Þjóðviljinn - 22.12.1972, Side 17

Þjóðviljinn - 22.12.1972, Side 17
Jólablaf) 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17. Hrossasótt og manna Framhald af 15. siðu. Kvalirnar stillast Það var eins og kvalir skepn- unnar færu að stillast stuttu eftir inngjöf, og ég lofaði henni að vera áfram i garðinum, þvi vorsólin var farin að brjótast fram og myndaði polla og læki úr snjón- um. Eftir klukkutima mátti sjá i garðinum hér og þar svarta gljá- andi hrossataðsköggla, og það rauk upp af þeim nýjustu. Það er svo i raun og veru fyrir utan ramma þessarar sögu, að ég gaf hryssunni fleytifulla flösku af sama undrameðalinu tveim tim- um siðar, enda gafst það milli- liðalaust og án formála og fyrir- hafnar, en nú var aftur á móti ekki fyrirhafnarlaust að fá mer- ina til þess að taka inn meðalið sitt, og virðist mér óþægðin i þessu stórlynda hrossi vaxa i réttu hlutfalli við batnandi heilsu. bað er lika utan ramma þessarar sögu að öll fjölskylda min fékk nokkuð einstæð laun fyrir lifgjöf- ina frá þessari óþægu hryssu, þvi hún leyfði okkur öllum að sjá, þegar hún kastaði mánuði siðar og eignaðist mósótta hryssu með snjóhvita leista og sokka á fótun- um og: „fjallahryssan kvika, keika, kumraði slitur vöggu ljóðs”. Nýting dýrmætrar reynslu Þess er aftur á móti skylt að geta, vegna þeirra, sem kunna að telja þetta tilviljun, að tveimur árum siðar bjóst ég til suður- göngu, til að vinna fyrir mér. Ég skildi konu og börn eftir, og var Sólveig bóndinn og húsfreyjan. Þá bar svo til að Hallgrimur á Þorbr., aðfluttur nágranni, hringdi, og spurði Sólveigu hvort Gunnar hefði ekki skilið eftir nein meðul við hrossasótt. Hún svar- aði erindi mannsins stutt og lag- gottj hann skyldi bara pissa i flösku og henna úr henni fullri gegnum nösina á hrossinu og þar með væri þvi bjargað. Það reynd- ist lika svo, og lifir það ennþá. Lækning tiginna manna Aftur á móti tilheyrir það innri kjarna þessarar sögu, að bæta hér við frásögn major Booth af þvi, þegar vinur hans Sverrir Tryggvason i Viðihlið við Mývatn læknaði brezkan aðalsmann þar á staðnum, það var að visu ekki hliðstæða við hrossasótt, sem þjáði þetta stórmenni, en það var sótt samt, og miklar innvortis kvalir fylgdu. Arnþór Björnsson hótelstjóri vildi sækja lækni handa hinum tigna gesti, en Sverrir taldi það óþarfa og bauðst til að lækna manninn. Setti hann nú fætur undir sig og hvarflaði frá, en kom að vörmu spori að rúmi sjúklingsins með þær stærstu pillur, sem hann hafði augum litið; hann tók þó pillurnar með góðu og var albata daginn eftir. Aðalsmaðurinn kallaði nú Sverri lifgjafa sinn á sinn fund og spurði hvernig hann hefði vitað að þessar pillur byggju yfir þvilikum lækningarmætti. Sverrir leit beint framan i hann með augum, sem eru eins og tveir himnar laugaðir af morgunsól, og sagði: ,,Ég er margbúinn að reyna þessar pill- ur, þvi ég gef kindunum minum þær alltaf þegar þær fá drullu”. Niðurlag eftir ófínt orð Nú get ég ekki sagt góða nótt á eftir þessu ófina orði, og væri það lika ódrengskapur gagnvart Sverri að afgreiða hann á þennan hátt, þvi einn mesti gróði fjöl- skyldu minnar af kynnum við major Booth er i þvi fólginn, að Sverrir i Viðihlið varð fjölskyidu- vinur okkar á Teigi, og er það til marks um þá vináttu sem Brian Booth rækir við Sverri, að þegar fyrrverandi ambassador Breta kom með frú sina til að heilsa og kveðja Vopnafjörð, þá bauð hann Sverri til veizlu, sem haldin var af majornum og þeim Bustarfells hjónum Elinu og Einari. En veizl- an var haldin til heiðurs þessum góðu og hlýlegu gestum, og þar sagði Brian okkur m.a. þessa sögu, við mikinn fögnuð þeirra hjóna, sem þótti merkilegt að frétta hvernig islenzkir bændur fara að þvi að lækna brezka aðalsmenn á sóttarsæng. Nú vildi svo til að sambassadorinn var ekki heill heilsu og þurfti að ganga snemma til hvilu, en hann mátti ekki af Sverri sjá, heldur varð hann að frétta af viðgangi hverrar andategundar og plöntu á islandi. Gerðist þá mál þeirra mjög latínuskotið, en Sverrir sat á rúmstokknum hjá gestinum til miðnættis. Hafði hann þá gefið góð orð um að fylgja þeim hjón- um um Mývatnssvæðið tveim dögum siðar, og við það stóð hann. Enda þótt náttúrubörn eins og Peter Scott, major Booth og Wattson, sem þekktur er vegna Coll i ng w oodm y nda n na o.fl. gjafa, hafi uppgötvað Sverri og velji hann til fylgdar sér og sinum vinum, þá ætti hann að leysa stærri hlutverk i hinni nýju og mikilvægu atvinnugrein, sem móttaka ferðamanna óumdeilan- lega er. Hef ég þá i huga sögu af þvi, þegar hann eitt sinn fylgdi ferðamannahóp upp á f jall eitt við Mývatn, til þess að sýna mið- nætursólina i unaðslegri kvöld- bliðu. itölsk liruprinsessa gafst upp i miðjum hliðum og heimtaði að vikingurinn bæri sig upp á hæstu brún, hvað hann gerði. Þar sá hún svo einar tvær miðnætur- sólir og ennþá fleiri morgunsólir. Einmitt svona geta sögur end- að, sem fara vel, enda vona ég að einhverjir skilji nú, að læknis- dómarnir eru margir og stundum nær okkur en við höldum, og stundum verður náungi okkar bezti læknirinn. V erkalýðsf élag Norðfirðinga óskar félögum sinum og öðru landsfólki GLEÐILEGRA JÓLA OG NÝÁRS. V erkalýðsf élag Norðfirðinga Neskaupstað. STilHREIN HÚSI JÚPÍTERS OG MARZ KIRKJUSANDI SÍMI 35005 Seljum stálhúsgögn frá verkstæði Margar gerðir af borðum og stólum Mikið úrval af áklæði Mikið úrval af harðplasti Mjög hagstætt verð SÓLÓ-húsgögn IIÚSI JÚPÍTERS OG MARZ KIIIKJUSANDI SÍMI 35005 Enn nýjungar frá ÆS5) „Læra má af leik” u NÝTT! LEGO TANNHJÓL Þroskandi skemmtun fyrir unglinga á vélöld. Ný tækifæri til þjálfunar i—i og þátttöku i tækni nútímans. I NÝTT! LEGO DUPLO Stórir LEGO-kubbar fyrir yngstu börnin. Einkum ætlaðir ungum börnum, som enn hafa ekki náð öruggri stjórn á fingrum sínum miM Njótió góórar skemmtunar heima. AÐALSKRIFSTOFA REYKJALUNDI, Simi 91 66200 Mosfellssveit SKRIFSTOFA i REYKJAVÍK Bræðraborgarstíg 9 Simi 22150

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.