Þjóðviljinn - 30.01.1982, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 30.01.1982, Blaðsíða 4
4 SÍDA — ÞJÖÐVILJINN Helgin 30,—31. janúar 1982 st jérriniál á sunnudcgi Ragnar Ræða fjármálaráðherra í útvarpsumræðum frá Alþingi 28. janúar li Arnalds skrifar Okkar skip er á réttri leið Mikil kreppa gengur nú yfir flest nálæg ríki, bæöi austan hafs og vestan. Danir og Sviar hafa ekki kynnst öðru eins i áratugi, atvinnuleysiö hefur sjaldan veriö meira i Bandarikjunum og aldrei meira i Bretlandi. Margir hér á landi yppta öxlum og segja: þetta er ekki okkar mál. Viö Islending- ar erum blessunarlega lausir viö þessa kreppu og veröum þaö áfram. Viðskiptakjör í lágmarki En þetta er mikil glámskyggni. Islenskt efnahagslif er ekki ey- land einangraö frá efnahagslifi annarra landa. Crtflutningsverö á afuröum okkar er nú meö þvi lak- asta sem veriö hefur um langt skeiö, þegar miöaö er viö inn- flutningsverð. Þaö heitir á máli hagfræðinnar aö viöskiptakjör séu I lágmarki. Áhrif kreppunnar i nálægum löndum flæöa inn i landiö á hverjum einasta degi og marka sin djúpu spor I islenskt efnahagslif, sem m.a. lýsir sér i erfiöari afkomu atvinnuvega. Menn þurfa ekkert aö velta þvi fyrir sér, hvort kreppan i nálæg- um löndum nái til tslands. Hún er hér þegar þótt i annarri mynd sé, og spurningin snýst um þaö eitt, hvort okkur tekst aö bægja at- vinnuleysinu, versta fylgifiski kreppunnar, frá dyrum okkar. Engin von er til þess aö unnt sé að vinna úrsiitasigur I viöureign viö veröbólgu viö rikjandi að- stæöur og sist af öllu meö sk jótum hætti. Árangur 1981 Hins vegar getum viö nálgast markiö skref fyrir skref, ef allir leggja nokkuö af mörkum, hver meö sinum hætti. Þaö var einmitt þetta sem tókst svo prýöilega á siöast liðnu ári, þegar veröbólgu- hraöinn lækkaöi úr 60 - 70% og niður i 40 - 50%. Efnahagsaögerö- ir liöins árs veröa sigilt dæmi um velheppnaöa baráttu gegn verö- bóigu, sem skilaöi árangri án at- vinnuleysis og án rýrnandi lifs- kjara meö samræmdu átaki margra aöila. Launafólk fórnaöi nokkrum visitölustigum og fékk þau vissu- lega endurgoldin með kaupmátt- araukningu sem fylgir minnkandi veröbólgu auk skattalækkana. Búvöruverö varö lægra. Fisk- verö varö lægra. Atvinnuvegirnir fóru i langvarandi gengisbind- indi. Viö vorum sannarlega á réttri leiö. Þolinmœði og þraut- seigja ráða úrslitumi Seinustu mánuöi hefur hins vegar slegiö i bakseglin. Ytri aö- stæður eru nú töluvert erfiöari en áöur. Nýliöin átök um fiskverö hafa auk þess opinberaö þjóöinni fremur en margt annaö, hvernig hraöi veröbólgunnar spanast upp i alkunnum vitahring, þegar verst gegnir. Flestum var ljóst, að sjómenn áttu réttmæta kröfu um kjara- bætur viö síöast liöin áramót. Hins vegar voru engin rök til þess aö fiskverö til útgerðar- manna ætti aö hækka i réttu hlut- falli viö hlut sjómanna. Útgeröar- kostnaöur vex ekki I hlutfalli viö launakjör I landi. Einnig var augljóst, aö sérstök aukahækkun fiskverös til útgerö- armanna gæti ekki leitt til annars en meiri gengisfellingar i þágu frystihúsa, sem aö sjálfsögöu táknar hærra vöruverö til al- mennings og þar með hærri verö- bætur á laun, en siöan heldur snúningurinn áfram með nýrri hækkun fiskverðs. Vitahringur verðbólgunnar er alþekktur og gengisfellingar löngu orönar þaö fiknilyf atvinnu- veganna sem ekki er auövelt aö venja menn af. Enginn heldur þvi fram að aö- gerðir rikisstjórnarinnar sem kynntar eru hér i kvöld séu var- anleg úrræöi gegn veröbólgu. I erfiöri styrjöld vinnst ekki sigur með einni sókn. Úrslitum ræöur hvort menn hafa þolinmæöi og þrautsegju til aö skipuleggja nýj- ar aögeröir hvenær sem aðstæöur krefja og gefist ekki upp, þótt móti blási. Lækkun verðbólgu um 10-15 prósentustig Það sem gildir nú er aö snúast af fullu afli gegn bylgju vaxandi veröbólgu sem aö okkur hefur sótt seinustu vikurnar. Sú leiö er valin aö þessu sinni aö sneiöa of- an af skafli veröbólgu meö þvi aö greiða niöur vöruverö aö jafngildi 6 visitölustiga á fyrri hluta þessa árs, en þaö mun iækka veröbólgu á árinu öllu, þegar áhrif þessara aögerða margfaldast saman, sem svarar til 10 - 15 prósentustiga. Vissulega er þetta engin fram- tiöarlausn. Þetta eru einhliöa aö- geröir rikissjóös sem duga til aö andæfa meöan beöiö er lags aö hefja nýja stórsókn gegn verö- bólgu meö sameiginlegu átaki. En þaö er óneitanlega styrk- leiki þessara aögeröa, að þær reyna ekki á þolinmæöi verka- lýöshreyfingar eöa vinnuveitenda og skeröa ekki gildandi kjara- samninga. Heimilistæki og búvöruverð Aðgeröir rikissjóös til niöur- færslu verölags eru meöal annars þessar: I dag var lagt fram frumvarp um lækkun tolla á ýmsum teg- undum nauösynlegra heimiiis- tækja, m.a. kæliskápum, frysti- kistum, þvottavélum, þurrkur- um, uppþvottavélum, eldhúsvift- um, hrærivélum, ryksugum og brauðristum. Tollarnir lækka úr 80% I 40%. Um næstu helgi lækkar einnig verö á mikilvægustu landbúnaö- arvörum all verulega, m.a. á kartöflum, kindakjöti, smjöri og mjólk. Búvöruverö til bænda hækkar aö vísu aftur 1. mars samkvæmt ákvöröun verölags- ráös landbúnaöarins. En hækkun til neytenda veröur minni en ella heföi veriö, þvi niöurgreiöslur verða enn auknar 1. mars og aftur 1. mai og 1. júni. Gert er ráö fyrir aö kostnaöur rikissjóös af þessum aögerðum nemi um 350 millj. króna. Þetta fé er fengið meö þrennum hætti: Rúmlega helmingur þess, um 190 miljónir króna, eru fengnar úr fjárlögum ársins, þ.e. af tekjum sem ekki er þegar ráöstafað til annars. Um þriöjungur eöa 120 miljónir eru fengnar meö sparnaöi og auknu aðhaldi I rikisrekstri. En 40 milj. kr. eru fengnar meö sérstökum skatti á starfsemi banda og sparisjóða. Góð staða ríkissjóðs Aö sjálfsögöu væru þessar aö- geröir óhugsandi með öllu, ef rik- issjóöur stæöi ekki allvel um þessar mundir. Tvö undanfarin ár hefur rikissjóöur veriö rekinn meö nokkrum afgangi, svo aö skuldastaöan viö Seölabankann hefur gjörbreyst til batnaöar og hefur ekki veriö lægri siöan 1 árs- lok 1977 i krónum taliö þótt verö- lag hafi siöan fimmfaldast. I krafti þessarar góöu stööu er unnt aö beita fjármálum rikisins af fullu afli I viöureigninni viö veröbólguna án þess aö hætta sé á hallarekstri. Samanlögö áhrif þessara aö- geröa á nýbyrjuöu ári munu valda 10 - 15% lægri veröbólgu en ella hefði vefiö og er þvi ljóst aö til mikils er aö vinna fyrir alla aö- ila: kaupmáttur launa veröur meiri, staöa atvinnuvega sterkari og allar fjárveitingar og framlög til verklegra framkvæmda nýtast mun betur en veriö heföi án þess- ara aðgerða. Vissulega þarf aö kosta þvi til, aö rikiö veröur aö taka á sig veru- legan sparnaö i útgjöldum sem meöal annars felst I 6% lækkun fjárveitinga til verklegra fram- kæmda. En þrátt fyrir þessa al- mennu lækkun á framlögum veröur framkæmdagildi fjárveit- inga talsvert miklu meira en yröi ef aukin veröbólga skæri allar fjárveitingar niöur um 10 - 15%. Dregið úr utanferðum og yfirvinnu Stefnt er aö þvi meö margvis- legum hætti aö draga úr reksturs- kostnaði rikisstofnana. öllum stofnunum veröur gert aö draga úr yfirvinnu samkvæmt ákveðnum reglum og takmarka utanferöir opinberra starfs- manna, eins og kostur er. Veröur þess krafist aö menn geri full- nægjandi grein fyrir löngum og tiöum feröum til annarra landa á kostnaö rikisins, en eftirlit með slikum útgjöldum hefur ekki ver- ið nægilegt. Lækkun rikisútgjalda mun skiptast til helminga á rekstrar- framlög og verklegar fram- kvæmdir. Auk þessara ráöstafana til niö- urfærslu verölags veröur nokkur tilfærsla á óbeinum sköttum sem einkum er til hagræöis fyrir fisk- iönaö og framleiösluiönaö meö lækkun stimpilgjalda á afurða- lánum og lækkun launaskatts um 1% hjá þessum atvinnugreinum, en tekna er aflaö á móti meö sér- stöku tollafgreiðslugjaldi. Þessi tilfærsla er ekki veruleg, en léttir þó undir meö þessum atvinnu- greinum. Áföll og andóf Afleitar ytri aðstæöur, sem ég áöan nefndi, lágt verö á afuröum °g aflabrestur á loðnuveiöum verður þess valdandi, aö þjóöar- tekjur aukast ekki á þessu ári og dragast jafnvel saman. Viö þvilikar aöstæöur er ekki aöeins á brattann aö sækja i verö- bólgumálum. Litil von er til þess, meðan þannig er ástatt, aö kaup- máttur launa fari vaxandi eöa al- menn neysla þjóöarinnar aukist. Meðan kreppan varir I þessum heimshluta, er mikiö fengiö, ef okkur tekst aö halda I horfinu og andæfa án þess aö atvinnuleysi skelli yfir eöa lifskjör skeröist. En viö getum margt gert til aö undirbúa nýja sókn til bættra lifs- kjara. Gagnger endurskipulagning og hagræöing i Islensku atvinnulifi er og veröur forsenda þess, aö unnt sé aö brjótast út úr vitahring verðbólgunnar. Þaö er sorglegur misskilning- ur, þegar menn imynda sér, aö veröbólgan hverfi úr sögunni, ef hætt verður aö greiöa veröbætur á laun. Verkalýöshreyfingin er áreiö- anlega tilbúin aö taka þátt i efna- hagslegu uppgjöri, þar sem sam- an færu minni verðhækkanir, minni hækkun fiskverðs og bú- vöruverðs, minni gengisfellingar en verðbætur á laun yröu aö sama skapi lægri. Vafalaust er unnt meö skipulögðu átaki að stytta hækkunartilefnin út og stööva hækkanir, sem gengju þá hver upp á móti annarri. Með sameig- inlegu uppgjöri margra hags- munaaöila mætti þannig ná veru- legum áfanga i átt aö lægra verð- bólgustigi. En visitölubætur laun- þega einar sér eru ekkert aöalatr- iöi málsins. Við veröum aö horfast i augu viö þá staöreynd, aö um leiö og veröbólga er hér meiri en i nokkru nálægu landi hefur þaö lengi veriö sérkenni á islensku efnahagslifi aö halda útflutnings- atvinnuvegum gangandi með endurteknum gengisfellingum. Þetta er gert til aö halda fyrir- tækjunum uppi og forðast at- vinnuleysi. 011 setjum við atvinnuöryggi og stööuga framleiöslu ofar ööru. En þvi veröur ekki neitaö, að þessi látlausi þrýstingur atvinnu- rekstrarins á gengi krónunnar, oft meö býsna óábyrgum hætti en ein helsta undirrót mikillar verö- bólgu hér á landi. Endurskipulagning atvinnulífs Með endurskipulagningu og stóraukinni hagræöingu veröur aö létta þessum þrýstingi af og gera atvinnureksturinn ábyrgari, eða með öörum orðum að venja hann af deyfilyfi sífelldra gengis- fellinga. Takmörkun á afla og úthaldi fiskiskipa og vaxandi hömlur á innflutningi skipa kalla jafnframt á nýja fiskveiöistefnu. Svo aö dæmi sé nefnt er augljóst aö byggöalög sem eiga allt sitt undir útgerö og fiskvinnslu geta aldrei sætt sig viö þaö ástand aö missi þau skip af staönum, t.d. i annan landshluta, þá standi menn uppi aflalausir og atvinnulausir og megi ekki útvega sér annaö skip. Breytt viöhorf i fiskveiöimálum knýja sem sagt á þaö, ef fiski- skipaflotinn á ekki aö stækka ár frá ári, aö löndun og dreifing afl- ans sé endurskipulögö og stór- aukin samvinna veröi tekin upp á þessu sviöi undir forystu stjórn- valda. Sama má raunar segja um fjöldamargt annaö i islensku at- vinnulifi, m.a. um innkaup og innflutning á helstu nauðsynja- vörum landsmanna. Óhagstæö innkaup á erlendum vörum og hlutfallslega dýrt og óhagkvæmt innflutningskerfi hefur vafalaust lagt sinn mikla skerf til verðbólg- unnnanhér á landi. Herra forseti. Timi minn er á þrotum. Stýrinu snúið nokkrar gráður Þessar umræður eru ætlaöar til aö varpa ljósi á efnahagsaögeröir rikisstjórnarinnar. Margir munu nefna þessar ákvarðanir skammtimaaögeröir og þaö er hárrétt. Þær eru þaö. Þegar skipstjórinn snýr stýrinu nokkrar gráöur ástjórnboröa til aö forðast grynningar, þá er þaö sannkölluö skammtlmaaögerö. Og þó er hún jafn nauösynleg þar fyrir. En vafalaust þarf skipstjór- inn aö snúa stýrinu aftur að nokkrum tima liönum. Þaö er eöli allrar stjórnar. Hitt látum viö 1 léttu rúmi liggja, þótt Friörik Sófusson, stýrimaöur á gömlum kútter, sem alvarlegur leki hefur komist að vegna innbyröis illdeilna skip- verja standi fyrir hrópum og skjóti fram haldlitlum fullyröing- um. Fleyta hans hefur oft steytt á sker, einmitt af þvi aö ekki var tekiö i styriö, þegar þaö átti viö. En okkar skip er á réttri leiö og þaö er fyrir mestu. Tollarnir lækka úr 80 i 40% á ýmsum tegundum nauösynlegra heimiiistækja, m.a. á kæliskápum, frysti- kistum, þvottavélum, þurrkurum, uppþvottavélum, hrærivélum.ryksugum og brauðristum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.