Þjóðviljinn - 22.12.1972, Page 29
Jólablað 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 29
Hungursóttir
á íslandi
Hér fer á eftir samantekt úr
ýmsum annálum um harðærin
miklufyrir og um aldamótin 1700.
Er þetta tekið úr hinu merka riti
prófessor Jóns Steffensen um
hungursóttir á íslandi (útgef. Fé-
lag áhugamanna um sögu læknis-
fræðinnar, Rv. 1972).
Prófessor Jón telur að á 7 ár-
um, 1696 til 1702, hafi fólkinu i
landinu fækkað um að minnsta
kosti 3.500 manns. Miðað við
manntalið 1703 hafi ibúatalan árið
1695 þvi aldrei verið lægri en 54
þúsund. Þess ber svo að minnast,
að nokkrum árum siðar, 1707,
herjaði stóra bóla og lagði ótaldar
þúsundir að velli.
1696.
Fjárfellir og fisklaust fyrir Norð-
urlandinu, ,,hvað orsakaði stór
harðindi og hallæri manna á með-
al, svo margt fólk frá jörðum og
bústöðum... uppflotnaði og flúði
til annara héraða, út á Jökul, Suð-
urnes, vestur á Vestfjörðu... sér
bjargar og viðurværis að leita, i
stórhópum, hvar af þó margir á
vegunum af hungri dóu og á
fjöllunum bæja á milli úti urðu”.
É. Dóu þá margir af sulti fyrir
norðan Vöðluheiði. H. 1 Stranda-
sýslu dóu af vesöld nokkrar
manneskjur. Gr. Bjargræðis-
brestur i öllum sveitum, þó helzt
fyrir norðan. Viða urðu bráð-.
kvaddar manneskjur F.
1697.
Féll þá fólk viða úr mégurð, létust
yfir hundrað i Hegranesþingi. M.
Mannfall af vesöld i ólafsfirði
samantalið 80, Fljótum 84, Tré-
kyllisvik 54, i Rifi vestra og á
Hellissandi undir Jökli 24, en þó
mest mannfallið á Langanesi og
þar báðum megin i nálægum
sveitum. Setb. Svo skrifast, að i
Þingeyjarþingi frá sumarmálum
til alþingistima hafi hundrað
manns i harðrétti dáið, auk
þeirra, sem úti haf orðið. E. Þá
drukknuðu eða dóu af voveifleg-
um tilfellum i ýmsum stöðum
meir en 20 manneskjur, þar að
auki féll fátækt fólk af hungri i
sumum harðindasveitum F.Gekk
hettusótt um landið. Gr., F.
1698.
Féll þá margt fólk úr megurð,
einkum vestan og norðan M.
Harðindi stór um landið af heys
og matar skorti. Dó fólk fyrir
norðan i hallæri, einninn um
Borgarfjörð, helzt á Mýrunum á
milli bæja og viðar, svo og lika á
Siðu. Setb. Af hallæri dó viða fá-
tækt förufólk. F.Mikil yfirferð af
norðlenzku fólki suður og vestur
um landið. Dóu margir bæja á
milli af hungri og klæðleysi.H.
1699.
Litið um fisk vestra og harðindi
undirJökli, var greint þar hefðu
dáið af sulti 70 manns. V. (100,
flest aðkomandi utansveitarfólk,
segir EJ. 1 Trékyllisvik, að-
fangadagskvöldið, jóladag, ann-
ars dags og þiðja dags kvöld, urðu
bráðkvaddir 4 menn, sitt kvöldið
hver þeirra um lestur. Þar i sveit
og viðar á Ströndum hafði þar
ekki i fyrndinni fólk tiðum sótt-
dautt orðið, þvi þegar nokkur
varð bráðkvaddur, þá heyrðist
ógurlegt hljóð, svo að fjöllin tóku
eftir og kölluðu það náhljóð eða
nágaul. Manndauði undir Eyja-
fjöllum og Snæ.fellsjökli af hall-
æri. Á Vatnsleysuströnd urðu 4
menn bráðkvaddir. Sótt mikil i
Austfjörðum og þar i sveitum.
Setb.
1700.
Hneppusótt. Harðindi stór um
landið og fiskleysi. Dó fátækt fólk
af megurð, bæði á millum bæja og
á heiðum og i heimahúsum hóp-
um saman, hvað óhægt er saman
að reikna. Þá var vegna hungurs
etið hrossakjöt á Akranesi af
sumum. Var saman reiknað á þvi
hausti allt að jólum hefði (hér)
sunnanlands bráðkvaddir orðið
12 menn með einni konu, en 7 i
Húnavatnssýslu, lika á Vestf jörð-
um nokkrir og viðar um landið.
Setb.Um sumarið var gerð supp-
licatia til kóngs, að hann sæi
aumur á eymdarstandi landsins.
P.V. Sótt mikil og mannskæð i
Fljótsdalshéraði austur, deyði
fjöldi fólks... Færði sóttin sig
norður eftir og nam staðar á
Langanesi, snemma vorsins. Þar
dó margt manns. Sjö manneskjur
bráðkvaddar, á Skaga 4 á
skömmum tima fyrir Ólafs-
messu, 2 á Vatnsleysuströnd og 1
á Seltjarnarnesi. V.
1701.
Allmikil harðindi i Þingeyjar-
þingi með mannfalli, deyði eigi
færra en 100 manna, og nokkrir
bráðlega. Það fall gekk yfir að
framan um veturinn og mjög
fram á vorið. Bráðdauði 11 mann-
eskja undir Jökli. V. Þá dó og
margt fólk úr megurð, bæði i
Húnavatns-, og Hegraness- og
Vöðlusýslum. M. 1 Þingeyjar-
sýslu norðan Vöðluheiði féll fólk i
hungri: var fallið i einum hrepp
yfir 50 á Hallvarðsmessu (þ.e. 15.
mai). P. V.Mannfall i Austfjörð-
um og viðar, — eyddust jarðir. Á
þessu ári urðu margir menn
bráðkvaddir og fengu undarlegan
veikleika. Bráðdauðir urðu i
Hornafirði 6 menn. Einn maður
bráðkvaddur i Seyðisfirði. Einn
hljóp fram af björgum i sjó..
Norðurfjörður i Austfjörðum var
eyddur af hallæri. Urðu á einni
viku á Seltjarnarnesi um haustið
bráðkvaddir 2 menn og ein kona,
og 2 menn á Strönd suður. Setb.15
menn bráðkvaddir i ýmsum stöð-
um. Margir dóu með undarlegum
veikleika. F.
1702.
Dó fátækt fólk af hallæri og varð
úti á þessum vetri um landið nær
gjörvallt, á Akranesi 40, Kjalar-
nesi 20, einninn Mosfellssveit,
Seltjarnarnesi og eigi sizt hér á
Álftanesi. Varð bráðkvatt fólk
viða um landið, sérdeilis á suður-
landinu á umliðnum tveimur ár-
um, en á þessum vetri á Suður-
nesjum samanreiknaðir karl-
menn á sjó og land sem og kven-
menn 30 að tölu. Varð fölk bráð-
kvatt á Vestfjörðum fyrir norðan
Isafjarðardjúp. Setb.l Grunnavik
á Vestfjörðum urðu 5 manneskjur
bráðkvaddar, ein af þeim hljóp
nakin rænulaus út i fjúk og fannst
eigiaftur. M.F'iskafli nær enginn
um Suðurlandið. Sultur og harð-
indi meðal manna. Á Akranesi
var mannfall af förufólki. II. Gr.
I framangreindu er stuðzt við
eftirtalda annála, svo sem
skammstafanir visa til: Eyrar-
annáll, Fitjaannáll, Grimsstaða-
annáll, Hestsannáll, Mælifells-
annáll. Annáll Páls Vidalins.
Setbergsannáll, Vallaannáll.
Fluga
Á þiðnu sumri sölnaðra grasa
grættu úr augnhári minu
örþyt flugna.
Horfðum að heiman að strám
um helmu
á titrandi öx.
Á þiðnu sumri sölnaðra grasa
greip mig forvitni þess.
Ef að ske kynni fluga,
sú er hvergi i ótima beið
en settist á strá.
Sú varð min gleði
er sú glævængjuð
þó sér i framan
fimlegum fótum
snyrti væng sinn og væng.
pétur páls.
Köngulær
Hlutverk var mér falið: að hvitta
hús,
til þess hafði ég skjólu og krús.
Skenkti hvitu semi i kollu,
hellti siðan vatni úr dollu,
hrærði svo sem mest ég mátti
með naglaspýtu sem bóndinn átti.
Kalkkústur var ljós til reiðu
ég rauk með hann og hvitti
breiðu.
En skildi eftir eyðu og eyðu,
þvi eitthvað skreið um þar
á vegg.
Upp við brúnir þaks við þekju
þar var köngulló við klekju.
Kolþó brún með börn á baki,
bara að lifið ekki saki.
Þvi skildi ég eftir eyður,
breiður,
þar sem köngul bjó sér hreiður.
Það sem var þó verst við þetta,
þegar ýrðist á þau sletta.
pétur páls.
Walt Witman:
Vopnahlé
Það orð svæfir allt dásamlega með sólarlaginu
stórkostlegt var striðið en allar dáðir þess
og dirfska
munu hverfa með timanum algjörlega i gleymsku
þvi hendur systkinanna dauðans og næturinnar
baða stöðugt bliðlega i blóði þessa saurugu veröld
þar til andstæðingur minn er fallinn i valinn
maður jafn rétthár til lifsins og ég er dauður
ég sé hvar hann liggur með fölt andlitið
sem starir formfast i gluggakistunni
ég geng nær spenni greipar krýp á kné
beygi mig niður og snerti hljóðlega
með vörunum heiðarlega andlitið i glerkistunni.
Jónas E. Svafár gerði mynd og snaraði úr ensku