Þjóðviljinn - 30.01.1982, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 30.01.1982, Blaðsíða 9
Helgin 30.-31. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Kvikmynd Wajda um myndun frjálsra verkalýðssamtaka í Póllandi sýnd á kvikmynda- hátíðinni sem hefst í dag í Regnboganum Andrzej Wajda: „Segið mér ekki að hún sé falleg, eöa ljót, segið mér hvort hún er sönn”. Járnmaöurinn: lærdómur sögunnar Marmaramaöurinn Birkut, vinnuhetja stalíntimans og faöir Járn- mannsins. Kápuefni, pilsefni, buxnaefni og kjólaefni 30-75% verðlækkun Markaðurinn Aðalstræti 9 — Það mikiivægasta er, að ekki sé sagt um mynd- ina hvort hún sé falleg eða Ijót, heldur hvort hún sé sönn. Núna eru stjórn- málin of mikilvæg. Það sem nú gerist í Póllandi talar fyrir sig sjálft, og ég hef ekki í hyggju að setja sjálfan mig upp á milli sögunnar og áhorfenda. Ég er fyrst og fremst leik- stjóri, en i þetta skipti fann ég að ég varð að draga mig hæversklega til hliðar.— Þetta er haft eftir pólska kvik- myndaleikstjóranum Andrzej Wajda, höfundi kvikmyndarinnar Járnmaðurinn.sem hann lauk við á siöasta ári við fáum aö sjá á kvikmyndahátíöinni, sem hefst i Regnboganum á laugardag. Kvikmyndin Járnmaöurinn er byggö upp sem framhald meistaraverksins Marmara- maöurinn, sem viö sáum á síö- ustu kvikmyndahátíð. Sagt er aö hugmyndin aö kvikmyndinni hafi fæöst fyrir framan verksmiöju- hliöin I Danzig, þar sem Wajda var aö taka heimildarkvikmynd- ina Verkamenn 80. Þar á einn verkamannanna aö hafa undiö sér aö Wajda og spurt: „Heyröu, Andrzej, hvenær ætlaröu aö byrja á Járnmanninum?” — „Járnmanninum, — ég veit ekkert um hann,” svaraöi Wajda. „Jú, þaö er gott nafn á mynd, þú veröur aö gera hana.” Þaö liöu ekki nema sex dagar, og þá var handritið til, þvi hér þurfti skjót handtök. Eins og mörgum mun i fersku minni, þá fjallaöi Marmara- maðurinn um verkamannshetj- una, stakkanovinn, sem gat lagt 30 þúsund múrsteina á 8 klst. vakt. Þaö var kvikmyndaneminn Agnieszka sem fann marmara- styttuna af verkamannshetjunni Mateusz Birkut uppi á geymslu- lofti og ákvaö aö gera um hann lokaverkefni sitt á kvikmynda- skólanum. Kvikmyndin sýndi siöan hvernig hún grefur upp sögu þessarar gleymdu hetju Stallntlmans I sögu Póllands. Hún sýnir okkur hvernig „hetjan” er leidd sem sýningargripur á milli vinnustaöa og hvernig afrek hans eru notuö til þess aö auka vinnu- álag venjulegs verkafólks sem aö lokum hefnir sin meö þvl aö láta glóandi heitan stein i hendur hans. Fyrir þetta er Witek vinur hans siöan handtekinn og dæmdur. Agnieszka kemur á fund Witeks eftir aö hann hefur hlotiö náöun sem eitt af fórnarlömbum stalintimans og veriö geröur aö forstjóra stórs fyrirtækis. Honum er tregt um svör, sem og flokks- broddinum, sem yfirheyröi hann á sinum tima en rekur nú striptis- bar i Varsjá. Þaö er fyrst eftir aö Agnieszka hefur fundiö son Birkuts, sem hún kemst aö hinu sanna. Sonurinn vinnur I skipa- smiöastööinni I Danzig, og hann segir henni aö faöir sinn hafi dáiö gleymdur og fyrirlitinn. ÚTSALA ÚTSALA Járnmaðurinn er framhald þessarar sögu.Þar kemur þaö fram, sem Wajda gat aö öllum likindum ekki sagt á valdatima Giereks, aö Birkut haföi veriö skotinn á götu i verkföllunum i Danzig 1970. Sonur hans, sem nam verkfræöi, haföi tekiö þátt i andófi námsmanna á árinu 1968 og hlotiö vanþóknun fööur sins fyrir. Hann er nú hættur námi og oröinn verkamaöur i Lenin-skipa- smiöastööinni i Danzig, þar sem hann stendur fyrir andófi og verkföllum meöal verkamanna. Hann kynntist einnig Agnieszku, og þau gifta sig fyrir framan ka- þólskt altari þar sem vigslu- vottarnir eru leiknir af engum öörum en Lech Walesa og önnu Walentynowicz, en hún er einnig þekkt sem einn af frumkvöðlum Solidarnosc. Eins og deilan á milli Birkut og sonar hans Maciek sýndi á vissan hátt andúö verka- manna á uppreisn æskunnar og andófi menntamanna fyrir 1970, þá veröur þetta brúökaup fyrir kaþólsku altari einnig sögulega táknrænt fyrir Wajda, þar sem hin nýja kynslóö upplýstra verka- manna og hin nýja kynslóð menntamanna játast hvor annarri. Inn i þessa sögu eru fléttaöar fjölmargar „heimildar- myndir” sem gera myndina að beinni tilvisun til hinnar sögulegu framvindu I Póllandi. Maciek, sonur marmara- mannsins Birkut, veröur tákn þeirrar verkalýösstéttar sem reis upp og stofnaöi hin óháðu verka- lýössamtök. 1 Járnmanninum er þaö einnig blaöamaöur, i þetta skipti frá út- varpinu, sem leikur eitt af lykil- hlutverkunum. Þetta er veik- lundaður maöur sem leikur eftir reglum kerfisins og drekkur vodka reglulega. Hann er sendur frá Varsjá til Danzig undir þvi yfirskini aö hann eigi aö greina frá verkföllunum, en raunveru- lega var honum faliö aö koma höggi á verkfallsforsprakkann Maciek. Þar á hann viö ramman reip aö draga i áfengisbanni verkfallsnefndarinnar og myndinni lýkur I ágúst 1980, þegar Lech Walesa undirritar samkomulagiö á milli verkfalls- nefndarinnar og rikisvaldsins um viöurkenningu hins óháöa verkalýösfélags. Myndin skilur viö okkur þar sem útvarpsmaöur- inn hefur hrifist meö I baráttuna þrátt fyrir áfengisbanniö og til- kynnir uppsögn sina úr starfi. Maciek fer hins vegar aö gröf föö- ur sins og segir þar i sögulegri kynslóöasátt aö hann skilji nú híutverk sitt og viti nú hvers vegna faðirinn hafi falliö en full- trúi stjórnvaldanna kemur m,eð þá yfirlýsingu aö samkomulagiö viö verkfallsmenn hafi verið gert undir þrýstingi, og þvi sé ekki hægt aö treysta þvi aö þaö verði haldið. Framhaldiö er opin bók, en þaö er undir samstööunni komiö. Þeirri samstööu sem brást 1968, þegar námsmenn stóöu einir, þeirri samstööu sem brást einnig 1970, þegar verkamenn stóðu einir. Krystyna Janda og Jerzy Radziwillowicz sem Agnieszka og Maciek: brúökaup verkalýösstéttar og menntamanna. Vigsluvottar eru þau Lech Walesa og Anna Walentynowicz i eigin persónum. Myndinni var misjanlega tekiö i Póllandi, á siðasta ári. Sumir sögöu aö Wajda væri aö notfæra sér sögulega atburöi sjálfum sér til framdráttar. Lech Walesa hafði um myndina þau orö, aö hún væri yfirdrifin og taldi hættu á aö hún vekti haturstilfinningu. Sjálfur hefur Wajda eitt sinn sagt um kvikmyndir sinar: „t kvikmyndum hins svokallaöa pólsfca skóla, sem ég tilheyröi einnig, var hetjan alltaf maöur, sem skildi ekki söguna og beiö þvi lægri hlut. Sagan geröi útaf viö hann, hann var ávallt borinn ofurliöi af sögunni.” Þaö er kaldhæöni örlaganna, aö nú skuli Lech Walesa, sem ótvi- rætt er fyrirmyndin aö Maciek, sitja 1 stofufangelsi og herlög vera gengin i garö. En framhald sögunnar er þó enn óskrifaö blaö. Kannski gefur myndin okkur auk- inn skilning á sögunni, og þá er tilganginum náö. ,j]g rjoisKyiduna Þegar hónnun oa framlelö«ltt skiöa er ttnnars vegar standa fttir - ©f nokkrtr - AusturrrkismönrHjm á sporöi. Nú býöur Sportval ótrúleot úrvttl hinna beimstraaou sklöa peirra - og allir finntt skíöi viö sitt nttrfi. v johjkyldur, byrjendur. áhugamenn, keppendur, - PORTVAL Vió Htemrntorg-s»narÍ4390& 26690 SALOMON 727 Frönsk tœkni, byggö á áratugtt reynslu, nýtur sfntil fulls í Salomon oryggisbindingunum. - „Óruggustu öryggisbindingUnumT' Caber. Allir eru sammála um fegurö og gœöi ftöisku Caber skónna. Þægilegir en traustrr - sannkölluö meitttarahönnun og framleiösla.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.