Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Page 37
£"$%
#
#
#
#
4
#
#
#
#
#
#
#
#
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995
Friðrik sýndi gamla takta
- Hannes Hlífar er sigurvegari mótsins
Ellefta og síðasta umferð Prið-
riksmótsins var tefld í Þjóðarbók-
hlöðunni í gær. Áður en taflið hófst
var Hannes Hlífar Stefánsson með
vinningsforskot og öruggur með
a.m.k. deilt efsta sæti.
Hannes Hlífar er vel að sigrinum
kominn; tefldi af öryggi og hafði
ekki tapað skák fyrir lokaumferð-
ina. í næstsíðustu umferð vann
hann Bent Larsen, að því er virtist
áreynslulaust. Larsen lagði mikið á
stöðu sína að vanda með einni af
sínum framúrstefnulegu byrjunum.
Hannes lét hann ekki slá sig út af
laginu, tókst að ná stöðuyfirburðum
og herti tökin uns yfir lauk.
Skák
Jón L Árnason
Líklega hafa áhorfendur haft
mestan áhuga á skákum Friðriks.
Raunar var áberandi hve margir af
eldri kynslóðinni lögðu leið sína í
Þjóðarbókhlöðuna, loks þegar Frið-
rik var sestur við skákborð á ný. Ef-
laust hefur hann valdið aðdáendum
sínum vonbrigðum í fyrri hluta
mótsins en þegar á leið brá fyrir
gömlum töktum. Þannig tefldi hann
magnaða skák við Sofíu Polgar í 8.
umferð, góða skák við Gligoric í 9.
umferð og afar tvísýna og spenn-
andi skák við Margeir í 10. umferð.
Rétt er að líta á tvær þær fyrr-
nefndu. Friðrik lét fórnirnar dynja
á stöðu ungversku skákdrottningar-
innar. Fyrst fórnaði hann manni,
síðan skiptamun og svo öðrum
manni. Fórnirnar báru þann ávöxt
að Sofla varð að gefa drottningu
sína gegn hrók en hafði engu að síð-
ur liðsyfirburði. Friðrik átti aðeins
drottningu og biskup eftir og varð
að sætta sig við þráskák.
Hvítt: Friðrik Ólafsson
Svart: Sofía Polgar
Retí-byrjun.
1. Rf3 d5 2. g3 c6 3. Bg2 Rf6 4.
d3 Bf5 5. 0-0 h6 6. Rbd2 e6 7. Del
Be7 8. e4 Bh7 9. De2 a5 10. Hdl a4
11. a3 0-0 12. e5 Rfd7 13. Rfl c5
14. h4 Rc6 15. Bf4 He8 16. Rlh2
Uppbygging Friðriks er vel þekkt,
þar sem svartur hefur hvítreita
biskup sinn enn þá á c8. Með bisk-
Friðrik Olafsson: Þegar leið á mótið
brá fyrir gamalkunnum töktum hjá
honum. DV-mynd ÞÖK
upinn á h7 er svarta kóngsstaðan
mun öruggari.
16. - f6 17. exf6 Bxf6 18. Rg4 e5
19. Be3 e4 20. dxe4 Bxe4 21. c3
Ra5 22. Hel Db6 23. Hadl Had8
Friðrik og Gligoric hafa marga
hildi háð um dagana og hefur geng-
ið á ýmsu. Gligoric tókst ekki að
finna viðhlítandi svar við frumleg-
um drottningarleik Friðriks í byrj-
uninni, sem Friðrik hefur raunar
beitt áður með góðum árangri.
Hvítt: Svetozar Gligoric
Svart: Friðrik Ólafsson
Nimzo-indversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
e3 0-0 5. Bd3 c5 6. Rf3 d5 7. 0-0
dxc4 8. Bxc4 b6 9. De2 Bb7 10.
Hdl Dc8l? 11. Bd3 Rbd7 12. Bd2
cxd4 13. exd4 Bxc3
í skák við Cuellar í Stokkhólmi
1962 lék Friðrik 13. - Dc6 og áfram
tefldist 14. Hacl Bxc3 15. bxc3 Hfe8
16. Bb5 Dd6 17. Bg5 a6 18. Ba4 b5 19.
Bb3 Bd5 og svartur á gott tafl.
14. bxc3 Dc6! 15. Hel Hfe8 16.
Hacl
E.t.v. er vissara fyrir hvítan að
leika 16. Dfl til að valda g2 en frum-
kvæðið er bersýnilega ekki lengur í
höndum hvíts.
16. - a6 17. Bf4?! Rh5 18. Be3 e5
19. Bf5 Rhf6 20. Bc2 exd4 21. cxd4
Dd6 22. Bb3 Bd5 23. Bxd5 Rxd5
Nú á svartur trausta stöðuyfir-
burði.
24. Dc4 b5 25. Db3 Hac8 26.
Hxc8 Hxc8 27. Bd2 R7b6 28. a3
Dc6 29. Bb4 f6 30. Bc5 Ra4 31. Hcl
De6 32. Hel Df7 33. Bd6 Hc3 34.
Da2 Hc6 35. Bb4 He6 36. Hcl?
Vonast eftir 36. -Rxb4?? 37. Hc8+
He8 28. Hxe8 mát.
24. Bxh6!? gxh6 25. Rxh6+ Kg7
26. Dd2 Be7
Opnar drottningunni leið til varn-
ar en 26. - Rc4!? sem er svarað með
27. Df4 var annar möguleiki.
27. Hxe4! dxe4 28. Rf5+ Kh8 29.
Df4 exf3
Svartur hefur í mörg horn að líta.
Svara má 29. - Dg6 með 30. Hxd7
Hxd7 31. Re5 Hdl+ 32. Kh2
með ýmsum ógnunum en 29. -
De6!? 30. Dg4 Dg8 er varnarmögu-
leiki.
30. Hd6! Dxd6 31. Rxd6 Bxd6
32. Dh6+ Kg8 33. Dg6+ Kh8 34.
Dh6+ Kg8 35. Bxf3!? Rb6 36. Dg6+
- Og jafntefli eftir 41 leik með þrá-
skák.
y' I f; | &
: .. : V é é W Á
■ i i . - A * i & Á Á K|SISSftK
Á
A & :|iA A ■.'? i A ■
ABCDEFGH
38. Hxc3
Ef 38. Dc2 Re2+ og vinnur skipta-
mun.
38. - Hel+ 39. Rxel Dxa2 40.
Kfl a5 41. Rc2 b4 42. axb4 axb4
43. Hc8+ Kf7 44. Hc7+ Kg6
- Og Gligoric gafst upp.
bridge
Bikarkeppni Bridgesambands íslands:
Úrslitin ráðast um helgina
Undanúrslit og úrslit í Bikar-
keppni Bridgesambands íslands
verða spfluð um helgina í húsnæði
Bridgesambandsins við Þöngla-
bakka 1.
í átta liða úrslitum sigraði sveit
Sigurðar Vilhjálmssonar (nú sveit
+-film) sveit Landsbréfa, sveit Hjól-
barðahallarinnar sigraði sveit
Roche, sveit Samvinnuferða/Land-
sýnar sigraði sveit Estherar Jakobs-
dóttur og sveit Verðbréfamarkaðar
íslands- banka sigraði sveit Potom-
ac frá ísafirði.
í undanúrslit drógust saman
sveitir Hjólbarðahaflarinnar og +-
Film og sveitir Samvinnu-
ferða/Landsýnar og Verðbréfamark-
aðar tslandsbanka.
t undanúrslitum eru spiluð 48 spil
og hefst spilamennska W. 11 á laug-
ardag. í úrslitaleiknum verða spiluð
64 spil og hefst spilamennska kl. 10
á sunnudag. Áætlað er að sýna þrjár
síðustu lotur úrslitanna á sýningart-
öflu en keppnisstjóri verður Sveinn
R. Eiríksson.
Flestir bjuggust við að sveit
Landsbréfa með þrjá fyrrverandi
heimsmeistara innanborðs og tvo
Norðurlandameistara myndi vinna
auðveldan sigur á sveit Sigurðar
Vilhjálmssonar frá Súðavík. Sú
varð þó ekki raunin því Súðvíking-
ar unnu auðveldan sigur á meistur-
unum, unnu raunar aflar fjórar lot-
urnar. Þegar grannt er skoðað þá
kemur hins vegar í ljós að Súðvík-
ingar eru með allframbærilegt lið.
Má þar fremstan telja Jakob Krist-
insson, Val Sigurðsson, Sigurð Vfl-
hjálmsson, Guðmund Sveinsson og
Rúnar Magnússon.
Við skulum skoða eitt spil frá
leiknum.
N/Allir
* Á109762
Á8
ÁG10
* Á5
var 0-5. Auðvitað er geimið hart en
það var alls ekki vonlaust.
Umsjón
♦ K
* G973
♦ D83
* D10742
N
4 D54
* D104
* K94
* KG96
♦ G83
M K652
♦ 9752
♦ 83
Norður Austur Suður Vestur
1 lauf pass 1 tígull pass
1 spaði pass 2 spaðar pass
4 spaðar pass pass pass
í opna salnum sátu n-s Rúnar og
Jakob en a-v Guðmúhdur Páll Arn-
arson og Þorlákur Jónsson.
Laufopnunin var 16+ og tígulsögnin
Stefán Guðjohnsen
Austur spilaði út laufi sem norð-
ur drap með ás. Hann tók nú spaða-
ás og þegar kóngurinn kom frá
vestri spilaði hann sig út á laufi.
Vestur drap laufslaginn og spiláði
litlum tígli. Sagnhafi lét tíuna Jog
austur drap með kóng. Síðan var
auðvelt að sækja spaðadrottning-
una, taka síðan trompið og svína
aftur tígli. Unnið spil og 620.
Á hinu borðinu sátu n-s Jón Bald-
ursson og Sævar Þorbjörnsson en a-
v Valur og Guðmundur.
Þar gengu sagnir á þessa leið:
Norður Austur Suður Vestur
1 lauf pass 1 tígull pass
1 spaði pass 1 grand pass
2 spaðar pass 3 spaðar pass
pass pass
Laufið var sterkt, tígullinn neikvætt
svar, grandið krafa. Það er ekkert
við því að segja að stoppa í þremur
spöðum en í þetta sinn kostaði það
10 impa.
Innflytjendur - smásalar
Umboðsaðili óskast fyrir ameríska ísskápa
o.fl. Þekkt vörumerki. Skilyrði að viðkom-
andi hafi viðgerðarþjónustu eða geti útveg-
að hana. Hér á landi er staddur maður frá
fyrirtækinu til frekari viðræðna.
Uppl. í s. 568-9968 eða 896-1415. Pétur.
J3
%
Innritun stendur yfír
í gömlu dansana
og „Lanciers“
/^OFNðV.
* IÚN\
í síma 587-1616
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
Tamningamenn
Bændasamtök íslands óska eftir reyndum
tamningamönnum í 5-12 mánuði að Stóð-
hestastöðinni, Grunnarsholti.
Umsóknarfrestur er til 25. september nk.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Bænda-
samtaka íslands, Bændahöllinni v/Hagatorg,
107 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell Karlsson
á kvöldin í síma 483-4507.
S v.
u Sófasett - áklæði úr lec
Svefnsófar
«1 Stakir sófar
■■h Stakirstólar
Homsófar áklæði
6 sæta, á aðeins
kr. 69.000
Valhúsgögn
ÁRMÚLA 8, SÍMAR 581 2275 og 568 5375
+-