Þjóðviljinn - 11.07.1981, Síða 19
Helgin 11. — 12. júli 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 19
Hugsi nú hver um sinn maga
Mataræði og hollustuhættir
Fegurðin kemur innan
frá segir i gömlu spak-
mæli. Ekki vitum við
hvaðan það er ættað/ en
sennilega hefur það reynst
löndutn vorum haldlítið
gegnum tiðina. Það stoðar
lítt að lifa friðsamlega,
öðlast sálarró, eiga gleði
og ást, ef fegurðin fær ekki
sína veraldlegu næringu,
og hana góða. Það er al-
kunn staðreynd að islend-
ingar eru ekki barnanna
bestir í samskiptum sínum
við magann og hafa þau
samskipti litt skánað þrátt
fyrir bættan efnahag.
Hér fyrrum misþyrmdu menn
maganum meö brennivini, munn-
tóbaki, súrmeti, brimsöltu kjöti
og fiski aö ónefndu ööru lostæti
sem aö likindum er skýringin á
margnefndum innanmeinum for-
feöranna. Brenniviniö blífur svo
og tóbakiö, en ameriskur ófögn-
uöur ásamt dönsku bakkelsi hefur
leyst af hólmi „góögæti” sem
mönnum var áöur boöiö upp á Uti
skemmu, ásamt meö staupi af
brennivini. Hamborgarar, pylsur
gosdrykkir og gotteri hvers
konar, aö ógleymdum snúöum er
dagleg fæöa fjölda manna, eink-
um þó unglinga á skólaaldri,
Þetta er næringarsnautt en hita-
einingarikt fæöi sem kallar á nýja
tegund vannæringar i velmegun-
inni.
Fyrr i vetur kynnti Manneldis-
ráö könnun sem gerö var á
mataræði íslendinga. Þar kemur
margt fróölegt i ljós sem ætti aö
vekja fólk til umhugsunar um
hvaö þaö lætur ofan i sig. Þaö
þýöir litið aö trimma og stunda
iþróttir ef likaminn fær ekki góöa
og holla næringu.
t niöurstööum könnunarinnar
segir aö einkum hafi veriö kannaö
hlutfall orkuefna i fæöunni, dag-
skammtar af bætiefnum og
trefjaefnum og siöan hvernig
þessi efni dreifast eftir fæöu-
flokkum. I ljós kom aö af heildar-
orkunni fáum viö um 16% úr
hvitu, 41% úr fitu og 43% úr kol-
vetnum. Æskilegt er taliö aö hlut-
föllin séu 10—15% úr hvitu, undir
35% úr fitu og 50—60% úr kol-
vetnum. Neyslan hér er þvi
nokkuö ööru visi en æskilegt er,
enda löngu vitaö aö sykurneysla
og fituát sem m.a. fæst úr súkku-
laöi, kexi og kökum er meira en
góöu hófi gegnir.
Könnunin sýndi einnig aö
nokkuö skortir á aö fólk fái nægi-
legt magn bætiefna úr fæöunni, en
sumir bæta sér þaö upp meö þvi
aö taka inn vitamintöflur.
Einkum kemur fram skortur á
D-vitamini, fólasini, B6-vitamini,
járni, zinki, B1 vitamini og C--
vitamini.
Meöal þeirra þátta sem kann-
aöir voru var hlutfalliö milli fjöl-
ómettaöra fitusýra og mettaöra
fitusýra eöa svokallaðrar mjúkrar
fitu og harðrar. Sá hópur sem
borðar hvaö mest af haröri fitu,
sem er talin mun óhollari, eru
unglingar á aldrinum 11—14 ára,
(súkkulaði ofl.) Einnig kom fram
aö sykurneysla er mest meöal
unglinga á aldrinum 11—14 ára og
fá þeir um 21% orkunnar úr
honum. Minnst er sykurneyslan
hjá fólki yfir 50 ára. Aö jafnaöi
fékkst um 19% af orkunni úr
sykri.
Samkvæmt norrænum mann-
eldismarkmiöum á verksmiöju-
framleiddur sykur ekki aö gefa
meira en 10% af hitaeiningum og
er ljóst aö mikiö þarf aö draga úr
sykurneyslu hér á landi ef vel á aö
vera, svo og feitmeti, en auka að
sama skapi „neyslu á sterkju-
rikum mat á borö viö brauö, öör-
um kornmat og kartöflum og af-
uröum sem gefa mjúka fitu”
segir i niöurstööum Manneldis-
ráös.
Eggjahvituskortur er ekki
vandarnál á Islandi, enda fram-
boö nóg af kjöti og fiski. Meöal-
neyslan er alls staöar langt yfir
nauösynlegum mörkum og sums
staöar helmingi meiri. Hins
vegar sýndi sig aö neysla á lifs-
nauösynlegum fitusýrum er undir
þvi æskilega i vissum aldurs-
hópum, einkum meöal unglinga.
Vikur þá sögunni aö vitamin-
unum. Könnunin sýndi aö Islend-
ingar fá meira en nóg af A-vita-
mini úr fæöunni og bæta sumir viö
skammti úr vitamintöflum. Hins
vegar fær fólk ekki nægilegt
magn af D-vitamini úr fæöunni en
sumir bæta sér þaö upp meö
töflum. D-vitamin fæst einkum úr
fæöutegundum eins og lýsi, sild,
eggjum og hrognum. Af E-vita-
mini fá tslendingar meira en nóg,
en þegar kemur aö B-vita-
minunum vandast máliö. Meöal-
neysla á B1 vitamini er undir
nauösynlegu marki i vissum
aldurshópum en með töku vita-
mintafla færast mörkin upp á viö.
B1 fæst m.a. úr hrognum, korn-
mat, grænkáli og kartöflum.
Sömu sögu er aö segja af B8 vita-
mininu, skortur kemur viöa fram
og vitaminpillur hafa litil áhrif
þar sem þetta efni vantar yfirleitt
i töflurnar, hörgull veldur tauga-
veiklun og krampa segir i bækl-
ingi Kvenfélagasambandsins um
nútima mataræöi. Eins og áöur
eru korntegundir einna rikastar
af B-vitaminum, en einnig má
benda á ölger sem uppsprettu
B-vitamina.
Fólasin skortir einnig i fæðuna
og er ekki i töflum aö jafnaöi.
C-vitamin skortir i fæöu kvenna
á aldrinum 15—50 ára. Þegar
fjörefnatöflur eru teknar inn I
dæmiö komast þó flestar þeirra
yfir nauösynlegt mark, en þess
ber aö minnast aö C-vitamin eyö-
ist fljótt og auðveldlega og þarf
likaminn aö fá sinn skammt dag-
lega. Þaö má segja aö nú sé ein-
mitt timi C-vitaminrikra fæöu-
tegunda, svo sem i rabarbar-
anum, papriku, tómötum aö
ógleymdum sitrusávöxtunum, si-
trónum, greip og appelsinum sem
brosa frá gluggum flestra versl-
ana allt áriö.
Járnskortur kom fram hjá
konum, en margar bæta sér
skortinn upp meö töflum. Þaö er
alkunn staðreynd hve konum
hættir viö járnskorti og þegar
gerö var könnun á ástandi kvenna
i Sviþjóö fyrir nokkrum árum,
reyndust niðurstööurnar geig-
vænlegar. Járnskorti fylgir slen
og þreyta og fölvi i andliti sem
hægt er aö bæta meö neyslu
lifrar, einnig er blóömör járnrik
svo og leynist járn i mörgum
grænmetistegundum.
- Af öörum tegundum málmsalta
og steinefna fáum viö nóg nema
af Zinki.
1 rannsókn Manneldisráös er
gerö grein fyrir dreifingu nær-
ingarefna eftir aldurshópum og
kynjum, en hér verður ekki fariö
lengra út i þá sálma. Af könnun-
inni má ráöa aö úrbóta er þörf á
ýmsum sviöum svo og fræöslu en
benda má að ýmislegt hefur veriö
skrifaö á islensku um næringar-
fræöi og heilsurækt.Forvitnum er
bent á aö kikja inn á bókasöfn og
kanna úrvalið. Hitt er svo annaö
mál aö hér á landi er ekki rekin
nein opinber stefna i manneldi,
sliku hefur veriö slegið á frest
hingaö til. Frændur vorir á
Noröurlöndum hafa fyrir löngu
tdcið þau mál alvarlegum tökum
og demba stöðugum áróöri yfir
sælkera og syndara, þeim til viö-
vörunar og siöbótar. — ká
URVALIÐ
er hjá okkur
Tómatar, gúrkur, paprikur,
gulrætur, steinselja, grænkál,
dill o. fl.
Blómkál, hvítkál og gulrófur
væntanlegar á næstunni.
Plöntusalan er einnig í fullum
gangi.
GRÓÐRARSTÖÐIN
GARÐSHORNI
Sími 40-500