Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Síða 31
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995
afmæli Dagblaðsins *
DB og DV hafa veitt framúrskarandi listamönnum viðurkenningu í sautján ár:
Langlífustu menningar-
verðlaun á íslandi
- vel á annað hundrað listamenn hafa verið verðlaunaðir
Hef alltaf fagnað
Menningarverðlaunum DV
- segir Thor Vilhjálmsson rithöfundur
„Það hefur nú ekki verið veitt
mikið af verðlaunum til lista á fs-
landi í gegnum tíðina og því hef ég
alltaf fagnað Menningarverðlaunum
DV og þótt það mjög skemmtilegt
uppátæki," segir Thor Vilhjálms-
son, rithöfundur og tvöfaldur Menn-
ingarverðlaunahafi DV.
Hann segir útnefningar DV oftast
hafa tekist vel. Þau séu veitt að
bestu manna yfirsýn og gott fólk sé
valið til dómnefndarstarfa. Þótt
ekki sé um peningaverðlaun að
ræða þá séu þau listamönnum
hvatning og veki athygli á þeim.
„Mér finnst þetta hleypa fjöri í
menningarlífið. Þegar verið var að
stofna til íslensku bókmenntaverð-
launanna í sína tíð og fjármálaráð-
herra, þá Albert Guðmundsson, var
meðmæltur þá hitti ég ágætan
mann, Helga Hálfdanarson. Hann
sagðist vera á móti verðlaununum
því þau yrðu bara tilefni rifrildis og
þrass. Ég svaraði að það kynni að
verða höfuðkosturinn. Það verða
aldrei allir sáttir og ég held að gott
sé að hleypa af stað rifrildi þótt
Menningarverðlaun DV hafi nær
alltaf farið friðsamlega fram.“
Thor fagnar því að hafa fengið að
fljóta með í gegnum tíðina en hann
er eini maðurinn sem hlotið hefur
verðlaunin í tvígang í sama flokki.
Veiting þeirra hafi orðið vettvangur
umræðu um menningu og listir og
það sé af hinu góða.
-PP
Thor Vilhjálmsson. DV-mynd
Alls hafa Menningarverðlaun DV
verið veitt í sautján skipti. Verð-
launin hafa þannig skapað sér fast-
an sess í menningarlífi íslendinga
og eru orðin langlífari en önnur
sambærileg verðlaun hér á landi.
Verðlaun
í sjö listgreinum
Strax á seinustu mánuðum ársins
hefst undirbúningur fyrir úthlutun
verðlaunanna sem iðulega fer fram
á fimmtudegi i þriðju viku febrúar-
mánaðar. Verðlaun eru veitt fyrir
afrek í sjö listgreinum; bókmennt-
um, leiklist, myndlist, tónlist, bygg-
ingarlist, kvikmyndun og listhönn-
un og eru listamennirnir orðnir vel
á annað hundraö sem hlotið hafa
Menningarverðlaun DV.
Frá upphafi hefur Aðalsteinn Ing-
ólfsson listfræðingur haft umsjón
með Menningarverðlaunum DV
ásamt með starfsmönnum blaðsins.
Hann sagði meðal annars um menn-
ingarverðlaunin yfír borðhaldi við
afhendingu verðlaunanna árið 1993;
„Þetta eru ekki vinsældarkosningar
heldur tilraunir til hlutlægs mats á
menningarlegu ástandi hverju
sinni. Þetta mat hefur tekist framar
öllum vonum eins og sést á því að
við erum enn að meðan allar aðrar
viðurkenningar hafa dottið upp fyr-
ir.“
Matargerðarlistin
í hávegum höfð
Verðlaunin hafa alltaf verið af-
hent í veislusalnum Þingholti á Hót-
el Holti. Matargerðin hefur alltaf
verið I hávegum höfð við þetta tæki-
færi ekki síður en önnur list og er
ávallt bryddað upp á nýjungum við
val á sjávarfangi sem matreiðslu-
menn Holtsins framreiða af miklum
metnaði. I gegnum tíðina hafa
menningarverðlaunahafar og þeir
sem standa að verðlaununum snætt
skötukjaft, háf, kúskel í ravíólí,
skrápflúru, hámeri, kryddlegin svil,
ígulkerahrogn og gulllax, svo fátt
eitt sé nefnt.
Forspárgildi
verðlaunanna
Menningarverðlaun DV virðast
hafa verulegt forspárgildi ef litið er
til þeirra þriggja íslensku höfunda
sem hampað hafa bókmenntaverð-
launum Norðurlandaráðs síðastlið-
in átta ár. Allir verðlaunahafarnir
hlutu Menningarverðlaun DV fyrir
bókmenntir árið áður en þeir hlutu
bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs. Um er að ræða Thor Vil-
hjálmsson, sem hlaut bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs árið 1988
fyrir bók sína Grámosinn glóir,
Fríðu Á. Sigurðardóttur, sem hlaut
verðlaunin árið 1992 fyrir skáldsög-
una Meðan nóttin líður, og Einar
Má Guðmundsson sem hlaut verð-
launin í ár fyrir bók sína Engla al-
heimsins.
Festa og
frelsi í formi
Hönnuðir Menningarverðlauna-
gripa DB og DV hafa í gegnum tíð-
ina margir hverjir farið ótroðnar
slóðir. Sumir hönnuðir kjósa að
minna á listgreinarnar með formi
gripanna, aðrir vilja hafa þá alveg
frjálsa í formi. Við afhendingu verð-
launanna í ár var farið bil beggja.
Um var að ræða eins konar ferða-
málverk, þrjár litlar myndir í öskju
með tvískiptu loki. í botni öskjunn-
ar er málverk með skírskotun til
þess flokks sem verðlaunin eru veitt
fyrir. Höfundar gripanna eru Sig-
rún Eldjárn myndlistarkona og
Hlynur Halldórsson, smiður í Mið-
húsum, sem skar út í lok gripanna.
-PP
Menningarverðlaunahafar DV 1995
með verðlaunagripina. í efstu röð
eru frá vinstri: Sjón og Andrea
Davidsson, sem tók við verðlaun-
unum fyrir hönd föður síns, Jans
Davidssons. í miðið eru Ragnheiður
Jónsdóttir, Viðar Eggertsson, Guðni
Franzson, fulltrúi Caput-hópsins, og
dr. Maggi Jónsson. Neðstur er Ari
Kristinsson. DV-mynd GVA