Þjóðviljinn - 27.06.1981, Síða 9
Helgin 27.-28. júni 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Hijómsveitin Þeyr er þarna stödd I rústum i Hvftárnesi sem breski her-
inn skildi eftir sig. Þeir eru frá vinstri: Hilmar örn bassaleikari, Sig-
tryggur trommari, Magnús söngvari og loks gitarleikararnir Guðlaug-
ur og Þorsteinn. A næstunni er væntanleg fjögurra laga plata með Þey
sem þeir byrjuöu á i Hljóðrita á miðvikudagskvöld undir stjórn Tonys
Cook.
Hljómleikar í Laugardalshöll n.k. föstudag:
Annað hljóð í strokknum
Næstkomandi föstudagskvöid
verða haldnir i Laugardalshöil-
inni hljómleikar þar sem fram
munukoma a.in.k. 11 hljómsveit-
ir. Hljómieikar þessir sem haidn-
ir eru af fyrirtækjunum Eskvimó
og Sterió bera yfirskriftina „Ann-
að hljóð i strokkinn”.
Þær hljómsveitir sem búið var
að ákveða að kæmu fram þegar
þetta var skrifað eru: beyr,
Bara-flokkurinn, Fræbbblarnir,
Taugadeildin, Box, Bruni BB,
Clitoris, Englaryk, Exodus, Nast
og Tappi tikarrass. Ekki var búið
að fá endanlegt svar frá Jurkun-
um og vitaðum fleiri hljómsveitir
sem höfðu áhuga á að vera með.
Ætlunin er að hafa litið auka-
svið i Höllinni þar sem stutt
prógrömm yrðu flutt milli atriða
á stóra sviðinu. Enn fremur má
búast við uppákomum utan dyra.
Aðgangseyrir verður 70 kr.
Hljómleikarnir hafjast kl. 20.30
og munu standa til um kl. eitt eft-
ir miðnætti og þá sjálfsagt komin
ýmis hljóð i strokkinn!
25 ára afmæli
Pólífónkórsins:
Mörg
stórverk-
efni fram-
undan
Næsta vetur á Pólýfónkórinn 25
ára starfsafmæli. Aðalverkefnið
á afmælisárinu verður Matther-
usarpassía Bachs og veröur hún
flutt i heild sinni. Kórinn hefur
áöur flutt þetta verk, en það var
áriö 1971 og var þaö frumflutning-
ur verksins á tslandi.
Mikil verkefni liggja nú fyrir
hjá kórnum og er þess fyrst að
geta að Listahátiðarnefnd hefur
farið þess á leit við kórinn að
hann frumflytji á næstu Lista-
hátið, nýtt islenskt stórverk, sem
lengi hefur legið óhreyft, en ekki
hefur ennþá verið greint frá höf-
undi þess.
Fyrirhuguð för til Spánar á
þessu sumri veröur ekki að veru-
leika, en kórnum hefur verið boð-
ið aö koma fram á stórri tónlist-
arhátið i Granada á Spáni i júli
næsta sumar og eru menn frá
kórnum á förum utan til samn-
inga við aðstandendur hátiðar-
innar. Jafnframt býðst kórnum
að koma fram viös vegar á Suður
Spáni næsta sumar fyrir tilstuðl-
an ferða- og menntamálaráðu-
neytis Spánar og mun verða efnt
til Islandskynninga i tengslum við
tónleikana.
Stjórnandi Pólýfónkórsins frá
upphafi hefur verið Ingólfur Guð-
brandsson. —j
UPPLÝSINGAR
OG AÐSTOÐ
Þá eru viö búnir að malbika og bjóðum alla kaupendur
og seljendur bíla velkomna á nýja ryklausa svæðið okkar,
þar sem bílarnir njóta sín virkilega vel í fögru umhverfi