Þjóðviljinn - 30.01.1982, Qupperneq 11
Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri
Islenska járnblendifélagsins hf:
Helgin 30.—31. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 11
Að hafa það, sem
sannara reynist
I sunnudagsblaði Þjóðviljans
23.—24. janúar s.l. skrifar Stefán
Jónsson alþm. alllanga grein
undir yfirskriftinni Sjávarútveg-
ur og stóriöja. 1 siðari hluta þess-
arar greinar eru leidd fram ýmis
rök, sem virðist ætlað að sýna
fram á hversu fjárfesting i
sjávarútvegi og fiskvinnslu beri
af fjárfestingu i orkuverum og
stóriðju. Ýmislegt talnaefni er
birt þessum sjónarmiöum til
sönnunar, þ.á. meðal frá verk-
smiðjunni að Grundartanga. Má
ráða af greininni, að alþingis-
maðurinn teldi þjóðinni betur
borgið, ef starfsmenn járnblendi-
félagsins væru i fiskvinnslu á
Skaga heldur en framleiðslu á
kisiljárni með stórfelldum halla.
Höfundur þessarar greinar ætl-
ar sér ekki að blanda sér inn i viö-
ræður þingmannsins við lesendur
Þjóðviljans um stóriðju almennt.
Hins vegar telur hann sér skylt að
upplýsa nokkur atriði, einkum i
sambandi viö það talnaefni, sem
þingmaðurinn leiðir fram máli
sinu til stuðnings.
1 greininni er gengið út frá þvi,
að framleiðsluverðmæti á mann
gefi til kynna þjóðhagslegt mikil-
vægi atvinnugreinar. Þannig er
það tiundað, að framleiðsla út-
gerðar og fiskvinnslu á landinu
öllu 1980 hafi verið sem svarar 243
þús, nýkr. á hvern mann, sem
starfaöi i þessum greinum .Fram-
reiknaö til verömætis ársins 1981
eru þetta taldar vera 345 þús.
nýkr. Með þvi að margfalda
þessa tölu meö 150 starfsmönnum
járnblendifélagsins telur þing-
maðurinn, að þeir hefðu skilað
51.7 milj. nýkrónum ,,i þjóðar-
sjóð”, ef þeir heföu unnið i fiski, i
staö þess taps, sem var s.l. ár á
rekstri járnblendifélagsins. 1
grein sinni heitir þingmaðurinn á
menn að vera duglegir i reikn-
ingi, þegar þessi mál eru skoðuð
og má taka undir það, Hins veg-
ar gefur þingmaðurinn ekki gott
fordæmi i þvi efni með þeirri rök-
semdafærslu sem hér er rakin,
eins og nánar skal sýnt fram á.
Sé framleiðsluverðmæti á
mann mælikvarði á þjóðhagslegt
gildi fiskveiða og -vinnslu, ætti
hann að vera jafngildur fyrir
stóriðju. Framleiðsluverðmæti
járnblendifél. 1980 reiknað á
nettóútflutningsverði þess árs var
84.3 milj. nýkróna. Starfsmanna-
fjöldi var að meðaltali 153.7,
þannig að framleiðsluverðmæti á
hvert mannár var rúmlega 548
þús. nýkr. Þessi sama tala fyrir
1981 mun hafa losað 800 þús. kr. á
mann. Bæði árin er þetta verð-
mæti riflega tvöfalt á við það,
sem þingmaðurinn tiundaöi fyrir
fiskveiðar og -vinnslu, jafnvel
þótt nýting framleiðslugetu járn-
blendifélagsins væri þessi ár ekki
nema 50—60% og verðlag bæöi ár-
in mjög óhagstætt. A sama tima
var afli og fiskmetismarkaðir all-
góðir. Samkvæmt þessu mætti
nota röksemdafærslu þingmanns-
ins til að sýna fram á mun meira
framlag kisiljárnframleiðslu en
fiskveiða og -vinnslu ,,i þjóðar-
sjóð”.
Astæðan til að þetta er ekki
unnt að gera er sú, að röksemda-
færslan er röng. Framleiðslu-
Athugasemd við
skrif Stefáns
Jónssonar alþm
um sjávarútveg
og stóriðju
verðmæti á mann er ekki nothæf-
ur mæiiRvaröi einn sér til pessa
og reikningar, sem á þvi eru
byggðir hljóta að vera villandi.
Þingmaðurinn stigur þó skrefinu
lengra i marklausum saman-
burði, þegar hann ber saman
framleiösluverbmæti (heildar-
veltu) i einni grein, þeirri góðu,
og afkomu (tap) i annari, þeirri
vondu.
Það, sem skiptir máli i slikum
samanburði er raunveruleg af-
koma atvinnurekstrar til lengri
tima litið og þar með geta hans til
að greiða laun, skatta og arð af
fjármagni og til að fjármagna
þróun, endurnýjun og vöxt at-
vinnugreinarinnar.
Ferill járnblendifélagsins er
enn of stuttur til að slikt mat verði
lagt á það sem dæmigert stóriðju-
fyrirtæki. Félaginu hefur i raun
gengið allt i haginn annað en að-
gangur aö orku og markaður fyrir
söluvöruna. Þetta tvennt hefur
hins vegar valdið þvi, að félagið
hefur enn hvorki reynt fulla
framleiðslu né eðlilegt verð. Ljóst
er þó af rekstri verksmiðjunnar,
að við eðlilegt verð og sæmilega
nýtingu framleiðslugetunnar er
þessi framleiðsla arðbær og þeim
mun hagkvæmari sem lengra liö-
ur. Núverandi rekstrarafkoma
félagsins er þess vegna engin vis-
bending um, að fjárfesting i þess-
um iðnaði sé slæm, heldur ein-
ungis staðfesting á þvi, að aftur-
kippur er rikjandi i efnahags- og
viðskiptalifi allra helstu mark-
aðslandanna.
Þótt vitmenn á sviði efnahags-
mála treystist ekki til að spá,
hvenær bata sé að vænta i þessu
efni, munu þeir sammáia um, að
þetta ástand sé ekki varanlegt.
Mat á fjárfestingu i stóriðju mið-
að við stöðu mála i dag væri þvi
óraunhæft.
Beinn samanburður við afkomu
fjárfestingar i sjávarútvegi mið-
að við stöðuna i dag er þeim mun
fráleitari vegna fjölda óvissu-
þátta. Verðlag á fiskafurðum er
allgott. Magn botnfisks er meira
en nokkru sinni. Halli útgerðar og
fiskvinnslu nemur hundruöum
miljóna auk þess óbeina stuðn-
ings, sem útgerð og fiskvinnsla
nýtur i lánum, vöxtum, sköttum
sinum og sjómanna, launaskatti,
aðstöðugjöldum, hafnargjöldum
og meðferð gengishagnaðar. Við
þetta bættist m jög vafasöm geng-
isstefna og stefna um afkomu at-
vinnurekstar almennt.
Þannig eru þau reikningsdæmi,
sem þingmaðurinn réttilega
bendir á að reikna þurfi vand-
lega, miklu flóknari og þjóðhags-
lega mikilvægari en svo, að yfir-
borðsleg og blekkjandi meöferð
hans á tölum sé við hæfi.
Höfundur þessarar greinar er
ekki eins viss og þingmaðurinn
um niðurstöður samanburöar af
þessu tagi einn veg eða annan. En
inn i hið stjórnmálalega mat á
fjárfestingu i útvegi og öðrum
greinum hlýtur að þurfa að taka
að nýting auðlindanna, sem út-
vegurinn byggist á er þaninn til
hins itrasta.
Þingmaðurinn segir i grein
sinni: „Islendingum hefur tekist,
einum allra þjóða, að byggja
traust velferðarriki á fiskveið-
um”. Hefur honum sést yfir, aö
þessi grundvöllur er nú til af þvi
að spár okkar lærðustu fiskifræð-
inga hafa reynst blessunarlega
rangar? Hversu traust heldur
þingmaðurinn að þetta riki væri
eða áreiðanlegt hvert atvinnu-
tækifæri i útveginum, ef þær
heföu reynst réttar.
Blaðberabíó
í Regnboganum Iaugardaginn30. jan. kl. 1 í sal
B:
Stúlkan á eyöieyjunni
Ævintýramynd í litum.
UOBMUINN
J.S. 26.01.82.
”MANNSHVARF”
f* Æm~ JLt
Graciela MELLIBOVSKY Saidler,
Argentína. 34 ára, hagfræðingur,
„hvarf” 25. sept. 1976.
ABSTANDENDUR BÚA
VID ÓVISSU - EIGA ÞEIR
AÐ V0NA EÐA SYRGJA?
Það er algeng aðferð ríkisstjórna í ýmsum löndum að láfa fólk
„hverfa”. Þetta eru ekki aðeins yfirlýstir pólitískir and-
stæðingar, heldur einnig almennir borgarar, sem eru yfirvöldum
þyrnir í augum. í mörgum tilfellum er um að ræða leynilega
aftöku án dóms og laga. Þannig hafa þúsundir manna „horfið”
að undirlagi yfirvalda síðastliðin 10 ár.
Styðjið baráttuna fyrir skoðanafrelsi, og gegn pyntingum og dauðarefsingu með því að gerast meðlimur
í Amnesty International. Námskeið verður haldið á vegum íslandsdeildar Amnesty International
2. og 3. febrúar 1982. fyrir þá sem vilja kynnast starfsemi A.l. og hvernig þeir geti gerst virkir félagar.
-:>€
ISLANDSDEILD
amnesty
international
Pósthólf 7124, 127 Reykjavik
”MANNSHVARF”1982
Nafn
Nafnnúmer Sími
| Heimilisfang
□ Námskeiðsþátttaka □ Virkur □ Styrktarfélagi