Þjóðviljinn - 22.12.1972, Page 7
Jólablaft 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Kvikmyndin Brekku-
kotsannáll verð-
ur að öllu forfallalausu
frumsýnd hér heima og i
Þýzkalandi um mánaða-
mótin janúar, febrúar.
Kvikmyndatakan hófst
síðari hluta ágústmán-
aðar og stóð yfir langt
fram í október. Þá héldu
leikstjórinn og að-
stoðarmenn hans utan til
að fella atriðin saman,
en hingað kom hópurinn
aftur til að taka raddir
upp á band, en bæði
þurfti að bæta raddirnar
og skipta um raddir.
Þetta verk tók eina tíu
daga. Nú standa málin
þannig að myndin er til
grófunnin og aðeins eftir
að leggja síðustu hönd á
verkið. Enn er ekki vitað
hvort sett verður þýzkt
tal inn á myndina, eða
hvort íslenzka talið verð-
ur látið halda sér og
hafður þýzkur texti þeg-
ar myndin verður sýnd í
Þýzkalandi.
Rætt hefur verið við
Leif Þórarinsson um að
semja tónlist við mynd-
ina sem tæki i heild ca.
20 mínútur í flutningi.
Þetta kom fram í
spjalli við Helga Gests-
son, sem var fram-
kvæmdastjóri meðan
myndataka fór fram
hér. Hann sagði enn-
fremur, að myndin yrði
eingöngu sýnd í sjón-
varpi. Hún er tekin í lit-
um og verður sýnd i
tveimur hlutum, en
heildarsýningartími er
um 3 klst.
Myndin er gerð af
Norður-Þýzku sjón-
varðsstöðinni með þátt-
töku sjónvarpsstöðva á
Norðurlöndum utan
Finnlands. Noregur, Svi-
þjóð og Danmörk leggja
til visst framlag og ís-
land lagði til mannskap,
aðstöðu, flugfélögin
veittu sérstakan afslátt
og menntamálaráðu-
neytið veitti fjárhags-
stuðning. Þjóðverjarnir
lögðu fram fé til sjálfrar
kvikmyndagerðarinnar.
Síðan skiptist hugsan-
legur ágóði eftir vissum
reglum þegar sala fer
fram. Þjóðverjar hafa
söluheimild, án þess að
skiptareglu sé beitt, fyrir
öll þýzkumælandi lönd.
Helgi sagðist álíta að
myndin væri vel heppn-
uð, húmor mikill og
handrit vel unnið.
Kostnaður fór fram úr
áætlun, en samt er hann
ekki talinn svo mikill að
r. yndin ætti ekki auð-
veldlega að skila hagn-
aði þegar timar liða
fram.
Þessar skemmtilegu
myndir sem birtast hér
tók Troels Bendtsen,
tónl istarmaður, sem
vann að gerð myndar-
innar. sj.
llér eru nokkrir krakkar aö ærslast við Brekkukot. Þar var skilti sem
l'lutti þann boöskap aö bannaö væri að lioppa yfir giröinguna að
viölagöri 1» króna sekt, Arný Guðmundsdóttir sem annast gcrö bún-
inga hjá Sjónvarpinu saumaði og geröi búninga, en citthvaö kom aö ut-
an.
Þorgcir i Gufunesi lagði til 12 hesta i skreiðarlest. Hér er Þorgeir kom-
inn i bæinn meö hross sin og varning.
Ilús viö Löngustétt. Björn Björnsson, lcikmyndasmiöur sjónvarpsins var llúsameistarinn og var sam-
dóma álit allra aö hann heföi leyst verkefniö fráæbrlega vcl. (ill húsiö við Löngustétt áttu sér fyrir-
myndir i gömlu Keykjavik.Þessar forhliðar voru allar rifnar og eyöilagöar að kvikmyndatöku lokinni.
Ilér er Álfgrimur 12 ára aö koma meö rauðmaga til Guðmundsen. Alfgrim sem barn lék Þorgils Nikulás
Þorvaröarson.
Ilér er verið aö „sminka" Thor Vilhjálmsson i Gútcmplarahúsinu, en þar hélt Gúdmundsenverzlunin
skemmtun. Konan sem er aö farða skáldið er þýzk og heitir Kluge.
MYNDIR: TROELS BENDTSEN.