Þjóðviljinn - 22.12.1972, Qupperneq 33
3 2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Jólablaö 1972|
mm
flíSflÍáiíf®
:
: :
E É
; ;
Wmm
.
■
i ':
wííí^jí
■ t - i
✓ y;
*
Wmím
á kvæöinu
Við komumst á snoðir um
það fyrir skömmu, að nem-
endur á 4ða ári í teikni-
kennaradeild Myndlista- og
handíðaskóla (slands hefðu
fengið það verkefni að gera
teikningar við Ijóðið
VERKAMAÐUR eftir
Stein Steinarr. Nemendun-
um var i sjálfsvald sett
hvernig þeir túlkuðu Ijóðið
og gerðu þeir það í 6 til 12
myndum. Viðfengum leyfi
til að sýna nokkurdæmi um
vinnubrögðin og túlkunar-
mátann. Höfundar verk-
anna eru: Orlygur Krist-
finnsson, Sjöfn Haralds-
dóttir, Laufey Gunnars-
dóttir, Magnús Sæmunds-
son, Helgi Hermannsson,
Kristján Kristjánsson Val-
gerður Bergsdóttir, Borg-
hildur óskarsdóttir, Gunn-
hildur Pálsdóttir og Sig-
ríður Þórarinsdóttir.
Kvæðið birtum við í heild
ásamt einni heildarlausn,
en grípum svo niður í verk
annarra, hér og þar.
: 1 j 1
'Æ' •- - ak.. | ’y
1 \
}
VERKAMAÐUR
Hann var eins og hver annar verkamaður,
i vinnufötum og slitnum skóm.
Hann var aldrei hryggur og aldrei glaður
og átti ekki nokkurn helgidóm.
Hann vann á eyrinni alla daga,
þegar einhverja vinnu var að fá,
en konan sat heima að stoppa og staga
og stugga krökkunum til og frá.
Svo var það eitt sinn þann óra tima,
að enga vinnu var hægt að fá.
Hver dagur varð harðsótt og hatrömm glima
við hungurvofuna, til og frá.
Þá ólgaði hatrið sem öldur á sænum,
og auðvaldsins harðstjórum ristu þeir nið.
Og loksins köm að þvi þeir börðust i bænum,
um brauð handa sveltandi verkalýð.
Þann dag var hans ævi á enda runnin
og enginn veit meira um það.
Með brotinn hausinn og blóð um munninn,
og brjóst hans var sært á einum stað.
Hans fall var hljótt eins og fórn i leynum,
i fylkinguna sást hvergi skarð.
Að striðinu búnu, á börum einum,
þeir báru hans lik upp i kirkjugarð.
Og hann var eins og hver annar verkamaður,
i vinnufötum og slitnum skóm.
Hann var aldrei hryggur og aldrei glaður
og átti ekki nokkurn helgidóm.
Engin frægðarsól eða sigurbogi
er samantengdur við minning hans.
En þeir segja, að rauðir logar logi
á leiði hins fátæka verkamanns.
Jólablað 1972 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 33