Þjóðviljinn - 11.07.1981, Blaðsíða 16
lfi SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 11. — 12. júli 1981
Ný-Sjálendingurinn
Owen Wiikes hefur nokkuð
komið við sögu hér á ís-
landi síðustu vikur. Fyrir
hálfum mánuði birtist við
hann viðtal í Helgarpóstin-
um, þar sem hann hélt því
m.a. fram að ^á íslandi
væru þrjár tegundir af
kjarnorkuvopnastöðvum,—
Rússar hefðu þegar eina
atómsprengju stillta á
Keflavík, P-3 Orion vél-
arnar kynnu að bera kjarn-
orkuvopn, og að Loran C
stöðin á Gufuskálum á
Snæfellsnesi væri eins
konar stjórnstöð fyrir sigl-
ingar kjarnorkukafbáta.
Benedikt Gröndal al-
i þingismaður tók svo upp
| þykkjuna fyrir bandaríska
' og sovéska herforingja í
Helgarpósti fyrir viku, og
J kvað Owen Wilkes bera
I fram ,,órökstuddar
! dylgjur í stað sérfræði í
I varnarmálum".
■
Hver er Owen Wilkes?
■ En hver er þessi Ný-Sjálend-
ingur sem er aö sletta sér fram i
I umræðu um öryggismál á tslandi
I ogsegja Islendingum ,,að losa sig
' við varnarliðið og gerast hlut-
| lausir, það muni veita mesta
■ vernd”?
I Þessi andfætlingur okkar á
B jarðarkringlunni, sem gengið
■ hefur um Norðurlönd siðustu árin
• hershöfðingjum og
' NATÓ-frelsuðum til mikils ama,
| er bóndi og náttúruvisindamaöur
■ á Nýja Sjálandi. Þar ræktar hann
i félagi við vin sinn baunir og
kvikfé og segir að þeir hafi komið
þvi þannig fyrir að einungis þurfi
aðsinna búinu 2—3daga i viku, en
í afgangurinn fari til visindaiðk-
I ana. Frá þvi 1976 hefur Owen
■ Wilkes þó að meira eða minna
leyti helgað sig rannsóknarverk-
■ efnum á Norðurlöndum, og ef til
vill þykir lesendum Þjóöviljans
fróðlegt að vita hvernig á þvi
Istóð, og hversvegna hann hefur
komið sér svo illa hjá herforingj-
um, enda þótt hann beitti ein-
göngu opinberum upplýsingum
við að fletta ofan af leyndarmál-
um þeirra.
Wilkes hefur haft það mikið af
yfirvöldum hermála að segja, að
hann getur fært gild rök að þvi að
þau fari ekki ætið með algildan
sannleika. Hann hefur rannsakað
og komið upp um leyndardóma
þeirra i rúm 15 ár, og er þó aðeins
41 árs að aldri. Fyrir þann tima
var Wilkes hinum megin lin-
unnar, það er að segja hann vann
á vegum bandariska flotans.
Omega-kerf iö
Ástæðan fyrir þvi að Owen
Wilkes fékk áhuga fyrir að sinna
rannsóknarverkefnum á Norður-
löndum var nánast tilviljun. Sú
tilviljun fólst i þvi að á sama tima
hafði bandariski flotinn uppi
ráðagerðir um að koma upp
Omega-stöðvum á Nýja-Sjálandi
og i Noregi. Framhaldið hefur
ekki veriðnein tilviljun, þvi Owen
Wilkes er maður fylginn sér, og
lætur ekki á sig fá þó að hann hafi
nú verið dæmdur fyrir upp-
ljóstrun hernaðarleyndarmála i
Noregi, og biði nú úrskurðar
hæstaréttar i Noregi.
— Bandariski flotinn verður aö
taka á sig að hluta ábyrgðarinnar
á þvi aö ég hef lent i norskum
dómstólum, segir Owen Wilkes.
Þegar Bandarikjamenn iögðu á
ráðin um aö koma upp
Omega-kerfinu (net lágtiðni út-
varpsbylgjusenda sem kafbátar
geta notað til miðunar) fóru þeir
þess á leit aö setja eina slika stöð
niður á Nýja-Sjálandi og aðra i
Noregi. 14. júni 1968 tilkynntu þeir
um óskir sinar i þessum efnum i
Nýja-Sjálandi. Ég haföi áður
veriö tengdur hernaðarrannsókn-
um á vegum Bandarikjahers og
ákvaö aö iita nánar á Omega
stööina, sem Bandarikjamenn
vildu reisa á Nýja-Sjálandi. Ég
vissi aö hún var starfrækt á svo-
kallaðri lágtiðni, þannig að kaf-
bátar gætu nýtt sér hana, og mig
L
— Engin ástæða er til þess aö ætla að herforingjar fari ætlð með allan sannleikann, segir Owen Wilkes, sem hér sést við réttarhöldin I ósló I
mai si. ásamt Nils Petter Gleditsch (t.h.). 1 vitnastúkunni er Sverre Hamrin, æðsti yfirmaður norska hersins, sem I vetur sótti tsland heim
og miðlaði NATÓ-vinum af ,,sinum sannleika”.
Þeir voru dæmdir fy
fletta ofan af NATO
Notuðu þó aðeins opinberar heimildir, ljósmyndavél, símaskrá og áttavita
grunaði að þessi not lægju að baki
óskinni um að reisa hana.
Wilkes gerði ýtarlega rannsókn
á Omega-kerfinu og á grundvelli
upplýsinga, sem hann lagði fram,
hófst mikil barátta á Nýja Sjá-
landi gegn byggingu stöðvar-
innar. Eftir 33 mánaða þrotlausa
baráttu var það orðiö ómögulegt
fyrir rikisstjórnina á ‘Nýja-Sjá-
landi að gefa leyfi til þess að stöð-
in yrði reist. Bandarikjamenn
ákváðu að byggja Omega-stöðina
þess i stað i Ástraliu. Wilkes
fylgdi á eftir eins og skugginn og
fór til Astraliu til þess að leggja
fram fóður i baráttuna gegn þess-
um áformum þar.
Samlandar minir fengu
sjokk
Þá er eðlilegt að spurt sé hvers-
vegna svo hart sé snúist gegn
Omega-stöð i landi sem flækt er
inn í stórveldaleikinn og sendi
m.a. hermenn til Vietnam á sin-
um tima? Hversvegna þessi læti
útaf einum útvarpssendi?
— Það sem málið snerist um
var einfaldlega það, að þarna stóð
til að gera Nýja-Sjáland aö sjálf-
stæðu skotmarki i striði. Okkar
hugmyndir um strið höfðu þar til
1968 byggst á þvi að það myndi
fara fram annarsstaðar —
handan hafsins. Nú var það
skyndilega raunverulegur mögu-
leiki, að Nýja-Sjáland gæti orðið
skotmark i kjarnorkuvopnastriði.
Viö gátum sannað að þennan
radió-sendi mætti nota sem
hjálpartæki fyrir bandarisku
kjarnorkukafbátanna, og leiðin til
þess að gera þá óvirka væri ein-
mitt að sprengja stöövar af þessu
tagi.
Þetta var „sjokk” fyrir flesta
samlanda mina — og þess vegna
náðum við árangri.
Astraliumenn visuðu þvi ekki á
bug aö Omega-stöð yröi reist á
áströlsku landsvæði, en byggingu
hennar hefur verið frestað hvað
eftir annað, og nú er Omega-stöö-
in tiu árum á eftir áætlun i
Astraliu. Það má þvi með nokkr-
um sanni segja, að við höfum
einnig haft árangur sem erfiöi
þar.
Loran-C máliö í Noregi
Skýrslan sem Wilkes tók saman
fyrir ástralska þingið barst
Friðarrannsóknarstofnuninni i
Stokkhólmi (SIPRI) og Friðar-
rannsóknarstofnuninni i Osló
(PRIO). A siðarnefnda staðnum
var fyrir Nils Petter Gleditsch,
friðarrannsóknarmaður, sem i
Noregi hefur gert sér far um að
rannsaka tæknibúnað herstöðva.
Þaðan lá leiðin i norska fjölmiðla
og brátt rúllaði af stað mikil um-
ræða i Noregi sem smásaman
leiddi til þess að flett var ofan af
Omega-stöðvunum og Loran-C
kerfinu. Bæði þessi miðunarkerfi
voru sett upp með leynd i Noregi,
og svo fór að tveir þingmenn
vinstri sósialista, þeir Berge
Furre (núverandi formaður
Sosialistisk Venstreparti) og Finn
Gustavsen brutu trúnaðarheit
sitt, og sögðu frá þvi hvernig
ákvörðun um gerö þessara kerfa
var heimiluö eftir leyniumræður i
Stórþinginu.
1 raun er ekki út i hött að halda
þvi fram að Wilkes sé ábyrgur
fyrirLoran-C umræðunni i Noregi
og sjálfur viöurkennir hann ,,aö
hafa tekið i gikkinn”.
Kaninur Sáms frænda
Norska stofnunin PRIO bauð
Ný-Sjálendingnum áriö 1976 að
koma til Noregs að skrifa um
tæknileg atriði i skýrslu um
OMEGA-kerfið. A PRIO var veriö
að vinna að skýrslu um eðli
NATÓ-umsvifa i Noregi
(NATÓ-infrastruktur). Visinda-
mennirnir tveir, Wilkes og Nils
Petter Gleditscfy komust brátt að
þvi að margskonar útbúnaður i
Noregi var hinn sami og fyrir-
fannst i herstöðvum i Astraliu og
á Nýja-Sjáiandi. Þar var m.a. um
að ræða myndavél á stjörnuat-
hugunarstöðinni i Harestua.sem i
raun var myndavél sem fyrir til-
stilli Bandarikjamanna var notuð
til þess að „elta gervihnetti” um
hiiningeiminn til þess að gera
bandariska hernum kleift að
skjóta niður sovéska gervihnetti.
Samskonar myndavél — meira að
segja með sama seriunúmer —
var starfrækt beint af bandariska
flughernum á Nýja-Sjálandi.
Þar kom að PRIO og visinda-
mennirnir tveir gáfu út skýrslur
sinar, og norski herinn stefndi
þeim fyrir dómstól. 1 byrjun árs
kom svo út bók i Noregi eftir þá
félaga og ber hún nafnið
„Kaninur Sáms frænda” — Onkel
Sams Kaniner — Teknisk etterr-
etning i Norge — Owen
Wilkes—Nils Petter Gleditsch —
Pax forlag A/S Oslo 1981. — Þar
eru gefnar upplýsingar um 40
herstöövar i Noregi, hlutverk
þeirra i eftirlits- og árásarkerfi
Bandarikjanna og NATÓ, og þær
hættur sem þessi tæknibúnaður
allur hefur i för með sér fyrir
norsku þjóðina. Meö aöstoð sima-
skrárinnar, ljósmyndavélar,
vasaáttavita og ballestar af
bandariskum skýrslum og tima-
ritum fletta þeir ofan af öllu
NATÓ-kerfinu I Noregi.
Norski herinn á engin
leyndarmál lengur
Enda þótt að ekki hafi verið
vefengt við réttarhöldin, sem
fram fóru i Osló i mai sl„ að ein-
göngu' séu notaöar opinberar
heimildir við þá upplýsinga-
söfnun og upplýsingavinnslu, sem
Wilkes og Gleditsch eru ákærðir
fyrir, voru þeir engu að siður
dæmdir i tveggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi, lOþúsund kr.
norsk. i sekt, og 10 þúsund i máls-
kostnað hvor.
Dómstóllinn i Osló komst að
þeirri niðurstöðu að uppljóstranir
þeirra féiaga um hlustunar-mið-
unar- og njósnastöðvar o.fl. i
Noregi hefðu i för með sér „mikla
hættu fyrir öryggi norska kon-
ungsrikisins”. Blaðamaður sem
skrifaði um dómsúrskurðinn og
bókina Kaninur Sáms frænda var
hinsvegar þeirrar skoðunar að
Wilkes og Gleditsch hefðu verið
dæmdir fyrir að ljóstra upp um
það að norsku herforingjarnir
hefðu engin leyndarmál, og hægt
væri að svipta hulunni af leyndar-
pukri þeirra með aðstoð sima-
skrár, kompáss og opinberra
skjala.
Mynduð hefur verið stuönings-
nefnd þeim félögum til aðstoðar,
nokkurskonar Málfrelsissjóður,
eins og i kjölfar VL-málanna á Is-
landi. Þeir lesendur Þjóðviljans
sem vilja leggja málfrelsinu lið i
Noregi geta sent framlög sin til
eftirfarandi heimilisfangs:
Stöttekomiteen för Gleditsch og
Wilkes.
Boks 124
ANKERTORGET
OSLO 1
Postgiro 5 18 91 54.
3000 herstöðvar
Owen Wilkes hefur að undan-
förnu starfað hjá Friðarrann-
sóknarstofnuninni i Stokkhólmi,
SIPRI. Þar vinnur hann ásamt
fleirum að gerð mikiliar skýrslu
um herstöðvar stórveldanna er-
lendis. 1 þeirri skýrslu verður
skrá og lýsing á rösklega 3000 er-
lendum herstöövum um allan
heim, og mjög margar þeirra eru
svokallaðar „leynilegar her-
stöðvar”. Norska skýrslan, sem
svo miklu fjaðrafoki hefur vaidið
i Noregi, er aðeins hluti þessarar
heildarmyndar sem dregin
verður upp i SIPRI-verki, er út
kemur með haustinu.
Einar Karl segir frá
Ný-Sjálendingnum
Owen Wilkes og upp-
ljóstrunum hans
í Noregi