Þjóðviljinn - 22.12.1972, Page 19
Jólablað 1972 ÞJóÐVILJINN — StÐA 19.
ÞORSTEINN FRÁ HAMRI
TÓKSAMAN
ÞENNAN ÞÁTT
UM
KRISTJÁN FJALLASKÁLD
VEIÐI-
MAÐURINN
Ef dey ég, um mig grafskrift gjörðu
með grallaralagi og háum klið,
þvi þá skilur mikill maður við,
er KRISTJÁN JÓNSSON
krýpur að jörðu.
(Kristján Jónsson: Lok bréfs til Kristjáns Eldjárns Þórarinssonar).
Kristján Jónsson Fjallaskáld
kom i Latinuskólann i Reykjavik
árið 1864, þá þjóðkunnur fyrir
kvæðið um Dettifoss, ,,Þar sem
aldrei á grjóti gráu / gullin mót
sólu hlæja blóm". Hann sagði sig
úr skóla 1868 og fór úr Reykjavik
alfari. Tæpu ári siðar var hann
liðið lik á Vopnafirði, þá 26 ára að
aldri.
Matthias Jochumsson var sam-
tiða Kristjáni i Latinuskólanum.
Af skiptum þeirra fer ekki mikl-
um sögum, að öðru en þvi að
þegar Kristján liggur i taugaveiki
1867 yrkir Matthias honum
„kraftakvæði”, lánga gaman-
rimu, sem birt er i ljóðmælum
hans. En Matthias drepur nokkr-
um sinnum á Kristján i bréfum
sinum á þessum árum, og þá i
misjöfnum tóntegundum.
Vorið 1864, þegar Kristján
geingur undir inntökupróf,
skrifar Matthias i bréfi til Stein-
grims Thorsteinsson:
„Kristján (skáldi, sem þeir
kalla) norðan úr Þingeyjarsýslu
er hér við latinulærdóm, og vill
komast i 2. bekk i vor. Hann er á
velli vist ekki ólikur honum
Mökkurkálfa sáluga nema hvað
Mökkurkálfi var ekki skáld, en
Kristján er það og yrkir sumt
helviti vel; þó leynist ekki ein-
hver heljarskinnsblær á öllu hans
athæfi, og þar i premerar sig hans
originalitet; en það er eftir að
definera Heljarskinn. Þegar hann
les upp sinar hamrömmu trölla-
þulur gjörir hann það með olymp-
iskri ró og kyklópskum
eintrjáningsskap og bætir svo við
með norðannæðingslegri
ataraxia: „Nú er það ekki
meira!” ”
Sumarið 1868, þegar Matthias
er setztur i embætti að Móum á
Kjalarnesi, skrifar hann Stein-
grimi:
„Greyið Kristján 'Jónsson
skáldi flæmdist eða sagði sig úr
skóla i vor og fór austur á land;
Bakkus er hans refsinorn; hann
drekkur geyst og ólánlega,
auminginn sá arna. Gott efni var
hann i skáld áður en hann
skemmdi sig.”
1 april 1869, þegar Kristján er
að visu látinn, án þess að séra
Matthias hafi fregnað það,
skrifar Matthias enn i bréfi til
Steingrims:
„Kristján er fyrir austan, — ég
er hræddur um að hann sé bráð-
um úr sögunni per Bachum
dissolutus atque.”
I mai sama vor skrifar séra
Matthias i bréfi til séra Eggerts
Ó. Briem:
,,Ó, æ, Stjáni greyið dauður!
Með hvaða atburðum veit ég ekki,
en nær mér var höggvið, enda
þótt við aldrei værum vinir. Ég
sakna þess, að eiga aldrei von á
að heyra neina lffsfrfskandi
beinakerlingarbögu, þvi siður
hetjulega hróðrargrein, né tröll-
aukinn lalshátt frá Kristjáns
kraftaskáldskapar tröllabotnum
til min kallanda. Kristjáns brjóst-
eða höfuð- eða hugarborg var
einskonar Goðafoss (eða gat
verið það), eða einskonar Þóris-
dalur, fullur af forpeskju og fjöl-
römmum kröftum; honum var
gefið vald á fáránlegu og fágætu
orðfæri, sem börðu i mann
heiftarheitum tilfinningum. Þó dó
hann fyrr en honum auðnaðist að
sýna nema aðeins litinn vott þess,
sem i hans skapi bjó og fyrir hann
hafði borið. En svona deyja og
allir miklir Islendingar. Við
erum, i samanburði við mennta-
menn heimsins, fáeinir auðnu-
leysingjar, sem lifa hálfa ævi, og
ekki á öðru en vanheilsu, sorg og
brennivini, háðung og
hákarlsruðum.”
Sem kunnugt er,mælti séra
Matthias fagurlega efdr Kristján
i ljóði, tiu erinda kvæði undir fer-
skeyttum hætti sem siðan var
kyrjað i samsæti kunníngja hins
látna i Reykjavik:
Vantar nú i vina hóp,
völt er lffsins glima,
þann, er yndi og unað skóp
oss fyrir skemmstum tima.
Nú er harpan hljóð og ein,
hryggðarþrumu lostin,
aðeins heyrist óma kvein
eftir strenginn brostinn.
Nær munu fjöllin forn og köld
Fróns á norðurjöðrum
aftur fylla skarð i skjöld
með skáldum slikum öðrum?
Skömmu siðarskrifar Matthias
i bréfi til Steingrims:
„Ég kvað eftir garminn hann
Kristján skáld.”
Enn er ótalin klausa úr einu
bréfi Matthiasar til Steingrims
frá skólaárum þeirra Kristjáns,
en þar segir:
„Hvað á ég meðal annarra orða
að segja þér interessant? Kvæði
Kristjáns, „Veiðimaðurinn”,
segir hann sumum sé frum-
kveðið, en ég hef sagt honum að
hann hafi haft fyrir sér útlent
kvæði og þá hefur hann gengizt
við sannleikanum.”
Það er „Veiðimaður”
Kristjáns, sem Asta Sóllilja i
Sjálfstæðu fólki vakir stundum
yfir meðan kennarinn dvelur á
heimilinu: „Hún hafði ævinlega
skilið bæði skáldskap og annað á
sinn hátt. Til dæmis er hún háttuð
eitt kvöld. Og hún læzt vera farin
að sofa einsog alltaf þegar hún er
komin uppi, en hún var ekki farin
að sofa. Hún var að biða eftir að
amma gamla slökti hjá sér. Svo
liður og biður. Og þá sér hún
útundan sér hvar maður situr
uppvið dogg og styður hendi undir
kinn, og það er hann, hár hans
flóir yfir hönd honum. Hún virðir
fyrir sér meitlaðan vánga hans og
loðna augabrúnina yfir hinu
skoðandi augnaráði, sem öðrum
stundum býr yfir hinum heillandi
litarljóma als skáldskaparins, og
hún sér einnig beran háls hans alt
Framhald á 20. siðu.
KRISTJÁN JÓNSSON
Þessi mynd er úr
Sunnanfara, apríl 1913.
Henni fylgir svolátandi
texfi:
,,Hjer er nú flutt
mynd, sem maður hálf-
gert býst við að ein-
hverjum verði flökurt
af,þvímenn eru farnir að
verða nokkuð viðkvæmir
i seinni tið að þvi er
virðist. Myndin er af
Kristjáni Jónssyni,
skáldi. Hvaða ár hún er
tekin er mjer ókunnugt,
en Tryggvi fyrv.
bankastj. Gunnarsson
tók hana af Kristjáni i
túnfætinum i Vallanesi.
Jeg rakst á hana í sumar
sem leið norður á Húsa-
vik á Tjörnesi og þótti
réttast að halda henni til
haga af því að mjer datt
i hug að ýmsum kynni að
þykja þessi mynd gefa
nokkru betri hugmynd
um manninn eins og
hann gekk og stóð heldur
en myndir þær af hon-
um, sem allir þekkja,
þvi að flestum mun
þykja svo sem myndir
sem teknar eru á Ijós-
myndastofum muni vera
teknar frá beztu hlið.
Bezta hliðin á mönnum
er vitanlega góð, en i þvi
að sýna hana eingöngu
liggja mikil ósannindi. Á
mynd þessari er Kristján
alls ekki ,,stilltur upp“
eins og á öðrum mynd-
um. Hann er með
staupið og pelann i
höndunum, svo var hann
opt, og munu af
skynsemdarfólkinu fáir
taka til þess, þó svo hafi
verið, og ekki heldur þó
Sunnanfari flytji mynd
af honum undir þeim
kringumstæðum. Mjer
finnst mjer hafa aukizt
skilningur á Kristjáni af
myndinni. Ef til vill fer
einhverjum eins”.