hvernig
hægt sé að láta góða grafík fara saman við
mikla hreyfingu. Eyþór segir mjög auðvelt að
gera mistök í uppbyggingu á tölvuleik og fólk
verði fljótt pirrað ef hann hagar sér ekkiTétt.
Hann nefnir sem dæmi gagnvirkan kvik-
myndaleik, Daedalos, þar sem notandinn ræð-
ur allt of litlu.
„Þú ert kannski spurður á 5 eða 10 mínútna
fresti og átt að svara já eða nei. Og ef þú vel- .
ur nei ertu skammaður þangað til þú velur já.
Þetta er ekki mjög gagnvirkt enda er gagnvirk
kvikmynd bara mistök í hugsun," segir Eyþór
og Reynir tekur í sama streng: „Það sem gild-
ir í tölvuleik er nefnilega sú tilfinning notand-
ans að valdið sé hans, að hann ráði ferðinni.
Bið er eitur í beinum þeirra sem spila og það l
vandamál hefur loðað við geisladrifin að vera
lengi að hlaða inn myndum o.þ.h. Við erum
eiginlega búnir að leysa þetta vandamál og
lausnin felst í þjöppun og að nota tímann þeg-
ar tölvan er ekki að lesa af drifinu til að und-
irbúa næstu myndir."
upphafi tölvuleiksins „Forever Interactive" er þriggja mínútna forsaga leiksins undir söng Mó-
eiðar Júníusdóttur.