Þjóðviljinn - 22.12.1972, Blaðsíða 46
46 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Jólablaö 1972
Hefðarkettirnir
1___________________
Paris árið 1910. Sérlyndaði
m i 1 jónamæringurinn frú
Bonfamille hefur kvatt á sinn
fund lögfræðing sinn óstvrilátan
niræðing, svo að hann geti gert
erfðaskrá fyrir hana. Meðan þau
stiga tangó, minnastþessir gömlu
vinir hinna góðu gömlu daga,
þegar þau dönsuðu alla liðlanga
nóttina. Frúin segir lögfræðingi
sinum, að hún hafi ákveðið að
arfleiða kettina sina heittelskuðu,
Greifynjuna og kettlingana
hennar, þau Mariu, Berlioz og
Toulouse, að stóru höllinni og öll-
um eignum sinum. Við dauða
kattanna eiga allar eignirnar að
renna til hins dygga þjóns hennar
hans Edgars
2
Þegar Edgar heyrir um þetta
mikilvæga atriði i erfðaskránni,
fer hann strax að brugga skugga-
leg ráð til að losa sig sem fyrst við
kettina. En eins og alkunnugt er
hafa kettir niu lif, og Edgar álitur
það þýðingarlaust að stytta þeim
aldur. Þess i stað setur hann
sterkt svefnmeðal i kvöldmat
kattarfjölskyldunnar til þess
siðar — þegar þeir eru sofnaðir
djúpum svefni — að aka þeim svo
langt upp i sveit, að þeir rati
aldrei heim aftur.
3________________________
En Edgar er svo óheppinn að
það ráðast á hann tveir flökku-
hundar, Napoleon og Lafayette,
Við það missir hann vald á mótor-
hjólinu og karfan með katta-
mömmu og börnum hennar, sem
hann hafði skorðað á afturhjólinu,
dettur.
4_________________________
Þegar kettirnir vakna morgun-
inn eftir hafa þeir ekki hugmynd
um, hvar þeir eru niðurkomnir,
og þeir vita heldur ekki að það er
Edgar sem hefur sett svefnlyf i
matinn þeirra og farið með þau
langt upp i sveii. Til allrar
hamingju á villikötturinn Thomas
O'Malley einmitt leið framhjá
þeim stað, er karfan féll af
mótorhjólinu. O’Malley er lifs-
reyndur herramaður , sem er
vanur að bjarga sér úti i hinum
stóra heimi, svo honum verður
ekki skotaskuld úr að fara með
Greifynjuna og börnin beinustu
leið til Parisar. Þetta var ást við
fyrstu sýn hjá Thomasi og
Greifynjunni. Út úr körfunni sjá
Maria, Toulouse og Berlioz
hvernig kvennagullið gerir hosur
sinar grænar fyrir móöur þeirra.
5_______________________
Kettir verða að þola miklar
þrengingar áður en þeir komast
aftur til Parisar. Það er orðið
áliðið. Kattamamma og
ketlingarnir hennar eru þreytt
eftir hina erfiðu ferð, og Thomas
O’Malley stingur þvi upp á þvi, að
þau gisti öll heima hjá honum og
bezta vini hans kattar-jazz-
trompetleikaranum Scat Cat. En
þau geta litið sofið, þvi að veizlan
verður að stórkostlegri jazzhátið
með Scat Cat og öllum músik-
vinum hans, sem búa i þessu
töfrandi hverfi sem er
hefðarköttuunum með öllu
framandi.
6_______________________
Meðan máninn varpar silfur-
birtu sinni á þök Parisar, rennur
upp kveðjustund Thomasar og
Greifynjunnar. Greifynjan vildi
allra helzt eyða þvi sem hún á
ólifað með þessum karlmannlega
ketti i litlu listamanna - ibúðinni
hans, en hún finnur til skyldu
sinnar gagnvart hinni
heittelskuðu húsmóður sinni, sem
hún veit að er yfirkomin af sorg,
vegna kattanna sinna; En það er
ekki um annaö að ræða.
Greifynjan , Maria, Berlioz og
Toulouse verða að fara aftur til
hallarinnar, þegar dagur ris.
7___________________
Kattarf jölskyldan kveður
Thomas O’Malley fyrir framan
hliðið að hinni virðulegu höll.
Greifynjan og börnin eru komin
heim aftur. Þau halda sig komin i
öruggt skjól. Þvi að þau vita ekki
enn, að það var þjónninn Edgar,
sem stóð fyrir brottnáminu. Og
inni i húsinu biður Edgar eftir
þeim. En hinn góði vinur kattar-
ijölskyldunnar, músin Roquefort
er fyrir löngu farin að njósna um
Edgar. Og þegar Roquefort verð-
ur vitni að þvi að Edgar setur
kettina i poka og felur þá i
bakaraoíninum. með það fyrir
augum að senda þá siðar alla leið
til Timbúktú, tekur Roquofort
málið i sinar hendur og flýtir sér
út á götuna til að sækja Thomas,
sem hefur farið lúpulegur leiðar
sinnar. Thomas hlustar skelfingu
lostinn á sögu Roqueforts og flýtir
sér að koma sinni heittelskuðu til
hjálpar, þegar hann hefur sent
Roquefort i þá hættuferð — fyrir
mús - að hitta Scat Cat og vini
hans i kattarhveríinu miðju.
8_________________________
Allt endar þetta auðvitað vel.
Thomas, Scat Cat og
kattarfélagarnir allir veita Edgar
makleg málagjöld. Og það eru
ekki Greifynjan og börnin heldur
þjónninn sem er sendur i hina
löngu ferð til Timbúktú. Thomas
er tekinn inni þessa finu
fjölskyldu og i tilefni dagsins er
tekin af honum mynd með nýju
konunni og börnunum hennar
þremur fyrir fjölskyldualbúmið.
Á neðri hæðinni eru Scat Cat og
vinir hans að hita sig upp fyrir
jazzball ársins. F'rúin hefur
einnig veitt þeim húsaskjól. og nú
ætlar hún að innrétta höllina sina
sem heimili fyrir alla heimilis-
lausa ketti Parisar.