Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Síða 51
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995
4. ^
Guðjón Magnússon
Guðjón Magnússon, starfsmanna-
stjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
til heimiiis að Suðurgötu 7, Reykja-
vík, verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Guðjón fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk kennaraprófi
frá KI1966, stúdentsprófi frá sama
skóla 1968, stundaði nám í uppeldis-
fræðum og starfsmannastjórnun
við Gautaborgarháskóla 1979-80 og
hefur sótt fjölda námskeiða fyrir
kennara hér heima og í Svíþjóð,
Danmörku, Noregi og Bandaríkjun-
um.
Guðjón var kennari við Álftamýr-
arskólann 1966-81 með hléum,
kennari við Kópavogsskóla 1970-72,
skóla- og menningarfulltrúi í Kópa-
vogi 1981-88 og starfsmannastjóri
Rafmagnsveitu Reykjavíkur frá
1988.
Guðjón sat í stjórn kennarafélag-
anna SÍB og LSFK í Reykjavík
1970-79 og í samninganefndum á
þeirra vegum auk starfa á vegum
BSRB, var landsformaður Round
Table 1978-79, var formaður stjórn-
ar Unglingaheimilis ríkisins
1983-86, formaður Starfsmannafé-
lags Kópavogs 1983-84 og hefur
starfað í nefndum á vegum raforku-
fyrirtækj a hér á landi og í E vrópu
um starfsmannamál.
Fjölskylda
Guðjónkvæntist 29.12.1968
MargrétiPálsdóttur, f. 11.12.1948,
kaupmanni. Hún er dóttir Páls Sæ-
mundssonar, forstjóra í Hafnarfirði,
og Eygerðar Björnsdóttur húsmóð-
ur.
Dóttir Guðjóns og Margrétar er
Brynhildur, f. 26.9.1972, leiklistar-
nemi við Guildhall School of Music
and Drama í London.
Bróðir Guðjóns er Andrés, f. 28.4.
1952, sálfræðingur í Reykjavík,
kvæntur Mörtu Sigurgeirsdóttur
hjúkrunarfræðingi og eru börn
þeirra Magnús, Sigurgeir og Krist-
ján.
Foreldrar Guðjóns: Magnús Andr-
ésson, f. 24.10.1906, d. 29.6.1972,
vélstjóri í Reykjavík, og Regína
Guðjónsdóttir, f. 7.7.1914, húsmóðir.
Ætt
Magnús var sonur Andrésar Jóns-
sonar sjómanns og Benediktu Pál-
ínu Jónsdóttur en þau bjuggu í
Bakkabæ í Bárarplássi við Grund-
arfjörð.
Regína er dóttir Guðjóns Jónsson-
ar járnsmiðs, ogk.h., Halldóru
Hildibrandsdóttur Kolbeinssonar,
en þau bjuggu í Hildibrandshúsi við
Guðjón Magnússon.
Fischersund í Reykjavík.
Guðjón tekur á móti gestum í Fé-
lagsheimili starfsmanna Rafmagn-
sveitunnar í Elliðaárdal á afmælis-
daginn milli kl. 15.00 og 17.00.
Til hamingju
með afmælið
17. september
95 ára 50 ára
Jófríður Stefánsdóttir, Stafni, Reykdælahreppi. Anný Helgadóttir, Dalseh 27, Reykjavík. Hallmann Sigurðsson, Birkiteigi 32, Keflavík. . GunnarÞórðarson,
75 ára Jakaseh 28, Reykjavík. Hávarður Emilsson,
Gunnlaug Hannesdóttir, Sléttuvegi 13, Reykjavík. Helgi Þorkelsson, Garðaflöt 13, Garðabæ. Brynhildur Eyjólfsdóttir, Ambjargarlæk, Þverárhlíðar- hreppi. Laugateigi 58, Reykjavík. Guðrún Guðmundsdóttir, Borgarvegi 42, Njarðvík. Guðríður Þórhallsdóttir, Barrholti 25, Mosfellsbæ. Sigríður Lena Vilhelmsdóttir, Lækjarfit 7, Garðabæ. Þórhannes Axelsson, Kársnesbraut 111, Kópavogi. Þröstur Reynisson, Furugrund 30, Akranesi.
70 ára
Jóna Eliasdóttir, Hjarðarholti 8, Akranesi. Bernótus Kristjánsson, Giljalandi 24, Reykjavík. Elísa G. Jónsdóttir, Haukshólum 3, Reykjavík. Lýður Jónsson, Garðsenda 11, Reykjavík. Þorbergur Einarsson, Víkurbraut 32A, Vík í Mýrdal. 40 ára Hanna Jórunn Sturludóttir, Langholtsvegi 159, Reykjavík. Guðný Hannesdóttir, Sogavegi 40, Reykjavík. Sjöfn Guðmundsdóttir, Fagrahjalla 9, Kópavogi. Þorbjörn Ágúst Erlingsson, Víðimel 38, Reykjavík. Sigrún Karlsdóttir, Vaharbraut 1, Akranesi.
60 ára Skapti Steinbjörnsson, Hafsteinsstöðum, Staðarhreppi. Ása Sigurlaug Halldórsdóttir, Skipasundi 26, Reykjavík. Hún verður að heiman. Þorsteinn Þorgeirsson, Mávahhð 30, Reykjavík. Guðbrandur Magnússon, Hjallalandi 23, Reykjavík. Jónína Helga Jónsdóttir, Barmahlíð 2, Reykjavík. Örn Óskarsson, Fagurgerði 4A, Selfossi. Álfrún Sigurðardóttir, Tunguvegi 1, Reykjavík. Valgeir Jónasson, Sunnuholti4, ísafirði.
Kristín Bergljót Jónsdóttir, Logafold 134, Reykjavík. Guðjón Ásmundsson, Hríseyjargötu 6, Akureyri. Valgerður G. Einarsdóttir, Norðurgarði 1, Hvolsvelli. Sigurbjartur Helgason, Álftamýri 36, Reykjavík. Jónína Ásbjörnsdóttir, Eyrarvegi 12, Flateyri.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRADA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Forritið Windows95:
Tvær bækur þegar komnar
- eftir Sigvalda Úskar Jónsson og Baldur Sveinsson
Notendur nýja hugbúnaðarins
Windows 95 á Islandi ættu að geta
haft lesefni um forritið til að læra
að nota þaö. Þegar eru tvær bækur
komnar á markað, annars vegar
Bókin um Windows 95, eftir Sigvalda
Óskar Jónsson, og hins vegar Litla
bókin um Windows 95, eftir Baldur
Sveinsson. Bókin hjá Sigvalda er
mjög vegleg, um 200 síður að stærð,
en eins og titill síðarnefndu bókar-
innar ber með sér er meira um hand-
bók að ræða en hún er 50 síður að
stærð. Báðar bækumar eru seldar á
almennum markaði auk þess að
verða notaðar í kennslu.
Sigvaldi Óskar sagði við DV að
bókin sín hefði verið í vinnslu í
marga mánuði og sífellt hefði hann
þurft að gera breytingar um leið og
Microsoft gerði breytingar á forrit-
inu. Það er Tölvufræðslan á Akur-
eyri sem gefur bókina út en Sigvaldi
hefur áður ritað bók um Windows
3.1. Hún kom út haustið 1992, einnig
hjá Tölvufræðslunni.
Bók Sigvalda er ætluð byrjendum
en víða er farið dýpra í efnið þannig
að hún ætti einnig að nýtast þeim
V'
Sigvaldi Óskar Jónsson gluggar í Bókina um Windows 95.
DV-mynd BG
Baldur Sveinsson með eintak af
nýju handbókinni um Windows 95.
DV-mynd ÞÖK
sem þegar hafa náð nokkurri leikni
í tölvunotkun. í bókinni er farið í
öryggisafritun gagna, þjöppun diska,
nettengingar, póstkerfi og fax, upp-
setningu mótalda, tengingar við Int-
emet, margmiðlun með Windows 95
auk þess sem verkefni og yfirlit yfir
valmyndir fylgja.
Sigvaldi er rafmagnsverkfræðing-
ur og einn eigenda tölvuverkfræði-
stofunnar Prím. Hann hefur mikla
reynslu í tölvukennslu hjá Tölvu-
fræðslunni á Akureyri ásamt
stundakennslu við Háskóla íslands í
tölvufjarskiptum og þekkingarkerf-
um.
Litla bókin
Baldur Sveinsson er kennari og
deildarstjóri tölvudeildar við Verzl-
unarskóla íslands. Bókin hans verð-
ur seld á almennum markaði en
Baldur hyggst nota hana til kennslu
í Verzlunarskólanum.
Baldur sagði við DV að bókin væri
handhæg til notkunar fyrir framan
tölvuskjáinn, jafnt fyrir nemendur
sem almenna tölvunotendur.
Baldur gefur bókina út en henni
er dreift af Oífset-fjölritun.
-bjb
Undirskriftasöfnun gegn SVR-hækkuninni:
Fólk þyrptist að til að skrifa undir
Sjálfboðahðar á vegum íbúasam-
taka Grafarvogs söfnuðu milli 300 og
400 undirskriftum á fyrsta degi und-
irskriftasöfnunar samtakanna gegn
fargjaldahækkun Strætisvagna
Reykjavíkur, SVR, sem tekur gildi
um næstu mánaðamót. Friðrik H.
Guðmundsson, formaöur íbúasam-
takanna, segir að af öllum þessum
fjölda hafi aðeins 5-10 neitað að
skrifa undir.
„Söfnunin gekk mjög vel. Það
þyrptist að okkur fólk sem kom úr
strætó og vildi fá að skrifa undir.
Viðbrögðin voru mjög góð og fólk
þakkaði okkur fyrir það framtak að
koma mótmælunum af stað. Svo höf-
um við dreift hstum út um alla borg
og allir em mjög fúsir til að taka þátt
í þessu,“ segir Friðrik um undirtekt-
ir strætisvagnafarþega á Hlemmi á
fyrsta degi söfnunarinnar á fimmtu- r
dag.
Undirskriftirnar verða afhentar
borgarstjóra fyrir borgarstjómar-
fund fimmtudaginn 21. september og
stendur undirskriftasöfnunin fram
að þeim tíma.
-GHS