Þjóðviljinn - 30.01.1982, Blaðsíða 24
24 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 30.—31. janúar 1982
Myndlistaskólinn í Reykjavík
Tryggvagötu 15
Skólinn hefur nú flutt starfsemi sína aö
Tryggvagötu 15, 6. hæð, inngangur er frá Grófinni
við hornið á Tryggvagötu.
Kennsla hefst mánudaginn 1. febrúar
samkvæmt stundarskrá.
daegurtónlist
Bow
Wow
Wow
Sköpun Bow Wow Wow má
þakka þeim umdeilda Malcolm
McLaren. Hann var hér á árum
áður umboðsmaður Sex Pistols
viö heldur vafasaman orðstir.
Sagan um fæðingu BWW er á
þá leiö að Malcolm hafi hrein-
lega rekið Adam úr gömlu
Adam and the Ants sem hann þá
var umboösmaöur fyrir og tekið
sjálfur aö sér hlutverk Adams.
Adam and the Ants var á
þessum tima meiriháttar
„kúltúrpönkband". Við brott-
reksturinn hirti Adam nafnið og
gerði samning við C.B.S. og
varð störstjarna. En Malcolm
og félagar stofnuðu BWW
Malcolm tolldi ekki lengi i
sviösljósinu. bvi fékk hann hina
15 ára Anabellu Lwin til að
ganga til liðs við hljómsveitina.
Það var fyrst þá sem hjólin fóru
aöganga hjá þessum fyrrver-
andi„Maurum”. Þau komust á
samning hjá EMI en hættu þar
fljótlega og fluttu sig þess i stað
yfir á R.C.A.
Maicolm McLaren skapaði
nýja imynd fyrir hljómsveitina.
Fáránlega Imynd um villt
náttúrubörn.Hljómlistin tók
einnig miklum stakkaskiptum
frá dögum Adam and the Ants.
BWW hafa algerlega snúið sér
frá pönkinu og þess I stað að
meiriháttar „pælingum” i S-
Ameriskri tónlist, þar sem hinn
sterki danstaktur S-ameriskrar
tónlistar ræður rikjum.
Tónlistarblanda af þessu tagi
fellur i grýttan jarðveg i minum
eyrum. Þeir kumpánar Dave
Barbarossa, Matthew Ashman
og Leroy Gorman eru allir
Anabella I fullum skrúða.
ágætir tónlistarmenn. Sérstak-
lega finnst mér trommuleikur
Dave Barbarossa skemmti-
legur. Söngur Anabellu er
sæmilegur, ekki góður og ekki
lélegur.
Textar plötunnar eru frekar
einfaldir og oft á tiðum hund-
leiðinlegir.
t heild þá finnst mér þessi
plata þreytandi og leiðinleg. Eg
var frekar hrifinn eftir aö hafa
heyrt hana I fyrsta sinn en eftir
að hafa spilað hana nokkrum
sinnum get ég með engu móti
fengiö mig til að hlusta á hana.
jvs
55
Bodies”
missa
Magga
trommara
LAUNÞEGAR!
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
skattframtala 1982 er ^
FEBRUAR
Síðasti skiladagur fyrir einstaklinga með
sjálfstæðan atvinnurekstur er lö.mars.
Ríkisskattstjóri
Þrir fjóröu hlutar hljóm-
sveitarinnar Bodies sitja nú
eftir með sárt enniö og horfa á
bak einum fjórðungnum, þeim
ágæta trommara Magnúsi Stef-
ánssyni. Að sögn Mikes Pollocks
mun Magnús hyggja á samstarf
við Björgvin Halidórsson söngv-
ara.
Þessi skyndilega brottför
Magnúsar úr „Bodies” kemur
sér sérstaklega illa fyrir hljðm-
sveitina nú, þegar hún er á leið
inn i stúdió til að taka upp fjög-
urra laga plötu. En Mike
Pollock sagöi að þeir myndu
halda ótrauðir áfram og væru
strax byrjaðir að leita aö nýjum
trommara, þvi að framundan
hjá Bodies væri m.a. hljóm-
leikaferö um landið. a
Magnús, fyrrum trommuleikari
i Utangarðsmönnum og Bodies.