Þjóðviljinn - 22.12.1972, Qupperneq 22

Þjóðviljinn - 22.12.1972, Qupperneq 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Jólablað 1972 wm FISKISTÚLKAN (Das Fischermádchen) Þú fagra fiskistúlka, fleyt þinum bát i vör — komdu til min, og hönd i höndu við hjölum frjáls og ör. Þinn koll mér hneigðu að hjarta, vist hræðistu ekkert þar: þig hefur ósmeyka einatt annazt hinn tryllti mar. Með stormi, fjöru og flóði, ég finn mins hjarta sjó, og fjölmörg fögur perla þar felst i djúpsins ró. (Heine) SCHWANEN- GESANG KVEÐJA (Abschied) Far vel! Þú glaða og broshýra borg, farvel! Nú skeiðar hinn fótvissi fjörgapi minn, svo far þá vel borgin min, hinzta sinn. Ég felldi vist aldrei mörg tár á þin torg, og tárast ei heldur af skilnaðarsorg. Far vel, þú glaða og broshýra borg, farvel! Far vel, þið grænkandi garðar og tré, farvel! Ég þeysi um bakka þinn, breiðelfan ströng, hér bergmála klettar minn skilnaðarsöng. Þið heyrðuð vist aldrei neinn hryggðarbrag, og hér skal ei kyrjað útfararlag. Far vel, þið grænkandi garðar og tré, farvel! Far vel, þið táturnar þekkui þar, far vel! Já, horfið þið út yfir ilmgarðsins flos, i augunum glettnar, með lokkandi bros! Sem áður, ég veifa og horfi frá hlið, en hest minn ég spora, ég sný ei við. Far vel, þið táturnar þekku þar, far vel! Far vel, kæra Sunna, nú sezt þú i ró, far vel! Enn kviknið þið, stjarnanna blikandi bál, þið brosið frá himninum við minni sál, og hvert sem ég reika um veraldar veg, er vís ykkar samfylgd og óþreytanleg. Far vel, kæra Sunna, nú sezt þú i ró! Far vel, þú smáljórans glampandi gler, farvel! Nú kveikirðu ljós þitt, er kvöldskiman dvin, i kofann sinn bjóða mér vinahót þin. Ég minnist, hve fram um hér leið min oft lá, — mun langt, þar til má ég þig aftur sjá? Far vel, þú smáljórans glampandi gler, farvel! Far vel, þið stjörnur, og byrgið nú brár! Farvel! Þó heilli mig títt ykkar heimsljósa íans, nær hjarta er brosmilda smáljórans glans, en hérskal ei tefja, þér framhjá ég fer, ei fylgd þarf aðra, hve trygg sem er! Far vel, þið stjörnur, og byrgið nú brár! Farvel! (Hellstab) HNATTBERINN (Der Atlas) Jeg ólánsamur Atlas, jeg ólánsaraur Atlas! veröld harms, já, alla veröld harmsins hlýt að bera, já, veröld harms hlýt að bera, ég ber það sem að bært er ei, og heljarþunginn mitt hjarta sprengir. Þú hjartað stolt, þú valdir sjálft þann veg! þú vildir unað þinn, um eilifð unað, eða um eilifð harminn, um eilifð harminn, hjartað stolt, nú þjakar þig sá harmur. Jeg ólánsamur Atlas, jeg ólánsamur Atlas! sem alla veröld harmsins hlýt að bera, sem veröld harms hlýt að bera, sem alla veröld harmsins hlýt að bera! (Heine) VIÐ HAFIÐ (Am Meer) Að yztu rönd öll unnin skein i aftanljómanum rauða. Við sátum þögul og saman ein hjá sjómannskofanum auða. En þokan hófst, varð sollinn sær, á svifi var már yfir bárum. Og bládjúp augun ástarskær, augun þin, fylltust af tárum. Ég sá þau falla, ég féll á kné, þau féllu á hönd þina, tárin. Ég drakk þau öll, við hrannaðan Hlé, af hvitri mund þinni, tárin. Frá þeirri stundu ört þver mitt lif, af þrá ég dey i sárum — þær undir veitti ólánsvíf og eitraði sinum tárum. (Heine)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.