Þjóðviljinn - 11.07.1981, Qupperneq 27
Helgin 11. — 12. júlí 1981 ÞJOÐVILJINN — StÐA 27
um helgina
t Djúpinu stendur nú yfir sýning á ljósmyndum Jay W. Shoots, ungs Bandarikjamanns sem hér hefur
dvalist að undanförnu. Nefnir hann sýningu sina „50 Works in Silver”, en tema hennar er götulif i
Reykjavik. Myndin að ofan er á sýningunni.
„Light
nights”
Ferðaleikhúsið, sem einnig
starfar undir nafninu the
Summer Theatre, er nú að hefja
sýningar á LIGHT NIGHTS að
Frikirkjuvegi 11, við Tjörnina i
Reykjavik.
Sýningar verða fjórar i viku,
þ.e. á fimmtudags- föstudags-,
laugardags- og sunnudags-
kvöldum og hefjast kl. 21.00.
LIGHT NIGHTS sýningarnar
eru sérstaklega færaðar upp til
skemmtunar og fróðleiks
enskumælandi ferðamönnum.
Efnið er allt islenskt, en flutt á
ensku, að undanskildum þjóð-
laga textum, og kveðnum lausa-
visum. Meðal efnis má nefna
þjóðsögur af huldufólki, tröllum
og draugum, gamlar gaman-
frásagnir og einnig er lesið úr
Egilssögu. A milli atriða eru
sýndar skyggnur af verkum
islenskra listamanna og leikin
islensk tónlist af hljómplötum.
Leiksviðsmyndin er gömul
islensk baðstofa. Allt talað efni
er flutt af Kristinu G. Magnús,
leikkonu.
Þetta er tólfta árið sem
Ferðaleikhúsiö færir upp leik-
sýningar fyrir enskumælandi
ferðamenn i Reykjavik en
einnig hefur leikhúsið haldið
sýningar viða erlendis, bæði i
Bandarikjunum og á Edin-
borgarhátiðinni i Skotlandi, —
og á sl. ári frumsýndi Ferða-
leikhúsið nýtt islenskt barna-
leikrit, er nefnist the
STORYLAND, i West End,
London.
Hringur sýn-
ir á Akureyri
1 dag verður opnuö sýning á
verkum Hrings Jóhannessonar i
Listsýningarsal Myndlistarskól-
ans á Akureyri (áöur Galleri Há-
hól).
Þetta erfyrsta sýningin i sal skól-
ans fyrir utan skólasýningu i vor
og sýnir Hringur alls 55 verk unn-
in meö oliulitum og oliupastel auk
Blýantsteikninga. Sýningin verð-
ur opin um helgar kl. 15—22, en
virka daga kl. 18—22. Henni lýkur
sunnudaginn 19. júlí.____
Hrafnseyrar-
safnið opnað
Safn Jóns Sigurðssonar að
Hrafnseyri við Arnarfjörð hefur
nú verið opnað og verður opið i
allt sumar.
Guðrún í
Rauða húsini
I dag, laugardag, kl. 15 verður
opnuð sýning á verkum eftir
Guðrúnu Tryggvadóttur i
Rauða húsinu á Akureyri. Sýn-
ingin saman stendur af ljós-
myndum og fótókópium og er
um margt nýstárleg. Guðrún
stundarum þessar mundir nám
i listum i Þýskalandi, nánar til-
tekið I Milnchen,
Sýningin stendur til súnnu-
dagsins 19. júli og er opin dag-
lega frá kl. 15—21.
Fyrirlestrar
um sjúkra-
þjálfun
Dagana 13., 14. og 15. júli mun
Ingrid Odéen, sænskur sjúkra-
þjálfari, flytja fyrirlestra i
kennslustofu i þjónustuálmu
Borgarspitalans og hefjast kl.
13.00.
Ingrid Odéen er þekkt fyrir
störf si'n og rannsóknir i sjdkra-
þjálfun. Auk þess er hdn vara-
forseti Heimssambands sjdkra-
þjálfara.
Fyrirlestrarnir fjalla aðal-
lega um meðferð á sjdklingum
meö þverlamanir og stjarfa-
lömun.
Hinir tveir fyrstu eru ætlaðir
sjdkraþjálfurum, iöjuþjálfurum
og læknum, en siðasti fyrirlest-
urinn er eingöngu ætlaður
sjdkraþjálfurum.
Or sýningarsalnum I Arbæ.
Flugminjar í Árbæ
Komið hefur verið upp i Ar-
bæjarsafni sýningu á flugminj-
um, sem lýsir þáttum úr sögu
flugs á tslandi 1919—1940 og er
gerð i samvinnu viö tslenska
Flugsögufélagið, Flugmálafé-
lag tslands og Svifflugfélag Ak-
ureyrar. A sýningunni getur áð
h'ta nýuppgeröa flugvél Flug-
málafélags tslands TF-SUX,
TF-ÖGN, sem islenska flug-
sögufélagið er að láta endur-
bvggja, ásamt ýmsum flug-
minjum öðrum. Sýningin mún
standa yfir til fyrsta september.
Sykursnautt
Spur
eitu kominn á
nýja bragðíð ?
tuossujQla'aiR)