Þjóðviljinn - 11.07.1981, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin II. — 12. jlilí 1981
mér er spurn
Helga Ólafsdóttir svarar Helgu Sigurjónsdóttur...
Ciesielski var
utangarðsmaður
Helga ólafsdóttir
Sævar Ciesielski fædd-
ist fyrir utan garð. Hann
bar ættarnafn sem
hljómar annarlega í ís-
lenskum eyrum og skar
sig sömuleiðis úr hvað út-
lit snerti. Faðir hans var
útlendingur og komst
ekki áfram hér á landi.
Hann lenti í drykkjuskap,
yfirgaf landið og dó
skömmu síðar. Þessi
maður var mótaður af
bandarísku þjóðfélagi,
Helga Kress
þar sem hnefaréttur
gildir og hver ber ábyrgð
á sjálf um sér. „Stattu þig
drengur og vertu að
manni", var síendurtekn-
in hvatning hans til
sonarins, sem var 12 ára
gamall er hann hvarf
brott og með það vegar-
nesti hélt Sævar út í lífið.
Bjargarleysi foreldranna
leiddi til þess aB Sævar lenti
mjög ungur á götunni. Þegar við
upphaf skólagöngu hans kom i
ljós aö hann gat ekki aðlagast
skólakerfinu og komst þvi mjög
fljótt i andstööu viö þaö. Hann
sætti sifelldri gagnrýni fyrir
frammistööu sina og raunar
tóku klögumál skólans engan
endi. Móöir hans sem sá ein um
framfærslu fjögurra barna,
hefur ekki veriö i stakk búin til
aö meta stööu drengsins eöa á
nokkurn hátt aö styja hann i
viöureign sinni viö skólakerfiö.
Þegar þaö sleppir af honum
hendinni kemur i ljós aö hann er
reikull i spori, tekst t.d. ekki á
hendur föst störf. Hann finnur
sinar eigin leiöir til fjáröflunar
og kærir sig kollóttan um lög-
mæti þeirra enda þá oröinn
vanur aö gefa frat i boö og bönn.
Boltinn hleöur utan á sig og aö
lokum er hann ákæröur fyrir
eitt alvarlegasta brot sem hugs-
ast getur.
Sævar sættir sig ekki viö
kröfur og væntingar hinna ýmsu
stofnana, sem höföu hann á
sinum snærum og allar hafa þær
meöhöndlaö hann á einn veg,
þar er aöeins stigsmunur á.
Honum hefur veriö sýnt virö-
ingarleysi og hann beittur eilif-
um þvingunum, sem hann gat
aö einhverju marki flúiö frá þar
til fangelsismúrarnir lukust um
hann. Sérfræöingar hafa eftir
mæliaöferöum sinum komist aö
þeirri niöurstööu aö Sævar sé
fremur illa gefinn, tilfinninga-
snauöur og harösviraöur.
Þjóöfélagskerfi okkar er
byggt upp af karlmönnum meö
völd. þeir eru þvi æöimargir
sem ekki eiga hlutdeild I
þeirri mótun og eiga erfitt með
aö sætta sig viö hana. Viö getum
kallaö þá minnimáttarhópa.
Sævar L'iesielski tilheyrir þeim
hópi sem hneigjast til afbrota.
Hann fæddist með þann félags-
lega arf aö fjölskylda hans
mátti sin litils. Hann hrasaöi i
upphafi en engir i umhverfi
hans voru þess megnugir aö
rétta honum þá hjálparhönd
sem dygði honum til aö komast
á fætur. Hann reyndi aö koma
sér áfram meö jpvi aö fara i
kringum „kerfiö” en hlaut aö
farast.
1 þjóöfélaginu er minni-
máttarhópunum ekki ætlaöur
staöur. Þvi eru þeir hundsaðir
eöa þeim ýtt út i kuldann eftir
þvi sem viö á hverju sinni.
Fjöldinn sem hefur tileinkaö sér
„rétt” gildismat hlutanna, setur
yfirleitt ekki spurningamerki
viö afdrif afbrotamanna og þeir
sem utangarös lenda hafa afar
litla möguleika til aö átta sig á
hvers vegna einmitt þeir hafi
lent i öllum þessum ógöngum.
Þess vegna borgar sig betur
fyrir þá sem gegna þvi hlutverki
aö verja lög og réttarfar I iand-
inu að þegja I hel þær ásakanir
sem þeir eru bornir i bók Stef-
áns Unnsteinssonar um Sævar
Ciesielski en aö vekja um þær
umræöur, sem gætu leitt til
greiningar á vandanum og þar
meö skapaö tortryggni i þeirra
garö.
...og spyr Helgu Kress
Eiga allar
konur sam-
leið?
Spurningin sem ég ætla aö
varpa fram tii næsta manns er
ekki tengd þessu máli. Þaö er aö
henni smáformáli á þessa leiö:
Nú ræöa Akureyringar þaö
hvort konur ættu aö bera fram
sérstakan lista viö bæjar-
stjórnarkosningarnar aö vori.
Ég ætla þess vegna aö spyrja
Helgu Kress álits á kvenna-
framboöum ekki vegna þess aö
mér finnist aö aöeins Helgur
eigi aö hafa orðiö i þessum dálk-
um heldur vegna þess aö hún
meö bókmenntarannsóknum
sinum hefur öölast góöa yfirsýn
yfir stööu kvenna fyrr og nú auk
þess sem hún hefur kynnt tals-
vert hugtakiö „kvennamenn-
ing”.
Þess vegna spyr ég: A svona
framboö rétt á sér og ef svo er á
þaö aö vera þverpólitiskt eöa
aöeins aö ná til róttækra
kvenna. Getur veriö aö viö sem
teljum okkur vinstrisinnaðar
eigum samleiö meö hægrisinn-
uöum konum?
mest, bestf verst
Heilasafn Dr. Wilder.
Óvanalegasta safnið
Heilasafniö hans Dr. Burt
Green Wilder er án efa eitt
merkasta safn i heimi, og áreiö-
anlega þaö óvanalegasta. Heil-
ar voru á heilanum á herra Burt
þessum, sem var prófessor í
dýralíffræöi og safnaöi heilum
af ýmsum stæröargráöum og
gáfnastigum. Hann átti heila úr
vanvitum jafnt sem alþekktum
gáfumönnum og liflátnum
glæpamönnum og honum tókst
aö telja ýmsa á aö ánafna sér
og safni sinum heilanum meö
öllu tilheyrandi aö viökomandi
látnum.
Þegar Dr. Wilder lést árið
1925 átti hann mikiö og velskráö
safn heila, sem hann haföi mælt
og vegiö, flokkaö og sett siöan i
formaiin til geymslu. Aö sjálf-
sögöu hafnaði heili hans að hon-
um látnum i einni krukkunni, en
það var ekki fyrr en áriö 1973 að
safniö var sýnt almenningi og
þá i Cornell University, sem
hefur safniö til geymslu. Þá
voru aðeins eftir heillegir 122
heilar og vöktu þeir mikla at-
hygli, ekki sist sá stærsti þeirra,
heili úr liflátnum morðingja að
nafni Ruloff.
Þá vakti athygli heili Helenar
Hamilton Gardener, en hún
ánafnaöi hann safninu til að
sanna aö heilar kvenna væru
ekki minnien heiiar karlmanna.
Hún var mikil kvenfrelsiskona
og stefndi bandarisku skurð-
læknasamtökunum 1888 sem
höfðu haldið þvi fram aö konu-
heilar vægju minna en Karla.
Aðrar forvitnilegar merkingar
meö heilunum voru ekki eins it-
arlegar, t.d. var einn aöeins
merktur „an erotic German” og
fylgdu honum ekki frekari skýr-
ingar.
Ef einhver hefur hug á aö
ánafna heila sinn þessu merka
safni, veröum þvi miöur aö til-
kynna aö móttöku nýrra heila er
lokiö. En vilji einhver stofna
heilasafn er honum bent á að
lesa vandlega bók Dr. Wilder.
„Hvernig á aö varöveita heila”.
Versta
dauðaleitin
Versta dauöaleit sem sögur
fara af var leitin aö Peregrine
Henniker-Heaton, foringja i
bresku leyniþjónustunni, sem
hvarf eftir aö hafa sagt konu
sinni að hann ætlaði út að
ganga. Scotland Yard leitaöi
dauöaleit aö honum i þrjú ár, en
fann hvorki tangur né tetur.
Loksins fannst lik hans i lokuðu
herbergi I húsi hans, þar sem
það hafði verið allan timann.
Onnur saga er um leit aö
barni í Kanada. Hin konunglega
kahadiska lögregla sagöi svo i
blaðaviðtali. „Ekkert bendir til
þess að barnið sé týnt, nema
hvaö það finnst hvergi”.
Besti
aðdáandinn
Besti fótboltaaödáandi sem
um getur, var áhangandi
Bronco fótboltaliösins I Colo-
rado, sem tapaöi fyrir Chicago
Bears 33-14 áriö 1973. Maöurinn
var svo miöur sin aö hann setti
byssuhlaup á gagnaugaö og
skrifaöi eftirfarandi miöa: Ég
hef verið aödáandi Broncos slö-
an liðiö var stofnaö og nú get ég
ekki tekiö meira af klaufaskap
þeirra og flumbrugang”. Mann-
inum mistókst sjálfsmoröiö af
klaufaskap og flumbrugangi og
var handtekinn af lögreglunni.
DR. I. M. POTENT
Hér eru fleiri gullkorn úr hinni merku kynfræöslubók Dr. I.M.
Potent „101 reasons not not to have sex tonight”.
1. Viö geröum þaö i fyrra.
2. Ég kemst ekki i stigvélin.
3. Talaðu viö lögræöinginn minn
fyrst.
4. Ekki án þess aö láta mömmu
vita.
5. Mér finnst sleikjó betri.
6. Amma er aö kikja.
7. Þú hefur gleymt að panta
tima.
8. Dallas er I sjónvarpinu.
9. Kötturinn verður svo ein-
mana.
10. Ég er ekki liftryggö.
11. Handbremsan er fyrir.
12. Ég er i einkaeign.
Á hnjánum, andspænis hvort öðru
Ef þú hefur þvottakonuhné, skaltu varast þessa stööu, hún eykur á
siggmyndun á hnjám. Annars þægileg og um leiö æsandi stelling viö
aö hafa ekki kynmök.