Þjóðviljinn - 13.09.1980, Síða 9
Helgin 13.—14. september 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Stúdentakórinn frá Lundi.
Syngja í Reykjavík, Skálholti, Akureyri
og Dalvík:
Stúdentakórinn í
Lundi í heimsókn
Stúdentakór Háskólans i Lundi
(LUNDS STUDENTSANGFOR-
ENING) er á tónleikaferö um Is-
land dagana 14.—20. sept. Þetta
er fyrsta ferö þeirra til Islands.
Kórinn heldur tónleika i
Reykjavik, kirkjutónleika i
Háteigskirkju sunnudaginn 14.
sept. og veraldlega tónleika i
hátiöasal Menntaskólans viö
Hamrahliö föstudaginn 19. sept.
Auk þess heldur kórinn tónleika i
Skálholtskirkju, á Dalvik og á
Akureyri. Pianóleikari kórsins
Viggo Edén heldur einnig pianó-
tónleika i Norræna húsinu laugar-
daginn 20. sept. en þar leikur
hann meöal annars verk eftir
Carl Nielsen.
A efnisskrá kórsins eru m.a.
islensk tónverk: islenskur kirkju-
söngur frá miðöldum, Þorlákstið-
ir, og tónverk eftir Pál Pamplich-
er Pálsson og Róbert A. Ottósson.
Stúdentakór Háskólans i Lundi
á sér langa og viðburðarrika
sögu. Hann var stofnaður áriö 183)
sem karlakór Lundarháskóla.
Hann er einn af elstu kórum
Sviþjóðar. Meðal stjórnenda
kórsins hafa verið merkir tón-
listarmenn Svia m.a. Otto Lind-
blad. Dr. Folke Bohlin hefur verið
stjórnandi kórsins siðan 1972, en
hann er dósent i tónvisindum við
Lundarháskóla og einn af stólp-
um sænsks tónlistarlifs.
Kórinn hefur ferðast mikið er-
lendis, farið 4 tónleikaferðir til
Bandarikjanna og siðan Folke
Bohlin tók við stjórn kórsins hafa
þeirfariðtil Póllands, Englands,
Sviss, Frakklands.|,Danmerkur,
Noregs og Finnlands'og nú ioks til
Islands.
Kirkjutónleikarnir, sem kórinn
heldur i Háteigskirkju og i Skál-
holti eru tileinkaöir minningu
tónlistarmannsins og fræði-
mannsins dr. Róberts A.
Ottóssonar. Hann dó áriö 1974 i
Lundi, en þar var hann staddur á
visindaráöstefnu i boði Folke
Bohlin stjórnanda Stúdentakórs-
ins. Kórinn syngur 3 verk, sem
tengd eru nafni dr. Roberts A.
Ottóssonar. A veraldlegri efnis-
skrá kórsins er lika islenskt tón-
verk, „Fimm limrur fyrir karla-
kór og pianó”, eftir Pál Pampii-
chler Pálsson en kórinn hefur
flutt það á fjölmörgum tónleikum
i Sviþjóð undanfarið.
Heimsókn Stúdentakórs
Lundarháskóla er lika vinar-
heimsókn til Háskóla tslands.
Sérstakur fulltrúi Lundarháskóla
er próf. Gösta Holm norrænu-
fræðingur, sem hefur unnið mikið
starf i sambandi við sænsk-is-
lenska orðabók. Hann heldur fyr-
irlestur um þetta efni i Háskóla
Islands þriðjudagsmorguninn 16.
sept. Auk þess heldur Folke
Bohlin fyrirlestur i guðfræðideild
um Gregorssöng á Norðurlöndum
og Stig Person formaður kórsins
heldur fyrirlestur i læknadeild.
Öllum er heimill aðgangur að
þessum fyrirlestrum.
Heimsókn kórsins til Dalvikur
er vinabæjarheimsókn og full-
trúar Lundarborgar eru með i
förinni.
Ingvar Jakobsen og Sverrir Þorláksson matreiöslumenn ausa upp fisk-
súpunni i Hótel Holti — Ljósm.-gel
Fágætir
í Holti
Það voru hvorki meira né
minna en tiu mismunandi fisk-
réttir og froskalæri að auki, sem
blaðamenn fengu aö smakka i
Hótel Holti einn daginn núna i
vikunni. Skúli Þorvaldsson
veitingamaður var að kynna rétt-
ina sem þeir i Holti hyggjast
bjóða uppá á hóflegu verði i
fiskréttir
hádeginu alla virka daga, en á
sunnudögum á hinsvegar aö
leggja áherslu á hádegisverð
fyrir fjölskyldufólk á sérstöku
vildarverði.
Eins og Skúli benti á hefur fjöl-
breytni i fiskréttum litið aukist
þrátt fyrir marga nýja staði sem
framreiða fisk, þannig að varla er
boðið upp á fleira en ýsu, smá-
lúöu, skötusel og sjávarrétti.
Meðal þess sem blaðamenn borð-
Framhald á bls. 27
Frá sýningu Clapperclaw:
Konan
átt sér
Það var mikiö hlegið og
klappað á sýningu Clapperclaw
i Félagsstofnun Stúdenta sfð-
asta fimmtudagskvöld. Þær
fóru aldeilis á kostum, sprell-
uðu. sungu^ spiluðu og ræddu
málin, eins og þeim einum er
lagiðsem hafa eitthvað að segja
og vilja koma boöskap á fram-
færi.
Hvað vilja þær þá segja? Jú,
viðfangsefnið i leik þeirra er
saga konunnar eöa nánar til-
tekið leit aö sögu konunnar, þvi
hana er ekki aö finna i sögubók-
unum.Þær kalla verkiðBen Her
sem auðvitaö minnir okkur á
hetjuna Ben Hur sem er aðal
persóna i skáldsögu og kvik-
mynd með sama nafni, en karl
sá er dæmigerð karlhetja sem
hvorki skortir hetjulund og
krafta, né vilar fyrir sér að kála
þeim sem fyrir honum verða.
Slikir menn eru vinsælir á
spjöldum sögunnar, meðan al-
þýðunnar, og þá einkum kvenna
er að engu getið.
Þær ensku kvinnur leita aö
konum i myrkviöum sögunnar
og rekast þar á margt fróðlegt.
Ýmsir mannfræðingar hafa sett
hefur
sögu
fram kenningar um uppruna
mannsins, verkaskiptingu og
daglegt llf allt frá Darwin karl-
inum til pess fræga Desmond
Morris sem skrifaði um nakta
apann. Þær stöllur koma með
aðrar túlkanir og rekja gang
mála allt til vorra daga, er frú
Margaret Thatcher birtist með
sinn ihaldsboðskap. Járnfrúnni
eru gerð góö skil og bent á að
það breytir engu þó að kona
komist til valda, ef hún gengur
erinda ihalds og auðvalds.
Stelpurnar tóku frábæra
rokksyrpu sem helguð var for-
feðrum vorum af apakyni og
gengu þar i smiðju pönkara og
poppara með tilheyrandi grett-
um, sveigjum og beygjum.
Niðurstaðan af öllu saman var
sú að konur heföu nú verið alls
staðar meöal manna og fengist
við ýmislegt, þó að þeirra væri
aðeins getiö viö liknarstörf
(Florence Nightengale), ástir
(Kleópatra) og þjónustu
(dyggar eiginkonur og mæöur
eins og Maria frá Nasaret).
Clapperclaw leikflokkurinn
kitlaði svo sannarlega hlátur-
taugarnar, enda beittu þær
alltaf
Þær stöllur f Clapperclaw
leiddu frú Margaret Thatcher
fram á sviðið og gerðu ihalds- og
auðvaldsboðskap hennar verð-
ug skil. Myndin er all táknræn
fyrir stöðu járnfrúarinnar f
Englandi, enda hefur hún ekki
fært enskum konum neinn sér-
stakan fögnuð.
ýmsum ráöum til aö koma boö-
skap sinum á framfæri, en sjón
er sögu rikari. Siðasta sýning
þeirra veröur á sunnudagskvöld
kl. 20.30 i Félagsstofnun Stú-
denta. — ká
Toyota 4500 EL með saumaarmi
Verð kr. 252.700
Örugglega ein fullkomnasta saumavélin á markaðin-
um. 4ra hrada rafeindasaumavél með tölvuhnappa-
borði, sem gerir allan saum leikandi létt verk.
Toyota saumavélar fyrir alla — Á verði fyrir alla
Á greiðslukjörum fyrir alla
2ja ára ábyrgð og saumanámskeið innifalið TOYOTA
i verði. Fullkomin viðgerðar- og Varahlutaumbodið
varahlutaþjónusta. Ármúla 23 * Sími 81733