Þjóðviljinn - 11.07.1981, Page 6
6 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN Helgin 11. — 12. júlí 1981
UOOVIUINN
Málgagn sósfalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
(Jtgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Olafsson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir
Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Þórunn Siguröardóttir
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir,
Kristin Ástgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs-
son.Jón Guöni Kristjánsson.
tþróttafréttamaður: Ingólfur Hannesson.
Ctlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Björn Br. Björnsson .
I.jósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Auglýsingar: Unnur Kristjánsdóttir
Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiösla: Kristin Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir.
Simavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns
dóttir.
Ctkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6,
Reykjavík, sfmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf..
ritstjornargrcin
Mikilvœg umrœöa
• baráttan gegn vígbúnaðaráformum stórveldanna
er mál mála um alla Vestur-Evrópu. Islenskir stjórn-
málamenn, svo og fjölmiðlar, hafa verið ákaflega
tómlátir um þá umræðu, og að mestu látið hana f ram
hjá sér fara, hverju sem það nú sætir. Þjóðviljinn hef-
ur gert sér f ar um að kynna þau viðhorf sem ryðja sér
til rúms með sívaxandi þrótti um alla álfuna. Og á
fundi með blaðamönnum sagði formaður þingflokks
Alþýðubandalagsins f rá þeim skoðunum sem uppi eru
annarsstaðar á Norðurlöndum í þá veru, að Island eigi
ekki heima í kjarnorkuvopnalausu svæði, að minnsta
kosti ekki til að byrja með, vegna tengsla við kjarn-
orkuvopnakerfi annars stórveldisins.
O Á f jölmiðlaf undinum lagði Olafur RagnarGríms-
son áherslu á nauðsyn þess að f jölmiðlar og íslenskir
stjórnmálamenn hæfu umræðu um vígbúnaðar-af-
vopnunar- og öryggismál, því óviðundandi væri að við
yrðum viðskila við Norðurlöndin í þeirri mikilvægu
umf jöllum sem nú á sér stað um stofnun kjarnorku-
vopnalauss svæðis. Viðbrögð NATÖ-krata og
bandaríska Mogga hafa verið ákaflega fýluleg, svo
vægt sé til orða tekið. Helst er á þeim að heyra sem
eitthvað hafa látið uppiskátt, að hér sé einhver mis-
skilningur á ferðinni, nytsamt sakleysi i þágu Rússa,
eða venjulegt minnihlutabrölt komma.
O En það er eitthvað stórt á f erðinni þegar kirkjunn-
ar þjónar saf na 120 þúsund manns á f und í Hamborg,
12 miljónir manna hafa skrifað undir áskorun í Bret-
landi um að hafna nýju Evrópuatómvopnunum, og
leiðtogar verkamannáflokkanna í Noregi, Svíþjóð,
Danmörku og Finnlandi ásamt forystumönnum
verkalýðshreyfingarinnar krefjast kjarnorkuvopna-
lauss svæðis á Norðurlöndum. Og er þá fátt eitt tínt til
af tíðindum svipaðs eðlis.
• Afstaða norrænna jafnaðarmannafl.okka er at-
hyglisverð. Þannig er frá henni sagt í Nordisk
kontakt, tímariti Norðurlandaráðs: „Jafnaðar-
mannaflokkar Norðurlanda hafa orðið sammála um
að reyna að skapa kjarnorkuvopnalaust svæði á Norð-
urlöndum. Með því vonast menn til að smám saman
verði hægt að hafa áhrif á stórveldin og að öll Evrópa
geti orðið kjarnorkuvopnalaus."
• En afhverju láta menn svona um alla Evrópu?
Svarið er m.a. að finna í stefnuskrá franska sósíal-
istaf lokksins. Þar segir: „Það má velta því fyrir sér
hvort raunveruleg áætlun herráða hernaðarbandalag-
anna sé ekki að gera Evrópu að vígvelli, verði styr jöld
milli austurs og vesturs. i því Ijósi skiljast fyrirmæli
Atlantshafsbandalagsins um að auka hefðbundinn
vígbúnað i Vestur-Evrópu og koma þar fyrir litlum
kjarnorkuvopnum." Það er gegn þessari ískyggilegu
framtíðarsýn sem almenningur og stjórnmálamenn
eru að snúast þegar þess er krafist, líkt og franski
sósíalistaf lokkurinn gerir, að Sovétmenn verði á bortt
með SS-20 kjarnaf laugar sínar og hætt verði við áætl-
un NATO um nýju Evrópuvopnin. „Aðild að Atlants-
hafsbandalaginu merkir ekki undirgefni við her-
stefnu Bandaríkjanna", segja franskir sósíalistar, og
er meiri mannsbragur á þeim en NATO-krötum á (s-
landi.
• Krafan um kjarnorkuvopnalaus svæði er sömu
ættar. Hún er byggð á því að eina vörnin gegn kjarn-
orkuvopnum sé að hafa þau ekki né tengjast notkun
þeirra. Þessi krafa er til í margvíslegum myndum.
Ekki aðeins kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd, heldur
t.d kjarnorkuvopnalaus Evrópa frá Póllandi til
Portúgal. Eða óhervætt svæði milli áhrifasvæða stór-
veldanna frá Tyrklandi til Noregs undir stjórn Sam-
einuðu þjóðanna. Eða svipað belti frá Kanada um
Grænland, fsland og til Noregs eins og friðarrann-
sóknarmaðurinn Owen Wilkes leggur til í viðtali við
Þjóðviljann í dag. Og menn hafa uppi margvíslegar
hugmyndir um hvernig stofna eigi slík svæði og
tryggja að þau verði virt.
• Aðalatriðið er eins og norrænu kratarnir benda á
að hér er um að ræða frumkvæðisleið í afvopnunar-
málum, og f ramtíð mannkyns getur oltið á því að bet-
ur takist til á öðrum afvopnunaráratug Sameinuðu
þjóðanna en hinum fyrri. (slendingar þurfa að koma
sér inn í þessa umræðu, aðallega hina norrænu.
ekh
úr aimanakínu
NU er agiirkutið i
blaöamennskunni, en svo kalia
blaöamenn þaö ástand þegar
litiö fréttnæmt gerist og fátt er
svo meö öllu ómerkt að ekki sé
þaö gripiö til umfjaiunar á
siðum blaöanna til aö fylla i
plássiö.
Dagblaöiö Timinn varð fyrir
þvi láni á dögunum að mikið
„hneykslismál” rak á fjörur
þess. Er þar um aö ræöa af-
greiðslu stjórnar vinnueftirlits
rikisins á umsóknum um stöðu
læknis viö stofnunina. Hefur
blaðið fjallaö um þetta mál i all
löngu máli og er afstaða þess
greinileg i þessari umfjöllun.
HUn er sU aö stjórn Vinnueftir-
litsins hafi beitt valdniöslu
gagnvart þeim eina
umsækjanda sem dæmdur haföi
verið hæfur til starfsins af
stöðunefnd. Umfjöllun Timans
gefurtilefni tilaö fariö sé ofan i
saumana á málinu og einnig
þarfnast sU fréttamennska sem
Timinn hefur rakiö sérstakrar
athugunar.
Hinn 11. mars s.l. birtist opnu-
grein i Ti'manum undir fyr-
Læknadeilur á
Selfossi og í
Vinnueftirlitinu
Viðhorf Islendinga til vinnu-
verndarmála hafa löngum veriö
ístílviö þaö sem segir I visunni
gömhi: „Ég aö öllum háska
hlæ.”
irsögninni, „Er unnt aö skýra
læknaflöttann frá Selfossi”. t
greininni kemur fram að á s.l.
10 árum hafa 5 yfirlæknar horfið
frá störfum viö sjúkrahúsið á
Selfossi og hjá sumum þeirra
var ástæöan sU aö þeir treystu
sér ekki til að eiga samstarf við
heilsugæslulækninn á staðnum,
Brynleif Steingrimsson, en allir
læknarnir 5 vitna i þessari
Timagrein um samstarfserfiö-
leika sina viö þennan mann.
Lýkur greininni með þeim
ályktunaroröum blaöamanns aö
ástæðuna fyrir landflóttanum
virðist mega rekja til ofrikis
eins manns, þ.e. Brynleifs.
Siöan er spurt: „Veröur Daniel
Danielsson (núv. yfirlæknir
siUkrahUssins innsk.) næsta
„fórnarlambiö”.”
Svo varö einnig. Daniel
Danielssyni hefur verið sagt
upp störfum si'num við sjUkra-
húsiö á Selfossi og einum lækni
til viöbótar.
Þaö var stjórn sjúkrahúss-
ins á Selfossi meö Brynleif
Stángrimsson heilsugæslulækni
og mág hans formanH stjórnar-
innar i broddi fyikingar sem
stóð aö uppsögninni og var hún
rökstudd með þvi aö samningar
þeirra viö gamla sjUkrahUsiö
ættu ekki aö gilda þegar þaö
flytur i nýtt hUsnæöi.
Heilbrigöisráöuneytiö hefur lýst
þvi yfir aö þaö telji þessar upp-
sagnir jafngilda brottrekstri úr
starfi aö þaö muni ekki viö þær
una, enda hafi læknarnir ekki
gert sig seka um neitt refsivert
athæfi og ekkert sé við þeirra
störf aö athuga.
NU gerist þaö aö auglýst er
eftir lækni til starfa viö
Vinnueftirlit rikisins. t lögunum
um Vinnueftirlitiö segir m.a. að
þessi læknir skuli vera sér-
menntaöur embættislæknir, eöa
hafa jafngilda menntun til
starfsins (leturbr. min JGK). t
lögunum segir aö hann skuli
vera tengiliöur Vinnueftirlitsins
viö heilbrigðisyfirvöld og veita
forstööu atvinnusjúkdóma- og
heilsugæsludeild stofnunar-
innar.
Rétt er aö staldra hér viö
oröiö embættislæknir. Sérnám I
em bættislækningum og heim-
ilislækningum helst i hendur i
þrjU ár, sá sem hyggur á sér-
fræðingsviðurkenningu i em-
bættislækningum tekur á
fjórða ári sérkúrsa i heilbrigðis-
fræðum, faraldsfræöum o.s.frv.
og er miðaö viö að viökomandi
sé bUinn undir aö taka aö sér
ýmis stjórnunarstörf innan heil-
brigðiskerfisins.
Brynleifur Steingrimsson var
meöal umsækjenda um þessa
stöðu og var af stöðunefnd einn
Jón Guðni
Kristjánsson
skrifar
dæmdur hæfur til starfsins.
Brynleifúr er sérfræöingur i
lungnasjUkdómum og hefur sér-
fræ öingsviðurkenningu i
embættislækningum að auki.
Ber heldur enginn brigður á aö
hann hefur fulla menntun tíl
starfsins. Oöru máli gegnir um
afgreiöslu stöðunefndar á um-
sókn Vilhjálms Rafnssonar
læknis i Gautaborg. Hann var
ekki dæmckir hæfur tii starfsins
og á stjóm Vinnueftirlitsins og
forstjóri þess sem ræöur endan-
lega i' stööuna, erfitt meö aö
sætta sig viö þá málsmeðferö.
Vilhjálmur er sérfræöingur i
heimilislækningum, lauk nýlega
doktorsprófi 1 læknisfræði (að
vi'su eftir aö umsóknarfrestur
rann Ut) og mun hljóta sér-
fræöingsviöurkenningu i at-
vinnusjUkdómum i febrúar á
næsta ári. Hann hefur starfaö
sem trUnaöarlæknir hjá stórum
fyrirtækjum i Sviþjóö. Vi 11
Vinnueftirlitíð ekki sætta sig viö
þessa niöurstööu og er þvi máliö
komiö í hnUt.
NU bregöur svo við að Timinn,
sem variö hefur miklu af sinu
dýrmæta plássi til aö upplýsa
lesendur sina um ófremdar-
ástandiö i sjUkrahúsmálum á
Selfossi, bregður hart við og
gerist málpipa Brynleifs Stein-
grimssonar i málinu, þess sama
Brynleifs sem blaöiö taldi i vet-
ur aö hrekti frá sér samstarfs-
menn sina með ofríki. Fyrst
greindi blaöiö frá þvi i slUöur-
dálki sinum að nú ætluöu yfir-
völd líklega aö losna við
óþægindin fyrir austan fjallmeö
þvi aö veita Brynleifi stööuna.
Eftir aöi' ljós kom að Vinnueft-
irlitíö sætti sig ekki við niður- |
stöður stööunefndar, hefur blaö-
iö tíundaö sttíryröi Brynleifs
mjög nákvæmlega, en túlkaö
sjónarmiö stjórnar Vinnueftir-
litsins meö Utúrsnúningum.
Þannig rausnast blaöiö til að
leita álits Þorvaröar Brynleifs-
sonar, læknis og stjórnar-
formanns Vinnueftirlitsins.
Þorvarður segir i viðtalinu aö
stjtírnin hafi veri búin aö mynda
sér hugmyndir um starfsvett-
vang læknisins og teldi æskilegt
aö ráöa sérmenntaðan mann i
atvinnusjUkdómum, enda væru
eingöngu sérfræöingar f at-
vinnusjúkdómum I sambæri-
legum stööum á hinum Noröur-
löndunum. (lbr. min JGK). Fyr-
irsögn Tímans á viötalinu hefur
greinilega einhvern annan
tilgang, en að kynna sjtínarmið
viðm ælandans, hUn viröist
raunar hafa þann eiga tilgang
að gera hann og stofnunina sem
tortryggilegust. HUn hljóöar svo
með stóru og feitu letri:
„Lögum breytt svo stjórnin fái
sinn mann ráöinn.” Virðist
ástæöa til aö spyrja hvort
Timinn áli'ti það mikla starf sem
þessari stofnun er falið aö
annast, þesseölis, aö hana verði
aö gera sem tortryggilegasta
þegar i upphafi.
Brynleifur Steingrimsson hef-
ur lýst þvi yfir að hann hafi
veriö hvattur til þess af
heilbrigöisyfirvöldum að sækja
um starfiö, þaö hafi ekki veriö
gert aö hans frumkvæöi. Veröur
þaö aö teljast undarlegt aö
heilbrigöisyfirvöld séu að
hvetja menn til sliks, ekki sist
þegar þaö er haft I huga að þau
veita ekki starfið, heldur for-
stjóri Vinnueftirlitsins og að
áhersla er lögö á sjálfstæöi
stofnunarinnar af hálfu stjtírn-
valda.
Stjórn Vinnueftirlitsins hefur
sent stööunefnd bréf og farið
frám á skýringar á þvi hvort
hUn telji sérmenntun i atvinnu-
sjUkdómum ekki jafngilda
menntun til þessa umrædda
starfs en fengið neikvætt svar.
Stjórnarform aður Vinnueftir-
litsins lét þó þá skoðun i ljós viö
undirritaöan aö þaö svar væri
alls ekki fullnægjandi. Þar
kæmi ekki fram hvort átt væri
við menntunarlegar kröfur
eingöngu eöa menntun til þessa
tiltekna starfs. Þaö virðist þvi
vera eðlileg krafa, ekki sist meö
tilliti til þeirrar umfjöllunar
Timans sem hér hefur verið
gerö aö umtalsefni, aö stööu-
nefnd geri ýtarlega grein fyrir
afstööu sinni og útskýri þær
forsendur sem aö baki liggja
hæfnisdómum hennar. Eins og
málum er komiö kref jast hags-
munir Vinnueftirlitsins þess aö
öll atriði málsins séu Utskýrö
rækilega.
Þaö var örugglega stdrt skref
fram á viö þegar Vinnueftirlit
rikisins var stofnaö. Viðhorf
Islendinga til vinnuverndar-
mála hafa löngum veriði stfl við
þaö sem segir i visunni gömlu:
„Ég aö öllum háska hlæ.” það
er öruggt aö mikið starf er
óunnið á þessum vettvangi og
mikilvægt aö um þaö riki sæmi-
legur friöur. Deilur af þvi tagi
sem nú eru komnar upp eru til
þess eins fallnar aö tefja þaö aö
aögeröir i vinnuverndarmálum
komist á einhvern rekspöl.