Þjóðviljinn - 11.07.1981, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 11. — 12. júlí 1981
Við vitum ekki vel hver
við erum og af hverju við
getum verið stolt sem
þjóð, segir fræðakona f rá
Ástralíu, Robin Burns,
sem hér gerði stuttan
stans. Og er í samtalinu
komið nokkuð víða við:
spurt um vinstristjórn og
hægrisveiflur, glímu um
yfirráð yfir auðlindum
álfunnar, herstöðvamál
og fleira, sem getur
komið íslendingum
kunnuglega fyrir sjónir,
enda þótt breið vík sé
milli vina.
að kengúrum slepptum
Viðtal Á.B.
við Robin Burns
um mannfólk
og pólitík
hinumegin
á hnettinum
Robin Burns starfar við
háskóla i Melbourne, hún er
mannfræöingur og kennslu-
fræ&ingur, veit margt um
innrás nýrra tima i svonefnd
frumstæð samfélög á Nýju
Guineu og viðar-, einnig um þær
hugmyndir sem á Vestur-
löndum, ekki sist i Sviþjóö.hafa
verið uppi haföar um umbætur á
sviði menntamála.
Ekkert sjálfstraust
Hún hafði minnst á þau um-
mæli ástralska nóbelshöfundar-
ins Patricks White aö Ástralíu-
menn hefðu ekkert sjálfstraust.
Hvers vegna?
Við vorum áöan að tala um
þaö, að sumt væri líkt með
Islandi og Astraliu og gaman aö
bera þessi lönd saman. Stór ey-
lönd, strjálbýl, lengi einangruð.
En hér stendur islensk sérsta&a
djúpum rótum, segir Robin.
Astralir hafa hinsvegar veriö aö
bræöast saman I þjóö á 200
árum. Og þeir hafa lengst af
verið öðrum háðir, bresk
nýlenda, nú háðir efnahags-
risum eins og Bandarlkjunum
og Japan. Þeir eru núna 15
miljónir, en af þeim eru 2
miljónir ekki fæddar I Astralíu
og ekki af engilsaxneskum upp-
runa. I Melboúrne eru t.d. 400
þúsund Grikkir, það eru hvergi
fleiri Grikkir saman komnir á
einum stað annarsstaöar en i
Aþenu.
Stolt?
Ung þjóö, skortur á
menningarlegu sjálfstrausti,
þjóöablanda- allt þetta leggur
sitt fram til þjóöerniskreppu. Ef
að spurt er hvað það er, sem
helst telst veita Astraliu-
mönnum þjóöernisstolt þá verð
ég fyrst aö nefna Gallipoli-
orrustuna i fyrri heimsstyrjöld
— þá börðust ástralskar og
nýsjálenskar sveitir fyrst i
breska hernum sem sérstakar
einingar. Það er haldið upp á
þetta „sérstaka framlag”
Astralíumanna enn i dag — svo
hlálegt sem þaö nú er, þvi
Gallipoliævintýriö var hið
mesta slys og ósigur.
Liklega koma iþróttir I öðru
sæti sem tilefni ‘ jóöarstolts,
enda eru stjórnvöld ekki sink á
aö fjárfesta i iþróttasigrum.
Dýrðin komi að utan
— En hvað um að eignast
nóbelsskáld eins og Patrick
White?
— Menn sætta sig viö hann
vegna þess aö hann hefur fengið
Nóbelsverðlaun — hans dýrö
kemur að utan. En jafnvel
menntamenn munu segja eitt-
hvaö á þá leiö, að hann sé ekki
meira en svo ástralskur, enda
skilji menn hann ekki. Þetta
stafar sumpart af þvi aö Patrick
White gerir gys að ýmsu þvi
sem ástralskt er; þá kjósa menn
aö skilja ekki. Við Astraliumenn
kærum okkur ekki um há tré,
viö metum það ekki aö menn
skari fram úr — nema þá i þvi
að græða peninga.
Altént er þaö erfitt fyrir lista-
mann eöa menningarvita að
veröa þjóðhetja. Það er lika svo
mikill munur á svonefndri vin-
sældamenningu og hámenn-
Whitlam: þeir héldu þvi fram að
hann stæði að „sósiaiisma á
harðastökki”.
ingu. Það er gamla sagan:
heldur skaltu vera dægurlaga-
söngvari en óperusöngvari. Og
fyrst þarftu aö fá viðurkenningu
erlendis, helst I Evrópu, áöur en
þú ert einhvers metinn heima.
Og margir afreksmenn i listum
eru reyndar starfandi erlendis,
t.d. söngkonan Joan Sutherland,
pianistar ágætir, rithöfundar,
sem kannski koma sér fyrir i
Grikklandi vegna þess að þar er
ódýrara aö lifa.
En þessar sálarkreppur eru
ekki alfarið okkur sjálfum aö
kenna. Margt verður rakið til
þess, aö Bretar hafa löngum
litiö niður á okkur og haft með
yfirburöatilburðum sinum nei-
kvæö áhrif á aö við kynnum aö
meta okkur eins og við erum.
óháð stefna
Ég sagöi áðan aö við ættum
erfitt með að sætta okkur við þá
garpa sem skara fram úr. Þetta
gerist líka á sviöi stjórnmála.
Tökum dæmi af valdatima
Gough Whitlam, sem var leið-
togi Verkamannaflokksins.
Hann var fyrsti stjórnmála-
maöurinn um langan tima sem
lagði fram áætlun um óháöa
stefnu í utanrlkismálum fyrir
Astrali'u. Hann var hátt yfir
aöra pólitikusa hafinn og vissi
reyndar vel af þvi — enda var
töluverö óánægja með hann
einnig I hans eigin flokki meðan
hann var við völd. Auðvitað var
honum svo bolað frá.
Þaö geröist með þessum
hætti: Viö höfum einkennilegt
kerfi, þaö er ekki kosiö sam-
timis til beggja deilda þingsins.
Whitlam haföi stjórnaö i 18
mánuði, þegar hann I kosn-
ingum til efri deildar þingsins
missti meirihlutann þar. Efri
deild gerði honum svo ýmsar
skráveifur i sambandi við af-
greiðslu fjárlaga. Þá kom land-
stjórinn, fulltrúi Bretadrottn-
ingar, til skjalanna og þvingaði
fram nýjar kosningar. Þetta var
árið 1975 og það er deilt um þaö
enn i dag hvort þetta hafi verið I
anda stjórnarskrárinnar eða
ekki.
Of hratt?
1 raun var hér um að ræða
einskonar samsæri gegn þvi
sem ihaldssamir Astraliumenn
köllu&u „sósialisma á har&a-
stökki”. Whitlam fór of hratt,
sögðu menn.
— Hvað þýðir það i Astralíu,
aö Verkamannafloksstjórn
„geysist of hratt”?
— Þaö þætti varla mikið á
Norðurlöndum. En Whitlam
haföi I fyrsta sinn komið á fót
heilsugæslukerfi fyrir alla.
Smávegis þjóðnýtingar var
hann með — nokkrar járn-
brautir og þesslegt. Félagsleg
a&stoð var aukin verulega, t.d.
var i fyrsta sinn fariö að aðstoða
einstæðar mæöur (þaö taldi
ihaldið vera stu&ning viö laus-
læti). Skattar á efnafólk voru
hækkaðir.
Herstöðvar
og auðlindir
A sviði utanrikismála gerðist
það, að Whitlam lét verða sitt
fyrsta verk að kalla heim þær
áströlsku sveitir sem höfðu
verið sendar til Vietnam. Hann
dirfðist aö gagnrýna Bandarikin
á ýmsum sviöum, en slíkt hafði
ekki fyrr heyrst til ástralsks
leiðtoga. Hann vildi þoka okkur
út úr þvi að vera jafn háðir
Bandarikjunum og við erum.
Hann hafði áhuga á að breyta
stöðu bandariskra herstöðva i
Astraliu, en ekki einu sinni ást-
ralskir ráðamenn vita hverju
þar fór fram eða hvað þar var
geymt. En hann haföi ekki tima
til að breyta miklu i þeim
efnum.
Þá tók Whitlam og flokkur
hans upp baráttuna fyrir þvi, að
Astralir heföu 51% eignaraöild
aö fyrirtækjum þeim sem nýta
hinar miklu auölindir landsins.
Mér skilst aö þið tslendingar
hafið áhuga á svipuöum hlut-
föllum. Þetta var einkar mikil-
vægt: okkur hefur fundist að
verið væri að grafa upp Astralíu
og selja hana til Japans og
Bandarikjanna. Hann fór einnig
aö spyrja spurninga sem áöur
höfðu ekki veriö á dagskrá —
t.a.m. um nýtingu úrannáma og
stefnumótun i þeim efnum.
Whitlam vildi og auka vald
alrikisstjórnarinnar á kostnaö
héraðsstjórna, t.d. i fræðslu-
málum. Honum gekk það gott til
aö vilja m.a. koma á ákveönu
námsfyrirtækjakerfi, en æsti
hreppapólitikusa óspart upp
gegn sér.
Þessi „vinstristjórn” var ekki
nema I þrjú ár við völd, en hún
var merkilegt timabil. Þvi
miöur hefur ýmisleg sundrung
háð Verkamannaflokknum fyrr
og siöar — t.d. stóð það honum
lengi fyrir þrifum aö reynt var
að hafa kaþólska verkamenn 1
sérstökum flokki (Democratic
Labour Party). Sá flokkur á
ekki iengur menn á þingi, en
hann hefur dregiö úr mögu-
leikum Verkamannaflokksins
þar eð viö höfum kerfi ein-
menningskjördæma.
thaldstími
Siöan 1975 höfum við haft
ihaldsstjórn sem trúir á Milton
Friedman og vill sem allra
minnst opinber umsvif. Sú
stjórn hefur unnið óspart aö þvi
að skera niður félagsmálastefnu
Whitlams. Heilsugæslukerfið er
fariö veg allrar veraldar og
nýtur enginn ókeypis læknis-
þjónustu nema þeir fáu sem
eru feiknaðir undir fátæktar-
mörkum. Upp voru tekin aftur
skólagjöld fyrir framhaldsnám.
Afnuminn var húsaleigustyrkur
viö hina efnaminni (eða nánar
tiltekið: veröi hleypt upp á
leiguhúsnæði I eigu hins opin-
bera). Þaö á meira að segja að
reyna aö selja flugvellina einka-
fyrirtækjum.
Hægriöflum tekst aö fylgja
fram slikri stefnu m.a. vegna
þess að verkalýðsstéttin er I
raun mjög ósamstæö, og mjög
eimir eftir af þvi viöhorfi land-
nemans aö hann geti leyst sin
mál upp á eigin spýtur, þurfi litt
á samstöðu að halda — og sé þar
aö auki á leiö „upp úr” verka-
lýðsstétt. Þetta er mjög ólikt
þeim viðhorfum sem maöur
kynnist i Evrópu...
En menn eru samt ekki dauðir
úr öllum æöum. Til dæmis hafa
menn áhyggjur af bandarisku
herstöövunum, sem eru eins og
lokuö riki i rikinu, og berjast
gegn þeim. Þar hafa komið
saman fjórir straumar:
umhverfisverndarmenn, menn
sem taka upp hanskann fyrir
frumbyggjana sem i ýmsum til-
vikum verða að þoka fyrir
hernaðarmannvirkjum; þá
koma friðarvinir og kjarnorku-
andstæðingar — og á vettvangi
Verkamannaflokksins er svo
unnið að þessum málum eftir
pólitiskum leiðum... — AB
Námavinnsla i Vestur-Ástraliu: okkur fannst þaö væri verið aö
skófla landinu til Japan og Bandarikjanna.