Þjóðviljinn - 30.01.1982, Page 21
Helgin 30.—31. janúar 1982 þjóÐVILJINN — StÐA 21
Varsjá i rústum árið 1945.
keypt ódýrt danskt smjör tlutt
þaö meö sér til Danmerkur aftur
og selt það þar, og fjármagnað
þannig ferðina. Einhverntima
heyrðist lika eitthvað um ódýrt
islenskt nautakjöt i Englandi og
Færeyjum.
Laun og
launajöfnuður
Eitt höfuðbaráttumál Samstöðu
er launajöfnuöur. Lögboðin lág-
markslaun eru u.þ.b. 2000 zl. á
mánuði og meöallaun iönverka-
fólks u.þ.b. 6000 zl. á mánuði.
Þrátt fyrir fagurt tal um launa-
jöfnuð kynjanna eru samt laun
iðnverkakvenna um 1000 zl. lægri
launum kolleganna af hinu
kyninu. Iðnverkafólk er þó tiltölu-
lega vel launaö. Samkvæmt þvi
sem Olga segir getur duglegur
iðnverkamaöur, sem vinnur eftir
einhverskonar bónuskerfi, hæg-
lega haft 12000—15000 zl. á mán-
uði. Olga, sem er hjúkrunarkona,
hefur 8000 zl. á mánuði, og
Andrej, sem er hagfræöingur að
mennt og deildarstjóri hefur
16.800. Sjálfur Jaruselski hefur
28.200, — opinberlega — , bættu
þau viö og glottu.
Það fer ekkert á milli mála að
launamunur er feykilegur, og þó
er efnalegt misræmi mun meira
en opinberar tölur segja til um.
Tölur segja aðeins þann sannleik
sem þær eiga að segja. Þessar
opinberu tölur segja ekkert um
þau launuöu aukastörf sem fólk
hefur fyrir utan kerfiö. Þær segja
heldur ekkert um hiö mikla
svartamarkaösbrask sem hvergi
fer leynt. Og þær segja náttúrlega
ekkert um mútur.
Hver ferðalangur, sem stigur
fæti á pólska grund, hlýtur að
kynnast klóm hinna allt um
ráfandi hrægamma götunnar,
sem virðast þrifast svo vel i þvi
kerfi sem þeir hata. Hver sá túr-
isti, sem hvorki er fábjáni né
haldinn hugsjónarembu, fellur i
freistni og skiptir gjaldeyri á
hinum svarta markaði götunnar.
Verðið er þar 5—6 sinnum hærra
en hið opinbera gengi, ca. 4,2 zl. i
einni krónu, en gjaldeyrisgamm-
arnir, sem rölta um götur meö
mörg mánaðarlaun verkamanns i
einum vasa, svifast einskis til að
halda bæði zlotisum og gjaldeyri.
Grandalaus feröamaöur er yfir-
leitt léttfengin bráö. „The
system! Oh jes, that’s just some-
thing for the birds”.
Þaö er engan veginn ætlunin aö
reyna aö kryfja svartamarkaös-
braskið, sem er einn augljósasti
votturinn um spillinguna i pólsku
samfélagi. En þær ofsalegu fjár-
hæðir sem eru i veltu fyrir utan
kerfiö sýna svo ekki veröur um
villst, að efnahagslegt misræmi
er mikið. Eins og ástandið er nú,
er efnalagur munur ekki neinn
verulegur millum þess sem hefur
i mánaðarlaun 6000 zl., og hins
sem hefur 16.000 zl. Peningar eru
fyrstog siðast ávisanir á vörur og
i Póllandi skortir vörurnar, svo
ávisanirnar, þó þær séu uppá
16.000 zl. eru litils virði. Sá sem
hefur nægan gjaldeyri skortir
hins vegar ekkert, — þá er enginn
skortur á vörum
Gjaldeyrisbraskiö sýnir einnig
hversu falskt hið opinbera gengi
er, en það er gengiö á svarta-
markaðinum lika og kannski enn
frekar. Þó hægt sé að fá fyrir 200
danskar krónur, sem er u.þ.b.
fjögurra tima kaup verkamanns i
Danmörku, upphæð i zlotisum
sem er nær mánarlaun pólsks
„kollega”, þá segir þetta samt
ekkert nema hversu hungrið eftir
vesturlenskum vörum er mikið.
Ef dæmið er hins vegar skoöað út
frá þvi hvaö grunnnauösynjar
kosta, annars vegar i Danmörku
og hins vegar i Póllandi, (ef þær
þá fást) og miðað viö meöal
verkamannalaun i hvoru landi,
þá breytist útkoman zlotisinu i
hag.
Barátta upp á
lif og dauða
1 Póllandi á sér staö barátta
upp á lif og dauða. Ekki einungis
milli Samstöðu og flokksins
heldur og innan flokksins sjálfs.
Þegar þetta er skrifað, i ágúst,
hefur komúnistaflokkurinn
endurnýjað forystu sina og mið-
stjórn. Þau öfl hafa orðið sterk-
ari, sem lita ekki á Samstöðu sem
samsafn gagnbyltingarafla,
heídur einhuga kröfu þjóðarinnar
um að njóta réttláts arðs eigin
vinnu. En baráttunni er ekki
lokið, — það er ekki nóg að skipta
um flokksforystu. Embættis-
mannakerfið er óbreytt, flest
gömlu möppudýrin halda áfram
sinni fyrri iðju i stjórnsýslunni.
Hver þekkir ekki mun§trið?
Flokkar fara og flokkar koma, en
gamla „góða” kerfiö fer hvergi.
Þeir sem hafa hreiðrað um sig i
kerfinu, og notað það sér til
persónulegs ávinnings, i svo
rikum mæli sem raun ber vitni
um, hafa bæði tögl og hagldir i
mörgum veigamiklum þáttum
þjóðlifs. Til dæmis stjórna
embættismenn einir allri dreif-
ingu. Þetta vald eru þeir nú að
nota til að skapa sem mestan
skort og ringulreið, — helst svo
mikla að hjálp berist að utan til
að endurlifga gamla „góða”
kerfið.
Matvæli eru eyðilögö i vestri til
að halda uppi verði og gróöa. t
Póllandi eru matvæli eyðilögö til
að skapa ringulreiö. Hversdags-
nauðsynjar eru orðnar illfáan-
legar, — ekki vegna þess að þær
séu ekki til, eða ekki framleiddar,
heldur hefur dreifingarkerfið
veriö lamað, þannig aö annað-
hvort komast þær ekki til smá-
salans eða eru ónýtar þegar
þangað er komiö. Sögur eru á
sveimi um kerfisbundna eyði-
leggingu á vörum m.a. með þvi að
grafa þær i jöröu.
Nýlega heyrði ég sögu, sem
lýsir vel þeim skorti sem farinn
er aö gera vart viö sig á hinum
hversdagslegustu nauösynjum:
„Likfylgd kom gangandi eftir
götu I einhverju úthverfi Varsjár.
Hún gekk fram hjá litilli búð, sem
hafði auglýst i einum glugga, aö
þar væri hægt að fá þvottaefni. A
augabragði leystist likfylgdin upp
og breyttist i röö fólks sem beið i
þolinmæði i þeirri von aö fá keypt
dálitið af þvottaefni.
Samstaða hefur gert sér skýra
grein fyrir hver höfuöand-
stæöingurinn er, enda hefur
baráttan að miklu leyti beinst
gegn hinum spilltu möppudýrum.
Um leið er forystu hreyf-
ingarinnar ljóst áð ekki er hægt
að þurrka út alla spillingu i einu
allsherjar áhiaupi, til þess eru
embættismenn of sterkir. Slik til-
raun myndi hins vegar geta haft
þá hættu i för með sér að þeir
fengju „kærkomiö” tækifæri til
að biðja um hjálp sem dygði,
annaðhvort að innan eöa utan.
Af þessum sökum hefur Sam-
staöa þróað meö sér baráttuað-
ferð sem hefur þýtt að á siðustu 12
mánuðum hefur hreyfingin
breyst úr þvi aö vera einungis
fagleg, i það að vera bæöi fagleg
og pólitisk fjöldahreyfing og hinn
eiginlegi valdhafi landsins. Þrátt
fyrir þessa staðreynd er Sam-
staöa samt engin pólitisk heild.
Hún er studd af fólki sem hefur
hinar ólikustu pólitisku skoðanir,
allt frá últrakommum til fasista,
en forystan hefur gert ljóst að hún
vill ekki sjálft kerfið feigt heldur
einungis spillinguna. Hin óliku öfl
hafa eitt markmiö sameiginlegt,
þegar þvi er náð splundrast Sam-
staða og ef til vill fyrr. Enn rikir
þó eining og agi sem and-
stæðingunum hefur ekki tekist að
deyöa.
Sem dæmi um ögunina og þá
vitund um gildi þolinmæðinnar
sem einkennir forystuna nefndi
Olga dæmi frá bænum Ciec-
hanów. — Deild Samstöðu þar i
bæ, vildi koma mótmælum og
kröfum á framfæri við flokks-
forystu bæjarins, en var svaraö
meö brynvöröum vögnum og
fjölda hermanna sem umkringdu
flokksmiðstöðina, — þangað
skyldu engin mótmæli berast.
Fulltrúar Samstöðu fóru samt af
stað og er þeir mættu þessum
hindrunum settu þeir sig I biö-
stööu. Er þeir voru beðnir aö hafa
sig á brott svöruðu þeir, — ef viö
náum ekki sambandi við flokks-
forystuna eftir einn tima þá
biðum við bara. Þeir biðu i 50
tima. Hversu lengi blöur pólska
þjóðin?
Laus staða
Staða biíreiðaeftirlitsmanns við Bifreiða-
eftirlit rikisins i Vestmannaeyjum er laus
til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsókin berist Bifreiðaeftirliti rikisins,
Bildshöfða 8, fyrir 10. febrúar n.k. á þar til
gerðum eyðublööum, sem stofnunin lætur
i té.
Reykjavik, 29. janúar 1982.
Bifreiöaeftiriit rikisins.
Fulltrúi
Orkustofnun óskar að ráða fulltrúa við
Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóð-
anna.
Góð enskukunnátta og vélritunarkunnátta
nauðsynleg.
Háskólamenntun á sviði jarðvisinda eða
verkfræði æskileg.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður
Jarðhitaskólans i sima 83600.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf berist Orkustofnun fyrir 10.
febrúar.
Kvennaframboð
Stofnfundur Samtaka um
kvennaframboð verður haldinn
á morgun sunnudag
að Hótel Borg kl. 15
Ritarastarf
Óskum eftir að ráða ritara til starfa sem
fyrst.
Góð kunnátta i vélritun svo og ensku,
þýsku og norðuriandamáli nauðsynieg.
Umsóknareyðubiöð liggja frammi hjá
starfsmannastjóra, er veitir nánari upp-
lýsingar.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉLAGA
STAKFSMANNAHA10
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i lögn Elliðavogsæðar,
þriðja áfanga fyrir Hitaveitu Reykjavik-
ur.
Útboðsgögn eru afhent að skrifstofu vorri
að Frikirkjuvegi 3, gegn 1500 kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað mið-
vikudaginn 17. febrúar n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKiAVÍKURBORGAR
Fnkirkjuvegi 3 — Sími 2S800