Þjóðviljinn - 06.06.1981, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 06.06.1981, Qupperneq 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 30. — 31. mal 1981 Oisgard fylgt tii dyra Gengið inn i Patheon með rósir i hendi og hann birtist fóru hinir fremstu að klappa og hrópa „Mitterrand forseti” og aðrir tóku siðan undir, og þannig fylgdu hrópin ferðhans gegnum hverfið. Fyrir framan Pantheon hafði verið byggður pallur með plast- þaki og sat þar sinfóniuhljóm- sveitParisarborgar með hundrað manna kór. Þegar Mitterrand nálgaðist torgið var byrjað að flytja siðasta kafla niundu sinfóniu Beethovens, „Óðinn til gleöinnar”, en þeir sem voru inni i hliðargötum heyrðu aðeins fortissimo-kaflana, sem komu i gusum ein§ og vindkviður með þognum á milli. Margir voru þó með li'til Utvarpstæki sem þeir brugðu upp að eyrum sér: þannig gátu þeir heyrt tónlistina i beinni Utvarpssendingu. Mitterrand kom að Pantheon með fríðu föruneyti, þvi að öryggisverðir fengu ekki við neitt ráðið og urðu að hleypa áköfustu stuðningsmönnum hans gegnum linurnar, ai siöan gekk hann inn i bygginguna. Þeir sem viðstaddir voru misstu nú sjónar af honum, en fyrir augu sjónvarpsáhorfenda um allt Frakkland bárust allsér- kennilegar myndir: þaðsásthvar Mitterrand skildist frá þvögunni, gekk aleinn með rósir i hendi gegnum hinn mikla sal Pantheons og niöur stigann i grafhvelfing- una, leiö þar hægt i gegnum rang- halana og lagöi rósir á kistur þriggja manna, Victors Schoelcher sem stóð fyrir þvi aö þrælahald var bannaö i öllum ný- lendum Frakka 1848, Jean Jaures, brautryöjanda sósial- isma, og Jean Moulins, sem skipulagöi. andspyrnuhreyfing- una gegn Þjóöverjum á hernáms- árunum. Þegar Mitterrand kom aftur úr þessari undirheimaferð fluttu sinfóniuhljómsveitin og kórinn franska þjóösönginn I útsetningu Hectors Berlioz. En um þaö leyti skall á mikil rigningardemba og fólk hraöaði sér i skjól. Þegar manngrúinn tók aögrisjast, mátti sjá aö bilþök höfðu sums staðar flast svo út og svignaö af þungan- um aö þau minntu á kampavlns- skálar og fylltust ört regnvatni. Sagt var að Michel Rocard heföi flúið rigninguna upp i lögreglubil, en það varð til þess aö viöstaddir fóru aö hrópa: „Sleppiö Rocard, sleppiö Rocard”... Margvíslegt spilverk og dans i regni Gert hafði veriö ráð fyrir þvi að dansað yrði um kvöldið á torgum Latinuhverfisins og höfðu veriö fengnar til þess ýmsar hljóm- sveitir. Vegna rigningarinnar létu margir tónlistarmannanna ekki sjá sig, en það kom þó naum- ast að sök. Mannfjöldinn var áfram um kyrrt i hverfinu og safnaðist saman á helstu torgum : við Sorbonne, fyrir framan Pantheon og þó einkum og sér i lagi á Contrescarpe-torgi og þar I kring. Þær hljómsveifir sem mættar voru tóku sér stöðu á sér- staklega geröum pöllum og hófu þarspilverk sitt.en annars staðar leiö ekki á löngu áöur en sjálf- skipaðirspilagarpar komu á vett- vang og sáu um tónlistina. Það kom jafnvel fyrir að ibúar hverfisins létu plötusnúöa og hljóðmagnara i glugga. Aöur en varöi hófst feikilegur gleðskapur viöa um Latínuhverfiö, svo aö varla var hægt aö þverfóta i manngrúanum. Söfnuöurinn virt- ist allblandaður, þvi að bæöi voru þarna á feröinni stúdentar og aðr- ir ibúar Latinuhverfisins og svo einnig verkamenn úr úthverfum : sumir þeirra höföu allan aldur til aö hafa getaö tekiö þátt I fögnuð- inum eftir sigur alþýðufylkingar- innar. A Contrescarpe-torgi var brasilisk hljómsveit með hinu fjölbreyttasta slagverki og virtist tónlist hennur einkum byggjast á tilbrigðum viö hljóð- fall ýmissa kunnustu vig- orða vinstri manna frá ýmsum • álfum heimskringl- unnar undanfarin ár: ef til vill voru þessar orðlausu módúla- sjónir besta túlkunin á tilfinning- um manna þetta kvöld. Menn hoppuðu I takt við slagverkiö á torginu sjálfu og uppi á hljóm- sveitarpallinum, og létu þaö ekk- ert á sig fá þótt rigning- ardemburnar skyllu á ööru hverju. Og i þessum atburöum komu ný vigorö fram á varir manna. Fyrst heyröist glymja um göturnar hvaö eftir annaö:. „komdu aö dansa, Mitterrand!” en siöan laumaöist fram: „sól- skin, Mitterrand! sólskin Mitterrand!” og sjónvarpsmenn, sem viðstaddir voru, sendu þaö vigorð út á ljósvakans öldum, þannig aö von bráðar bergmálaði það um allt Frakkland. A Monge- torgi, steinsnar i burtu, var bretónsk hljómsveit, sem spilaði þjóðlög á fornfáleg strengjahljóð- færi og magaorgel af ýmsu tagi, og dönsuðu menn þar hringdansa eða mynduðu ógnarlangar keðjur sem hlykkjuðust fram og aftur um torgið. Alda nýrra vona Þeir sem ekki dönsuðu leituöu gjarnan skjóls I kaffihúsin, sem voru galopin út á göturnar þrátt fyi*ir veðriö, og supu bjór úr krús- um, sem voru helmingi stærri en þær sem notaðar eru hversdags- lega. Menn töluöu um það hve lengi þeir hefðu beöið eftir þess- ari stund — talan var breytileg eftir aldri manna — og rifjuöu upp endurminningar frá fyrri baráttudögum, 1968, 1945,1936... Niræöur öldungur sagöi jafnvel frá kynnum sinum af Jaurðs, sem myrtur var 1914. Ekki var laust viö aö ýmsir hinna elstu yröu nokkuö óstööugir á fótum, þegar á leið. En hópur ungra manna tók upp á þvi aö prila upp I opinberar byggingar, einkum skóla, og stela þar stöngum meö frönskum fán- um. Siöan gengu þeir um göturn- ar veifandi fánunum meö forna byltingarsöngva á vörum. Fagn- aöarlætin i Latinuhverfinu hljóönuöu ekki fyrr en i aftureld- ingu, ogþaö var ifrásögur fært að hvergi hefði komiö til nokkurra minnstu óspekia. Skömmu eftir kosningarnar sagöi Jean Daniel, ritstjóri viku- blaösins Le Nouvel Observateur, i útvarpinu, aö i Frakklandi heföi nú risið alda mikilla vona um breytingar I þjóöfélaginu og nýtt andrúmsloft á ýmsum sviöum, — ekki sist meðal þeirra sem teldu sig hafa borið skaröan hlut frá boröi slðasta aldarfjóröung. Verkefnin væru svo mörg og stór að Mitterrand væri mikill vandi á höndum, og yrN hann að leggja sig allan fram ef hann ættiaö geta komiö til móts viö þær vonir sem nU væru viö hann bundnar. Svo viröist sem hinn nýi forseti sé á svipuðu máli, þvi aö fyrstu orö hans, þegar ströng kosningabar- áttan var aö baki og Urslitjn oröin ljós, voru þessi: „NU byrja erfiö- leikamir.” e.m.j. I TILKYNNING irá Húsnæðisstoinun ríkisins Með skirskotun til 43. gr. laga nr. 51/1980 um Húsnæðisstofnun rikisins er þvi hér með beint til sveitarstjórna sem hyggjast hefja byggingu verkamannabústaða á ár- inu 1982 að senda um það tilkynningar til Húsnæðisstofnunar rikisins fyrir 1. ágúst n.k. Að þvi er undirbúning að umræddum byggingarframkvæmdum varðar visast til 39., 40., 41., 42. og 43. gr. laga nr. 51/1980 og 6., 7. og 8. gr. reglugerðar nr. 527/1980. # Ilusnæðisstofnun ríkisins SÍMl 2850» LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK 111 Borgarspítalinn \ j f Lausar stöður STAÐA AÐSTOÐARDEILDARSTJÓRA á hjúkrunar- og endurhæfingardeild (Grensás) er laus til umsóknar nú þegar. STAÐA AÐSTOÐARDEILDARSTJÓRA á gjörgæsludeild er laus til umsóknar nú þegar. Æskilegt er að umsækjandi hafi sérmenntun i gjörgæsluhjúkrun. HJÚKRUNARFRÆÐINGA vantar nú þegar til sumarafleysinga á ýmsar deildir spitalans. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra i sima 81200 (207,201). LÆKNAFULLTRÚI. Staða læknaíulltrúa á Háls-, nef- og eyrna- deild spitalans er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. júni. Upplýs- ingar um starfið veitir Brynjólfur Jónsson i sima 81200/368. Reykjavik, 5. júni 1981 Borgarspítalinn. Samstarf Fjölskyldudeild Félagsmálastofnunar óskar að komast i samband við f jölskyldur sem annað hvort hafa áhuga á að taka inn á heimili sin unglinga sem eiga við félags- leg vandamál að striða eða fjölskyldur sem vilja veita þessum unglingum stuðning á annan hátt. Starfsmenn deildarinnar myndu veita viðkomandi heimilum aðstoð og stefnt yrði að þvi að heimilin og fjölskyldudeild ynnu eítir megni i samvinnu við ung- lingana. Nánari upplýsingar veita starfsmenn fjölskyldudeildar, hverfi 1, i sima 25500 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga milli kl. 11 og 12, eða i Vonarstræti 4, 2. hæð. fFÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Vonarstræti 4 - Sími 25500 Laus staða Staða bifreiðáeftirlitsmanns við Bifreiða- eftirlit rikisins i Vestmannaeyjum er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir berist Bifreiðaeftirliti rikisins, Bildshöfða 8, fyrir 20. þ.m. á þar til gerð- um eyðublöðum sem stofnunin lætur i té. Reykjavik, 5. júni 1981 Bifreiðaeftirlit ríkisins.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.