Þjóðviljinn - 08.08.1981, Blaðsíða 9
'Wi ! ( H Í o ílirfisli »1 ’ ‘i <■> t *' -- i' 'i'’’. t
• « 1« #-*• •' ** íif Vfc-*.%.«.%.M ».■»,%* * c » *.*.*.*, «-«,%« \ vvfi* •V'V’*avyrnryiiv JV/'JWVi’.v.'r.iV.’j' . . .• .-s*--**a- „- --í- ■ ax--j .■ -■ - «#..!■. -. ' ,■*..#?.>-* '• ,t ,t *.%%.*. » * «- '
Helgin 8.-9. ágiist 19811> ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Útför Magnúsar Kjartanssonar var gerð f rá
Dómkirkjunni í Reykjavík 6. ágúst og var
mikið fjölmenni við athöfnina. Þórarinn
Guðnason, læknir flutti ræðuna í kirkjunni.
Séra Sigurjón Einarsson prestur á Kirkjubæj-
arklaustri flutti blessunarorð og bæn, en ein-
söngvarakórinn söng. Þá las Þorsteinn Ö.
Stephensen Ijóð og leikinn var kvartett eftir
AAoteart. AAyndirnar hér á síðunni eru frá út-
förinni, en þær tóku Ari og Ketill, Ijósmyndar-
ar Þjóðviljans.
Kista Magnúsar borin út úr kirkjunni. Frá vinstri: Jakob Benediktsson, Arni Hafstaö, Guðmundur
Hjartarson, Ingi R. Helgason, Adda Bára Sigfúsdóttir, Hallvarður Guölaugsson, Svavar Gestsson. Bak
við hann sér i Jóhannes Jóhannesson.
Fulltrúar Alþýðubandalagsins og Þjóðviljans stóðu heiðursvörð með
islenska og rauða fána við kirkjudyr.
Bíll Sjálfsbjargar kom með nokkra vini og samherja Magnúsar úr Sjálfsbjörg. Hér sést Ólöf Rikharðs-
dóttir koma til athafnarinnar.
ÚTBOÐ
Landsbanki íslands óskar eftir tilboðum i jarðvinnu og
að steypa undirstöður fyrir byggingar á Hellissandi og i
Ólafsvik, Snæfellsnesi.
•
Útboðsgögn eru afhent i skipulagsdeild Landsbankans,
Laugavegi 7, IV. hæð, Rvk., og jafnframt i útibúum
bankans á Hellissandi og i Ólafsvik.
•
Tilboð verða opnuð á skrifstofu skipulagsdeildar að
Laugavegi 7, og jafnframt i útibúi bankans i Ólafsvik,
mánudaginn 24. ágúst, 1981, kl. 11.00.
Mikið fjöimenni var i kirkjunni og byrjaði fólk að streyma aö um kl.
2.30, en athöfnin hófst kl. 3.
Landsbanki íslands