Þjóðviljinn - 06.06.1981, Síða 27

Þjóðviljinn - 06.06.1981, Síða 27
Helgin 6. — 7. júni 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 27 dægurtónlrist Eitt og annað Nú er aldeilis kominn stórkost- legur kippur i' hljómplötuútgáfu landsmanna. Á næstu dögum mun drifa yfir landsmenn eitt og annaö góðgæti frá islenskum tón- listamönnum. Það var von manna i upphafi árs að það yrði blómlegt og er ekki að sjá annað að sú von rætist og riflega það. Hér á eftir fer upptalning á þvi helst sem von er á næstu vikur. Ekki gefst timi til að fjalla mjög nákyæmlega um hverja útgáfu enda verða þeim gerð skil jafn- óðum og þær taka að streyma á markaðinn. Taugadeildin hefur lokið við að taka upp sina fyrstu plötu. Hún kemur til með að innihalda fjögur lög sem verið hafa á „pró- grammi” hljómsveitarinnar að undanförnu. Platan mun koma i verslanir i lok mánaðarins. Baraflokkurinn frá Akureyri mun taka upp litla plötu i næstu viku. E f að likum læ tur þá verður hér á feröinni plata sem á eftir að koma ýmsum á óvart. Plata Baraflokksins munu koma út i kringum mánaðarmótin og bind ég miklar vonir við þessar tvær hljómsveitir og afurðir þeirra. Enda hlakka ég óskaplega til aö heyra i þeim I Höllinni i kvöld (þ.e. laugardag). Fræbbblarnir eru nú að vakna til lifsins á ný eftir frekar rólegan vetur. Þeir munu væntanlega senda frá sér litla plötu nú um mánaðarmótin. Og jafnvel taka upp hljómleika og gefa þá út á snældu. Sú plata sem á eftir aö koma flestum á óvarter plata með þeim bræðrum Mike og Danny Pollock. Til aðstoðar við sig fengu þeir As- geir trommuleikara Purksins og er ekki að efa að þessi plata muni koma verulega á óvart. Það er hljómplötuútgáfan Gramm sem gefur þessa plötu út. Er þetta önnurplatan sem Grammið gef ur út sú fyrsta var Tilf með Purrkin- um. Sólóplata Bubba mun koma út um miðjan mánuðinn og á ýms- um eftir að bregða þegar þeir hlýða á þá plötu þ.e.a.s. ef samanburðurinn verður við ts- bjarnarbliís eða 45 rpm.Kappinn fer að sögn inn á nýjar brautir sem ekki hafa verið troðnar áður hér heima. Eins og sést á þessari upptaln- ingu þá er hætt við að pyngjan taki að léttast þegar Uða tekur á mánuðinn. Og það er ekki nóg að hljómplötuútgafa verði með allra besta móti i ár, heldur bendir allt til þess að heimsóknir erlendra listamanna verði öllu tiðari en við eigum að venjast.. Það er nokkuð öruggt að tvær af efnilegustu hljómsveitum Breta heimsækja okkur i sumar (auk Any Trouble sem þegar eru komnir) Þaö eru hljómsveitimar Killing Joke og Fall og svo er ekki ólíklegt að hinn Islandsfrægi B.A. Robertson láti sjá sig i sumar. Spandau Ballet Engin hljómsveit er eins umtöl- uð I Bretiandi þessa dagana og Spandau Ballet. Það er ekki ein- göngu tónlistin sem vekur umtal heldur er það ekki slður útlit hljómsveitarinnar og fylgifiska hennar. Fyrsta breiösklfa hljóm- sveitarinnar Journeys To Glory nýtur þessa dagana hylli svo að segja heimshorna á milli. Hljómsveitin byrjaði að koma fram i nóvember 1979 og vakti þá mikla athygli fyrir tónlist, klæða- burð og hárgreiðslu. Enda eru fatahönnuðir, hárgreiðslumeist- arar og snyrtisérfræöingar fylgi- fiskar hljómsveitarinnar. Sigur- ganga Spandau Ballet hefur verið óslitin siðan hljómsveitin fór að koma fram og ekkert lát virðist ætla aö verða á þeirri göngu I bráð. Spandau Ballet skipa þeir fimmmenningar: John Keeble trommur, Martin Kemp bassa, Steve Norman gitar, Gary Kemp gítar og tónheila og Tony Hadley söngur og tónheila. Tónlist Spandau Ballet er takt- föst létt gripandi og umfram allt annaö, danstónlist. Þeir eru ekkert aö fela að þeir spili dans- tónlist og finnst mér það virö- ingarvert. Journeys To Glory er fyrirtaks samkvæmis og dans- plata og bara all góð sem slik. Tónlist Spandau Ballet sver sig nokkuð I ætt viö tónlist Ultravox. Tónlist Spandau mætti kalla raf- magns ný-funk, nýja discótónlist, afkvæmi af souli 7. áratugarins eða allt þetta I senn. Tónlistaflutningurinn er I alla staði pottþéttur. Af þeim fimm- menningum var það söngvarinn sem hreif mig mest og fannst mér hann búa yfir sterkri og hljóm- fagurri rödd. Ég get ekki sagt að ég sé yfir mig heillaður af tónlist Spandau Ballet. Hún lætur vel I eyrum I upphafi en eftir þvi sem oftar er á hana hlustaö veröur hún leiðin- legri nema gott hlé sé tekið á milli. Umfram allt er þetta dans- og samkvæmistónlist og ber aö dæma hana sem sllka. Public Image Ltd. með nýtt meistaraverk Fáar hljómsveitir hafa verið jafn umdeildar hin siöari ár og Public Image Limited (Pil). Það hafa ávallt þótt meiriháttar tið- indi þegar Pil sendir frá sér breiöskifu. Nú er komin út ný plata með hljómsveitinni, Flow- ers Of Romance, og markar hún viss kaflaskil i sögu hljómsveitar- innar. Eftir að John Lydon (þá Rott- en) hætti I Sex Pistols og stofnaöi Pil áttu ýmsir von á annarri Pistols I nýjum búningi, en svo varð ekki. Pil markaði sér þegar i upphafi framsækna tónlistar- braut sem þeir hafa siðan fetað dyggilega. Aö visu meö misjöfn- um árangri, en þar sem reykur er, — þar fer eldur undir. Eldur- inn blossaöi upp á fyrstu breið- skifu hljómsveitarinnar, First Issueog á Metal Boxsem kom út siöla árs 1979. Og svo aftur núna á Flowers Of Romance þar sem eldtungurnar teygja sig til him- ins. Núverandi liðsskipan Pil er: Jeanette Lee John Lydon og Keith Levene, en tveir þeir siðast nefndu hafa verið meö frá upp- hafi. Einnig kemur trommuleik- arinn Martin Atkins við sögu á þessari plötu. Eins og ég sagði áöan þá táknar þessi hljómplata viss kaflaskil i sögu hljómsveitarinnar. Þetta er lang frumlegasta breiöskifa hljómsveitarinnar og jafnframt sú besta, man ég ekki eftir að hafa heyrt aöra slika I háa herr- ans tiö. Hún er frumleg i tvennum skilningi, fyrsta lagi óvanalegri notkun hljóöfæra og i ööru lagi hljómi (soundi). Einfaldleikinn er ráöandi I hljóðfæraleiknum. Trommurnar eru hafðar i forgrunni á allri plöt- unni og gerir þaö hana all sér- kennilega áheyrnar. Og þetta er ekki neinn venjulegur trommu- leikur! Gitar er notaöur I tveim lögum „Go Back” og „Phena- Jón Viðar Sigurðsson skrifar gen”. Sömu sögu er að segja af bassaleiknumbassinner notaöur I tveim lögum „Flowers Of Rom- ance” og „Banging The Door”. Annars eru það rafmagnshljóð- heilar, sem notaðir eru til aö skreyta með og það á dálitið óvenjulegan hátt. Heilarnir eru notaðir til að búa til „eðlileg” hljóð, þ.e. eins og úr venjulegum hljóðfærum, bassa, gitar o.s.f. Söngurinn er aftarlega á plötunni en engu að siöur skýr, og er það alger andstæða við þaö sem vana- lega er gert. Hljómurinn er mjög sérstakur og minnist ég þess ekki að hafa hlýtt á neitt þessu llkt. Hann er mjög einfaldur, eðlilegur og þungur, það er óvanalegt að sam- an fari einfaldleiki og þungur taktur. Hljóðfæraleikurinn er ekki lýtalaus en einhvern veginn má hann ekki vera öðruvísi. Þau komast öll bærilega frá sinu og sérstaklega John Lydon sem hef- ur sennilega aldrei sungið jafn vel. Einnig kemst hann sóma- samlega frá tónheila hlutverki sinu. Trommuieikur Keith Levene og Martin Atkins er góður og gaman aö heyra hve Levene kemst vel frá honum. Þaö er trommuleikur þeirra félaga sem gefur plötunni þennan sérstaka blæ sem svo gaman er að. Þessi fáu bassagrip Levens og Jeanett- ar Lee er ekkert undur. Aftur á móti er gitarleikur Levnes góöur. Litið ber á Jeanette Lee og er hlutur hennar á plötunni lltill og mér segist svo hugur um að hiut- ur hennar komi ekki til meö að vaxa á komandi árum. Textar plötunnar eru sæmilegir en eitthvað hefur Lydon farið aft- ur. Ég sakna hinna beittu texta hans þar sem hann kreistir á kýl- unum. Fiowers Of Romance þarfnast talsverörar hlustunar og Ihugun- ar. En þegar isinn er brotinn þá spilar þú ekki aðra plötu I bráö. í heild þá er hér um algert meist- araverk að ræða sem mun standa sem góður minnisvarði sem eitt af mörgum glæsilegum afkvæm- um dægurtónlistar okkar ára. Gillan: Vonandi ryðgar bárujárnið fljótt Flugur og bárujárn Ekki alls fyrir löngu kom út safnplatan Flugur. Þar er að finna lög eftir ýmsa vel þekkta listamenn, TIvolí, Mezzoforte, Start, Björgvin Halldórsson, Ólaf Hauk Slmonarson, Þú og Ég og Jakob Magnússon. A Fiugumer aö finna nokkur af vinsælustu lögum seinni ára. Lög eins og „Reykjavikurborg” sem er hér i enskri útgáfu, „Fallinn”, „Sönn ást” ofl. ofl. 1 mlnum augum er þessi plata merkileg fyrir þrennt. I fyrsta lagi er lag með Celcius sem ekki hefur áður komið út á plötu, „Love Your Mother”. Hér er það Helga Möller sem syngur og fer bara ágætlega með þetta þekkta Change lag. 1 öðru og þriðja lagi er að finna á Flugum tvö lög með Utangarðs- mönnum. Það fyrra „The Big Sleep” hefur ekki komiö út á plötu áður en verður væntanlega á breiöskifu þeirri sem sett verður á markaö I Englandi siöar á ár- inu. Það síðara „Rækjureggae” er hér I allt annarri og betri út- setningu en á lltilli plötu þeirra kappa sem kom út fyrir tæpu ári. Textinn er örlitiö breyttur, svo og útsetning. Bárujárnsrokk (heavy-metal) skaut upp koilinum á nýjan leik fyrir nokkru — illu heilli. Ein aöal bárujárnshljómsveit þessa dag- ana er hljómsveitin Gillan, kennd viö söngvara hljómsveitarinnar, Ian Gillan, sem var hér á árum áöur söngvari hljómsveitarinnar Deep Purple. Nýlega kom út breiösklfa meö þessari „mætu” hljómsveit sem nefndist Future Shock og er þaö sannarlega réttnefni. Alla vega varö ég fyrir hálfgeröu áfalli viö aö hlýða á hana. Þrátt fyrir aö Future Shock falli ekki aö mlnum smekk þá er þetta eflaust fengur fyrir alla sanntrúaöa bárujárnsrokkara og vonandi eru þeir ekki margir.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.