Þjóðviljinn - 06.06.1981, Blaðsíða 19
Helgin 6. — 7. júni 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19
Hvað segja
yfirvöldin?
Fyrirtæki eins og Securitas eru
viða umdeild erlendis og sums
staðar bönnuð enda hafa öryggis-
verðir á vegum þeirra sums
staðar reynt að taka lögin i eigin
hendur. Þjóðviljinn hafði sam-
band við ýmsa háttsetta
embættismenn tilað inna þá eftir
breyttum viðhorfum í öryggis-
gæslu hérlendis með tilkomu
Securitas og kom yfirleitt fram
hjá þeim fyllsta traust I garð
fyrirtækisins.
Baldur Möller ráðuneytisstjóri
i dómsmálaráðuneytinu sagði að
engar lagareglur mæltu gegn þvi
að slik fyrirtæki gætu starfað hér-
lendis en hins vegar hefði það
heldur enga löggildingu. Hann
kannaðist vel við fyrirtækið og
vfsaði á Hjalta Zóphóniasson
deildarstjóra en hann hefur gefiö
út eftirfarandi yfirlýsingu á veg-
um dómsmálaráðuneytisins:
„Lögregluyfirvöld hafa sam-
kvæmt beiðni framkvæmt skoðun
á starfsemi fyrirtækisins Se-
curitas sf (áður Vaktþjónustan),
en það fyrirtæki annast öryggis-
vörslu, einkum eignavörslu aðþvi
er varðar eldvarnir og þjófa-
varnir. Skoðunin hefur leitt i ljós
að rekstur starfseminnar er
slikur, að allra atriða er gætt til
að gera reksturinn traustan og
áreiðanlegan. Er þvi unnt að
mæla með rekstrinum eins og
honum er nU háttað.”
Hjalti sagði i samtali að
Securitas sf væri bUið að starfa
það lengi við öryggisvörslu að
viss viðurkenning væri komin á
störf þess. En skarast þá ekki
verksvið lögreglu og öryggis-
varða? Hjaltisagði að sumuleyti
væri um það að ræða, en Se-
curitas annaðist þó fyrst og
fremst öryggiseftirlit m.a. með
kerfisbundinni yfirferð um
vörslusvæðið fremur en beina
þjófavörslu.
Hvaö um vopn? Um þau sagði
Hjalti að hann vissi til þess að
slikir öryggisverðir t.d. i Sviþjóð
notuðu skammbyssur, en slikt
kæmi að sjálfsögðu aldrei til
greina hérlendis þar sem lögregl-
an notarekki einu sinni skotvopn.
Þá sagði hann að spurst hefði
verið fyrir um kylfur af hálfu
fyrirtækisins, en mikil tregða
væri einnig hjá yfirvöldum að
samþykkja þær.
Næstur á dagskrá hjá okkur var
Bjarki Eliasson yfirlögreglu-
Baldur Möller: Engar lagaregl-
ur mæla gegn þvi að slik fyrir-
tæki geti starfað hérlendis.
Bjarki Eliasson: Sums staðar
erlendis eru slik fyrirtæki bönn-
uð
þjónn. Hann sagði að Securitas
væri orðið vel þekkt fyrirtæki og
hefði hann ekkert Ut á það að
setja enda hefðu greinilega valist
menn að stjórna þvi sem bæði
hefðu vilja og getu til þess. Hann
sagði að lögreglan hefði ekki
beinlinis samstarf við fyrirtækið
en vissi vel hvar öryggisverðirnir
væru að störfum.
NU var Bjarki minntur á þaö að
sambærileg fyrirtæki væru ekki
alls staðar vel þokkuð. Hann
sagðistvita þaðog m.a. hafa und-
ir höndum skyrslu frá alþjóðalög-
reglunni Interpol um Securitas-
fyrirtæki viða I heiminum og þar
kæmi m.a. fram að sums staöar
væru þau bönnuð og annars stað-
ar rikjandi tortryggni i garð
þeirra eins og t.d. i V-Þyskalandi.
Þar hafa fleiri og fleiri fyrirtæki
og þekktir menn ráðið sér vopn-
aða öryggisverði til varnar gegn
hryðjuverkamönnum og þessir
verðirhefðu stundum lent i þvi að
Ólykt af þessu
Segir Gunnar Gunnarsson framkvœmda-
stjóri Starfsmannafélags ríkisstofnanna
Mér finnst þetta vægast sagt
furðulegur sósíalismi hjá hinu
opinbera að reka nætur- og
hiisvörslu i gegnum einka-
kapitalfsmann en T raun og veru
er þetta dæmigert fyrir hag-
sýsluna. Það er fyrst sparkað i
ræstingakonuna og sendilinn og
jafnvel sendar sendinefndir til
dtlanda i þvi skyni, en þeir þora
aldrei að fetta fingur út i það
sem meira máli skiptir. Ég finn
ólykt af þessu. Þetta voru orð
Gunnars Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra Starfsmanna-
félags rikisstofnana i samtali
við Þ jóðviljann út af fyrirtækinu
Securitas.
Gunnar sagði aö þessi þjón-
usta væri i reynd dýrari en
gamla kerfið jafnframt þvi sem
engar brigöur hefðu verið
bornar á starfshæfni
vaktmanna hjá rikinu. Þeim
væri fyrst og fremst ætlað að
vera á verði gagnvart eldshættu
og vatnsskemmdum og eldri
menn væru ekki siður hæfir til
þeirra starfa en þeir yngri. Ef
um innbrotværi að ræða i rikis-
Gunnar Gunnarsson: Furðuleg-
ur sósialismi hjá hinu opinbera
að reka nætur- og húsvörslu i
gegnum einkakapitalismann
stofnanir eins og t.d.
Amastofnun eða Þjóðminjasafn
væri þar hvort sem er um að
ræða harðsvíraða þjófa sem
hvorki eldri né yngri vaktmenn
réðu við. Þó að Securitas væri
skjóta á fólk. Hér væri hins vegar
allt annað uppi á teningnum og
engin andUð lögregluyfirvalda i
garð Securitas svo lengi sem hægt
væri að treysta þvi að öryggis-
verðir væru heiðarlegir og ráð-
vandir menn.
Að lokum sagði Bjarki Eliasson
að slfkt fyrirtæki væri að visu
ekki ný bóla hér á landi. Fyrir
u.þ.b. 30 árum sótti Þjóðverji
nokkur um að fá að stoína slikt
fyrirtæki með hundum og öllu til-
heyrandi en þegar farið var að
grennslast fyrir um fortiðmanns-
ins kom i ljós að hann var eftir-
lystur glæpamaður og hefði það
mál þá verið Ur sögunni.
Við snerum okkur að lokum til
Sveins Hjartarsonar hagfræöings
hjá Fjárlaga- og hagsýslustofnun
fjármálaráðuneytisins en hann
hefur manna mest unnið að þvi að
gera samninga við Securitas á
vegum hins opinbera.
Sveinn sagði að varsla opin-
berra bygginga hefði lengi verið á
döfinni enda gæsluleysi margra
þeirra boðið háskanum heim.
Fyrir hálfu öðru ári hefði hið op-
inbera gert samning við Securitas
til reynslu og farandgæslu á eign-
um Rafmagnsveitna rikisins en
þar var engin gæsla áður. Þetta
hefði gefist mjög vel og þvi kom
þetta upp með Háskólasvæðið
sem verið hefur gæslulausj i
nokkur ár ef frá er skilinn Arna-
garður. A þessu svæði væru hins
vegar mjög viðkvæmir hlutir og
nægöi að nefna Þjóðminjasafnið
sem veriö hefði gæslulaust að
mestu til þessa.
Þá sagði Sveinn aö samningur
við fyrirtæki eins og Securitas
hefði fleiri valkosti og meiri
sveigjanleika i för með sér heldur
en hið hefðbundna vaktmanna-
kerfi og þvi' heföi hann verið val-
inn. Um kostnaöarhliðina sagði
hann aö auðvitaö kostaði nætur-
varsla sitt en miðaö við öðru visi
fyrirkomulag væri þessi kostur
sistdýrari. Hann sagöi að lokum
aö Jóhann Guðmundsson hefði
fylgt fyrirtæki sinu vel Ur hlaöi og
haldið vel utan um það þannig að
staða þess heföi treyst Ut á við.
— GFr
með talstöðvar og tilkynninga-
skyldu gæti hver maöur lært á
slikt kerfi.
Þá sagði Gunnar að vaktmenn
væru undir þeim skilmálum að
sýna drengskap og trúmennsku
i störfum eins og aörir rikis-
starfsmenn. Þess vegna kæmi
honum spánskt fyrir sjónir sá
trUnaðareiður sem starfsmönn-
um Securitas er ætlað að undir-
rita.
Gunnar sagði að engin Uttekt
hefði farið fram á störfum
vaktmanna á vegum rikisins og
hann sagðist ekki telja að hér
væri verið að undirbjóða þá.
Þess vegna skildi hann alls ekki
eftirhverju hiöopinbera væri að
sækjast i sambandi við samn-
inga við Securitas.
Hann nefndi sem dæmi að
vaktmönnum hjá Stofnun Árna
MagnUssonar á besta aldri, sem
rækt hefðu þar störf sin af fullri
trUmennsku, jafnvel allt frá þvi
að handritin komu til landsins,
hefði verið sagt upp störfum
nær fyrirvaralaust vegna samn-
inga við Securitas. Lita mætti
svo á að störf þeirra heföu verið
lögð niður og æ ttu þeir þvi rétt á
6 mánaða biðlaunum.
— GFr.
Langbestu
eldavélakaupin sem við getum boðið frá
Þessi fullkomna glæsitega eldavél er á óvenju
hagstæðu verði kr. 6.777,- með viftunni (ef vifta
á ekki að blása út kostar kolasia kr. 821,- verð pr
5.6. 1981).
Þú færð alH með þessari vél: 2 f ullkomnir stórir
bakaraofnar, efri ofninn með griili og rafdrifn-
um tein, sjálfhreinsadi, hraðhitun er á ofninum,
Ijósaborð yfir rofum, 4 hellur, fullkomin vifta
með digitalklukku og f jarstýribúnaði fyrir vél.
Glæsilegir tískulitir: Avocado grænn, karrý
gulur, inka rauður, svartur og hvitur. Eigum
einnig kæliskápa, frystiskápa, uppþvottavélar
og frystikistur. — Greiðsluskilmálar.
EINAR FARESTVEIT i. CO HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SIMI I699S
Vinnuskálar
— Sumarhús
tslenska járnblendifélagið hf. óskar til-
boða i fjóra vinnuskála félagsins að
Grundartanga. Skálarnir samanstanda af
84 tveggja manna svefnherbergjum með
tilheyrandi hreinlætisaðstöðu, rúmum,
skápum og öðrum húsgögnum.
Húsin seljast hvort heldur er i heilu lagi
eða i hlutum.
Nánari lýsing og teikningar liggja frammi
á skrifstofum félagsins i Tryggvagötu 19,
Reykjavik og að Grundartanga. Allar
nánari upplýsingar veitir Kristinn Blöndal
innkaupastjóri i sima 93-2644.