Þjóðviljinn - 30.01.1982, Síða 25
Helgin 30.—31. janiiar 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 25
um hclgrina
Cr sýningu Alþýðuleikhússins á „Þjóöhátíð”. Frá hægri á myndinni
eru: Karl Agúst (Jlfsson, Edda Björgvinsdóttir, Karl Guðmundsson,
Edda Ilólm og Viðar Eggertsson.
Fjallar ,,Þjóðhátíð” um hernámið?
„Fjallar sýningin um
hernámið og þá hvernig?”
Þetta verður umræðuefnið á
eftir sýningu á leikriti Guð-
mundar Steinssonar, „Þjóð-
hátið” sem Alþýðuleikhúsið
sýnir i dag, laugardag, kl. 20.30.
Leikstjóri er Kristbjörg Kjeld
og mun hún ásamt höfundi sitja
fyrir svörum i kvöld.
Síðdegissýning á Kisuleik
A sunnudaginn kemur, 31. janúar, verður siðdegissýning á Kisu-
leikeftirungverskaskáldiðlstvánörkény,á litla sviöinu i Þjóðleik-
húsinu. Sýningin hefur vakið mikla athygli og hlotið lof gagnrýn-
enda og hefur jafnan verið uppselt á kvöldsýningarnar. Hefur þvi
verið ákveðið að bjóða einnig upp á siðdegissýningu og verður hún
kl. 16 á sunnudag.
Brún í Bæjarsveit:
Músagildran á
laugardagskvöld
Nýlega frumsýndi
Ungmennafélagið Islendingur i
Andakilshreppi sakamálaleik-
ritið „Músagildruna” eftir
Agöthu Christie i leikstjórn
Ragnhildar Steingrimsdóttur.
Músagildran er fjórða verkefni
Ungmennafélags Islendinga á
þeim sex árum sem liðinerufrá
þvi það hóf leiksýningar. Eins
og áður er leikurinn sýndur i
félagsheimilinu Brún i Bæjar-
Leikendur I Músagildrunni
ásamt lcikstjóranum, Ragnhildi
Steingrimsdóttur, sem er lengst
til hægri. Einnig er á myndinni
harðsnúið lið tæknimanna sem
starfar að tjaldabaki.
„Leynimelur”
í Freyvangi
Ungmennafélagið Árroðinn
og Leikfélag öngulsstaðahrepps
frumsýna ærslaleikinn „Leyni-
mel 13" eftir „Þridrang”, I
Freyvangi Eyjafirði n.k. sunnu-
dagskvöld 31. janúar.
Leikstjóri þessarar uppfærslu
er Theodór Júliusson, sem nú
starfar sem leikari hjá Leikfé-
lagi Akureyrar. Leikmyndina
málaði Óttar Björnsson. „Þri-
drangur" mun vera höfundar-
heiti Haraldar A. Sigurðssonar,
Emils Thoroddsens og Indriða
Waage.
Leifur Guðmundsson leikur
húsráðandann Madsen, en aðrir
leikendur eru: Jónsteinn Aðal-
steinsson, Guðfinna Nývarðs-
dóttir, Birgir Jónsson, Maria
Haraldsdóttir, Valgerður Schi-
öth, Vala Björk Harðardóttir,
Ólafur Theodórsson, Kristinn
Björnsson, Rósa Arnadóttir,
Kristján Jónasson, Anna Ring-
sted og Stefán Árnason.
Næstu sýningar á Leynimeln-
um verða væntanlega i Frey-
vangi um aðra helgi.
sveit, og verður næsta sýning á
laugardagskvöld, 30. janúar og
hefst kl. 21.
Alls fara 8 leikendur með
hlutverk i Músagiidrunni, bæði
innansviðs og utan. Músa-
gildran er eitt kunnasta verk
Agöthu Christie og hefur viða
komið á sviö. Leikurinn byggist
á lausn morðgátu sem auðvitað
leysist á óvæntan hátt undir
lokin. Næstu sýningar verða i
kvöld, laugardag, þriöjudag 2.
febrúar og fimmtudag 4.
febrúar. Formaður Ungmenna-
félagsins er Rikarð Brynjólfs-
son.
Eggert Magnússon
Gos,blóð og eldur í Djúpi
Eggert Magnússon opnar I
dag málverkasýningu I Djúpinu
og eru 44 olimálverk á sýning-
unni. Sum um Heklu og einnig
stórt málverk um Tyrkjarániö.
Sem sagt, gos, blóð og eldur eins
og segir i fréttatilkynningu frá
listmálaranum. Þar segir enn-
fremur:
Ég hef haldiö eina sýningu
áöur, i Lindarbæ 1965, og tvær
samsýningar F.I.M. fyrir
mörgum árum.
Ég er fæddur f Reykjavik, aö
Njálsgötu 17, áriö 1915, og var
Þessi mynd er úr sýningu Leik-
brúöulands á „Hátiö dýranna”
og „Eggiðhans Kiwi", en þessir
brúðuþættir verða sýndir að
Frfkirkjuvegi 11 á sunnudag kl.
3. Miðasala er frá kl. 1, simi
15937.
móöir min Hrefna Eggertsdóttir
Norödahl frá Hólmi og faöir
minn Magnús Jónsson frá
Breiöholti og Engjabæ i
Reykjavik. Eggert var bóndi á
Hólmi i 94 ár. Var af ætt Rann-
veigar Skúladóttur
Magnússonar fógeta. Hann var
skáld gott, og um Heklu orti
hann þessa visu,
Skyggnan hjálm á liöfði bcr,
hristi margt til baga.
ösku og vikri upp úr sér
eys um græna haga.
Logagandur leiftri spjó
um lög og þurrar grundir.
Sjálfur fjandinn fyrrum bjó
fótum hennarundir.
Kona Eggerts á Hólmi var
Valgeröur Guömundsdóttir frá
Miödal, en þaöan er margt
ágætt listafólk. Ot af þvi fólki er
komin Vigdis Finnbogadóttir,
forseti tslands, frænka min, og
hefur hún nafn af Vigdisi
Eiriksdóttur i Miðdal sem varð
eitthundraö og eins árs.
Ég er til heimilis aö Bjargi
v/Nesveg og hefi málaö i
fristundum minum. Var fyrrum
sjómaöur eins og Kjarval og
hefi reynt aö bjóöa öröugleikun-
um byrginn og held aö þaö sé
engin Paradis á jöröu.
FORVAL
Alþýðubandalagsins í Reykjavík
Síðari umferð forvals Alþýðubandalagsins
í Reykjavík um skipan framboðslista
vorið 1982 hófst í gær
Kosið í dag, laugardag,
að Grettisgötu 3, kl. 2 kl. 10-23.
Atkvæðisrétt
í forvalinu hafa allir
f lokksbundnir Alþýðu-
bandalagsmenn sem bú-
settir eru í Reykjavik.
Stuðningsmenn Alþýðu-
bandalagsins geta gengið
i flokkinn á kjördag
Ráðlegging
Sýnishorn af atkvæða-
seðli. Merkið á sýnishorn-
ið eins og þér hyggist
kjósa. Hafið það með á
k jörstað og stuðlið
þannig að greiðari kosn-
ingu.
Opið hús
verður í risinu á Grettis-
götu 3 frá kl. 21 laugar-
daginn 30. janúar og
verður opið þar til úrslit
forvalsins liggja fyrir.
Umsjón með opna húsinu
hefur 111. deild félagsins.
Mega gestir búast við
Ijúffengu bakkelsi og
rjúkandi kaffi.
Rétt til þátttöku
hafa allir félagsmenn í
Alþýðubandalaginu í
Reykjavík, sem ekki
skulda meira en eitt
gjaldfalliðárgjaldog þeir
nýir félagar, sem ganga í
félagið í síðasta lagi á
kjördag, enda greiði þeir
1/2 árgjald til félagsins
við inngöngu.
Gangið í
Alþýðubandalagið
og hafið áhrif
Stjórn Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík hvetur
óf lokksbundna stuðnings-
menn í Reykjavík að
ganga i félagið og taka
þátt i síðari umferð for-
vals félagsins um skipan
f ramboðslista við borgar-
stjórnarkosningarnar
vorið 1982.
Kosning fer
þannig fram
að kjósandi ritar tölurnar
1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, og 10
við nöfn á listanum eins
og hann óskar að mönn-
um verði raðað á fram-
boðslista vegna borgar-
stjórnarkosninga.
Stuðlum að áfram- I Styrkjum stöðu vinstri I Gahgið í Alþýðubandalagið
haldandi uppbyggingu I aflanna í stjórn I í Reykjavik og hafið áhrif á
í Reykjavík! ■ Reykjavíkurborgar! I stjórn Reykjavíkurborgar!
*