Þjóðviljinn - 09.05.1981, Page 11
Helgin 9—10. mai 1981þJöÐVILJINN — SIÐA 11
EINBIRNINU
Er einbirnið frjóara,
gáfaðra og gætt meiri
forystuhæf ileikum en
önnur börn? Það er niður-
staða nokkurra vísinda-
manna í Bandaríkjunum
nýverið og stingur hún í
stúf viðálit flestra uppeld-
is- og sálfræðinga til þessa.
Þeir hafa taliðeinkabarnið
frekar hafa haft
tilhneigingu til að vera ein-
mana, of verndað, öfund-
sjúkt, frekt og átt erfitt
með að samlagast öðru
fólki.
gengur
best
Alfred Adler, lærisveinn
Freuds, var sá fyrsti sem kannaði
áhrif þessá sálarlif barna að vera
annaðhvort einkabarn, elsta,
yngsta eða miðbarn i fjölskyld-
unni. Hann komst að þeirri niður-
stöðu að einkabörn yrðu alltaf háð
þvi að hafa verið i pilsfaldinum á
mömmu og notið óskiptrar at-
hygli hennar.
En fyrrgreindar bandariskar
niðurstöður sýna sem sagt að það
er siður en svo slæmt að vera
einkabarn. Þær byggja á tveggja
ára rannsóknum hjá the National
Instituteof Child and Health and
Human Developement.
Það sem kemur mest á óvart i
þessum rannsóknum, segir Toni
Falbo i'Texas, er að einbirni eru á
engan hátt frábrugðin öðrum
börnum, en eru oft betur á sig
komin, metnaðargjarnari og
hæfari til að lifa i samfélagi en
þau börn sem verða að deila at-
hygli og efnum foreldra með
öðrum systkinum.
Fullorðin einkabörn i
Bandarikjunum gifta sig á sama
aldri og önnur börn og skilja ekki
oftar. Þau velja sér oft maka sem
lika eru einbirni en vilja helst
eiga sjálf fleiri en eitt barn.
A árunum 1960—1980 var gerð
könnun á rannsóknarstofu i
Kalifomiuá 3000 einkabörnum og
þau borin saman við jafn mörg
börn sem höfðu alist upp með einu
systkini. Einbirnið reyndist að
jafnaði vera gáfaðra, hafa meiri
sköpunargáfu og meiri efni til að
koma sér áfram jafnframt þvi að
aðlaga sig betur samfélaginu en
hin börnin.
Einbimi er fremur erfitt að
finna meðal frægra manna sem
hafthafa mikla sköpunargáfu eða
komið sérveláfram ilifinu vegna
þess einfaldlega að áður fyrr var
sjaldgæft að hjón ættu bara eitt
barn. Miklu auðveldara er að
finna þekkt fólk sem var elst i
systkinahópnum og í raun og veru
er einnig mjög auðvelt að finna
þekkta listamenn og leiðandi fólk
sem ólstupp sem miðsystkini eða
yngsta barn i systkingahópi.
Einbirni var t.d. snillingurinn
Leonardo da Vinci, málarinn
Toulouse-Lautrec, Franklin D.
Roosevelt Bandarikjaforseti,
heimspekingurinn Jean-Paul
Sartre og Jósef Stalin.
EINBIRNIÐ: Marilyn Monroe, Josef Stalin, Jón Stefánsson og ólafur Ragnar Grlmsson.
ELSTA BARNIÐ: Picasso, Halldór Laxness, Guðrún Helgadóttir og Steingrimur Hermannsson.
MIÐBARNIÐ: Schubcrt, Bergman, Snorri Hjartarson og Gunnar
YNGSTA BARNIÐ : Olof Palme, Jóhann Sigurjónsson, Jón Baldvin Hanníbaisson og Geir Hallgrims-
son.
Ef nokkrir Islendingar eru
teknir af handahófi sem voru
einbirni má nefna Jón Stefánsson
listmálara, stjórnmálamennina
Ólaf Ragnar Grimsson og Sighvat
Björgvinsson og GuðrUnu
Jónsdóttur arkitekt, forstöðu-
mann B o r g a r s k ip u 1 a g s
Reykjavikur.
Leikritaskáldið Moliere var
elsta barn i systkinahópi, einnig
listmálarinn Picasso og rithöf-
undarnir Simone de Beauvoir og
Doris Lessing. Hinn frægi
kabarettlistamaður Josephine
Baker var elst sinna systkina og
þurfti að fara að vinna fyrir sér 7
ára gömul til að hjálpa til við að
framfæra yngri systkini.
Af íslenskum listamönnum sem
voru elstu börn má nefna Grim
Thomsen, Halldór Laxness, Pál
Isólfsson, Jón Leifs og Guðrúnu
Helgadóttur svo að einhverjir séu
nefndir. Af þekktum stjórnmála-
mcxinum sem aldir voru upp sem
elstu börn má nefna ráðherrana
Svavar Gestsson og Steingrim
Hermannsson.
Auðvitað er hér ekki um að
ræða nein algild sannindi að ein-
bimi og elstu börn séu færari að
sköpunargáfu og 1 eiðtogahæfi-
leikum. Rannsóknir sýna einung-
is að þau séu að jafnaði hæfari.
Og ekki þarf t.d. lengi að leita að
þekktum yngstu börnum i syst-
kinahöpi. Þar má t.d. nefna Olav
Palme i Sviþjóð og söngkonuna
Christina Nilsson. Af islenskum
listamönnum má nefna Steingrim
Thorsteinsson og Jóhann
Sigurjónsson og stjórnmála-
mennirnir Geir Hallgrimsson og
Jón Baldvin Hannibalsson eru
yngstu systkini.
Þekkt miðsystkini eru t.d. rit-
höfundarnir Rousseau, Tjechov
og Strindberg og tónskáldin Scu-
bert, Tsjækovski og Wagner,
einnig kvikmyndaleikstjórinn
Ingmar Bergman.
Nefna má Snorra Hjartarson af
islenkum listamönnum og‘ af
þekktum islenskum stjórnmála-
mönnum má nefna Gunnar
Thoroddsen.
(Tekið saman af GFr)
,Að mynda
mót sólu’
Fyrsti fyrirlestur Björns
Rúrikssonar af þrem um ljós-
myndun verður haldinn á
mánudagskvöld kl. 20.30 i hliðar-
sal á Kjarvalsstöðum, þar sem nú
er ljósmyndasýning Björns. Fyr-
irlestrarnir verða með lit-
skyggnum og nefnist sá fyrsti
„Að mynda mót sólu”.
„Að ljósmynda úr lofti” verður
siðan á miövikudag á sama stað
og stundu og þriðji fundurinn á
fimmtudagskvöldiö: „Að velja
sér mótlv”. Aðgangur að fyrir-
lestrunum er ókeypis, en fólkbeöið
að mæta stundvislega. Hver fyr-
irlestur stendur 40 mlnútur.
Fundur í
tilefni
friðar-
dagsins
Menningar og friðarsamtök
islenskra kvenna efna til fundar
hinn 10. mai i tilefni friöar-
dagsins. Fundurinn verður að
hótel Heklu við Rauöarárstig og
hefst kl. 20.30.
Guörún Helgadóttir alþingis-
maður hefur framsögu um
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
og Kristin Astgeirsdóttir
blaðamaöur ræðir um ástand
heimsmála og baráttuna gegn
vigbúnaðarkapphlaupinu. Slðan
verða fyrirspurnir og almennar
umræður. Fundurinn er öllum
opinn og kaffiveitingar verða á
staðnum.
Hátíð hjá
Vals-
mönnum
Knattspyrnufélagið Valur er 70
ara um þessar mundir og um
þessa helgi munu Valsmennirnir
minnast timamótanna á ýmsan
hátt. A sunnudaginn milli kl. 15 og
17 er öllum yngri Valsmönnum
boðið i Sigtún og verður þar eitt
og annað til skemmtunar.
I hádeginu á mánudaginn koma
meistaraflokkar Vals saman við
styttu séra Friðriks Friöriks-
sonar við Lækjargötu og syngja
Valssöngva. Siöar um daginn á
milli kl. 17 og 19, verður opið hús
að Hlföarenda. — IngH
Islandsmótið
hefst í dag
íslandsmótið I knattspyrnu
hefst i dag, laugardag, kl. 14 meö
leik Fram og IBV á Melavellin-
um. A morgun, sunnudag, leika á
sama stað kl. 20 KR og FH.
— IngH
Kaffiboð hjá
Félagi Snæ-
fellinga og
Hnappdæla
Sunnudaginn 10. mai heldur
Félag Snæfellinga og Hnappdæla
i Reykjavik sitt árlega kaffiboð
fyrir eldri héraðsbúa, sem flust
hafa á höfuðborgarsvæðið. Hefst
það kl. 14.00 með þvi að fólk hlýðir
á guðsþjónustu i Bústaðakirkju.
Séra óiafur Skúlason dóm-
prófastur prédikar.
Kl. 15.00 verða veitingar fram
bornar i félagsheimili kirkjunnar
og mun l:ór Snæfellingafélags-
ins syngi. "okkur lög undir stjórn
Jóns s p.iísáonar söngkennara.
Fyrir nokkru var hafinn undir-
búningur að sólarlandaferö
félagsins. Fariö verður til
Mallorca og búið I ibúðarhóteli á
Magalufströnd I 3 vikur.
Vegna mikilla eftirspurna eftir
sætum i þessa ferð er þeim, sem
áhuga hafa bent á að láta skrá sig
sem fyrst.