Þjóðviljinn - 13.09.1980, Side 15
Helgin 13.—14. september 1980 .ÞJÓÐVILJINN — SiÐA 15
Spjallaö við undramanninn Kasparov:
Ég gæti sigrað Karpov
Frá því að skáklistin fékk á sig
núgildandi og viðurkennt form
getur saga hennar greint frá örfá-
um einstaklingum sem ótrúlega
ungir að árum náðu slikum tökum
á listinni að undrabörn gátu kall-
ast. Morphy, Capablanca,
Reshevsky Pomar og Fischer eru
þau nöfn sem flestir kannast við
þó sjálfsagt megi tilgreina
nokkur önnur. Svo virðist sem 17
ára gamall sovéskur skákmaður,
Harry Kasparov, sé þegar búinn
aö koma sér i þennan hóp svo fá-
heyrð eru afrek hans. Bobby
Fischer var 15 ára gamall þegar
hann öðlaðist stórmeistaranafn-
bót, sá yngsti frá upphafi vega.
Til skamms tima voru þeir
Spasski og Karpov þeir skák-
meistarar sem næstir komu hvað
aldurinn snertir, þeir voru rétt
innan við tvitugtKasparov á hinn
bóginn var 16 ára gamall þegar
hann var biiinn að uppfylla öli
skilyröi til að öðlast stórmeist-
aranafnbót þegar komið var
undir þaö siðasta á sterku alþjóö-
legu móti sem haldiö var i heima-
borg hans, Baku,nú i ár. Þegar er
farið að tala um hinn unga meist-
ara sem arftaka Karpovs heims-
meistara enda hefur raunin orðiö
sú siðustu tvö árin að hvert af-
rekið hefur rekið annað og hann
hefur bætt sig i næstum hverju
móti. Þaö var siðla árs 1978 sem
pilturinn vakti fyrst verulega
athygli. A úrtökumóti þar sem
valinn var einn skákmaöur til
keppni á skákþingi Sovétrikjanna
’78 hlaut hann 8 1/2 v. af 9 mögu-
legum og sigraöi meö miklum
yfirburðum. Fáir áttu von á stór-
afrekum frá hans hendi á Sovét-
meistaramótinu þvi keppendur
voru svo sannarlega ekki af verri
endanum. Hann gerði sér þó litið
fyrir og komst þegar i hóp efstu
manna og jafnvel þó hann yrði að
gefa eilitiö eftir á lokasprettinum
fékk hann þó 50% vinninga og
skaut aftur fyrir sig mörgum
heimsþekktum meisturum.
Meöal fórnarlamba hans var einn
fremsti stórmeistari Sovétrikj-
anna, Lev Polugajevskl.
Næsta mót var haldið I Júgó-
slaviu, nánar tiltekiö i bænum
Banja Luka og þegar spurðist um
úrslit rak menn i rogastans.
Kasparov sigraði, hlaut 11 1/2 v.
af 15 mögulegum og varð 2 vinn-
ingum fyrir ofan næstu menn,
stórmeistarana Anderson og
Smejkal. Petrosjan hlaut 9 vinn-
inga og varö i 4. sæti og Adorjan
hafnaöi I 5. sæti með 81/2 vinning.
Slðan hefur pilturinn teflt mikið
og eins og áöur sagði, bætt sig
með hverju móti og er nú svo
komiö að hann er farinn að ógna
alvarlega hinum þrönga hóp
sterkustu skákmanna veraldar.
A heimsmeistaramóti ungl-
inga, sem haldiö var i Dortmund i
lok ágústmánaðar var Kasparov
meöal keppenda. Þátttaka hans
mótaöi að miklu leyti keppnina,
þvi það var eins og 1. sætið væri
bókað fyrirfram. Sú varð raunin
á, Kasparov hlaut 10 1/2 v. af 13
mögulegum og varö 1 1/2 v. á
undan næsta manni, Englend-
ingnum Nigel Short, sem einnig
er látið mikiö meö þessa dagana.
Sá sem þessar linur skrifar var
aðstoðarmaöur fulltrúa Islands,
Jóns L. Arnasonar og gat þvi náið
fylgst með helstu einkennum
Kasparovs.
Sagt er aö skákmeistarar hegöi
sér á mjög mismunandi hátt
þegar skák er I gangi. Sumir
hverjir setjast niöur og frá 1. leik
standa þeir ekki upp fyrr en 5
klst. setunni er lokið. Góð dæmi
eru Fischerog Botvinnik. Aðrir
eins og t.a.m. Smyslov, taka sér
tiðum sæti fyrir framan sýn-
ingarborðið þegar andstæðingur-
inn á leik og reyna að átta sig á
möguleikum stöðunnar. Flestir
reyna að verða sér úti um ein-
hverja hvild, reika um salinn eiga
jafnvel orðaskipti við næsta
mann, lita yfir öxl hugsandi kepp-
enda o.s.frv. Kasparov er i þeim
hópi og rúmlega það. Hann
stendur upp eftir hvern einasta
leik, ef siðustu minúturnar eru
undanskildar, gengur þvers og
kruss um skáksalinn með höfuð
undir bringu, rekst annaö veifiö á
þá sem á vegi hans verða. Þegar
andstæðingurinn hefur leikið er
eins og hann gripi andann á lofti,
siðan sest hann og þá er allt sett i
gang á nýjan leik. Hann eyðir
jafnan iitlum tima og þegar hann
hefur náð frumkvæöinu leikur
hann mönnunum hratt, næstum
þvi hranalega á milli þess sem
hann gefur andstæöingnum litt
vinsamlegar augnagotur. Fyrir
utan skákboröið er þetta hinn
allra þekkilegasti piltur. Hann er
svartur á brún og brá með stórt
nef og gyðingalegt enda af ætt-
kvisl Daviös. Ökunnugir myndu
halda hann vera mun eldri, þvi
sumir keppenda mótsins á svip-
uöu reki og hann voru eins og peð
i samanburði. Hann sást oft niðri
lobbii á kvöldin, tefldi forgjafa-
skákir við aðra þátttakendur
mótsins og haföi af flestum þeirra
drjúgan skilding. Avallt var hann
klæddur gallabuxum enda þykir
það hin mesta lúxusvara þar
austur frá og ófáanleg i verslun-
um.
Þaö var komið undir það sið-
asta I mótinu og sigur Kasparovs
tryggður þegar ég kom að máli
við hann og bað um viðtal sem
reyndist auðsótt mál.
Undir handleiðslu Bot-
vinniks
Ég er fæddur I Baku 17. mars
1963. Foreldrar minir voru báöir
verkfræðingar en föCsur minn
missti ég þegar ég var 8 ára
gamall. Skák komst ég fyrst I
kynni viö i heimahúsum þegar ég
sá foreldra mina aö tafli. Ég hygg
að ég hafi að mestu lært mann-
ganginn meö þvi að fylgjast meö
þeim. Um gjörvöll Sovetrikin eru
sérstakar æskulýöshallir ná-
tengdar skólunum og þar kynntist
ég hinsvegar skákinni aö ein-
hverju gagni. í æskulýðshöllun-
um getur hver fundið eitthvaö viö
sitt hæfi og skáklistin átti
snemmahugminnallan, þóaðrar
iþróttagreinar kæmust vissulega
aö. Skákmót voru tiö og ég tók
miklum framförum. 7 ára var ég
3. katagoriu skákmaöur (3.
flokks), 8 ára 2. katagoriu, 9 ára
1. katagoriu og 10 ára gamall gat
ég fariö aö keppa um titilinn:
„Sovéskur meistari”. Ég vann
þann titil 14 ára og ku vera sá
yngsti frá upphafi.
Snemma árs 1963 var ég valinn
i Botvinnik skólann en i hann
komast efnilegustu skákmenn
Sovétrikjanna hverju sinni. Ég
var viöloðandi þennan skóla I 5
ár, en 1978 var honum lokað,
sennilega vegna tilrauna Bot-
vinniks með skáktölvur sem tóku
æ meiri tima. Við vorum kaliaðir
þrisvar sinnum i skólann ár hvert
og vorum þá undir handleiðslu
Botvinniks 2 vikur i senn. Vinna
samastóö af fræðilegum athugun-
um, æfingaskákir voru tefldar og
Botvinnik fór i gegnum þær
skákir sem við höfðum nýverið
teflt. Sumir komu einungis með
sinar bestu skákir og voru fyrir
vikið sendir heim aftur til aö ná i
hinar! Þarna var mikil áhersla
lögð á likamsrækt, okkur var
t.a.m. otaö út I sundlaug og
þrælað i knattspyrnu svo eitthvað
sé nefnt. Botvinnik byggði þjálf-
unina úpp á afar skipulegan hátt
og þær vinnuaðferöir sem hann
uppálagði hafa komið mér að
góöum notum æ slöan.
1 dag hef ég 2 þjálfara,Sakharov
og Nikitin. Sakharov, sem einnig
býr I Baku, safnar fyrir mig öllu
þvi sem bitastætt getur talist um •
skák. Þar er um aö ræöa móta-
töflur og skákir frá nýjustu mót-
um, athyglisverðum greinum um
hitt og þetta viökomandi skák og
siöan rennum við i gegnum þetta
saman. Nikitin býr hinsvegar i
Moskvu, en kemur til Baku
þrisvar á ári og dvelst þá 1 mánuð
i senn. Ég er kominn á föst laun
hjá rikinu og hljóða mánaöar-
greiðslur uppá 200 rúblur, sem
mér skiist aö sé eitthvað skárra
en góöur verkfræöingur fær.
I ólympíuliði Sovétríkj-
anna
Það eru allar likur á þvi að ég
tefli fyrir hönd Sovétrikjanna á
Ölympiumótinu á Möltu I haust.
Þegar er búið að velja mig,
Karpov og Polugajevski. Senni-
lega bætast svo við Petrosjan, Tal
og Geller. Það er vitaskuld mikill
heiður að tefla I sliku liöi þvi
ganga veröur framhjá mörgum
frábærum skákmeisturum.
Frammistaöa min á Evrópu-
meistaramóti landsliða i Sviþjóð
hefur sennilega vegið þungt á
metunum þegar liðsmenn hafa
veriö valdir. Ekkert er ákveöið
með næstu mót nema hvað ég
mun tefla á Sovétmeistaramótinu
sem haldið verður i Vilnus i
desembermánuði. Sama verður
uppá teningnum þar eins og með
Ölympiumótið, færri komast aö
en vilja og margir öflugir stór-
meistarar verða að tefla I undan-
rásum. Samkeppnin er geysihörö.
Fischer sá besti — Aljékin
lærimeistarinn.
Já mikil ósköp, Bobby Fischer
er sterkasti skákmaður allra
tima. A þvier enginn vafi. Aljékin
er hinsvegar sá skákmaöur sem
höfðað hefur hvað mest til min.
Still hans samtvinnaðist af eilifri
leit aö leikfléttum og svo af-
bragðsgóðum skilningi á stöðu-
baráttu. Af honum má geysimikiö
læra.
Kortsnoj
Kortsnoj mun að minu viti
ávinna sér réttinn til að skora á
Karpov en þegar út i þaö einvigi
er komið held ég hann eigi enga
möguleika og Karpov muni vinna
á mun auðveldari hátt en siðast.
Hvaö viövikur málum Kortsnojs
þá koma þau auðvitaö skák
ekkert viö, þetta er einhver póli-
tik og ég hef ekki áhuga á slíku.
Ég mun að sjálfsögðu reyna aö
knýja dyra hjá Karpov og tel mig
jafnvel i dag eiga örlitla mögu-
leika á þvi að sigra hann. Askor-
endaeinvigin sem slik virðast
mér krefja á um sterkar taugar
hjá þeim sem svo langt komast.
Unglingurinn á bak viö
skákmeistarann
1 Sovétrikjunum er auðvelt að
vera unglingur. T.a.m. i Baku
sem er fremur nýtiskuleg borg er
slatti af diskótekum og um allt
land má finna popphljómsveitir.
Nei, nei ég reyki hvorki né drekk.
Vodka? Tja, jú það kemur ör-
sjaldan fyrir. Aðaláhugamál mitt
fyrir utan skákina er bókalestur
og bókasöfnun. Hemmingway á
veglegan sess I þeim efnum og
eftirlætis ljóöahöfundur minn er
Jevtusjenko. Laxness þekki ég af
orðspori en hef lesið litiö eftir
hann.
Eftirhreytur
Viðtalinu var lokiö og ég
þakkaði Kasparov kærlega fyrir.
Sjálfsagt er þessi frásögn bæði
þurr og leiðinleg. Hugur minn
hvarflaði heim til Islands og mér
datt i hug að spyrja: Skyldu
iþróttamenná Islandihvar i flokki
sem þeir standa einhvern timann
fá sambærilega aðstoð og þjálfun
sem þessi piltur?