Þjóðviljinn - 22.12.1972, Blaðsíða 36
36 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Jólablaft 1972
IÐJA
félag verksniiðjufólks
óskar öllum félagsmönnum sinum, og
öðrum
landsmönnum
gleðilegra jóla og gæfuriks komandi árs
með þökk fyrir samstarfið á árinu,sem er
að liða.
IÐJA
félag verksniiðjufólks
Gleðileg jól
gæfuríkt komandi ár!
Pökkum viðskipíin á árinu sem er að liða.
SKÓLI ANDREU
Miðstræti 7. — Simi 1 93 95.
HAPPDRÆTII
DAS
óskar öllum landsmönnum
(i LKDILEGRA J Ó L A
OG FAItSÆLDAIi Á KOMANDI ÁRI.
HAPPDRÆTTI
DAS
Sendum viðskiptavinum vorum
beztu óskir um
GLEÐILEG JÓL
og farsælt komandi ár!
mnwn
lsaiirði.
og hafði þegar étið allt með
augunum þegar vörðurinn kom
aftur i klefann.
— Viltu ekki kostinn? spurði
hann
Hann sneri sér að einhverjum
öðrum úti á gangi og sagði: Hann
Paddy hérna vill ekki éta — og
gerði sig liklegan til að fara.
— Vist, jú! hrópaði ég og bað
Krist um að hann færi ekki.
En hann var bara að gera að
gamni sinu og opnaði dyrnar.
Þetta var Lundúnabúinn gamli,
allur angandi af bjór. Hann brosti
þegar hann rétti mér aftur
matinn.
- Gersvovel, Paddy. Af þessu
færðu loft i lungun.
— Gleðileg jól, herra, sagði ég
og likaði allt i einu vel viö hann.
Hann leit á mig andartak og
sagði siðan: Takk sömuleiðis,
sonur sæll, og um mörg ókomin
ár.
Ég setti matinn á diskinn.
Þarna lá hann. heitur og dásam-
iegur, steiktu kartöflurnar,
búðingurinn, kjötið og stór
brauðsneið til fyllingar, og það
leið ekki á löngu áður en allt var
búið og diskurinn tandurhreinn.
Og þá opnuðust dyrnar aftur og
vörðurinn kom með News of the
World. Ég hafði gleymt þvi að
daginn áður var sunnudagur.
Þeim mun betra sagði ég við
sjálfan mig. Enn er góður dagur
ekki liðinn.
En eftir að ég heyrði borgar-
klukkurnar slá þrjú högg, vissi ég
að við fengjum ekki meiri
hreyfingu, og ég lagði frá mér
blaðið til að spara mér lesefni til
kvöldsins. Það var lika orðið of
dimmt til að lesa og ég taldi að
bezt væri að ganga dálitið um
klefann. En það var svo kalt að ég
vildi ekki fara úr skónum og þvi
sat ég samankrepptur á stólnum,
hallaði mér fram á borðið og
barði mér til hita.
Þeir komu með kvöldmatinn
rétt fyrir fjögur og hann hlýjaði
mér dálitið, og ég ákvað að fara i
rúmið, þvi að þeir mundu varla
vera á ferði aftur fyrr en um átta-
leytið.
Ég hugsaði um fjölskyldu mina,
sitjandi við arineld i Dublin, þar
sem fjörtiu hús mundu bjóða mig
velkominn, en satt bezt að segja
hugsaði ég þvi aðeins til þeirra,
að ég hélt að það væri það sem
rétt væri að gera i minum spor-
um, og ég hugsaði til þeirra að-
eins skamma stund, siðan kom ég
aftur til kuldans hér i klefanum
minum, og þeir höfðu að minnsta
kosti kveikt ljós svo að ég leit
aftur i News of the World. En
ljósið skein framan i mig, og mér
var kalt á höndunum meðan þær
voru ofan á ábreiðunni; þvi
lagði eg blaðið frá mér, kippti
höpdunum inn undir rúmfötin og
hlýt að hafa sofnað,þvi að næst
vissi ég til min að hurðum var
skellt og fangar æptu.
Herra minn trúr, þeir hljóta að
vera að rifa alla upp fyrir
klukkan átta, hugsaði ég, og
kannski klaga svinin mig fyrir
fangelsisstjóra ef þeir koma að
mér i rúminu. Vöröurinn var að
nálgast og, almáttugur,
strákarnir voru allt i einu hinir
verstu, bölvandi og ragnandi:
Farðu i raskat hórusonurinn...
Jesús minn, hvað gekk á? Ég
stóð á köldu gólfinu og hamaðist
við að koma mér i buxurnar.
Mér mundi aldrei takast að búa
um rúmið i tæka tið. En ætli ég
yrði þá ekki i sama bát og aðrir?
Dyrnar opnuðust og inn kom
vörður með rottuandlit. Hann
sagði ekki svo mikið sem svei þér,
leit ekki á rúmið, en hann rétti
mér umslag og leit á mig smáum
flóttalegum augum, skellti dyrum
og fór inn i næsta klefa.
Ég opnaði umslagið og fann þar
kort. Það var ekki stilað til min
persónulega,heldur til ,.fanga",og
þar voru beztu óskir um heilög og
gleðileg jól og blessunarrikt
komandi ár frá Hershöfðingja
Hjálpræðishersins.
Drullusokkur! æpti ég á eftir
verðinum, stingtu þessu i....og
heyrði að næsti granni minn sendi
formælingasyrpu á eftir honum
lika. sem hann hélt áfram
göngunni með sinar jólakveðjur.
Hann fékk hróp og bölv næstum
úr hverjum klefa. Ég hafði aldrei
heyrt annaðeins i Walton-fangelsi
áður, en, Ijúfi Jesús. hvað viidi
þessi litli djöfull, var hann að
hæðast að okkur eða hvað?
Ég settí kort Hershöfðingjans
þar sem hentugt var að brúka það
i fyrramálið og fór aftur i rúmið.
UNDU
suðusúkku/aái
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
Þökknm gott samstarf
á liönum árum.
Togaraafgreiðslan hf.
Reykjavík.
JÖKULL HF.
Hellissandi — Rifi
sendir starfsfólki sinu og viðskiptavinum
beztu jóla- og nýársóskir og þakkar
samvinnuna á árinu sem er að liða.